Akureyri


Akureyri - 17.10.2013, Page 13

Akureyri - 17.10.2013, Page 13
1317. október 2013 AÐSEND GREIN BJARKEY OLSEN GUNNARSDÓTTIR Landsbyggðin og fjárlagafrumvarpið! Það er ekki ofsögum sagt að eftir fjárlagafrumvarpi nýrrar ríkis- stjórnar var beðið með mikilli eftir- væntingu. Kosningaloforðin voru á heimsmælikvarða og stjórnarflokk- unum tíðrætt um að þeir gætu og myndu gera hlutina strax og á allt annan og betri hátt en fyrri ríkis- stjórn. En þetta fyrsta frumvarp rík- isstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks boðar afturhvarf til fortíðar, grjótharða hægristefnu, og ljóst að horfið er frá árangursríkri stefnu fyrri ríkisstjórnar í ríkisfjár- málum. Það er vissulega jákvætt að leggja upp með að fjárlögin verði hallalaus en að því hefur verið stefnt síðan haustið 2011 og umfangsmiklar að- gerðir fyrri ríkisstjórnar, reyndar allt frá miðju ári 2009, hafa miðað að því. Þegar rýnt er í Ríkisfjármálaáætlun- ina er ekki gert ráð fyrir raunveru- legum afgangi af rekstri ríkissjóðs á næstu þremur árum. Svigrúm til að greiða niður skuldir ríkissjóðs verður því ekkert og enn síður hægt að hefja nauðsynlega uppbyggingu í heilbrigðisþjónustu, menntakerfinu og innviðum samfélagsins. tekjustofnar skornir Því veldur ekki síst að mikilvægir tekjustofnar sem fyrri ríkisstjórn byggði upp verða ekki lengur til staðar og núverandi ríkisstjórn sér ekki ástæðu til að bregðast við því með neinum áþreifanlegum hætti. Því að á árinu 2016 verða mun lægri veiðigjöld, virðisaukaskattur á gistinguna lægri, enginn auðleg- aðarskattur, enginn orkuskattur og bankaskattur á þrotabú, sem nú- verandi ríkisstjórn hyggst taka upp, verður horfinn aftur. Áherslur fyrri ríkisstjórnar í at- vinnumálum eru sagðar vera gælu- verkefni og er þá einkum vitnað til þeirrar markmiða að auka fjöl- breytni og nýsköpun í íslensku at- vinnulífi. Það væri áhugavert fyrir núverandi ríkisstjórn að lesa þá út- tekt sem gerð var á skapandi grein- um og sýndi svo ekki var um villst að hún stendur jafnfætis áliðnaðinum og í dag líklega betur. Landsbyggðargleraugun Sem þingmaður af landsbyggðinni og fyrrum sveitarstjórnarkona rýni ég í frumvarpið sérstaklega með landsbyggðargleraugum. Því miður verður að segjast að sú byggðastefna sem Framsóknarflokkurinn, sérstak- lega boðaði og er enn að boða á fund- um með samtökum sveitarfélaga, er ekki bara rýr heldur engin. Sóknaráætlanir landshluta Af mörgu er að taka en fyrst vil ég nefna Sóknaráætlun landshluta sem miklar vonir hafa verið bundnar við víða um land. Mikil vinna hefur far- ið í þessi verkefni af hálfu lands- hlutasamtaka, sveitarstjórnarfólks og heimamanna við að þróa þetta framsækna verkefni. Markmið henn- ar er að færa ákvörðunartöku nær heimamönnum sem þekkja best til aðstæðna á hverjum stað. Verkefn- in sem eru fjármögnuð í gegnum sóknaráætlun eru á sviði atvinnu- mála, nýsköpunar, markaðsmála og mennta- og menningarmála. Þær 400 milljónir króna sem fóru í þetta ver- kefni á þessu ári eru þurrkaðar út og einungis standa eftir 15 m. kr. sem á að nota í aðkeypta sérfræðiþjónustu til að gera úttekt á hvernig þessari vinnu skuli háttað í framtíðinni, ekki skal notast við það sem búið er að gera. Öll þessi vinna er nú sett í upp- nám og hugmyndafræðin um völd og áhrif út í landshlutana einnig. Óþarfi er að eyða mörgum orðum í hvílíkt bakslag hér er á ferðinni varðandi sóknarstefnu í byggðamálum. Að auki eru menningarsamn- ingarnir skornir niður á landsbyggð- inni en þeir hafa stuðlað að öflugra menningarlífi og í gegnum þá hefur verið hægt að styðja við ýmis góð og atvinnuskapandi verkefni. brothættar byggðir – jöfnun til búsetu Byggðastofnun fór í mikla vinnu er varðar „brothættar byggðir“ og lagði til nýja nálgun og sértækar aðgerðir. En nú ber svo við að framlagið uppá 50 m. kr. til verkefnisins er fellt nið- ur. Í okkar kjördæmi er um að ræða byggðir eins og Raufarhöfn