Morgunblaðið - 09.10.2013, Síða 24

Morgunblaðið - 09.10.2013, Síða 24
FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is F lutningaskipið Nordic Orion kom til Pori í Finnlandi í gær með 73.500 tonna kolafarm. Skipið sigldi norð- vesturleiðina í gegnum Íshafið frá Vancouver í Kanada til Finnlands með farminn. Siglingin hófst í Van- couver 6. september síðastliðinn og tók því rúman mánuð. Nordic Orion varð þar með fyrsta búlkaskipið (bulk carrier) til að sigla þessa leið milli Kanada og Finnlands vegna farmflutninga. Norðvesturleiðin er þúsund sjómíl- um (1.852 km) styttri en ef farið er um Panamaskurðinn. Skipið kom fjórum til fimm dögum fyrr á áfangastað en ef lengri leiðin hefði verið valin. Einnig gat skipið siglt fulllestað og þar með flutt fjórðungi meiri farm en hefði það farið um Pa- namaskurð. Ástæðan er sú að há- marks djúprista skipa í skipaskurð- inum er 11,5 metrar en fulllestað ristir Nordic Orion 14 metra. Vegna styttri siglingaleiðar sparaðist elds- neyti að andvirði um 80.000 banda- ríkjadala (9,7 milljónir ÍKR). Auk þess þýddi eldsneytissparnaðurinn minni losun gróðurhúsalofttegunda. Christian Bonfils, fram- kvæmdastjóri útgerðarinnar Nordic Bulk Carriers A/S, sem gerir út Nordic Orion, sagði í tilkynningu að þeir hefðu verið mjög spenntir vegna hinnar sögulegu siglingar skipsins. Hún hefði verið draumur þeirra og keppikefli um árabil. Augljós áhugi Kanadamanna Hann sagði einnig að siglingin hefði verið skipulögð í nánu sam- starfi við kanadísk samgönguyfir- völd og kanadísku strandgæsluna til að tryggja fullkomið öryggi. Skipið fékk m.a. sérstaka mengunarvarna- vottun frá samgönguyfirvöldum í Kanada. National Post í Kanada greindi frá því að kanadísk stjórnvöld hefðu stutt siglinguna og hvatt til hennar. Meðal annars báru kanadísk stjórn- völd kostnaðinn af fylgd ísbrjóts í gegnum ísilögð hafsvæði norðan Kanada. Sem kunnugt er hafa rúss- nesk stjórnvöld lagt mikla vinnu og fjármuni í að byggja upp norðaust- ursiglingaleiðina um Norður- Íshafið milli Atlantshafs og Kyrra- hafs. Það kann að skýra áhuga Kan- adamanna á að opna norðvesturleiðina fyrir skipaum- ferð, þegar aðstæður leyfa. Nordic Orion er sérstaklega smíðað til siglinga í ís og uppfyllir kröfur 1A um slík skip. Talið er að norðvesturleiðin geti verið opin fyr- ir flutningaskip í um tvo mánuði á ári, en það ræðst af veðri og ástandi hafíssins á svæðinu á hverjum tíma. Söguleg sigling um norðvesturleiðina Norðvesturleiðin Sigling Nordic Orion Grænland Ísland Finnland Rússland Noregur Svíþjóð Danmörk Bretland Írland Færeyjar Jan Mayen Svalbarði Alaska (Bandaríkin) Kanada Bandaríkin Baffineyja (Kanada) Nýfundnal. og Labrador (Kanada) Viktoríueyja (Kanada) Ellesmere-eyja (Kanada) Norðurpóll Beringsund Norðvestur- sund Davis- sund Pori Vancouver 24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Brátt verðuröld liðin fráþví að ís- lenskar konur fengu kosninga- rétt. Þá er verið að horfa til ársins 1915. Hannes Haf- stein ráðherra réði úrslitum um að það réttlæt- ismál náði fram að ganga, en vaskur hópur baráttukvenna og samherja þeirra í röðum karla beitti þeim þrýstingi sem að lokum dugði. Þetta er upp- setning rétttrúnaðarins, en hún er ekki nákvæm. Þegar kosningarétti kvenna er fagnað, sem sjálfsagt er, virðist stundum undirliggjandi að karlar hafi haft kosninga- rétt öldum saman og því hafi kosningaréttur kvenna frá og með 1915 sætt svo miklum tíð- indum. En það er skökk mynd af raunveruleikanum. Kosn- ingaréttur Íslendinga kemur ekki til fyrr en með fyrstu kosningunum til endurreists