Morgunblaðið - 04.11.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013
Viðhaldsfríar
hurðir
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 29 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Hydrovane loftpressur eru lágværar,
fyrirferðarlitlar, öflugar og henta alls
staðar þar sem þörf er á þrýstilofti.
Mikið úrval af hágæðaloftpressum,
lögnum og síum. Bjóðum lausnir
í þrýstilofti fyrir allar aðstæður.
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is
Allt annað líf
- með hljóðlátri loftpressu
Kynntu
þér úrvalið
á idnvelar.is
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnurgegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
aðminnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hraunið á Snæfellsnesi varð mér
innblástur. Hugmynd kviknaði og
þróaðist. Þegar ég settist niður með
prjónana í haust varð peysan með
öllum sínum mynstrum fyrir-
hafnarlítið til,“ segir Aðalheiður
Lára Guðmundsdóttir.
Óblíð veðrátta var þemað í keppni
sem Ístex og Landssamtök sauð-
fjárbænda stóðu að um fallegar
lopapeysur, en þátttakendur áttu að
hanna óveðurspeysu. Áhuginn var
mikill. Alls bárust 140 peysur og
valdi dómnefnd þá sem fallegust
þótti. Og það var peysa Aðalheiðar
Láru sem ber heitið Kafla og er
nefnd eftir á í eigu foreldra hennar
sem búa í Ytri-Knarrartungu í
Breiðuvík á Snæfellsnesi.
Tölurnar úr klaufbeinum
Grænn, svartur, hvítur og blár
eru litirnir í Köflu Aðalheiðar Láru,
peysu sem er hneppt og tölurnar
unnar úr klaufbeinum kinda.
„Einhverju sinni í vor þegar ég
var á vakt í sauðburðinum og að
bera tuggu úr rúllu inn í fjárhús
horfði ég á grænan mosann, dökkt
hraunið og bláan himininn. Mér
fannst þetta fallegt og heillandi og
tilvalið, í orðsins fyllstu merkingu,
að prjóna út frá þessu. Nei, það hef-
ur ekkert verið rætt hvort peysan
fer eitthvað í frekari framleiðslu. Að
minnsta kosti er engin teikning eða
uppskrift að mynstrum til. Þetta er
bara í höfðinu á mér en peysan sjálf
gæti auðvitað verið fyrirmynd,“
segir Aðalheiður Lára. Hún býr í
Grundarfirði en er með annan fót-
inn heima í Ytri-Knarrartungu;
Hamingjulandinu sem hún kallar
svo.
Tæplega fjörutíu frásagnir
Talið er að um 10 þúsund fjár
hafi orðið úti í óveðrinu á síðasta
ári. Sem kunnugt er var í kjölfar
hamfaranna efnt til söfnunarinnar
Gengið til fjár – og náðust þannig í
hús peningar sem nýttust bændum
vel. Til að safna heimildum um fjár-
skaðann var efnt til samkeppni um
frásagnir ýmiss konar og bárust alls
39 ritgerðir, sögur og ljóð. Vakti at-
hygli að fæst þessa var eftir börn og
unglinga. Sigurvegari keppninnar
var Jón Hólmsteinsson á Akureyri.
Vinningur Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir ásamt ungri fyrirsætu í peys-
unni sem hún hannaði út frá innblæstri sem hún fékk úr litum landsins.
Kafla kom úr hrauni
Sigraði í samkeppni um óveðurspeysuna Grænn mosi,
dökkt hraun og blár himinninn Prjónaði út frá hugmynd
Ljósmynd/Friðrik Örn Hjaltested
Ull Margar peysanna eru bráðfallegar og vöktu athygli á sauðfjárhátíð sem
var á Skólavörðustígnum í Reykjavík um næstsíðustu helgi.
Bráðasvið Landspítalans tók á síð-
asta ári 16.606 sinnum á móti fólki
sem slasast hafði í heimahúsum eða
við frístundir. Miðað við mann-
fjölda hafa slys af þessu tagi aldrei
verið fleiri, en þau teljast til 44%
allra slysa hér á landi. Kemur
þetta fram í Slysaskrá Íslands.
Í nýjasta tölublaði Talnabrunns,
fréttabréfi landlæknis um heil-
brigðisupplýsingar, kemur m.a.
fram að heima- og frítímaslysum
hefur fjölgað úr 38 slysum í 44 á
hverja 1.000 íbúa á árunum 2003 til
2012. Þá hefur nánari skoðun leitt í
ljós að slysaaukningin er mest hjá
yngstu og elstu Íslendingunum.
Meðal þeirra yngstu er hættan á
heima- og frítímaslysum mest hjá
börnum yngri en fimm ára og hef-
ur slysum fjölgað einna mest í
þeim aldurshópi, eða úr 67 í 83 slys
á hverja 1.000 íbúa. Slysum
drengja á þessum aldri hefur fjölg-
að úr 72 í 92 síðastliðinn áratug og
hjá stúlkum úr 62 slysum í 74.
Slysatíðni aldraðra hefur að
sama skapi aukist verulega síðasta
áratug en þar er kynjadreifingin þó
önnur en í yngsta aldurshópnum
því aldraðar konur eru líklegri til
að verða fyrir heima- og frí-
tímaslysum en karlar. Hefur tíðni
slysa meðal kvenna 80 ára og eldri
aukist úr 62 í 80 á hverja 1.000
íbúa árið 2012.
Heima- og frítíma-
slys aldrei fleiri
Teljast til 44% allra slysa hér á landi