Morgunblaðið - 09.10.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013
Raufarhöfn Það þykja tíðindi nú orðið á Raufar-
höfn þegar stór flutningaskip eins og Feed Stav-
anger koma inn á höfnina til að sækja afurðir. Í
gærmorgun hófst útskipun á mjöli, sem framleitt
er hjá Ísfélagi Vestmanneyja á Þórshöfn og
geymt í mjölgeymslum SR mjöls á Raufarhöfn.
Það fór smáfiðringur um gamla verksmiðjukarla
sem ekki hafa séð mjöl í tæpan áratug. Á meðan
snjóar syðra var sem vor kæmi norður og mjöl-
ilmur og gamlar minningar fylltu loftið. Ungir
menn nutu veðurblíðunnar við útskipunina og
fækkuðu fötum sem sumar væri.
Mjöli frá Þórshöfn skipað út á Raufarhöfn
Morgunblaðið/Erlingur B. Thoroddsen
Fiðringur fór um gamla verksmiðjukarla þegar mjölilmur og gamlar minningar fylltu loftið
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Það sem okkur vantar sárlega er
öldrunargeðdeild fyrir fólk sem er
ennþá úti í samfélaginu en með geð-
ræn einkenni,“ segir Pálmi V. Jóns-
son, yfirlæknir öldrunarlækninga á
Landspítala. Nú stendur yfir Al-
þjóðageðheilbrigðisvikan en þemað í
ár er „Geðheilsa á efri árum“.
Á árunum fyrir hrun var mótuð
stefna á vegum heilbrigðisráðuneyt-
isins um göngudeild og legudeild
fyrir eldra fólk með geðræna sjúk-
dóma. Göngudeildin var tekin í
gagnið en legudeildin fórst fyrir í
hruninu og þeir tveir öldrunargeð-
læknar sem þá voru starfandi á Ís-
landi fluttu af landi brott, að sögn
Pálma. Hann segir þörfina fyrir
slíka deild síst minni nú en fyrir
hrun. „Þetta fer ekki hátt, þetta er
mjög veikt fólk, því líður illa and-
lega og er stundum hreinlega nær
dauða en lífi en það er ekki verið að
taka á málum á sem sérhæfðastan
og bestan máta,“ segir Pálmi. Hann
segir góða þjónustu við þennan hóp
geta skipt sköpum en birtingar-
mynd geðsjúkdóma sé öðruvísi hjá
eldra fólki en yngra og meðferð
sömuleiðis, þar sem oft þurfi að taka
tillit til annarra fyrirliggjandi sjúk-
dóma.
Geta náð góðum bata
„Andleg veikindi birtast með öðr-
um hætti hjá eldra fólki en ungu,
stundum fer það ekki á milli mála
en þegar þetta er langt gengið og
fólk veikt að öðru leyti, þá er þetta
stundum samofið öðrum sjúkdóm-
um, þannig að fólk er jafnvel ekki
dómbært á það sjálft hvað þetta er,“
segir Pálmi.
Hann segir bæði þunglyndi og
áfengisfíkn vangreind meðal eldra
fólks, sem sé stundum svo illa haldið
vegna geðsjúkdóms að það leggst
einfaldlega í rúmið og hættir að
nærast. Teymisvinna með öldrunar-
geðlæknunum á sínum tíma hafi
hins vegar sýnt fram á, að hægt sé
að ná undraverðum árangri með af-
ar veika sjúklinga, ef rétt meðferð
er fyrir hendi.
Pálmi segir geðheilbrigði aldr-
aðra í raun eitt síðasta stóra málið í
öldrunarþjónustunni sem enn sé eft-
ir að ganga frá.
„Þetta er virkilega mikilvægt mál
og það þarf að taka upp þráðinn aft-
ur. Það kreppir enn víða að en þetta
er mjög raunverulegt og á meðan
gömlu fólki fjölgar þá bara versnar
ástandið. Ef fólk fær ekki viðeigandi
þjónustu þá endar það inni á stofn-
un og það er virkilega dýrt og lang-
mesta skerðingin á lífsgæðum sem
hægt er að hugsa sér,“ segir hann.
Brýnt að taka upp þráðinn
Mikil þörf fyrir legudeild fyrir eldra fólk með geðræna sjúkdóma Öldrunar-
geðlæknarnir fóru af landi brott í hruninu Góð úrræði geta skipt sköpum
Morgunblaðið/Heiddi
Aðstoð Í áætlunum var gert ráð
fyrir um 14 rúmum á legudeildinni.
Hópur starfsmanna byggingarvöru-
verslunarinnar Bauhaus fékk of-
greidd laun á fjögurra mánaða tíma-
bili í fyrra, að mati fyrirtækisins, en
margir núverandi og fyrrverandi
starfsmenn verslunarinnar hafa á
síðustu vikum fengið kröfu frá versl-
uninni um endurgreiðslu. Líklegt
þykir að málið verði útkljáð fyrir
dómstólum.
Að sögn Ólafíu Bjarkar Rafns-
dóttur, formanns VR, hafa þónokkr-
ir starfsmenn leitað til stéttarfélags-
ins til að fá úr því skorið hvort
fyrirtækið eigi endurkröfu á þá, en
um er að ræða launagreiðslur frá því
í apríl, maí, júní og júlí árið 2012.
