Morgunblaðið - 09.10.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.10.2013, Blaðsíða 12
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Vatn á yfirborði jarðarinnar er að breytast. Yfirborð sjávar heldur áfram að hækka; á tímabilinu 1993- 2010 hækkaði það að meðaltali um þrjá millimetrar ár hvert. Vísbend- ingar eru um að hækkun sjávarborðs hækki nú hraðar en á fyrri hluta 20. aldar og nýjar spár gera ráð fyrir að í lok 21. aldar verði það mögulega um einum metra hærra en það var árið 1990. Einn af óvissuþáttum í þeim út- reikningum er framlag jöklanna til hækkunarinnar. Til að leita svara við þeirri spurningu var Evrópuverkefn- inu ice2sea hrundið af stað árið 2009. Markmið verkefnisins var að endur- bæta spár um framlag jökla til hækk- unar sjávarborðsins. Í stuttu máli má segja að spá geri ráð fyrir að sá hluti hækkunar meðal- hæðar sjávarborðs sem orsakast af bráðnun jökla verði 3,5-36,8 senti- metrar fram til ársins 2100. Framlag jökla og íshvela væri 3,0-12,5 cm, Grænlandsjökuls 0,5-18,3 cm og Suð- urskautslandsins 0,0-6,0 cm. Þetta er heldur lægri spá en hefur komið fram á síðastliðnum árum. Þó skal tekið fram að spáin gerir ekki ráð fyrir að stórkostlegar breytingar verði á ís- þekju austurhluta Suðurskautslands- ins á næstu árum. Til viðbótar við framlag jöklanna hækkar hitastig sjávar og við það þenst hann út. Þessi útþensla mun hækka meðalhæð sjávarborðs fram til ársins 2100 um 21-27 cm, en það er háð því hversu mikið hitastigið hækk- ar. Einnig munu breytingarnar í notkun vatns, t.d. stíflugerð og vatns- notkun í landbúnaði hafa einhver áhrif. Hvaða þýðingu hefur þetta? „Byggðir sem liggja lágt og eru ná- lægt sjó munu fara á kaf. Mikill fjöldi fólks býr á svæðum sem liggja lágt og eru viðkvæm fyrir sjávarstöðubreyt- ingum. Vitneskjan um líklegar breyt- ingar í framtíðinni hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir stjórnvöld í þeim löndum sem þau geta nýtt í stefnu- mótun varðandi strandsvæði sem eru í mestri hættu vegna hækkandi sjáv- arstöðu,“ segir Guðfinna Aðalgeirs- dóttir, dósent í jöklafræði við HÍ, einn af þátttakendum í verkefninu. Hún bendir á að svæðin nálægt mið- baug verða fyrir mestri hækkun. En fyrir Ísland? „Á Íslandi er flókið samspil nokk- urra þátta sem hafa áhrif á sjávar- stöðu breytingar, vegna bráðnunar jöklanna hér á landi léttist fargið á landinu og það rís upp, landrisið veg- Yfirborð sjávar hækkar hraðar  Geta nú spáð betur fyrir um framlag jökla til hækkunar Morgunblaðið/RAX Jöklar Nú er hægt að spá mun betur fyrir um framlag jökla til yfirborðshækkunar sjávar sem hækkar stöðugt. ur á móti sjávarstöðubreytingum. Einnig hefur áhrif að við erum ná- lægt Grænlandsjökli þar sem búast má við meiri fargbreytinum og það veldur því að þyngdartog íssins minnkar og hafið togast þess vegna minna en áður í átt að Grænlandi. Í kringum Ísland hefur það þau áhrif að sjávarstaðan hækkar minna en sem nemur meðaltali yfir allt hafið,“ segir Guðfinna en bendir á að frekari rannsókna sé þörf. Niðurstöður verkefnisins voru m.a. nýttar í fimmtu skýrslu milli- ríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál sem kom út á dög- unum. Stjórnandi Evrópuverkefnisins ice2sea, David Vaughan og íslenskir þátttakendur kynna niðurstöður þess í Hátíðasal Háskóla Íslands 11. októ- ber kl. 12-13. David og Guðfinna munu einnig kynna niðurstöðurnar á nýjum alþjóðlegum vettvangi, Arctic Circle – Hringborð norðurslóða. Nýr alþjóðlegur vettvangur, Arctic Circle – Hringborð norðurslóða, heldur fyrsta þing sitt í Hörpu dagana 12.