Morgunblaðið - 06.09.2013, Side 43

Morgunblaðið - 06.09.2013, Side 43
hjá Flugfélagi Norðurlands (FN). Á þeim tíma fékk hann leyfi fyrir hönd FN að starfrækja Fríhöfn á Akureyrarflugvelli í tengslum við millilandaflug þaðan. Sú fríhöfn er enn í fullum rekstri og dafnar vel. Flugfélag Norðurlands festi kaup á innanlandsdeild Flugleiða 1997 og úr varð Flugfélag Íslands. Friðrik varð þá deildarstjóri leigu- flugsdeildar, með aðsetur á Ak- ureyri. Með reksturinn á Grænlandi Árið 2008 ákvað Flugfélag Ís- lands að selja flugreksturinn sem gerður var út frá Akureyri, en það voru tvær Twin Otter-flugvélar og húsakynni. Friðrik fékk þá til liðs við sig nokkra öfluga fjárfesta, keypti reksturinn 2008. og stofnaði Norlandair, sem er að mestu leyti með rekstur sinn á Grænlandi, ásamt áætlunar- og sjúkraflugi og starfrækir nú fjórar flugvélar: „Uppbygging á Grænlandi hefur orðið sífellt örari á undanförnum árum, í ferðamennsku og margs konar atvinnustarfssemi. Það er því mjög spennandi að fylgjast með þeirri þróun og fá að taka þátt í henni,“ segir Friðrik. Friðrik átti einnig þátt í stofnun Arctic Maintenance sem hefur séð um viðhald flugvéla félagsins og annarra véla. Friðrik sat í stjórn Versl- unarmannfélags Ísafjarðar um skeið og var félagi í JC á Ísafirði. Eftir að hann flutti til Akureyrar sat hann í stjórn Skíðaráðs Ak- ureyrar og í aðalnefnd Andrésar andar-leikanna í 25 ár, sat í stjórn knattspyrnudeildar Þórs og síðar í aðalstjórn Þórs. Hann sat í stjórn Round Table og tók mikinn þátt í erlendu samstarfi hreyfingarinnar. Fjölskylda Eiginkona Friðriks er Kolbrún Stefánsdóttir, f. 18.1. 1954, þjón- ustufulltrúi við Landsbankann. Foreldrar hennar voru Stefáns Að- alsteinsson, f. 17.8. 1919, d. 1.3. 1996, fláningsmaður hjá KEA, og k.h., Jónína Guðmundsdóttir, f 29.9. 1923, d. 25.3. 2008, húsfreyja. Börn Friðriks og Kolbrúnar eru Arnar Friðriksson, f. 2.7. 1974, tölvunarfræðingur og sölu- og markaðstjóri Norlandair en kona hans er Linda Aðalsteinsdóttir, f. 17.12. 1973 og eru börn þeirra Tinna Arnarsdóttir, f. 19.5. 1999, Bjarki Arnarsson, f. 29.7. 2002, og Emma Arnarsdóttir, f. 16.7. 2007; Rúnar Friðriksson, f. 3.8 1979, við- skiptafræðingur hjá Straumi Fjár- festingarbanka en kona hans er Ásta Reynisdóttir, f. 9.3. 1977 og eru synir þeirra Pétur Rúnarsson, f. 18.8. 2009, og Kári Rúnarsson, f. 6.4. 2011, en áður átti Rúnar Mary Lind Rúnarsdóttur, f. 4.5. 2001; Harpa Friðriksdóttir, f. 5.4. 1984, MA-nemi við HA en maður hennar er Dýri Bjarnar Hreiðarsson, f. 22.3. 1982, húsasmiður og eru börn þeirra Friðrik Bjarnar Dýrason, f. 8.8. 2008, og Ragnheiður Birta Dýradóttir, f. 10.6. 2011; Hildur Friðriksdóttir, f. 5.4. 1984, hár- greiðslumeistari en maður hennar er Árni Freyr Árnason, f. 1.3. 1983, verslunarmaður og eru börn þeirra Júlíana Árnadóttir, f. 27.12. 2007, og Erik Árnason, f. 19.10. 2010. Bræður Friðriks eru Ingimar Adólfsson, f. 1.12. 1944, eft- irlaunamaður, búsettur í Svíþjóð, og Reynir Adólfsson, f. 25.6. 1948, athafnamaður, búsettur í Kópa- vogi. Foreldrar Friðriks voru Adolf Ingimarsson, f. 14.3. 