Morgunblaðið - 09.10.2013, Blaðsíða 35
maður í alþjóðastjórninni. Sigrún er
soroptimisti frá 1984. Var formaður
þýðingasjóðs, sat í nefnd um reglu-
gerð fyrir almenningsbókasöfn, var
formaður nefndar um stefnumörkun í
bókasafns- og upplýsingamálum, sat í
nefnd menntamálaráðuneytis um
stefnu um upplýsingasamfélagið. Sat
í stjórn og var forseti Alþjóða skóla-
safnasamtakanna (IASL), sat í tveim-
ur fastanefndum Alþjóðlegu bóka-
safnasamtakanna (IFLA) um
skólasöfn og um rannsóknir og kenn-
ingar. Hún var stofnfélagi samtak-
anna Vinir Perú sem styrkir fátæk
börn í Perú, er félagi í Íslenska vita-
félaginu – félagi um íslenska strand-
menningu og er guðmóðir Barna-
bókaseturs við Háskólann á
Akureyri.
Sigrún er heiðursfélagi Upplýs-
ingar: félags bókasafns- og upplýs-
ingafræða; hlaut Distinguished Al-
umna Award frá Wayne State
University; European Achievement
Award frá Delta Kappa Gamma, og
International Achievement Award
frá sömu samtökum og var sæmd
riddarakrossi hinnar íslensku fálka-
orðu 2003.
Sigrún hefur alltaf haft mikinn
áhuga á ferðalögum. Hún hefur kom-
ið í allar heimsálfurnar og heimsótt
100 lönd.
Fjölskylda
Eiginmaður Sigrúnar var Indriði
Hallgrímsson, f. 21.10. 1944, d. 27.1.
1979, bókasafnsfræðingur. Hann var
sonur Hallgríms Indriðasonar, f. 17.6.
1919, d. 14.2. 1998, smiðs í Kristnesi,
og k.h., Lilju Jónsdóttur, f. 18.6. 1921,
talsímakonu.
Fyrri maður Sigrúnar var Edu-
ardo Segura Pino, f. 16.2. 1937, eðl-
isfræðingur og prófessor í Perú,
Þýskalandi og Brasilíu. Þau skildu.
Sambýlismaður Sigrúnar var Daní-
el Benediktsson, f. 13.7. 1945, bóka-
safnsfræðingur frá Ungverjalandi.
Þau skildu
Sonur Sigrúnar er Hallgrímur
Indriðason, f. 24.5. 1974, fréttamaður
við RÚV, búsettur í Hafnarfirði en
kona hans er Rósa Lyng Svav-
arsdóttir, kennari við Áslandsskóla,
og eru dætur þeirra Líf Hallgríms-
dóttir, f. 15.10. 1998, og Sif Hall-
grímsdóttir, f. 27.1. 2006.
Systkini Sigrúnar eru Sigurjón
Hannesson, f. 13.2. 1935, skipherra,
búsettur í Mosfellsbæ en kona hans
er Björg Jónsdóttir sjúkraliði og eru
börn þeirra Jóhann viðskiptafræð-
ingur og Ólafur Gísli verslunarmað-
ur; Elín Hrefna Hannesdóttir, f. 29.6.
1936, húsfreyja og aðstoðar við starf
aldraðra í Bústaðakirkju en maður
hennar Árni Sigurbergsson flug-
maður og eru börn þeirra Hannes
verkfræðingur, Þóra jarðeðlisfræð-
ingur, Sigríður Klara, matvælafræð-
ingur og verkefna- og viðburðastjóri í
Kjós, og Berglind Heiða flugmaður;
Sveinn Hannesson, f. 9.4. 1950, við-
skiptafræðingur og framkvæmda-
stjóri í Reykjavík en kona hans er Ás-
laug Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur og eru börn
þeirra Gunnhildur lögfræðingur, Elín
Júlíana náms- og starfsráðgjafi, Kol-
brún lyfjafræðingur og Margrét nemi
í HR.
Foreldrar Sigrúnar Klöru voru
Hannes Jónsson, f. 11.5. 1905, d. 12.6.
