Morgunblaðið - 04.11.2013, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013
Stundum eru fullveldissinnarþjóðar spurðir með þjósti,
hvers vegna í ósköpunum þeir vilji
ekki ganga í ESB. Þá er því eðli-
lega svarað, að slík rök séu yfir-
fljótandi, en best fari á því, að
þeir sem vilji
hverfa frá harð-
sóttu fullveldi þjóð-
ar, sýni fyrst á sín
spil.
Evran,“ svöruðumenn lengi
vel, „evran.“
En eftir að evran breyttist íhengingaról þjóða sem liggja
of langt frá Brandenborgarhliðinu
varð fátt til að styðja boðskapinn.
En ESB-sinnum leggst þó eitt-hvað til. Nýlega var sagt frá
því, hve kommissörum var brugðið
þegar áreiðanlegar fréttir sýndu
að Finnar notuðu helmingi meira
vatn í sína klósettkassa en þeir í
Lúxemborg í sína. Hart var auð-
vitað brugðist við og fyrirskipað
að samræma skuli klósettkassa í
ESB innan fárra ára. Vegna anna
hefur hins vegar ekki enn náðst
að ljúka tilskipun um hvenær sól-
arhrings einstakar þjóðir skuli
nýta sína kassa.
En ekki hafði fyrr tekist aðkoma í veg fyrir að einstakar
þjóðir ESB áskildu sér rétt til að
ráða, eða sem enn verra er að
skipta sér af, stærð klósettkassa,
en óvænt var upplýst að sumar
ryksugur á ESB-svæðinu eru 1.800
W. (Kannski hefur Snowden kom-
ist yfir þetta laumuspil).
Þetta var mikið reiðarslag, ennú hafa Barroso og hans
menn sem betur fer ákveðið að
eftir 2017 megi engin ryksuga í
álfunni vera meira en 900 W.
Hvað segja fullveldisvinir nú?
Jose Manuel
Barroso
Aðildarrökin
hrannast upp
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 3.11., kl. 18.00
Reykjavík 0 léttskýjað
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri -3 skýjað
Nuuk -3 alskýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 6 skúrir
Kaupmannahöfn 10 léttskýjað
Stokkhólmur 7 alskýjað
Helsinki 3 skýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 8 skýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 11 léttskýjað
París 10 heiðskírt
Amsterdam 8 slydda
Hamborg 10 léttskýjað
Berlín 8 léttskýjað
Vín 11 skýjað
Moskva 7 skúrir
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 17 skýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 20 léttskýjað
Aþena 18 heiðskírt
Winnipeg 3 skýjað
Montreal 1 léttskýjað
New York 9 alskýjað
Chicago 8 léttskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
4. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:22 17:02
ÍSAFJÖRÐUR 9:41 16:53
SIGLUFJÖRÐUR 9:24 16:35
DJÚPIVOGUR 8:55 16:28
Ekki lítur út fyrir að Náttúru-
minjasafn Íslands flytji í Perluna í
bráð þó vinna við fyrirhugað safn þar
sé í gangi. „Það er búið að samþykkja
400 milljónir í safnið samkvæmt fjár-
lögum 2013 en með nýrri ríkisstjórn
eru breyttar tekjuforsendur, nýting-
arheimildin liggur nú hjá mennta-
málaráðuneytinu og þá þarf að taka
þetta fyrir í fjáraukalögum ársins
2014. Sú umræða hefur ekki farið
fram,“ segir dr. Hilmar J. Malmquist,
forstöðumaður Náttúruminjasafns
Íslands. „Það hefur verið unnið í
þessu máli á lágstemmdum nótum frá
því í júní, unnið með borginni og arki-
tektum hússins í tengslum við sýning-
arhald þarna inni.“
Hilmar segir að það fari upp nátt-
úruminjasýning í Perlunni á end-
anum en það sé bara spurning hve-
nær. „Það er hægt að opna sýningu í
áföngum. Hryggjarstykkið í sýning-
arhaldinu er steypireyðarbeinagrind-
in og það væri hægt að koma henni
upp fyrir árslok á næsta ári. Þannig
er hægt að byrja strax þó ekki sé
mjög miklu til kostað og byrja að hala
inn tekjur af aðgangseyri til að geta
byggt safnið upp áfram. Á þremur ár-
um er vel hægt að setja upp mjög
sómasamlega sýningu,“ segir Hilmar.
Sögusafnið, sem hefur verið í Perl-
unni undanfarin ár, mun flytjast í
Allianz-húsið úti á Granda. Nú er
unnið að breytingum á því húsi undir
safnið sem verður væntanlega opnað
þar í byrjun næsta árs.
ingveldur@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Perlan Náttúruminjasafn fer þangað.
Sett upp í
áföngum
Náttúruminjasafn
í höndum Alþingis
Unnur Valborg Hilmarsdóttir hefur tekið við
starfi framkvæmdastjóra Selaseturs Íslands á
Hvammstanga. Unnur hefur 20 ára reynslu af
rekstri og stjórnun, sem aðstoðarframkvæmd-
astjóri Hreyfingar, framkvæmdastjóri Dale
Carnegie á Íslandi, stofnandi og eigandi Vend-
um stjórnendaþjálfunar sem er leiðandi fyr-
irtæki á sviði markþjálfunar á Íslandi. Unnur
hefur auk þessa komið að hinum ýmsu frum-
kvöðlaverkefnum. Unnur hefur BEd-próf frá
KHÍ, diploma í viðskipta- og rekstrarfræðum
frá EHÍ auk þess að hafa hlotið víðtæka þjálfun
í námskeiða- og fyrirlestrahaldi, lóðsun, þjálf-
un þjálfara og sölu- og sölustýringu. Unnur
hefur lokið námi í stjórnendamarkþjálfun frá
Coach University og Opna háskólanum í
Reykjavík og hefur ACC-vottun frá ICF, Int-
ernational Coach Federation.
Nýr framkvæmdastjóri Selaseturs Íslands tekinn við
Unnur Valborg
Hilmarsdóttir