Morgunblaðið - 09.10.2013, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.10.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Málfundafélag Lögréttu heldur málfund fimmtudaginn 10. október klukkan 17:30 í húsnæði Háskólans í Reykjavík, stofu M101. Yfirskrift málfundarins er ,,Hvað er að gerast í Sýrlandi?“ Á fund- inum verður meðal annars fjallað almennt um ástandið í Sýrlandi, efnavopn, beitingu vopnavalds og hvaða álitaefnum Ísland stendur frammi fyrir og hvernig þetta teng- ist Íslandi. Gunnar Bragi Sveinsson, utan- ríkisráðherra, mun opna málþingið en framsögumenn verða Þórdís Ingadóttir, dósent við lagadeild HR og Hermann Ottósson, fram- kvæmdastjóri Rauða krossins á Ís- landi. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Málfundur um ástandið í Sýrlandi Múlagöng við Ólafsfjörð verða lok- uð í tvær nætur í þessari viku vegna vinnu verktaka, þ.e. aðfaranætur fimmtudags og föstudags, frá kl. 23.00 og til kl. 06.30. Vegagerðin tekur fram að við- bragðsaðilar geta farið um göngin án tafa þó lokun standi yfir. „Vegagerðin vonar að vegfar- endur taki þessu vel og sýni ýtrustu aðgát við akstur meðan á fram- kvæmdum stendur, fyrir og eftir lokanir,“ segir í tilkynningu. Múlagöng lokuð Faxaflóahafnir halda árlegt mál- þing með not- endum á svæði Faxaflóahafna sf. miðvikudaginn 9. október í Hörp- unni kl. 16:00, í salnum Rímu. Dagskrá fund- arins verður með þeim hætti að for- maður stjórnar, Hjálmar Sveinsson, ýtir málþinginu úr vör, Gísli Gísla- son, hafnarstjóri fer yfir helstu verkefni ársins 2014, en í framhaldi mun Bergþóra Bergsdóttir, verk- fræðinemi, kynnna efni skýrslu um þróun mála í Gömlu höfninni. Fleiri erindi verða flutt. Fundurinn er öll- um opinn. Málþing um starf- semi Faxaflóahafna „Hótelið mun breyta ferðaþjónustunni á svæðinu. Í dag er fullt af ferðafólki sem vildi dvelja lengur á svæðinu en hefur ekki möguleika á því þar sem skortur er á gisti- rými á svæðinu,“ segir Vilhjálmur Sigurðs- son, einn af eigendum nýs þriggja stjörnu hótels, Hótels Laxár sem opnað verður 1. júlí nk. í landi Arnarvatns í suðurhluta Mý- vatnssveitar. Með tilkomu hótelsins verður 60% aukning á gistirýmum á svæðinu. Her- bergi hótelsins verða 80 talsins og stærð þess er um 3.000 fermetrar. Bókanir eru þegar hafnar. Hugmyndin er að þetta verði „grænt“ hótel þar sem rekstur og fram- kvæmdir verða í sem mestri sátt við náttúr- una. Margrét Hólm Valsdóttir hefur verið ráð- in hótelstjóri. Ráðið verður í aðrar stöður á næstu misserum. Vilhjálmur og Hjálmar Pétursson ásamt meðfjárfesti standa að hótelframkvæmdunum. Hótelbyggingin hef- ur verið fjögur ár í undirbúningi en það er Teiknistofa Pro-ark og Ydda arkitektastofa sem hafa séð um hönnun. thorunn@mbl.is 80 herbergja hótel reist í Mývatnssveit  60% aukning verður á gistirýmum á svæðinu  Margrét Hólm Valsdóttir verður hótelstýra Hótel Laxá Teiknistofa Pro-ark ásamt Yddu arkitektastofu hefur séð um hönnun hótelsins. Trjágróður sem vex út á stíga tef- ur för snjóruðn- ingstækja og í gegnum árin hef- ur komið fyrir að stígum hafi verið sleppt úr til að valda ekki tjóni á tækjum og hættu á slysum. Reykjavíkurborg hvetur garðeigendur til að klippa trjá- gróður sem vex út fyrir lóðarmörk, ekki eingöngu vegna snjóruðnings- tækjanna, heldur einnig til að sýna samborgurum sínum tillitssemi. Trjágróður tefur för snjóruðningstækja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.