1986, verkamaður á Seyðisfirði og í
Reykjavík, og Sigríður Jóhann-
esdóttir, f. 27.8. 1907, f. 7.12. 2002,
húsfreyja.
Úr frændgarði Sigrúnar Klöru Hannesdóttur
Sigrún Klara
Hannesdóttir
Dóróthea Högnadóttir
frá Hrútafelli
Sveinn Arnoddarson
í Efra-Langholti
Elín Júlíana Sveinsdóttir
frá Efra-Langholti, húsfr. á Seyðisfirði
Jóhannes Sveinsson
úrsmiður á Eyrarbakka og Seyðisfirði
Sigríður Jóhannesdóttir
húsfr. á Seyðisfirði og í Rvík
Halldóra Sigurðardóttir
frá Seli í Grímsnesi
Sveinn Jónsson
smiður frá Hurðarbaki í Flóa
Gróa Vigfúsdóttir
frá Þorgeirsstöðum í Lóni
Jónas „grjótgarður“ Gíslason
á Holtastöðum í Langadal
Sigríður Ingibjörg Jónasdóttir
húsfr. og vinnukona í Vopnafirði og víðar
Jón Hannesson
b. í Vopnafirði
Hannes Jónsson
verkam. á Vopnafirði,
Seyðisfirði og í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Böðvarsdal
Hannes Magnússon
b. í Böðvarsdal
Afmælisbarnið Kveikt á kertum
Delta Kappa Gamma.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013
Jakob Jóhannesson Smári,skáld, málfræðingur og kenn-ari, fæddist á Sauðafelli í Mið-
dölum 9.10. 1889. Hann var sonur
Jóhannesar Lárusar Lynge Jó-
hannssonar, prests á Kvenna-
brekku, og f.k.h., Steinunnar Jak-
obínu Jakobsdóttur húsfreyju.
Hálfsystir Jóhannesar á Kvenna-
brekku var Valgerður, langamma
Jóns Steffensen læknaprófessors.
Jakob var hálfbróöir, samfeðra,
Ragnheiðar, móður Vífils verkfræð-
ings og læknanna Ólafs Hergils og
Þengils Oddssona.
Eiginkona Jakobs var Helga Þor-
kelsdóttir kjólameistari en börn
þeirra voru Katrín J. Smári, kenn-
ari, læknaritari og vþm., og Bergþór
Smári læknir. Þau eru bæði látin
fyrir skömmu.
Jakob lauk stúdentsprófi í
Reykjavík 1908, stundaði nám í nor-
rænum fræðum við Kaupmanna-
hafnarháskóla og lauk þaðan meist-
araprófi árið 1914.
Jakob var kennari við ýmsa skóla í
Reykjavík á árunum 1914-20 og við
Menntaskólann í Reykjavík 1920-36
og yfirkennari þar. Hann sat lengi í
stjórn Sálarrannsóknafélags Íslands
eins og reyndar ýmsir aðrir virðu-
legir borgarar þess tíma. Jakob
sendi frá sér ljóðabækurnar Kalda-
vermsl, 1920, Handan storms og
strauma, 1936, Undir sól að sjá,
1939, og Við djúpar lindir, 1957. Þá
samdi hann kennslubækur, s.s. Ís-
lenska setningafræði og Íslenska
málfræði og tók saman Íslensk-
danska orðabók.
Jakob þýddi m.a. sum verka
Gunnars Gunnarssonar, leikrit eftir
Ibsen og Strindberg og óperettur,
að ógleymdri Bókinni um veginn,
eftir Lao-tse, ásamt Yngva Jóhann-
essyni.
Jakob var nýrómantískt skáld.
Skáldskapurinn var ljóðrænn og
átakalítill, sonnettan var hans aðal-
ljóðform en yrkisefnið gjarnan sótt í
kyrrð og fegurð íslenskrar náttúru.
Hann var því ekki beint barn síns
tíma þegar leið á ferilinn. Samt urðu
ýmis ljóða hans vel þekkt og oft
sungin.
Jakob lést 10.8. 1972.
