Morgunblaðið - 04.11.2013, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013
HVERNIG FJALLA
FJÖLMIÐLAR UM
REGLUVÆÐINGU
FJÁRMÁLAMARKAÐA?
MARK SCHOEFF JR.
HELDUR FYRIRLESTUR
Í HÁTÍÐASAL HÁSKÓLA ÍSLANDS
MÁNUDAGINN 4. NÓV. KL. 12-13.30
Mark Schoeff Jr. er blaðamaður hjá Investment
News í Washington sem er viðskiptatímarit, gefið
út af Crain Communications. Schoeff Jr. skrifar um
löggjöf og reglugerðir tengdar verðbréfaviðskiptum
og fjármálamörkuðum og hefur sérstaklega fjallað
um innleiðingu Dodd-Frank laganna. Hann fjallar
einnig um bandaríska þingið, verðbréfaeftirlitið (SEC),
atvinnuvegaráðuneytið, auk fleiri eftirlitsaðila.
Mark Schoeff Jr. er með meistaragráðu í
Alþjóðaviðskiptum og stjórnsýslu frá George Mason
háskóla í Fairfax, Virginia. Hann lauk BA gráðu í
stjórnun og ensku frá Purdue háskóla.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir!
Ísland skreytir nú fimmtán lestarvagna sem fara
um lestarkerfi New York-borgar. Um auglýs-
ingaherferð flugfélagsins Icelandair er að ræða
en það hóf nýlega flug til Newark-flugvallar í
New Jersey og flýgur nú þangað og til JFK-
flugvallarins í New York.
Michael Raucheisen, markaðs- og upplýsinga-
fulltrúi Icelandair í Bandaríkjunum, segir að
vagnarnir séu veggfóðraðir frá hólfi til gólfs með
auglýsingu. En í lestarvögnunum má sjá íslensku
norðurljósin og sætin eru með ljósmyndum af
jöklum og fjöllum. Lestirnar með „íslensku“
vögnunum fara á milli New Jersey og New York.
Auglýsingaherferðin hófst í september og stend-
ur út nóvember, hún hefur fengið góðar viðtökur
að sögn Raucheisen. „Viðbrögðin hafa verið
hreint ótrúleg. Það má meðal annars sjá á sam-
félagsmiðlum eins og Twitter en þar er fólk að
birta myndir sem það tekur í vögnunum og lýsa
hrifningu sinni. Svona auglýsing nær til fjöl-
breytts hóps af fólki sem sest niður í lestinni og
hefur ekkert betra að gera en að horfa í kringum
sig. Það er öðruvísi að vera í svona vagni, eins og
að vera í öðrum heimi.“
Icelandair er fyrsta fyrirtækið til að kaupa allt
auglýsingapláss í heilum vögnum og innrétta þá á
þennan hátt. „Þetta hefur aldrei verið gert áður
hér, flestir kaupa bara pláss fyrir plaköt. En það
að hertaka heilan vagn hefur miklu meiri áhrif,
það höfum við orðið vör við,“ segir Raucheisen.
ingveldur@mbl.is
Veggfóðraðir lestarvagnar
Lestarvagn Sætin eru húðuð með mynd af íslenskum fjöllum.
Icelandair fer óhefðbundnar leiðir í New York Keypti
allt auglýsingapláss í fimmtán lestarvögnum undir Ísland
Litríkt Fimmtán lestarvagnar í New York eru „íslenskir“.
Landssamtök íslenskra stúdenta
voru stofnuð á Akureyri í gær. Á
stofnfundinum eignuðust samtökin
sinn fyrsta formann, Önnu Marsibil
Clausen, bókmenntafræðinema við
Háskóla Íslands. Þá var fram-
kvæmdastjórn LÍS skipuð.
„Hlutverk samtakanna verður að
vinna að samræmi gæðastarfs milli
háskóla á Íslandi og standa vörð um
sameiginlega hagsmuni stúdenta
hérlendis sem og á alþjóðavettvangi.
LÍS hefur þegar tekið við setu í
Sambandi evrópskra stúdenta
(ESU) sem og setu á samráðsvett-
vangi norrænna
stúdentafélaga
(NOM) fyrir hönd
íslenskra stúd-
enta en SHÍ er
stofnaðili að ESU
og hefur sinnt al-
þjóðastarfi ís-
lenskra stúdenta
allt frá fyrrihluta
síðustu aldar.