1914, d. 2.11. 1982, verkstjóri á Akureyri, frá Uppsölum í Eyjafjarðarsveit, og Jóna Sigríður Jónsdóttir, f 20.5. 1920, d. 29.4. 2012, iðnverkakona, frá Goðdölum í Skagafirði. Úr frændgarði Friðriks Adolfssonar Friðrik Adolfsson Anna Guðrún Níelsdóttir vinnuk. í Dunhagak. í Hörgárd. Friðrika Guðný Sigtryggsdóttir húsfr. í Goðdölum Jón Halldórsson b. í Goðdölum í Vesturdal Jóna Sigríður Jónsdóttir húsfr. á Akureyri Ingibjörg Jónsdóttir húsfr. á Ípishóli Halldór Gíslason b. á Ípishóli Sigriður Ólafsdóttir húsfr. á Kerhóli Kristján Vilhelm Jónsson b. á Kerhóli í Sölvadal María Kristjánsdóttir húsfr. á Akureyri Ingimar Jónsson iðnverkam. á Akureyri Adólf Ingimarsson verkstjóri á Akureyri Ingibjörg Ása Jónsdóttir húsfr. á Grýtu Jón Jónsson b. á Grýtu í Eyjafirði Jón Kr. Hólm Ingimarsson form. Iðju Ingimar Jónsson námsstj. í Rvík Bríet Héðinsd. leikkona Steinunn Ó Þorst.d. leikkona Sigtryggur Jörundsson útvegsb. í Hrísey Svanhildur Jörundsd. húsfr. í Hrísey Gestur Pálsson leikari Hreinn Pálsson forstj. BP Guðrún Pálsd. söngk. í Rvík Saga Geirdal Jónsdóttir leikkona. ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013 Sigurveig fæddist í Hafnarfirði6.9. 1909 og ólst þar upp. For-eldrar hennar voru Guð- mundur Hjaltason, alþýðufræðari og farkennari, og k.h., Hólmfríður Mar- grét Björnsdóttir. Guðmundur skrif- aði nokkrar bækur, þar á meðal ævi- sögu sína. Hann var sonur Borgfirðinganna Hjalta Hjaltasonar og Kristínar Jónsdóttur. Hólmfríður var dóttir Björns Einarssonar og Sólveigar Magnúsdóttur í Haganesi í Fljótum. Um hana skrifaði El- ínborg Lárusdóttir ævisöguna Tvennir tímar. Sigurveig giftist Sæmundi L. Jó- hannessyni, skipstjóra og síðar starfsmanni Áburðarverksmiðj- unnar í Gufunesi, og eignuðust þau sjö börn: Jóhannes, f. 1940, d. 1983, íþróttakennara við MR; Guðrúnu, f. 1942, skrifstofustjóra; Margréti, f. 1943, leikskólakennara og fulltrúa; Gullveigu, f. 1945, lengi ritstjóra; Hjalta, f. 1947, loftskeytamann og aðalvarðstjóra hjá Landhelgisgæsl- unni; Loga. f. 1949, verkstjóra, og Frosta f. 1953, prentara. Sigurveig gekk í Flensborgarskól- ann og Kvennaskólann í Reykjavík og tók kennarapróf frá KÍ 1933. Sigurveig var kennari við Landa- kotsskólann í Reykjavík 1933-41, kenndi um skeið á Patreksfirði og síðar við Barnaskóla Hafnarfjarðar 1957-77. Hún sat í stjórn Kvenrétt- indafélags Ísland og var formaður þess, var formaður orlofsnefndar húsmæðra í Hafnarfirði, stofnandi Bandalags kvenna í Hafnarfirði og formaður þess, formaður Félags kaþólskra leikmanna, sat í flokks- ráði Sjálfstæðisflokksins, skipaði heiðurssæti Kvennalistans í Hafn- arfirði við bæjarstjórnarkosning- arnar 1986 og 1994, sat í stjórnum slysavarnadeildanna á Patreksfirði og í Hafnarfirði og var heiðursfélagi Kvenréttindafélags Íslands. Sigurveig skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit, tók saman bækling um heilaga Barböru, rit um Landa- kotskirkju og flutt útvarpserindi. Ævisaga Sigurveigar, Þegar sálin fer á kreik, skráð af Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur, kom út 1992. Sigurveig lést 12.4. 