Alþingis, sem fram fara árið 1844. Alþingi hafði þó ein- göngu ráðgefandi vald og áhrif kosningaréttarins voru því miklum mun minni en varð eft- ir að heimastjórn vannst árið 1904 og loks fullveldi 1918. En konur voru ekki einar um að hafa ekki einu sinni aðgang til að kjósa til ráðgefandi Al- þingis Íslendinga. Það hét vissulega að karlmenn 25 ára og eldri hefðu kosningarétt. En það höfðu þó aðeins þeir sem uppfylltu ákveðin skilyrði um eignir. Þau skilyrði leiddu til þess að einungis um 5% landsmanna nutu kosninga- réttar. Allur þorri karlmanna á Íslandi hafði því ekki kosn- ingarétt við þær aðstæður fremur en konurnar, eins og þó mætti stundum ráða af um- ræðunni að þeir hefðu haft. Í tengslum við heimastjórn árið 1903 voru ákvæði um kosningarétt efnaminni manna rýmkuð nokkuð. Rétt er að hafa hugfast að árið 1915 fengu ekki allar konur sem náð höfðu kosningaaldri kosninga- rétt en skilyrði um eignir voru þó felld niður að mestu. Nú væri tilvalið að hafa nokkur hátíðarbrigði árið 2015 og minnast myndarlega mik- ilvægra áfanga í kosningarétti til handa fjöldanum, en kosn- ingarétturinn er auðvitað und- irstaða lýðræðisins. Þá færi best að fögnuðurinn beindist að kosningarétti Íslendinga al- mennt. En jafnvel eftir rétt- lætisáfangann 1915 gilti áfram að eignalausir verkamenn og vinnumenn til sveita, konur og karlar, fengu samt ekki kosn- ingarétt fyrr en þau höfðu náð 40 ára aldri. Þau aldursmörk áttu að færast niður um eitt ár á hverju ári. Það er svo ekki fyrr en árið 1920 sem jafnrétti allra þeirra sem orðnir eru 25 ára gamlir næst loks fram. Aldursmarkið var lækkað í 21 ár árið 1934, í 20 ár 1968 og loks í 18 ár 1984. Og það má gjarnan hafa í huga að kosningar urðu ekki leynilegar fyrr en árið 1908. Fram að því fóru þær fram fyr- ir opnum tjöldum og greiddu menn atkvæði innan um náunga sína og undir vökulu auga yfirvalds, gjarnan borða- lagðs sýslumanns. Er ekki víst að allir hafi við slíkar aðstæður verið fullkomnir umráðamenn síns atkvæðis. En leynileg kosningaathöfn er aðeins hluti af sjálfstæði kjósandans. Mál hafa þróast þannig síðustu árin, ekki síst síðustu tæp tíu ár, að búið er að ríkisvæða stjórnmála- starfsemina að verulegu leyti. Allt hefur það sjálfsagt verið gert í göfugum tilgangi. Lengi var litið svo á að það væri eitt af hlutverkum stjórnmála- manna og eftir atvikum stjórn- málaflokka að hafa eftirlit með ríkisvaldinu, enda er þungi þess mikill þegar það stillir sér upp gagnvart einstakling- unum. En nú er ríkisvaldið komið með puttann í starfsemi stjórnmálaflokkanna í stór- auknum mæli og drýgstur hluti tekna þeirra kemur nú beint frá ríki og sveitarfélög- um. Síðustu ár hefur legið í lofti að fjárhagslegur stuðn- ingur annarra en ríkisins sé annarlegur, ef hann þá er ekki beinlínis veittur í glæp- samlegum tilgangi. Fjárhagslegur stuðningur einstaklinga og fyrirtækja þeirra er að stærstum hluta opinber og ríkisendurskoðun hottar á eftir upplýsingum frá flokkum og einstaklingum um þann stuðning. Það hlýtur þó að koma til álita að líta svo á að það sé hluti af vernduðum póli- tískum þætti sem nátengdur sé rétti til að fara leynilega með kosningarétt, að slíkur stuðn- ingur sé trúnaðarskyldur, nema hann fari út fyrir öll mörk. Hitt er augljóst að kjós- endur hafa á hinn bóginn minni ástæður til að treysta heil- indum stjórnmálaflokka, sem eru hnýttir fastir á ríkisjötuna eins og nú er komið og hafa því hagsmuni af því að tryggja rík- inu sem mestar skatttekjur á kostnað fjárhagslegs svigrúms borgaranna. Stundum er látið eins og íslenskar konur hafi fengið