LÍS mun formlega sameina raddir
íslenskra stúdenta í fyrsta sinn og
standa að samstilltum aðgerðum,“
segir í yfirlýsingu frá samtökunum.
Sameinar raddir
íslenskra stúdenta
Anna Marsibil
Clausen
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
Börnum í Djúpavogsskóla hefur
fjölgað ört á seinustu árum. Í kjölfar
þess hefur þurft að bæta við starfs-
mönnum og fjármagni í rekstur skól-
ans. Upprunalega fjárhagsáætlun
fyrir 2013 gerði ráð fyrir 33,7 millj-
óna króna launakostnaði vegna leik-
skólans en útlit er fyrir að sú upp-
hæð muni nema 45,7 milljónum
króna í lok árs.
Aukinn kostnaður skýrist að
miklu leyti af fjölgun leikskólabarna
í Djúpavogsskóla, sem er bæði leik-,
grunn- og tónskóli. Leikskólabörn
eru nú orðin 50, en voru 35 fyrir
þremur árum.
Yngstu börnin í hótelið
„Við þurftum að grípa til þess ráðs
að setja yngstu börnin í annað hús-
næði því það er ekki nóg pláss fyrir
þau í leikskólanum. Samt er þetta
nýleg bygging sem var tekin í notk-
un 2005,“ segir Halldóra Dröfn Haf-
þórsdóttir, skólastýra Djúpavogs-
skóla. Skólinn leigir nú húsnæði af
Hótel Framtíð á Djúpavogi. Þar að
auki hefur skólinn þurft að bæta við
rúmum tveimur stöðugildum vegna
fjölgunar barna, m.a. til þess að
sinna börnunum í nýja húsnæðinu,
barns með sérþarfir og í matseld.
Fyrir fjórum árum voru 40 nem-
endur í Djúpavogsskóla en nú eru
þeir 63. Halldóra telur að fjölgun
skólabarna sé að hluta til vegna
fjölda fólks sem hefur flutt aftur til
Djúpavogs að loknu námi.
Fjárhagsáætlun Djúpavogs-
hrepps fyrir 2014 liggur ekki enn
fyrir. Sóley Dögg Birgisdóttir, for-
maður fræðslu- og jafnréttisnefndar,
og Halldóra búast báðar við því að
ekki muni þurfa að leigja aukahús-
næði fyrir leikskólabörn á næsta ári
þar sem stór árgangur mun færast
yfir í grunnskólann. „Miðað við að
við komum öllum börnunum aftur
inn í leikskólann býst ég við að
kostnaðurinn lækki,“ segir Sóley en
bætir við að enn sé verið að vinna að
tillögum um fjárhagsáætlun næsta
árs.
Halldóra, skólastjóri skólans, seg-
ir að búast megi við að leikskólabörn
verði orðin 80 eftir þrjú ár miðað við
þróunina undanfarin ár. Hún segir
einnig að útlit sé fyrir að grunnskól-
inn þurfi líka að flytja í nýtt húsnæði
á næstu árum.
Rætt hefur verið um að byggja við
núverandi byggingu en sú umræða
er enn á frumstigi milli skólans,
sveitarstjórnar og sveitarstjóra að
sögn Halldóru.
Í haust kom einnig „sprengja“ í
tónskólann en 52 nemendur, 48 úr
grunnskólanum og 5 úr leikskólan-
um, stunda þar tónlistarnám. Þar
hefur einnig þurft að bæta við starfs-
krafti en tveir tónlistarkennarar
sinna nú 2,7 stöðugildum til þess að
kenna öllum nemendunum. „Við höf-
um rætt að það þurfi kannski að
stjórna fjölda nemenda í tónskólan-
um en það er ekki búið að gera slíkt
ennþá,“ segir Halldóra.
Leikskóli, grunnskóli og tónskóli
Djúpavogs voru sameinaðir haustið
2011 til þess að styrkja faglegt starf
og til þess að spara, segir Halldóra.
Hvort sparnaður hefur náðst er enn
óljóst vegna hraðrar fjölgunar nem-
enda.
Morgunblaðið/Golli
Djúpivogur Fjölgun skólabarna er að hluta til vegna fjölda fólks sem hefur flutt aftur til Djúpavogs að loknu námi.
„Sprenging“ í skóla-
sókn á Djúpavogi
Börnum í leikskólanum fjölgað um 15 á síðustu þremur árum