Akureyri - 17.10.2013, Page 16
16 17. október 2013
Frá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis (KAON)
Hvað er í boði í vetur fyrir
einstaklinga sem greinst hafa
með krabbamein?
Vatnsleikfimi
hjá Sigrúnu Jónsdóttir sjúkraþjálfara í sundlaug Akureyrar
- innilaug - verður tvisvar í viku.
Mánudögum kl.10:30-11:15 og fimmtudögum kl.12:30-13:20
Liðkandi æfingar-slökun
í húsnæði KAON Glerárgötu 24 (ath. það er lyfta í húsinu)
Þriðjudagar kl. 16:30- 17:30
Styrktarþjálfun
í ÁTAKI v/Skólastíg. Föstudagar kl. 13:00-14:00
Nánari upplýsingar og skráning er hjá Sigrúnu í síma 862 2434 eða á
netfanginu: bjorkinheilsa@gmail.com
SAMVERA Á KERAMIKLOFTINU Óseyri 18
Á miðvikudögum kl. 13-18. Þangað eru allir velkomnir hvort heldur er til að föndra undir leiðsögn
Svölu Stefánsdóttur eða bara njóta samverunnar. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega.
PUNKTURINN - Rósenborg
Minnum á fjölsbreytta starfsemi á PUNKTINUM. Einstaklingar sem greins hafa með krabbamein eru
sérstaklega boðnir velkomnir alla fimmtudaga frá kl.9-12 en bendum á heimasíðuna þeirra:
punkturinn.akureyri.is þar sem hægt er að sjá allt sem þar er í boði .
OPIГ HANDAVINNU“ HÚS hefst fimmtudaginn 17. október
og verður á fimmtudögum frá kl. 13-16 í húsnæði KAON Glerárgötu 24
Fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Tilgangurinn er að hittast, spjalla og deila hugmyndum yfir kaffi/te-sopa og eiga saman notarlega stund.
Halldóra Björg Sævarsdóttir (Dóra) textílkennari mun leiðbeina þeim sem þess óska, þannig að ef þig
hefur lengi langað til að læra t.d. að prjóna, hekla, sauma út eða kynnast einhverju nýju, þá skaltu
endilega mæta. Það er ekki skilyrði að vera með handavinnu, fyrst og fremst að hittast.
Skrifstofa Krabbameinsfélagsins á Akureyri að Glerárgötu 24 á 2. hæð (fyrir ofan VÍS)
er OPIN á mánudögum og þriðjudögum frá kl. 13-16 og símatími er alla miðvikudaga frá
kl. 10-12 í síma 461 1470.
Hjúkrunarfræðingur og sjúkraþjálfari starfa hjá félaginu og eru viðtalstímar við þær eftir samkomulagi.
Netfangið okkar er; kaon@simnet.is og við erum líka á facebókinni. Við hvetjum fólk til að nýta sér það
sem í boði er og tökum vel á móti öllum sem líta við hjá okkur á skrifstofunni
Jóhanna Júlíusdóttir hjúkrunarfræðingur
Sigrún Jóndóttir sjúkraþjálfari
Þorbjörg Ingvadóttir framkvæmdastjóri
»»
»»
»»
»»
»»
»»Nýt
t
Við slaghörpuna
10. október buðu Björg Þórhallsdótt-
ir, sópran, og Jónas Ingimundarson,
píanóleikari, til tónleika í Hömrum,
litla salnum í Menningarhúsinu Hofi
á Akureyri. Mæting var sæmileg, en
hefði mátt vera meiri, því að í ljós
kom, að boðið var til sannarlegrar
söng- og píanóveislu.
Á efnisskránni voru tuttugu og
fjögur lög; sextán eftir íslenska höf-
unda fyrir hlé, en átta eftir erlenda
eftir hlé. Auk þessa óvenjulega mikla
fjölda laga á efnisskránni sem slíkri
fluttu þau Björg og Jónas þrjú auka-
lög. Það segir mikið um þrek raddar
þeirrar, sem Björg Þórhallsdóttir er
gædd, og hæfni og þrek píanóleikans,
að í öllu þessu mikla prógrammi bar
aldrei hinn minnstra skugga á gæði
tóns söngvarans og ekki heldur á leik
og næmni píanistans.
Auk þess, að tónleikarnir báru
vott mikilli getu og hæfileika bæði
söngvara og píanóleikara voru þeir
einkar upplýsandi. Íslensku tón-
skáldin, sem áttu verk á efnisskránni,
voru Jakob Hallgrímsson, fimm lög,
Jónas Ingimundarson, þrjú, Tryggvi
M. Baldvinsson, Daníel Þorsteinsson,
Guðni Franzson og Jón Hlöðver Ás-
kelsson eitt lag hver og loks Jóhann
Ó. Haraldsson, fjögur lög.