-14. október. Meðal þátttakenda eru Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og handhafi friðarverðlauna Nóbels, og Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna. Fyrirlestrum þessara einstaklinga verður sjón- varpað. Þingið munu sækja yfir 900 þátttakendur, m.a. fjölmargir forystu- menn í þjóðmálum, alþjóðastofnunum, vísindum, viðskiptum og um- hverfismálum frá um 40 löndum. Hillary Clinton og Al Gore ARCTIC CIRCLE – HRINGBORÐ NORÐURSLÓÐA 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Reksturinn mun áfram einkennast af aðhaldi og að óbreyttu er ekki svigrúm til þess að byrja upp- byggingu eftir niðurskurð síð- ustu ára eins og þörf er á,“ segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi. Fjárhagsstaða embættis lögreglunnar þar hefur verið til um- fjöllunar. Þrír menn hættu störfum síðsumars og var ekki ráðið í þeirra stað. Nú er aðeins 21 maður í liðinu en þegar best lét voru þeir nærri 30. Þetta hefur verið gagnrýnt, m.a. af talsmönnum sveitarfélaga á Suð- urlandi sem telja öryggi stefnt í voða. Á þessu ári hefur Selfosslögregl- an úr 262 millj. kr. á ári að spila. Vegna verðbóta uppfærist sú fjár- veiting í fjárlögum næsta árs í 274 millj. kr., svo framlögin aukast ekk- ert að raungildi. Við þetta bætist svo að embætti Sýslumannsins á Sel- fossi, sem lögreglan er hluti af, eru á fjárlögum skammtaðar 400 millj en þarf eins og aðrar ríkisstofnanir að mæta almennri hagræðingarkröfu upp á um 3,0 millj. kr. Af því er hlut- ur lögreglu um 2,0 millj. kr. Selfoss fái meira „Það er í raun engin breyting á föstum fjárveitingum eins og frum- varpið lítur út núna,“ segir Oddur. Hann bendir hins vegar á að í frum- varpinu sé gert ráð fyrir nýju við- varandi 500 millj. kr. framlagi til að efla löggæsluna í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar. Innanrík- isráðherra hyggst skipa nefnd þing- manna allra flokka sem muni skipta þeim peningum milli lögregluemb- ætta – með tilliti til aðstæðna og verkefna. Í því efni standi öll rök til þess að embættið á Selfossi fái meira. Ekki svigrúm til uppbyggingar  Fjárveitingar til Selfosslögreglu verða nánast hinar sömu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Floti Bílar lögreglunnar á Selfossi. Oddur Árnason E N N E M M / S ÍA / N M 5 8 7 11 SPARNEYTNIR OG TRAUSTIR Gerðu örugg bílakaup – veldu Subaru Subaru Outback 2.0TD, sjálfskiptur, dísil Verð: 6.990.000 kr. 6,4 l / 100 km í blönduðum akstri Subaru Forester PREMIUM, sjálfskiptur Verð: 5.790.000 kr. 6,5 l / 100 km í blönduðum akstri Subaru XV 2.0i, sjálfskiptur Verð: 5.390.000 kr. 6,6 l / 100 km í blönduðum akstri NÝR DÍSIL SJÁLFSKIPTUR BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkst. Austurlands / Egilsst. / 470 5070 IB ehf. / Selfossi / 480 8080

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.