Merkir Íslendingar
Jakob
Jóhannes-
son Smári
100 ára
Svanborg P. Jónsdóttir
95 ára
Marta Eyjólfsdóttir
90 ára
Guðrún G. Jónsdóttir
Hilmar Snorrason
85 ára
Guðný Gísladóttir
Ólafur Jóhann
Jónsson
80 ára
Ása Guðbjörg Gísladóttir
Hafsteinn Magnússon
Raymond R. Steinsson
Sigurlaug Guðrún
Gunnarsdóttir
75 ára
Anna Hulda Norðfjörð
Björg S. Sæby
Friðriksdóttir
Dóra María Aradóttir
Haraldur Kristinsson
Leifur Magnússon
Sigurður Jón
Einarsson
Þuríður Björnsdóttir
70 ára
Atli Smári Ingvarsson
Díana J. Ragnarsdóttir
Eiríkur Viggósson
Eyjólfur Engilbertsson
Guðlaug Ólafsdóttir
Guðrún Erna
Guðmundsdóttir
Helgi Guðmundsson
Hörður Hafsteinsson
Kristín Erna
Guðmundsdóttir
Kristjana Karlsdóttir
Margrét Friðþóra
Sigurðardóttir
Sigríður H. Gissurardóttir
Þóra Hallgrímsson
60 ára
Ástfríður Árnadóttir
Ástríður S. Gunnarsdóttir
Sigríður Ida Úlfarsdóttir
Sigrún Einarsdóttir
Stefán Ólafsson
Unnur Jóhannsdóttir
Þórunn Björg Birgisdóttir
50 ára
Anna Björg Þorsteinsdóttir
Gísli Friðriksson
Holger P.C. Hólmarsson
Ingibjörg Gísladóttir
Karl Kristján Ágúst
Ólafsson
Malda Breice
Þóra Geirsdóttir
40 ára
Berglind Guðrún
Bergmann
Bergur Viðar Guðbjörnsson
Bjarni Guðmundur
Ragnarsson
Bjarni Valur Einarsson
Davíð Ingi Guðmundsson
Guðbjartur Grétar
Grétarsson
Sverrir Már Viðarsson
Vignir Þorsteinsson
30 ára
Aida Florentina Fixon
Björn Halldórsson
Helen Svava Helgadóttir
Þorbjörn Björnsson
Til hamingju með daginn
30 ára Bergþóra ólst upp
í Reykjavík, er þar búsett,
lauk ML-prófi í lögfræði
frá HR og er saksókn-
arafulltrúi hjá sérstökum
saksóknara.
Maki: Jón Heiðar Gunn-
arsson, f. 1981, blaða-
maður við Morgunblaðið.
Börn: Matthildur Lilja, f.
2004, og Ríkharður, f.
2009.
Foreldrar: Ásdís Olsen, f.
1962, og Halldór Þ. Birg-
isson, f. 1960.
Bergþóra
Halldórsdóttir
40 ára Þórður ólst upp í
Kópavogi, er búsettur í
Reykjavík, lauk prófi í við-
skiptafræði frá HA og er
þjónustustjóri hjá Flug-
félagi Íslands.
Maki: Lísbet Alexand-
ersdóttir, f. 1975, kennari.
Synir: Björn Víkingur, f.
1995; Alexander, f. 1999,
og Benedikt, f. 2007.
Foreldrar: Guðmunda
Guðmundsdóttir, f. 1940,
og Björn Víkingur Þórð-
arson, f. 1931.
Þórður
Björnsson
40 ára Harpa ólst upp á
Akureyri, lauk MA-prófi í
sérkennslufræðum og er
kennari og kennslustjóri
við VMA.
Sonur: Gunnlaugur
Gunnþórsson, f. 1999.
Foreldrar: Jörundur
Traustason, f. 1950,
rekstrarfr. og lagerstj. hjá
Slippnum á Akureyri, og
Ingveldur Jóhannesdóttir,
f. 1954, rekstrarfræðingur
og forstjóri Verðlagsstofu
skiptaverðs.
Harpa
Jörundardóttir
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is Síðumúla 35
Kringlunni og
Íslensk hönnun og handsmíði - Falleg gjöf
Sérsmíðaðir skartgripir með íslenskum náttúrusteinum