2010. Merkir Íslendingar Sigurveig Guðmundsdóttir 90 ára Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Jóhanna Guðjónsdóttir Sigurveig Benediktsdóttir 85 ára Einar Þorvarðarson Jórunn Helgadóttir Regína Guðlaugsdóttir 80 ára Gréta Jónsdóttir Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir Kristinn Hólmgeir Bergsson Magnús Jónsson Vildís Garðarsdóttir 75 ára Lonni Jensine Egilsson 70 ára Ingimar H. Ingimarsson Magnea Guðfinna Sigurðardóttir Ragnheiður Ásmundardóttir Sigrún Vilhjálmsdóttir 60 ára Anna Björg Sigurbjörnsdóttir Anna Guðbergsdóttir Bjarni Guðmundsson Dagrún Gröndal Helgi Sigurðsson Hrafnhildur M. Guðmundsdóttir Hugrún Ásta Elíasdóttir Jenný Ágústsdóttir Katrín Rögnvaldsdóttir Magnús Kristmannsson Pétur Magnússon Hanna Sigrún Gísladóttir Sigrún Helgadóttir Sigurbjörn Sigurðsson Sólrún Ó. Long Siguroddsdóttir Svanhvít Kjartansdóttir Valgerður Jakobsdóttir Þórhildur L. Þorkelsdóttir 50 ára Bjarni Hinriksson Guðleif Harpa Jóhannsdóttir Guðrún Bragadóttir Heiðar Gunnarsson Inga Þóra Kristinsdóttir Lára Hildur Tómasdóttir Linda Björk Jósefsdóttir Magnús Björn Ásgrímsson Ragnheiður E. Samúelsdóttir Sigurður Bergmann Jónasson Sverrir Ólafsson 40 ára Hjalti Freyr Kristinsson Kjartan Sigurður Þorsteinsson Lárus Dagur Pálsson Saulius Zajauskas 30 ára Erla Jónasdóttir Eygló Árnadóttir Hafdís Ólafsdóttir Halldóra Rut Baldursdóttir Hertha Richardt Úlfarsdóttir Karen Magnúsdóttir Margrét Sigurðardóttir Níels Guðmundsson Sigurður Helgi Þorgeirsson Thomas Daehling Til hamingju með daginn 30 ára Helga ólst upp í Keflavík og er húsmóðir í Reykjanesbæ. Maki: Kristján Karl Mee- kosha, f. 1982, starfs- maður við flugvallaþjón- ustu ISAVI. Börn: Ljósbrá Lilja, f. 2003; Andrea Björg, f. 2005; Magnús Helgi, f. 2009; Kristvina Ýr, f. 2011; Hreiðar Örn, f. 2011. Foreldrar: Hreiðar Árna- son, f. 1953, og Agatha Ásta Eyjólfsdóttir, f. 1960. Helga Árný Hreiðarsdóttir 30 ára Bjarni ólst upp í Eyjum og er verkstjóri hjá Gotthaab í Nöf. Maki: Arna Hrund Bald- ursdóttir Bjartmars, f. 1988, nemi í hjúkr- unarfræði. Sonur: Einar Bent, f. 2009. Foreldrar: Einar Bjarna- son, f. 1956, skrifstofu- rstjóri og eigandi Gott- haab í Nöf, og Ester Ólafsdóttir, f. 1956, fisk- vinnslukona. Bjarni Rúnar Einarsson 40 ára Eva er frá Lauga- landi í Borgarfirði og starfar hjá Jökulsárlóni á Höfn í Hornafirði. Maki: Einar Björn Ein- arsson, f. 1965, fram- kvæmdastj. Jökulsárlóns. Börn: Ragnar Á. Sum- arliðason, f. 2001, og Ein- ar B. Einarsson, f. 2011. Foreldrar: Hafdís Auður Magnúsdóttir, f. 1950, og Ragnar Jóhannesson, f. 1948. Þau búa í Borg- arnesi. Eva Sveinbjörg Ragnarsdóttir mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Skotbómulyftarar mest seldi skotbómulyftarinn 2012 Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is Lyftigeta 2.5 til 12 tonn Fáanlegir með • Vinnukörfum • Skekkingju á bómu • Bómu með lengd allt að 18 metrum • Roto útfærsla með bómu allt að 25 metrum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.