Akureyri


Akureyri - 17.10.2013, Blaðsíða 2

Akureyri - 17.10.2013, Blaðsíða 2
2 17. október 2013 Ný sending! Steinsmiðja Norðurlands, Glerárgata 36, S: 466 2800 Lampar frá 4.900- Hlýleg birta í skammdeginu Mikið úrval - Frábært verð Flokksformaður agndofa yfir tækni kunnáttu Vélfags Árni Páll Árnason, formaður Sam- fylkingarinnar, er á ferð um landið vegna kosninganna næsta vor. Hann heimsótti Dalvík, Ólafsfjörð og Siglufjörð í síðustu viku og segir að stefna ríkisstjórnar Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks sé mörg- um íbúanum þyrnir i augum. „Það sem stendur upp úr að lokinni þessari heimsókn er að víða er margt að gerast, mörg fyrirtæki eru að gera góða huti en aðstæður eru þungar og ég sé ekki að aðgerðir núverandi ríkisstjórnar hjálpi til eða styðji vöxt í hinum dreifðu byggðum landsins.“ „Íbúar á Norðurlandi fylgjast óttaslegnir með áformum samein- ingarhugmynda heilbrigðisstofnana. Það er skorið á sama tíma niður í rekstrarframlögum til heilbrigðis- stofnana og víðast hvar skorið niður til framhaldsskóla. Svo er verið af afnema kerfi flutningsjöfnuðar sem ég kom á sem efnahagsráðherra, það er líka slegin af uppbygging í starfs- námi sem er alvarlegt vandamál því nýliðun í iðngreinum er erfið, það er erfitt að fá ungt fólk inn í slíkar greinar.“ Þótt formaður Samfylkingarinnar segist hafa upplifað þungar áhyggjur íbúa segist hann einnig hafa fundið mjög fyrir krafti, áræðni og framsýni. Hann hafi sem dæmi orðið agndofa yfir þeirri þekkingu og hugviti sem t.d. hafi birst í vinnustaðaheimsókn til Vélfags í Ólafsfirði þar sem unnið sé að framleiðsu fiskvinnsluvéla frá grunni með öllum íhlutum. Óheppi- legt sé að nú sitji ríkisstjórn sem ekki sinni helstu hlutverkum sínum, sem séu að skerpa fókus á efnahags- legan stöðugleika, lækka vexti og efla starfsmenntun svo nokkuð sé nefnt. a Sorgleg og órök- studd gagnrýni „Ég held það sé engin ástæða til að hafa áhyggjur af þessu máli eða dæma einn né neinn. Það er ástæðulaust að hafa áhyggjur af umgjörðinni, félagið er sjálfs- eignarstofnun og að viðskipta- saga stofnaðila skipti máli get ég ekki séð,“ segir Reinhard Reyn- isson, framkvæmdastjóri Aurora Observatory. Gagnrýni hefur komið fram m.a. í aðsendri grein á fréttamiðlinum 641.is vegna fyrirætlana Heim- skautastofnunar Kína um norður- ljósarannsóknir að Kárhóli í Reykja- dal. Bæði er gagnrýnd viðskiptasaga hluta þeirra Íslendinga sem viðriðnir eru verkefnið en einnig lýsa sumir áhyggjum af styrk hins volduga rík- is Kína og mögulegum afleiðingum nálægðar landanna tveggja í þessu verkefni. Reinhard bendir á að ver- kefnið snúist um vísindasamstarf þjóðanna á grundvelli sérstaks sam- starfssamnings RANNÍS og Heim- skautastofnunar Kína. Áformin feli m.a. í sér alþjóðlegt samstarf sem sé til þess fallið að efla íslenskt vís- indasamfélag. „Ég hef heyrt að ein- hverjir óttist í hvaða áttir Kínverjar muni beina myndavélum sínum á norðurslóðarannsóknarsetrinu en get upplýst að húsið er byggt þannig að aðeins er gert ráð fyrir að beina myndavélunum beint upp til himins í gegnum glerkúpu á þakinu.“ Hann bendir á að engar athugasemdir hafi verið gerðar við norðurljósarannsóknir Japana sem hafi stundað slíkt um árabil á Tjörnesi og að hin kínverska stofnun sé m.a. í samstarfi við þá japönsku um rannsóknir á þessu sviði. „Það er sorglegt ef svona órökstudd gagn- rýni lýsir ákveðnu hugarástandi hjá þjóðinni, það er hættulegt. Ýmist er búinn til óvinur úr ESB eða núna Kína, nesjamennskan er stundum alveg að fara með okkur.“ Um það hvort staðsetning norðu- ljósaverkefnisins skipti máli segist Reinhard ekki sjá það að öðru leyti en að 4-5 Kínverjar bardúsandi í Reykjadal séu meira áberandi en sami fjöldi Kínverja á höfuðborgar- svæðinu. Almennt um gagnrýni á at- vinnuuppbyggingu og framtak utan höfuðborgarsvæðisins telur hann þó brenna við að meirihluti fólks gagnrýni síður þær framkvæmdir sem séu á höfuðborgarsvæðinu eða í grennd við það. „Það virðist sem dæmi ekki trufla landann mjög að vita ekki hverjir standi á bak við félagið sem nýverið keypti lóðina við Hörpuna, menn leggjast ekki djúpt í skoðanir á ætterni og sögu allra sem þar standa á bak við.“ a Skagfirðingar mótmæla áformum Sveitarstjórn Skagafjarðar mótmæl- ir harðlega áformum Kristjáns Þórs Júliussonar heilbrigðisráðherra um sameiningu sex heilbrigðisstofnana á Norðurlandi í eina. Í bókun segir að það framlag sem heilbrigðistofn- uninni á Sauðárkróki sé ætlað í fjárlögum fyrir árið 2014 muni þýða áframhaldandi niðurskurð og fækkun starfa og mikla þjónustu- skerðingu fyrir íbúa héraðsins. Við slíkt verði ekki unað. Sveitarstjórn skorar á heilbrigðisráðherra að endurskoða framkomnar hugmyndir og óskar formlega eftir viðræðum við ráðherra um yfirtöku stofnunarinnar og leiðir til að núverandi þjónusta skerðist ekki frekar en orðið er. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar bendir á að enginn landshluti hafi orðið jafn illa fyrir barðinu á niðurskurði í ríkisrekstri eins og Norðurland vestra, líkt og staðfest er í nýrri skýrslu Hag- fræðistofnunar Háskóla Íslands. Með því vitnar sveitarstjórn í úttekt sem birtist í Akureyri vikublaði fyrir nokkrum vikum. „Langverst hef- ur niðurskurðurinn bitnað á heil- brigðisþjónustu á svæðinu og þá ekki síst á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki. Á sama tíma hefur ársverkum ríkisstarfsmanna fjölg- að verulega á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi,“ segja Skagfirðingar.a Hörð viðbrögð vegna sameiningar heilsugæslustofnana nyrðra Bæjarráð Akureyrar ræddi á síðasta fundi sínum áform um sameiningu heilbrigðisstofnana innan heilbrigðis- umdæma. Lagt var fram erindi frá velferðarráðuneytinu varðandi áform um sameiningu heilbrigðisstofnana innan heilbrigð- isumdæma. Sveitarfélaginu er þar gefinn kostur á að tjá sig um áform um sameiningu og var óskað eftir að athugasemdir eða ábendingar bærust sem fyrst. Bæjarstjórn lét fara fram bókun vegna málsins sem veltir upp stöðu heilsugæslu og uppgjöri milli ríkis og bæjar: „Ef af sameiningaráformum verður er einsýnt að heilsugæslan mun flytjast af hendi Akureyrarbæjar til sameiginlegrar stofnunar sem rekin verður af ríki. Bæjarráð vill benda á að mikil og dýrmæt reynsla sem og ávinningur hefur orðið á samvinnu milli heilsugæsl- unnar, fjölskyldudeildar og búsetudeildar, varðandi sam- eiginleg málefni sem mikilvægt er að tapist ekki. Þá er ljóst að fjárhagslegt uppgjör þarf að eiga sér stað milli bæjarins og ríkis þegar og ef að samningslokum verður,“ segir í bókun bæjarráðs Akureyrar. VANTAR 100 MILLJÓNIR Ljóst er að læknaráð Heilsugæslustöðvarinnar á Akur- eyri leggur svipaðan skilning í fjárlög og fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar. Í ályktun frá HAK er lýst þungum áhyggjum af fjárhagsstöðu stöðvarinnar. „Ljóst er skv. fyrirliggjandi furmvarpi til fjárlaga 2014, að ekki er ætl- unin að bæta stöðuna frá því sem verið hefur undanfarin ár. Akureyrarbær, sem séð hefur um rekstur stöðvarinnar udanfarin ár skv samningi við velferðarráðuneytið, hefur þurft að greiða með stöðinni tugi milljóna árlega, saman- lagt nokkuð á annað hundrað milljónir sl. 5 ár. Ljóst er að við svo verður ekki búið, og hætt er við að Akureyrar- bær segi sig frá því verkefni að reka heilsugæslustöðina áfram,“ segir í ályktun HAK. Segir að fyrirhugaðri sameiginlegri norðlenskri heilsugæslustofnun sé ætlað að semja við Akureyrarbæ um áframhaldandi rekstur á Heilsugæslustöðinni á Ak- ureyri. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2014 vanti hátt í 100 milljónir króna til að fjárveitingar til heilsugæslustöðv- arinnar á Akureyri séu sambærilegar við fjárveitingar til heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins. a Stal söfnunarfé frá Aflinu og fékk dóm Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt konu í skilorðsbundið fangelsi eftir að hún stal peningum frá Aflinu, samtökum gegn kynferð- isofbeldi. Konan var gjaldkeri hjá félaginu en var látin hætta um leið og upp komst. Krafan í málinu hljóð- aði upp á 360.000 krónur. Brotin áttu sér stað á tímabilinu febrúar 2012 til janúar 2013. Konan millifærði fé sem Aflinu hafði borist yfir á eigin bankareikn- ing af reikningum félagsins, tók pen- inga út af reikningum og notaði í eigin þágu söfnunarfé styrktaraðila án skila til félagsins, að því er fram kom í ákæru. Hún játaði skýlaust brot sín. Í dóminum kemur fram að konan hafi greitt nokkrar skaðabætur til samtakanna. Skal konan þó sæta fangelsi í 45 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að tveimur árum liðnum frá dómsuppsögu, haldi hún almennt skilorð. a ÞINGMAÐUR SAMFYLKINGAR Í Norðausturkjördæmi, Kristján Möller og formaður flokksins, Árni Páll Árnason, með forsvarsfólki Vélfags í Ólafsfirði. ÞÓTT ILLA ÁRI í heilbrigðismálum þykir ljós í myrkrinu að hópur sérnámslækna í heimilislækningum hefur komið sér upp fyrirkomulagi sem gerir þeim kleift að stunda nám sitt fyrir norðan án þess að þurfa til Reykjavíkur. Vonir standa til þess að nýja fyrirkomulagið laði lækna til starfa úti á landi. Völundur

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.