Bauhaus hafnaði ósk VR
Í samtali við Morgunblaðið segir
Ólafía að VR hafi óskað eftir því við
Bauhaus að fá afhentan lista yfir þá
starfsmenn verslunarinnar sem mál-
ið varðar og eru félagsmenn í stétt-
arfélaginu. „Við óskuðum eftir því að
fá þennan lista svo við gætum unnið
beint með félagsmönnum VR að
þessum málum. Þeir höfnuðu þeirri
ósk. Þannig að við sjáum okkur ekki
annað fært en að vekja athygli á
þessu máli og hvetja starfsmenn til
að hafa samband við okkur.“
Segir mistök við útreikninga
„alfarið á ábyrgð Bauhaus“
Fram kemur í frétt á vefsíðu VR
að afstaða félagsins sé sú að mistök
við útreikning launanna sé alfarið á
ábyrgð Bauhaus. „VR hefur þegar
krafist þess skriflega að Bauhaus
falli frá kröfum um endurgreiðslu
launa. Fyrirtækið hefur hafnað því
og líklegt verður að telja að útkljá
verði í málum þessum fyrir dóm-
stólum,“ segir Ólafía. kij@mbl.is
Krefst
endur-
greiðslu
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Deila Bauhaus greiddi of há laun.
Líklegt að málið
fari fyrir dómstóla
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Sauðfjárslátrun stendur nú sem
hæst og er ljóst að fallþungi dilka
víðast hvar er minni í ár en í fyrra.
Hjá Sláturfélagi Suðurlands á
Selfossi er búið að slátra um 45.000
fjár af um hundrað þúsund. Sam-
felld sláturtíð hófst 10. september
og stendur til 8. nóvember.
Einar Hjálmarsson, stöðvarstjóri
hjá SS á Selfossi, segir slátrun hafa
gengið ágætlega. „Við fengum ekki
nógu margt fé til að byrja með og
komumst ekki á almennilegt skrið
fyrr en seinustu vikuna í september.
Síðan hefur verið full nýting og við
erum að slátra um 2.600 fjár núna
alla daga,“ segir Einar. „Lömb eru
víða ekki eins góð og í fyrra. Með-
alvigtin er í kringum 15,9 kg, það er
um 400 grömmum léttara en í fyrra
og skrifast líklega á tíðarfarið í sum-
ar.“
Hjá Sláturhúsi KS á Sauðárkróki
hefur 72.000 fjár verið slátrað og er
meðalvigtin 16 kg, ívið minni en í
fyrra. Hjá Sláturhúsi KVH á
Hvammstanga hafði um 59 þúsund
fjár verið slátrað eftir gærdaginn.
Meðalvigtin þar er 16,2 kg en á
sama tíma í fyrra var hún tæp 17 kg
að sögn Magnúsar Freys Jónssonar,
framkvæmdastjóra Sláturhúss
KVH. Hann segir bleytutíð í sumar
mega kenna um minni fallþunga
dilka.
Sláturtíðin hófst á fullu hjá Norð-
lenska á Húsavík 4. september og
mun standa fram til 28. október.
Þar er búið að slátra 48.700 fjár og
hefur meðalvigtin aldrei verið betri.
„Meðalvigtin er núna í 16,69 kg en á
sama tíma í fyrra var hún 16,46 kg
og endaði í 16,28 kg. Ég held að það
sé bara hjá okkur og Fjallalambi
sem meðalvigtin er betri en í fyrra,“
segir Sigmundur Hreiðarsson,
vinnslustjóri hjá Norðlenska. Þá
hafa kjötgæðin einnig farið upp og
fitan aðeins aukist. Við slátrun á
Húsavík starfar nú fólk af nítján
þjóðernum.
Meðalvigtin minni víðast hvar
Slakari fallþungi dilka skrifast á tíðarfarið í sumar Meðalvigtin þó 16,69 kg hjá
Norðlenska á Húsavík og er töluvert betri en í fyrra Slátrað fram í nóvember
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kjöt Dilkarnir hjá sláturhúsi Norðlenska á Húsavík eru vænir.
Ríkissaksóknari hefur ekki tekið af-
stöðu til þess hvort embættið muni
eiga frumkvæði að því að óska eftir
að Guðmundar- og Geirfinnsmálið
verði tekið upp að nýju.
Við ákvörðun mun ríkissaksókn-
ari m.a. líta til þess hver afstaða
þeirra sem hlutu dóm í málinu er til
endurupptöku. Ríkissaksóknari ósk-
aði bréflega eftir afstöðu þeirra en
en aðeins hefur borist svar frá ein-
um, Erlu Bolladóttur. Hún hefur lýst
því yfir að hún vilji að málið verði
endurupptekið. Fjórir af þeim sex
sem hlutu dóm eru enn á lífi.
Skýrsla starfshóps um Guð-
mundar- og Geirfinnsmál var afhent
innanríkisráðherra 21. mars sl.
Starfshópurinn komst að þeirri
niðurstöðu að það væri hafið yfir all-
an skynsamlegan vafa að fram-
burður allra þeirra sem hlutu dóm í
málinu hefði verið óáreiðanlegur
eða falskur. Veigamiklar ástæður
væru fyrir endurupptöku.
Starfshópurinn sagði þrjár leiðir
mögulegar. Ein var sú að rík-
issaksóknari meti hvort tilefni sé til
endurupptöku . runarp@mbl.is
Ekki tekið afstöðu
til endurupptöku