Morgunblaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.09.2013, Blaðsíða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég er búin að ganga með þessa hugmynd nokkuð lengi í maganum,“ segir Salka Guðmundsdóttir, höf- undur leikritsins Hættuför í Hul- iðsdal sem frum- sýnt verður Kúlunni í Þjóð- leikhúsinu sunnu- daginn 8. sept- ember kl. 16. Leikstjóri sýn- ingarinnar er Harpa Arn- ardóttir, en það er leikhópurinn Soðið svið sem setur sýninguna í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Að sögn Sölku eru nokkur ár síð- an aðalpersóna verksins, hin hug- myndaríka en einmana Eyja, kom til hennar. „Eyja er mikill myndasögu- aðdáandi og dreymir um að vera meiri ofurhetja en hún heldur að hún sé,“ segir Salka. Í verkinu er Eyja nýlega flutt í gamalt hrörlegt og draugalegt hús úti í sveit. „Eyja kann ekkert voðalega vel við sig á nýja staðnum og þekkir enga krakka í sveitinni. Svo fara að gerast mjög dularfullir hlutir í herberginu henn- ar og m.a. opnast hlið inn í magn- aðan töfraheim, þ.e. Huliðsdal. Það- an kemur stórhættuleg og illskeytt álfkona sem heitir Bryngerður og rænir afa Eyju, þannig að hún þarf að fara í björgunarleiðangur inn í Huliðsdal,“ segir Salka og tekur fram að í Huliðsdal hitti Eyja fyrir alls kyns furðuverur og þarf því að finna hjá sér bæði hugrekki og út- sjónarsemi svo henni takist að bjarga afa áður en hliðið lokast á ný. Aðspurð segir Salka sýninguna ætl- aða börnum frá sex ára aldri og upp úr, en ekki síst ævintýrafólki á öllum aldri. „Við miðum við yngri bekki grunnskólans, því þau ráða við að- eins flóknari söguþráð en þau allra yngstu. Það hefur mikið verið gert af skemmtilegu leikhúsi fyrir yngri krakka á síðustu árum og m.a. verið öflugt starf í Kúlunni í Þjóðleikhús- inu. En það hefur svolítið vantað fyr- ir aðeins eldri aldurshóp,“ segir Salka og tekur fram að leikhópurinn sé mjög áhugasamur um barna- menningu. „Við eigum sjálf góðar endurminningar af flottum og skemmtilegum barnasýningum þeg- ar við vorum á grunnskólaaldri, en á þessum aldri er maður svo opinn og móttækilegur fyrir hlutunum.“ Skapa sinn eigin heim Hættuför í Huliðsdal er þriðja uppfærsla leikhópsins Soðið svið, en öll verkin eru skrifuð af Sölku. Fyrsta uppfærsla hópsins Súld- arsker sem frumsýnd var í árs- byrjun 2011 fékk mjög góðar við- tökur og var tilnefnd til tvennra Grímuverðlauna. Fyrr á þessu ári var verkið Breaker sýnt á áströlsku sviðslistahátíðinni Adelaide Fringe, en uppfærslan var samstarfsverk- efni Sölku og skoska leikstjórans Graemes Maleys. „Þegar við stofnuðum Soðið svið á sínum tíma lögðum við upp með að leggja áherslu á nýsköpun á nýjum leikritum. Við köllum okkur leikglatt leikhús. Við höfum mjög gaman að því að leika okkur með leik- húsformið og leika okkur á sviðinu. Og ég held að það smitist út í allt sem við gerum. Þannig ræddum við það oft að skilgreina mætti Súld- arsker sem barnaleikrit fyrir full- orðna. Núna veltum við því óneit- anlega fyrir okkur hvort við séum að gera fullorðinsleikrit fyrir börn.“ Umkringd hæfileikafólki Hópurinn sem stendur að Hættu- för í Huliðsdal er að meginuppistöðu til sá sami og setti upp Súldarsker. Þannig er leikstjórn, sem fyrr sagði, í höndum Hörpu Arnardóttur. Leik- mynd hannar Brynja Björnsdóttir, búninga hannar Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, lýsingu hannar Egill Ingibergsson og um tónlist sér Ólaf- ur Björn Ólafsson. Leikhópinn skipa leikkonurnar Aðalbjörg Árnadóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir, sem léku í Súldarskeri á sínum tíma, og leikararnir Hannes Óli Ágústsson og Guðmundur Ólafsson. „Það er frábært og ótrúlega gagnlegt að vinna með sama hópnum sýningu eftir sýningu. Bæði lærum við sem listamenn inn á hvert annað og svo finnur hópurinn sem heild sínar leið- ir og lausnir sem er mjög skemmti- legt. Kannski má segja að við sem hópur höfum skapað okkar eigin heim, sem er spennandi.“ Spurð hvernig sé að vinna sýningu með föður sínum, þ.e. Guðmundi Ólafssyni, segir Salka það afar ánægjulegt. „Raunar má segja að þetta sé mikil fjölskyldupródúksjón. Auk okkar pabba, eru Maríanna Clara og Ólafur Björn par sem og Hannes Óli og Aðalbjörg. Þannig að við leitum ekki langt yfir skammt og kannski ekki þörf á því þegar við er- um umkringd hæfileikafólki.“ Þess má að lokum geta að sýn- ingin, sem er um 70 mínútur að lengd og leikin án hlés, verður að- eins sýnd í Kúlunni út september sem helgast af því að Hannes og Að- albjörg eru bundin í öðrum verk- efnum hjá Leikfélagi Akureyrar þar sem þau starfa. Ljósmynd/Hulda Sif Ásmundsdóttir Töfraheimur Hannes Óli Ágústsson, Aðalbjörg Árnadóttir og Guðmundur Ólafsson í hlutverkum sínum. „Leikglatt leikhús“  Leikhópurinn Soðið svið frumsýnir Hættuför í Huliðsdal í Kúlunni í samstarfi við Þjóðleikhúsið nk. sunnudag kl. 16 Salka Guðmundsdóttir The MJ Experience nefnist dans- og söngvasýning sem haldin verður í Hörpu 20. og 21. september nk. og rennur hluti ágóða af miðasölu til SKB, Styrktarfélags krabbameins- sjúkra barna. Sýningin er byggð á listsköpun Michaels heitins Jack- sons, tónlist og dansi og verða helstu smellir hans fluttir, lög á borð við „Billie Jean“, „Beat it“, „Thriller“, „Black or White“ og „Smooth Criminal“. Danshöfundur sýningarinnar er Helga Ásta Ólafs- dóttir sem kennd er við danshópinn Rebel sem marg- ir kannast við úr þáttum RÚV, Dans, dans, dans. Alan Jones, jafn- an nefndur Mich- ael Jackson Ís- lands, bregður sér í hlutverk poppgoðsins, studdur af sjö manna hljóm- sveit, fjórum bakröddum og tíu dönsurum. Jackson-sýning í Hörpu Jackson á umslagi plötunnar Thriller. Kringlunni 4 Sími 568 4900 Mikið úrval af buxum G.S. Akureyri • Jón og Gunna Ísafirði • Motivo Selfossi • Siglósport Siglufirði • Paloma Grindavík • Heimahornið Stykkishólmi • Garðarshólma Húsavík • Pex Reyðarfirði • Bjarg Akranesi Gallabuxur verð aðeins 14.990 kr. LE N A M A X O N G U SS I SW E E TC O R N

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.