og Breið- dalshrepp þar sem slíkur stuðningur getur skipt sköpum til að sporna við fólksfækkun og ekki síður við að reyna að laða nýtt fólk á staðina. Niðurgreiðsla húshitunar á köld- um svæðum er lækkuð um 75 m. kr. Í fjárlögum yfirstandandi árs var hækkun uppá 175 m.kr. á þessum lið og var það hugsað sem fyrsti áfangi af þremur til að koma þessum málum í viðunandi horf. Í þessu samhengi hvet ég fólk til að rifja upp málflutn- ing landsbyggðarþingmanna sem nú sitja í stjórnarmeirihluta á Alþingi. Heilbrigðis – og skólamál Eins og mikið hefur verið rætt lenda framkvæmdir við uppbyggingu heilbrigðisstofnana undir niður- skurðarhnífnum og lagðar eru til risastórar samein- ingar. Engin niðurskurðar- krafa var gerð þetta árið á heilbrigðisstofnanir af síð- ustu ríkisstjórn. Háskólarnir á lands- byggðinni lenda harkalega í niðurskurði og miklar áhyggjur eru af framtíð þeirra í ljósi þessara fjár- laga. Framhaldsskólarnir sem þurftu að taka á sig skerðingar vegna Hrunsins og áttu nú von á viðsnún- ingi miðað við það sem allir flokkar sögðu í kosningabaráttunni en eru skornir enn frekar niður. Jöfnun námskostnaðar, svonefnd- ir dreifbýlisstyrkir, eru skertir um 8,8 m. kr. Þetta virðist vera partur af byggðastefnu Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks – jafnt aðgengi til náms. Þetta er ekki til þess fallið að ungt fólk geti stundað nám án þess að hafa miklar fjárhagslegar áhyggjur og styrkja búsetu í dreifð- um byggðum. Samgöngur Ég hef miklar áhyggjur af því að framlög til innanlandsflugs á leiðum sem njóta stuðnings eru lækkaðir um 75 m. kr. Í okkar kjördæmi er um að ræða Þórshöfn, Vopnafjörð og Grímsey og ekkert liggur fyrir hvort hægt verður að halda úti flugi á þessa staði. Einnig á að draga úr stuðningi við rekstur innanlands- flugvalla sem fer um þjónustusamn- ing við ISAVIA sem gæti þýtt hækk- un á lendingargjöldum sem svo aftur lenda væntanlega á farþegum. Þrátt fyrir að töluverðar sam- gönguframkvæmdir séu í okkar kjör- dæmi er það verulegt áhyggjuefni að Vegagerðinni er nú gert að skila í ríkissjóð 1252 m. kr. af mörkuðum tekjum sínum. Við vitum að á næstu árum er brýnt að sinna viðhaldi og almennum vegaframkvæmdum og ef þetta er það sem koma skal er ljóst að taka þarf upp samgönguáætlun með tilheyrandi niðurskurði. Framkvæmdasjóður ferðamála, sem á þessu ári hafði úr að spila 500 m. kr. til viðbótar tekjum af gistináttagjaldi, er skertur um 359 m. kr. Með því verður verulegt bakslag í uppbyggingu nýrra áfangastaða og úrbótum á fjölsóttum ferðamanna- stöðum. Uppbygging í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum fær ef eitt- hvað er enn verri útreið. Og svona til að bíta höfuðið af skömminni þá er kostnaðarauki við ríkisstjórn um 23 prósent, hækkun upp á 45,7 milljónir króna, vegna fjölgunar ráðherra og aðstoðar- manna ráðherra. Það má því segja eftir það sem hér hefur verið reifað að fjárlaga- frumvarpið sé ekki landsbyggðar- vænt. Enginn metnaður er vegna landsbyggðanna þegar kemur að framtíðarsýn og stuðningi við fjöl- breytta atvinnuuppbyggingu, skap- andi greinar, nýsköpun og þróun og sóknaraðgerðir í byggðamálum. Ég vona að við þingmenn ber- um gæfu til að snúa þessari stefnu hægristjórnarinnar gagnvart lands- byggðunum við þannig að blómlegt líf og jafnrétti til búsetu verði leiðar- ljós framtíðarinnar. Höfundur er þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs – NA-kjördæmi Ég hef miklar áhyggjur af því að framlög til innan- landsflugs á leiðum sem njóta stuðnings eru lækkaðir um 75 m. kr. Í okkar kjör- dæmi er um að ræða Þórshöfn, Vopnafjörð og Grímsey. Verkefnin sem eru fjármögnuð í gegnum sóknaráætlun eru á sviði atvinnumála, nýsköpunar, markaðs- mála og mennta- og menningarmála. Þær 400 milljónir króna sem fóru í þetta ver- kefni á þessu ári eru þurrkaðar út og einungis standa eftir 15 m. kr. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.