Morgunblaðið - 06.09.2013, Page 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2013
Tónlistin úr söngleiknum Mary
Poppins í uppsetningu Borgarleik-
hússins hefur verið gefin út á geisla-
diski. Tónlistarstjóri er Agnar Már
Magnússon, en meðal velþekktra
laga sem á diskinum hljóma eru:
„Súperkallífragilistikexpíallídós-
um“, „Sléttfull matskeið af sykri“ og
„Þokkalega pottþétt“.
Söngleikurinn um Mary Poppins í
leikstjórn Bergs Þór Ingólfssonar
var frumsýndur í febrúar á þessu ári
og sýndur 60 sinnum fyrir fullu húsi
fram á vor. Sýningin hlaut góðar við-
tökur og var tilnefnd til átta Grímu-
verðlauna, m.a. sem sýning ársins.
Mary Poppins snýr aftur á Stóra
svið Borgarleikhússins í vetur og
verður fyrsta sýningin í kvöld. Sem
fyrr fer með Jóhanna Vigdís Arnar-
dóttir með hlutverk barnfóstrunnar
ráðagóðu og Guðjón Davíð Karlsson
leikur sótarann Bert. Í öðrum hlut-
verkum eru m.a. Áslaug Lárus-
dóttir, Rán Ragnarsdóttir, Grettir
Valsson, Patrekur Thor Herberts-
son, Halldór Gylfason, Esther Talía
Casey, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Sigurður Þór Óskarsson, Álfrún
Helga Örnólfsdóttir, Lovísa Ósk
Gunnarsdóttir, Hanna María Karls-
dóttir, Theodór Júlíusson, Hallgrím-
ur Ólafsson, Margrét Eir, Sigríður
Eyrún Friðriksdóttir, Þórir Sæ-
mundsson, Jóhann Sigurðsson og
Orri Huginn Ágústsson.
Barnfóstran Jóhanna Vigdís Arnardóttir fer með hlutverk Mary Poppins í
uppsetningu Borgarleikhússins sem tekin verður aftur til sýningar í kvöld.
Mary Poppins snýr aftur á svið og disk
Söngkonan Ragnheiður Gröndal
kemur fram á Heimstónlistarklúbbi
Café Haiti í kvöld kl. 21.30. Heims-
tónlistarklúbburinn var stofnaður í
ársbyrjun 2013 og er styrktur af
Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg.
Markmið klúbbsins er að bjóða upp
á fjölbreytta tónlist frá ýmsum
heimshornum. Á tónleikum kvölds-
ins gefst áhorfendum tækifæri á að
hlýða á heimstónlistarbræðing
söngkonunnar Ragnheiðar Grön-
dal. Með henni leika Haukur Grön-
dal á blásturshljóðfæri, Guðmund-
ur Pétursson á gítar og hljóðgervla
og Birgir Baldursson á slagverk.
Söngstjarna Ragnheiður Gröndal og
félagar leika á Café Haiti í kvöld.
Heimstónlist
á Café Haiti
Tvær sýningar verða opnaðar í
Listasafni Íslands í kvöld, föstudag,
klukkan 20. Önnur er á verkum hol-
lenska listamannsins Kees Visser
og nefnist Ups and Downs. Hin
kemur frá Þýskalandi og nefnist
Leiðangur / Passage 2011.
Á áttunda og níunda áratugnum
var Kees Visser búsettur hér á
landi og virkur og athyglisverður
þáttakandi í þróun íslenskrar
myndlistar, þegar strauma hug-
myndlistar og póstmódernisma
gætti hvað mest. Yfirveguð og
marksækin nálgun hans hefur að
undanförnu aflað honum mikils
álits í evrópskri list, þar sem hann
er álitinn einn af eftirtektarverð-
ustu fulltrúum geómetrískrar og
hugmyndalegrar aðferðafræði. Á
sýningunni er sjónum einkum beint
að verkum sem Visser vann hér, allt
frá því hann skapaði á Varmalandi
árið 1978 bókverk þar sem hann
fléttaði saman síðum úr bókum á
hollensku og íslensku. Verkin eru
af ýmsut toga; til að mynda ljós-
myndir, málverk, skúlptúrar og
grafíksería unnin út frá verkum
eftir Einar Jónsson myndhöggvara.
Hin sýningin, Leiðangur/
Passage 2011, fjallar um það þegar
þýsku listamennirnir Thomas Hu-
ber og Wolfgang Aichner drógu
rauðan bát yfir ríflega þrjú þúsund
metra hátt fjallaskarð í Ölpunum
og stefndu á Feneyjatvíæringinn.
Ásamt farkostinum fylgja heimildir
um þessa raun, sem telja verður
listrænt afrek, enda vakti það sér-
staka athygli á listamönnunum á
Tvíæringnum. Verkið vekur spurn-
ingar um tengsl listar og náttúru,
átök og sigra, og samanstendur
m.a. af málverkum, ljósmyndum,
bókverkum og vídeóinnsetningu.
Sýningin er undir stjórn Christians
Schoen og er um sameiginlegt
verkefni að ræða milli Kunsthalle
Emden og Listasafns Íslands.
Kl. 14 á morgun, laugardag,
fjallar Schoen um sýninguna.
Erfiði Þýsku listamennirnir draga
rauða bátinn yfir fjöllin.
Íslandsverk Vissers
og Alpaleiðangur
Kæli- og frystiskáparnir frá Siemens eru vel hannaðir að innan sem utan.
Í innréttingunum eru stillanlegar hillur, einstaklega björt LED-lýsing og
mikið rými.
Svo að ekki þurfi að henda mat koma „crisperBox“- og „coolBox“-skúff-
urnar að góðum notum. „crisperBox“-skúffan er með rakastillingu sem
tryggir lengur ferskleika grænmetis og ávaxta. Í „coolBox“-skúffunni er
kuldinn er meiri (-2° til 3° C) en annars staðar í kælinum og eykur þar
með geymsluþol ferskra kjötvara og fisks. Í frystirými sambyggðu kæli- og
frystiskápanna eru þrjár gegnsæjar frystiskúffur, þar af ein stór
(„bigBox“).
Með því að velja skápa með „noFrost“ sleppa menn alveg við að affrysta
frystirýmið.
Kæli- og frystiskáparnir frá Siemens hafa mjög góða orkunýtni.
Þeir eru nú allir í orkuflokki A+, A++ eða A+++.
Siemens er í fararbroddi í hönnun, tækni
og nýjungum.
Smith & Norland er Siemens-umboðið á
Íslandi.
Smith & Norland sinnir varahluta- og
viðhaldsþjónustu af faglegum metnaði
á eigin verkstæði.
Kæli- og frystiskápar
frá Siemens