kosningarétt löngu eftir að karlar öðl- uðust hann} Ríkiseftirlit með stjórn- málum komið á ystu nöf É g sat um daginn kynningu á vegum tæknifyrirtækisins IBM það sem fjallað var um það sem IBM-verjar, og fleiri reyndar, kalla „millennials“ og vísar til þeirra sem fæddir eru á árunum 1980 til 1995. Köllum það þúsaldarfólk upp á íslensku. Á ráðstefnunni kynntu starfsmenn IBM starf teymis sem fyrirtækið kom á legg til að rannsaka þúsaldarkynslóðina, verðandi viðskiptavini, hvort sem að er sem stjórn- endur fyrirtækja sem IBM á í viðskiptum við eða sem viðskiptavinir fyrirtækja sem IMB þjónustar. Téðar rannsóknir fólu í sér viðtöl við þú- saldarfólk (þúseldinga? þúsöldur?), viðhorfs- kannanir og þar fram eftir götunum. Kom í ljós að þúsaldarfólk er um margt ólíkt þeirri kynslóð sem brátt hverfur af sjónarsviðinu, fer á eftirlaun á næstu árum, og þá kannski einna helst fyrir það, sögðu IBM-menn, að fólk sem fætt er eftir 1980 þekkir ekki heiminn öðruvísi en nettengdan (veraldarvefurinn varð til 1989-1990) og er því tamara að nota nettengd tæki og tól en þeim sem eldri eru – er eiginlega sí- tengt og sífellt að senda og taka við skilaboðum. Fleira slíkt var nefnt sem gerir þúsaldarfólk spenn- andi bráð fyrir hátæknifyrirtæki eins og IBM, en meira um vert fannst mér að heyra það að það er með meiri samfélagslega meðvitund en við gamla fólkið, Einnig kom fram að ungt fólk af þessari kynslóð ber ekki virðingu fyrir yfirmönnum fyrir það eitt að þeir séu yfirmenn og er því líklegra að ræða við þá á jafningjagrund- velli í kaffistofunni en þeir sem eldri eru. Að sama skapi sætta þúsaldarstarfsmenn sig síður við slæma vinnuaðstöðu en fyrri kynslóðir og eru ófeimnari að segja upp ef þeim líkar ekki starfið, þess fullvissir að þeir geti fundið annað starf sem hentar þeim betur og veitir þeim meiri lífsfyllingu. Finnst hamingja skipta meira máli en pen- ingar. Þeir eru líka ófeimnari við að hætta í vinnu til að skipta algerlega um starfsvett- vang – hætta á lögmannsstofunni til að læra fatahönnun, segja upp á spítalanum til að læra matreiðslu og svo má telja; hugrakkari segi ég þó sumum þyki það fífldirfska. Þúsaldarfólk er líka ekki eins gefið fyrir skipanir að ofan, vill fá að vera með og finnst það eðlilegt að á það sé hlustað. Það er algengt að eftir því sem menn eldast hafi þeir æ meira á hornum sér og þá helst hvað ungt fólk sé ómögulegt – óagað og ókurteist og tilætlunarsamt og guðmávitahvað. Minnugur þess hvernig málum var háttað þegar ég var ungur maður verð ég að viður- kenna að mér hlýnaði um hjartarætur að heyra hvern- ig kynslóðin sem tekur nú við er minni kynslóð fremri að flestu leyti, meðvitaðri, sjálfstæðari, kjarkaðri og hamingjusamari. arnim@mbl.is Þúsaldarfólkið tekur við Pistill Árni Matthíasson STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Nordic Orion siglir undir fána Pa- nama og er í eigu danska félagsins Nordic Bulk Carriers A/S. Félagið hefur sér- hæft sig í út- gerð skipa sem eru styrkt til siglinga í ís. Það var einnig eitt fyrsta skipafélagið sem sendi flutningaskip eftir norðaust- urleiðinni um Íshafið norðan Rússlands milli Kyrrahafs og Al- antshafs. Nordic Orion er búlkaskip (bulk carrier) og var smíðað ár- ið 2011 í Oshima-skipasmíða- stöðinni í Japan. Skipið er 225 metra langt og 32 metra breitt. Það er sérstaklega styrkt til siglinga í ís og er í flokki 1A. Burðargeta er 75.603 tonn og vélaraflið 18.420 hestöfl (bhp). Styrkt til siglinga í ís ÚTGERÐIN HEFUR ÁHUGA Á NORÐURSIGLINGUM Hafísinn hörfar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.