Svo sem eðlilegt má telja, er ekki
unnt að geta sérstaklega um hvert og
eitt þessara laga, en um öll má segja,
að þau eru mjög áheyrileg og þess
eðlis að uppbyggingu og því, hvernig
þau falla að þeim texta, sem unnið
er með, að þau mættu heyrast tíð-
ar. Nokkur vöktu þó sérlega athygli
á tónleikunum, þar sem þau mörg
hver bar fyrir eyru undirritaðs í
fyrsta sinn. Þar má nefna hið ljúfa
lag Jakobs Hallgrímssonar, „Við
lygna móðu“, við ljóð Halldórs Lax-
ness, Lag Jónasar Ingimundarsonar
við ljóðið „Haustvísa“ eftir Hannes
Pétursson, sem líkt og vefur sig utan
um textann, lagið „Krummi“ eft-
ir Tryggva M. Baldvinsson við ljóð
Davíðs Stefánssonar, sem leikur lip-
urlega að efni ljóðsins, lagið „Hrafn-
inn“ eftir Daníel Þorsteinsson við
ljóð Kristjáns frá Djúpalæk, sem nær
miklum leikrænum hrifum og túlkar
ljóðið af næmni, og loks, á meðal
hinna íslensku laga á efnisskránni,
lög Jóhanns Ó. Haraldssonar „Að
skýjabaki“ og „Smaladrengurinn“,
sem voru reyndar undirrituðum
kunn fyrir. Á meðal erlendu laganna
má nefna „Gretchen am Spinnrade“
eftir F. Schubert og úr „Faust“ eft-
ir Goethe, þar sem náðist mikil
dramatík í nánu samspili söngv-
ara og píanós, og að lokum lagið
„Vilse“ eftir J. Sibelius við ljóð eftir
K. V. Tavastjerna í sænskri þýðingu J.
Rundt, þar sem brugðið var ljúflega á
leik með gamansömum hætti.
BJÖRG EINKAR GEFANDI Í TÚLKUN
Björg Þórhallsdóttir er einkar gef-
andi í túlkun sinni allri. Hún hefur
til að bera hreinan og hljómmik-
inn sóprantón og hann ánægjulega
breiðan og fullan. Henni lætur vel
að syngja bæði ljúft og af styrk, en
má þó gæta þess á stundum að yfir-
gera ekki styrkinn, þar sem þróttur
hennar er mikill og getur orðið
um of, svo sem varð í laginu „Maí-
stjarnan“ eftir Jakob Hallgrímsson
við ljóð Halldórs Laxness. Túlkun
hennar er óvenjulega rík jafnt í fasi,
svipbrigðum og raddbeitingu og kom
það víða fram, svo sem í þeim lög-
um, sem þegar hefur verið á minnst,
en einnig má nefna afar fallegan og
hugnæman flutning á aukalaginu
„Ég lít í anda liðna tíð“ eftir Sigvalda
S. Kaldalón við ljóð Hallfríðar Guð-
rúnar Eyjólfsdóttur.
Í HÓPI SNILLINGA PÍANÓSINS
Ekki má láta ógetið þess hlutar, sem
píanóleikarinn, Jónas Ingimundar-
son, átti í hrifum þessara tónleika.
Við Íslendingar höfum borið gæfu til
að njóta nokkurra frábærra undir-
leikara á píanó. Nefna má Fritz
Weisshappel, Ólaf Vigni Albertsson
og Guðrúnu A. Kristinsdóttur, svo
að einungis nokkurra sé getið, en
minningu Guðrúnar voru tónleik-
arnir tileinkaðir. Jónas Ingimundar-
son er í flokki með þessum snilling-
um píanósins, sem gerðu samvinnu
með söngvurum í tónlistarflutningi
að sérgrein sinni. Sannarlega er slík
samvinna sérgrein, sem kemur ekki
af sjálfri sér hjá píanóleikurum jafn-
vel þó hámenntaðir séu á hljóðfæri
sitt. Það að styðja, gefa lit og blæ og
auk þannig hrif verksins, sem flutt
er, krefst næmni og natni. Þetta hef-
ur Jónas Ingimundarson til að bera.
Það eru því engin undur, að hann
skuli vera sá meðleikari á píanó, sem
hvað hæst ber og hefur borið nú um
stundir. a
Haukur Ágústsson
Skrifar tónleikagagnrýni
MAtArGAtIÐ FLeIrI UPPSkrIFtIr Á WWW.ALLSkoNAr.IS
Gæsalifrarpaté
Þessi uppskrift er úr 2 gæsalifrum sem er hæfilegt til að útbúa paté sem
dugar fyrir 4-6 með smá brauði í forrétt eða á hlaðborð.
Í staðinn fyrir blóðberg getur þú notað þurrkað timian.
GÆSALIFRARPATÉ
» 2 gæsalifrar
» 3 msk smjör
» 1 msk hvítvín
» 1/2 skallottulaukur, fínsaxaður
» 1/2-1 tsk blóðberg, þurrkað
» 4 msk rjómi
» salt og pipar
Undirbúningur: 5 mínútur
Eldunartími: 10 mínútur
Byrjaðu á að hreinsa lifrarnar af
fitu og himnum. Skerðu í bita.
Fínsaxaðu skallottulaukinn.
Settu smjörið á pönnuna og
steiktu skallottulaukinn og blóð-
bergið þar til laukurinn fer að mýkj-
ast, í 2-3 mínútur.
Bættu nú lifrinni í pönnuna, rydd-
aðu með salti og nýmöluðum svörtum
pipar og steiktu í 4-5 mínútur. Veltu
lifrinni vel svo hún steikist jafnt.
Settu 1 msk hvítvín eða þurrt
sherrí út í pönnuna og láttu sjóða
niður, náðu öllu úr botni og hliðum
pönnunnar á meðan.
Láttu allt úr pönnunni í mat-
vinnsluvél og blandaðu þar til
áferðin er orðin góð, bættu rjóman-
um hægt saman við.
Helltu í lítið form/skál/krukku
og láttu kólna inni í ísskáp í um 3-4
klst áður en borið fram.
Berðu fram með kexi eða góðu
brauði, berjachutney eða bláberja-
sultu.
Helga kvam
allskonar.is