Morgunblaðið - 04.11.2013, Page 1
M Á N U D A G U R 4. N Ó V E M B E R 2 0 1 3
256. tölublað 101. árgangur
ÍSLENDINGAR OG
KRÓATAR JAFNIR
UM HELGINA
SÚKKULAÐI-
MEISTARI Í
REYKHOLTI
SKÁTASTARF
FRÁBÆRT FYRIR
FULLORÐNA
100 DAGA HRINGFERÐ 14 LEIÐTOGAR 10ÍÞRÓTTIR
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Kæling Sjó dælt á flutningaskipið Fern-
öndu utan við Faxaflóa um helgina.
Fulltrúi frá tryggingafélagi út-
gerðar flutningaskipsins Fernöndu
var hér á landi um helgina til að
afla upplýsinga um ástand hennar.
Að sögn Ásgríms Ásgrímssonar,
framkvæmdastjóra aðgerða hjá
Landhelgisgæslunni, verður vænt-
anlega haft samband við trygginga-
félagið þegar fram líða stundir um
kostnaðinn við björgunarstarfið
sem hefur verið umfangsmikið.
Talið er að eldurinn um borð sé
kulnaður en taka átti ákvörðun um
næstu skref á samráðsfundi nokk-
urra aðila nú í morgun. Beðið er
eftir að menn komist um borð til að
meta ástandið. Takmarkið er að
koma skipinu á öruggan stað þar
sem hægt er að dæla olíu úr því. »6
Ræða kostnaðinn
við björgunina þeg-
ar fram líða stundir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Félagsmenn starfsmanna ríkisstofn-
ana óttast uppsagnir með haustinu.
Hagræðing er víða í undirbúningi og
má nefna að Vinnumálastofnun hef-
ur fækkað um 25 í starfsliði sínu.
„Starfsmenn voru 160 í byrjun árs
en eru nú 135. Þeir voru til saman-
burðar um hundrað fyrir efnahags-
hrunið. Við höfum lagað reksturinn
að minna atvinnuleysi og búið okkur
undir fækkun fólks í nokkurn tíma,“
segir Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar.
Sjö starfsmönnum Vinnumála-
stofnunar var sagt upp um mánaða-
mótin. Þá voru sjö tímabundnar
ráðningar ekki framlengdar og ekki
var ráðið í störf 11 starfsmanna sem
létu af störfum í ár. Alls hefur því
verið fækkað um 25 stöðugildi.
Gissur segir stofnunina ekki hafa
fengið tilkynningar um hópuppsagn-
ir hjá ríkinu um mánaðamótin.
Uppsagnir víða í skoðun
Árni Stefán Jónsson, formaður
SFR – stéttarfélags í almannaþágu,
segir félagsmenn óttast uppsagnir.
„Þetta er eitthvað sem vofir yfir.
Maður heyrir að margar stofnanir
velta þessu fyrir sér í ljósi fjárlaga.
Mér er ekki kunnugt um að ákvörð-
un um uppsagnir hafi verið tekin, ef
undan er skilin Vinnumálastofnun.
Við erum afar áhyggjufull.
Við höfum í aðdraganda fjárlaga
og eftir að þau komu fram bent á að
við höfum miklar áhyggjur af starfs-
öryggi okkar félagsmanna. Ég tala
nú ekki um hagræðingarnefndina.
Við eigum eftir að sjá hvað hún legg-
ur fram til lengri tíma litið. Þegar
maður hélt að það versta væri yfir-
staðið og að landið yrði farið að rísa
er staðan þvert á móti sú árið 2013 að
uppsagnir vofa yfir. Það veldur mikl-
um vonbrigðum,“ segir Árni Stefán.
Búið að skera fituna af
Elín Björg Jónsdóttir, formaður
BSRB, segir stofnanir hafa lítið sem
ekkert svigrúm til hagræðingar.
Hún óttist að hagræðing bitni á
störfum. Fitan í rekstrinum sé farin,
enda hafi verið skorið inn að beini.
Vigdís Hauksdóttir á sæti í hag-
ræðingarhópi ríkisstjórnarinnar.
