Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2013, Page 28
*Matur og drykkir Dýrindisréttir eru reiddir fram í Lónkoti í Skagafirði þar sem Pálína Jónsdóttir ræður ríkjum »32
B
jörgvin Mýrdal hefur starfað sem mat-
reiðslumaður frá því hann útskrifaðist
sem slíkur vorið 1999. Hann hóf feril
sinn í Perlunni en starfar í dag sem
yfirkokkur á CAVA. Staðurinn var nýverið
opnaður í kjallaranum á Laugavegi 28, en
hann sérhæfir sig í mexíkóskum réttum og
víni. „Maturinn sem við bjóðum upp á er í
fínni kantinum en á góðu verði. Við sjáum að
fínu veitingahúsin eru að breytast og stemn-
ingin skiptir miklu máli í dag. Við einblínum
svolítið á að þetta sé partístaður. Við leggjum
mikið upp úr hönnun og tónlist og svo er
maturinn í partístíl þar sem fólk deilir matn-
um til að skapa smástemningu á borðinu,“
segir Björgvin.
Björgvin hefur ekki alltaf haft áhuga á elda-
mennsku og segir hreina tilviljun hafa ráðið
því að hann ákvað að leggja fagið fyrir sig.
Hann hóf feril sinn af krafti þegar hann vann
keppnina matreiðslumaður ársins árið 2000 og
er í dag einn af eigendum Bocuse d’Or-
akademíu Íslands, sem velur keppanda til að
fara fyrir Íslands hönd ár hvert til Frakklands
að keppa í þessu óopinbera heimsmeistaramóti
í matreiðslu. „Rétt eins og hjá flestum sem
leggja matreiðslu fyrir sig var áhuginn fljótur
að koma eftir að ég byrjaði. Þetta er fag sem
maður getur sökkt sér í og maður verður í
raun og veru aldrei fullnuma. Ég keppti mikið
áður fyrr og þegar ég vann matreiðslumann
ársins var ég sá yngsti sem hefur unnið og
held því meti enn þann dag í dag. Yfirkokk-
urinn í Perlunni var sá fyrsti frá Íslandi sem
keppti í Bocuse d’Or og ég fór með honum
sem aðstoðarmaður þá. Ég keppti svo sjálfur
á mótinu í janúar 2003 en ég hef einnig tekið
þátt í Norðurlandakeppnum svo maður hefur
komið víða við,“ segir Björgvin.Morgunblaðið/Golli
ÁHUGINN VAR FLJÓTUR AÐ KOMA
Heldur enn metinu
BJÖRGVIN MÝRDAL STARFAR SEM YFIRKOKKUR Á VEITINGA-
STAÐNUM CAVA EN STAÐURINN VAR OPNAÐUR NÝVERIÐ OG
SÉRHÆFIR SIG Í MEXÍKÓSKUM RÉTTUM OG VÍNI. BJÖRGVIN
VAR VALINN MATREIÐSLUMAÐUR ÁRSINS ÁRIÐ 2000 OG VAR
ÞÁ SÁ YNGSTI TIL AÐ VINNA KEPPNINA.
Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is
Björgvin hóf feril sinn af krafti og vann keppnina mat-
reiðslumaður ársins. Í dag er hann einn af eigendum
Bocuse d’Or-akademíu Íslands.
Uppskrift miðast við fjóra
Pico de gallo (Ferskt salsa)
8 tómatar (skornir í litla teninga)
1 rauðlaukur (saxaður)
1 rautt chili (fræhreinsað og fínsaxað)
20 g ferskt kóríander (grófsaxað)
safi úr einu lime
smáklípa af sjávarsalti.
Geitaostskrem
Hvítur geitaostur er
velgdur upp ásamt
skvettu af mjólk og
léttþeyttur með
pískara þar til hann er
orðinn mjúkur og kre-
maður.
Kjúklingur og fleira
300 g maribuostur (rifinn)
3 kjúklingabringur (kryddaðar með
salti og pipar). Grillaðar eða pönn-
usteiktar. Fínskornar.
4 stk. hveitikökur (tortillas) (ca. 10-
12")
100 g kalt smjör til steikingar.
Aðferð: Smyrjið geitaostskreminu á aðra
hliðina á hveitikökunum.
Stráið síðan kjúklingi, rifnum osti og pico de
gallo yfir og brjótið saman hverja köku í hálf-
mána. Steikið á hvorri hlið þar til gullinbrúnt
og stökkt. Skerið í sneiðar og berið fram. Bor-
ið fram með pico de gallo, guacamole og sýrð-
um rjóma.
Quesadilla með geitaosti og kjúklingi