Morgunblaðið - 09.10.2013, Page 19

Morgunblaðið - 09.10.2013, Page 19
Bakkafjörður stendur við samnefndan fjörð sem gengur inn úr Bakkaflóa sunnan Langaness. Þorpið tilheyrir Langanesbyggð og stendur í landi jarðarinnar Hafnar og varð löggiltur verslunarstaður undir lok 19. aldar og fékk þá nafnið Höfn. Íbúar þorpsins eru um 80 talsins. Helstu atvinnuvegir eru útgerð og fiskvinnslaLjósmynd/MatsWibe Lund MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Toppfiskur ehf • Hafnargötu 4 • 685 Bakkafirði • Sími 473 1380 íbúar skráðir í sveitarfélaginu. Freydís Gunnlaugsdóttir starfar í grunnskólanum sem er næst stærsti atvinnuveitandinn á staðnum. Hún er uppalinn Bakk- firðingur og hefur búið þar lung- ann úr ævinni og samfellt frá 25 ára aldri. „Ég myndi segja að þrautseigjan einkenndi okkur. Við höfum farið ofan í dali og svo hefur birt til. Vissulega hefur fólki fækk- að og það helgast kannski af því að það eru ekki nægilega mörg at- vinnutækifæri fyrir unga fólkið þegar það klárar sitt nám,“ segir Freydís. Börnin í öruggu umhverfi Sextán börn eru í grunnskól- anum á Bakkafirði. „Þetta er vissulega hátt hlutfall en það hafa oft verið mörg börn í bænum,“ segir Freydís. Hún segir að í takt við þjóðfélagsbreytingar hafi stað- urinn tekið stakkaskiptum. „Við þurfum á því að halda að fá ungt fólk hérna til baka. Að búa eitt- hvað til fyrir fólk sem er búið að mennta sig,“ segir Freydís. Hún segir bæinn hafa margt upp á að bjóða. „Börnin eru örugg í umhverfinu hérna og geta fylgst með þeim sem eldri eru að vinnu. Svo er þetta mjög rólegt og mikil kyrrð og ekki þetta stress sem er í þéttbýlinu. Svo þarf maður alltað að vega þetta og meta. Spyrja sig hvað það er sem skiptir máli í líf- inu. Hér sérðu norðurljós og heyr- ir fuglana syngja. Slíkt verður ekki metið til fjár,“ segir Freydís. Gamla höfnin Krana þurfti til þess að hífa báta á land í gömlu höfninni. Hafnarvörður Indriði Þóroddsson hefur búið í tæp 40 ár á Bakkafirði og hefur sinnt starfi hafnarvarðar í 18 ár. „Þetta er meðal hæstu vinnustaða landsins, þar sem fjallið er 719 metra hátt,“ segir Ólafur sem keyrir upp á fjallið á hverjum degi. Hann segir að hann kunni vel við sig í starfi. „Það kom í ljós að það þurfti kannski ekki að vera með mannskap í þessu allan sólarhringinn og þess vegna hefur fækk- að svona í starfinu. Tækninni fleygir fram og nú er hægt að gera svo margt með fjarstýrðum hætti að sunnan,“ segir Ólafur. Ekki hlaupið í aðra vinnu Hann segir að allra veðra sé von á fjallinu og hefur hann einu sinni þurft að gista þar af þeim sök- um. Aðspurður segir hann eftirsjá að vinnufélög- unum en starfið sé þó síður en svo einmanalegt. „Maður hefur heyrt af því að það sé verið að þróa nýja tækni, en hvort hún muni leysa ratsjána alfarið af hólmi skal ósagt látið. Ég er ekki vel að mér í því,“ segir Ólafur og bætir við: ,,Ég ætla rétt að vona að ég haldi vinnunni, í það minnsta að sinni. Það er ekki beint hlaupið í aðra vinnu á þessum stað,“ segir Ólafur og hlær við. Spurður hvort eitt- hvert atvik standi upp úr á hans starfsferli, þá stendur ekki á svari: „Við erum með veðurstöð þarna og ég man eftir því að hafa mælt 75 metra vindhraða á sekúndu í öflugustu hviðunum og 55 metra meðalvindhraða á tíu mínútum. Það datt ekki nokkrum manni í hug að fara út í það veður,“ segir Ólafur af þunga. Morgunblaðið/Árni Sæberg NATO Tækjabúnaðurinn er rekinn með styrkjum. Einn af síðustu almennings- símum landsins stendur á Bakkafirði. Nýlega birtist frétt í Morgun- blaðinu þess efnis að til stæði að taka þá þrettán símaklefa Símans sem eftir eru á landinu úr sambandi á næstunni. Sá fjórtándi, símaklefinn, við Lækj- artorg, fær hins vegar að standa áfram. Símaklefarnir sem teknir verða úr notkun eru á Búð- ardal, Hvammstanga, Blönduósi, Súðavík, Kópaskeri, Egils- stöðum, Borgarfirði eystri, Vopnafirði, Kirkjubæjarklaustri, Vík, tveir í Reykjahlíð auk Bakkafjarðar. Gjarnan er lítil notkun á sím- unum og samkvæmt upplýs- ingum frá Símanum nemur notkunin aðeins um nokkur hundruð krónum á hverju ári í sumum símanna og er einna minnst notkun á Bakkafirði. vidar@mbl.is Þrettán almenningssímar verða teknir úr notkun Morgunblaðið/Golli Þrettán símar Á Bakkafirði stendur einn þrettán almenningssíma. Einn síðasti síma- klefinn er á Bakkafirði Fáir eftir Almenningssíminn á Bakkafirði er lítið notaður. Indriði segir að fólk á svæðinu fylg- ist spennt með því hvort eitthvað verði af byggingu nýrrar hafnar í Finnafirði. Fyrr á árinu komu sérfræðingar þýska félagsins Bremenport til landsins til að kanna mögulega hafnargerð. Áttu þeir viðtöl við sér- fræðinga á ýmsum sviðum hér á landi. Við það tækifæri komu sér- fræðingarnir víða við á Íslandi og sinntu störfum í Finnafirði sem er rétt sunnan við Þórshöfn á Langanesi. Höfn í Finnafirði FYLGIST MEÐ UMSVIFUM BREMENPORT Á ÍSLANDI Finnafjörður Er höfn í vændum?  Næsti viðkomustaður 100 daga hringferðar Morg- unblaðsins er Bakkagerði. Á morgun  Skeggjastaðakirkja í Múlaprófasts- dæmi, sem stendur við Bakkafjörð á Langanesströnd, er elsta kirkja á Austurlandi. Hún var byggð úr reka- viði árið 1845. Kirkjan hlaut gagn- gerar endurbætur í byrjun sjöunda áratugar síðustu aldar, var turni þá bætt á hana og henni lyft og stendur hún nú á steyptum grunni. Hún tekur um 100 manns í sæti og þakið er úr timbri. Predikunarstóllinn er danskur og talsvert eldri en kirkj- an sjálf, líklega frá fyrri hluta 18. ald- ar, og altaristaflan var máluð árið 1857. Kirkjan var friðuð árið 1990. Var byggð úr rekaviði árið 1845 Skeggjastaðakirkja Hún tekur um 100 manns í sæti og var friðuð 1990.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.