Hún segir hagræðingu kalla á upp-
sagnir ríkisstarfsmanna.
MRíkisstarfsmönnum fækki »6
Segja uppsagnir vofa yfir
Formenn félaga ríkisstofnana áhyggjufullir Vinnumálastofnun fækkar fólki
Þingmaður í hagræðingarhópi segir nauðsynlegt að fækka ríkisstarfsmönnum
Ljósmynd/Alexander Matukhno
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni
lauk með tónleikum og þrívídd-
arsýningu þýsku rafhljómsveit-
arinnar Kraftwerk í Eldborgarsal
Hörpu í gærkvöldi.
„Hátíðin hefur gengið alveg frá-
bærlega. Það voru margir flottir
viðburðir, frá þeim smæstu til hinna
stærstu. Það er örugglega mat
hvers og eins hvað var markverðast
en það var gaman að upplifa Ólaf
Arnalds og Sinfóníuna í Hörpu og
Kraftwerk,“ segir Grímur Atlason,
framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
Um 4.500 útlendingar hafi komið
hingað til lands vegna hátíðarinnar.
Grímur segir að það sé íslensk tón-
list sem kveiki áhugann hjá útlend-
ingum að koma á hátíðina enda séu
156 af rúmlega 200 hljómsveitum
sem komu fram íslenskar.
„Það voru margir að fylgjast með
nýstirnunum sem vinna Músíktil-
raunir því það hafa komið út úr
þeim bönd sem hafa verið öflug,
eins og Of Monsters and Men,“ seg-
ir hann.
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir úr
hljómsveitinni FM Belfast sem spil-
aði í Silfurbergi á laugardagskvöld
segir að hátíðin í ár hafi verið sú
best skipulagða frá bæjardyrum
hljómsveitanna séð. „Það eru allir
ánægðir og ótrúlega vel að þessu
staðið,“ segir hún en þetta var í sjö-
unda skipti sem hljómsveitin kemur
fram á hátíðinni. Hljómleikar henn-
ar á laugardagskvöld tókust vel en
á tímabili dúaði gólfið í Hörpu þeg-
ar tónleikagestir hoppuðu í takt við
tónana. »34-35
Einstök upplifun í Eldborg
Iceland Airwaves-hátíðin sú best skipulagða hingað til Gólfið í Hörpu dúaði
Rafpopp Þjóðverjarnir í Kraftwerk spiluðu í rúma tvo tíma en á tjald á bak við þá var varpað þrívíddarsýningu sem gerði tónleikana að einstakri upplifun.
Upplýsingar á
síðunni verða
aldrei persónu-
greinanlegar,
segir Páll Matt-
híasson, forstjóri
Landspítalans.
Stjórnendur
sjúkrahússins
hafa ákveðið að
opna fésbókar-
síðu í þeim til-
gangi að auka upplýsingar og bæta
samskipti við almenning. Á spjall-
rás verður hægt að fá almennar
upplýsingar um heilbrigðisþjónustu
auk þess sem miðlað verður frétt-
um úr fjölbreyttri starfsemi sjúkra-
hússins, stærsta vinnustaðar lands-
ins. »6
Ekkert verður per-
sónugreinanlegt
Páll
Matthíasson
Framkvæmdastjóri Íslensks elds-
neytis, Sigurður Eiríksson, segir
fyrirtækið búa yfir afkastagetu til
þess að sinna öllum þungaflutn-
ingafyrirtækjum landsins en Ís-
lenskt eldsneyti framleiðir lífræna
jurtaolíu til íblöndunar í dísilolíu.
Á næsta ári er svo stefnt að því
að hefja þörungarækt til olíu-
framleiðslu í þartilgerðum tjörn-
um, en að sögn Sigurðar er hug-
myndin sú að ræktunin taki alfarið
við af innfluttri repjuolíu. „Vonandi
verður hægt að hætta við kaup á
innfluttri repjuolíu innan þriggja
ára,“ segir Sigurður. »18
Þörungarækt í stað
innfluttrar repjuolíu