Morgunblaðið - 04.11.2013, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013
Dr. Daniel Mitchell, aðalskattasérfræðingur Cato-stofnunarinnar
í Washington-borg, ræðir um varnarbaráttu skattgreiðenda gegn
sívaxandi ríkisbákni. Dr. Mitchell mun víkja að auknum ríkisút-
gjöldum um allan heim í kjölfar fjármálakreppunnar alþjóðlegu.
Hann mun einnig lýsa Laffer-boganum svonefnda, sem talsvert
hefur verið deilt um á Íslandi, en samkvæmt honum munu skatt-
tekjur að lokum minnka með aukinni skattheimtu, því að skatt-
stofninn mun þá minnka.
Fundarstjóri verður Erla Ósk Ásgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Askja, náttúrufræðihús Háskóla Íslands, stofa N-131,
mánudaginn 4. nóvember kl. 12–13
Samtök skattgreiðenda í samstarfi við RNH og AECR
Hættum að fóðra tröllið
Lánshæfismat Kópavogsbæjar er
B+ með stöðugum horfum, að mati
íslenska lánshæfismatsfyrirtækisins
Reitunar ehf. og er því óbreytt frá
því í júní þegar einkunnin var hækk-
uð úr B í B+. „Vel hefur gengið að
greiða niður skuldir og hafa áætl-
anir staðist,“ segir m.a. mati Reit-
unar.
„Fjárhagsstaða Kópavogsbæjar
hefur haldið áfram að batna á und-
anförnum misserum. Ekkert bendir
til annars en að jákvæð þróun í
rekstri sveitarfélagsins haldi áfram.
Áætlanir hafa gengið sem skyldi og
eru skuldir viðráðanlegar og veltufé
frá rekstri sterkt,“ segir orðrétt í
mati Reitunar.
Þar kemur jafnframt fram að
skuldahlutfall, þ.e. skuldir og skuld-
bindingar á móti tekjum, er nú
207% en var 217% í lok árs 2012.
Hlutfallið hafi lækkað ennfrekar það
sem af er síðari hluta ársins þar sem
lokið hafi verið við að greiða síðustu
greiðsluna af stóru erlendu láni
(Dexialáninu) í ágústmánuði. Eftir
standi eitt erlent lán að fjárhæð 644
m.kr. (4 m.EUR) sem sé tæpt 1,5%
af heildarskuldum og skuldbinding-
um í lok júní. Gengisáhætta sveitar-
félagsins sé því hverfandi.
Morgunblaðið/ÞÖK
Kópavogur Bæjarfélagið er með óbreytt lánshæfismat, B+.
Gengisáhætta hverfandi
Fjárfestingaveldi Warr-
ens Buffet, Berkshire
Hathaway, birti rekstr-
artölur síðasta fjórðungs
á föstudag. Hagnaðurinn
var töluvert umfram
væntingar markaðarins
eða 5,05 milljarðar dala,
sem jafngildir 3,074 döl-
um á hlut. Könnun meðal
markaðsgreinenda sem
framkvæmd var af
Thomson Reuters sýndi
væntingar upp á um
2,402 dala hagnað á hlut.
Hagnaðurinn á fjórð-
unginum er 29% hærri
en á sama tímabili í fyrra þegar fyrirtækið skilaði 3,92 milljarða ábata.
Markaðsvefur Wall Street Journal, MarketWatch segir tekjur hafa auk-
ist um 13% og numið 46,54 milljörðum dala. Hagnaðurinn er að stærstum
hluta skrifaður á sölutekjur og fjárfestingatekjur auk tekna af afleiðum.
ai@mbl.is
Berkshire Hathaway
skilar góðum hagnaði
Snjall Buffett kann að fjárfesta. Stjórnandi
Berkshire Hathaway á fyrirlestri fyrr í vetur.
AFP
Kínverska innkaupastjóravísitalan í
geirum öðrum en framleiðslu,
CPMINMAN, styrktist milli mán-
aða og fór úr 55,4 stigum í sept-
ember upp í 56,3 stig í október. Þeg-
ar vísitalan sýnir gildi fyrir 50
jafngildir það vexti.
Fréttaveita Bloomberg segir
styrkingu vísitölunnar á sunnudag
góð tíðindi fyrir kínversk stjórnvöld
og til marks um að efnahagsbati
landsins hafi ekki misst skriðþunga.
Ráðamenn í Peking hafa á und-
anförnum vikum lýst yfir að frekari
umbóta sé að vænta í kínverska
efnahagskerfinu með það að mark-
miði að viðhalda hagvexti. Styrking
CPMINMAN-vísitölunnar gefur til
kynna að bæði sé neysla að aukast
og eins störfum að fjölga. Á föstudag
birtu HSBC og Markit Economics
innkaupastjóravísitölur í fram-
leiðslugeira og voru báðar mæling-
arnar umfram væntingar.
Könnun sem Bloomberg gerði
meðal hagfræðinga spáir 7,6% aukn-
ingu í landsframleiðslu Kína á árinu
sem er 0,1 prósentustigum minni
hagvöxtur en á síðasta ári. Sama
könnun spáir að hægt geti á hag-
vexti niður í allt að 7,4% á næsta ári.
ai@mbl.is
AFP
Vöxtur Hagkerfi Kína virðist ágætlega burðugt. Fjármálahverfið í Sjanghæ.
Vísitala þjónustu-
geira styrkist í Kína
Eins og Morgunblaðið hefur áður
greint frá er útlit fyrir að upphaf
hinnar hefðbundnu jólavertíðar
vestanhafs verði seinna á ferðinni
en venjulega þar sem þakkagjörð-
arhátíðin er haldin óvenjuseint í
nóvembermánuði. Hefur sú hefð
skapast að verslanir byrja jóla-
verslunina með látum daginn eftir
þakkargjörðarhátíð með tilboðum
en með þakkargjörðarhátíðina
seint á ferð hafa verslunareig-
endur haft áhyggjur enda „vertíð-
in“ sex dögum styttri en á síðasta
ári.
Verslanakeðjan Wal-Mart virð-
ist nú hafa gripið til þess að
hundsa allar hefðir og byrja jóla-
söluna mun fyrr en áður og löngu
fyrir hrekkjavöku. Hóf Wal-Mart
að bjóða upp á jólaafslætti á föstu-
dag, um mánuði fyrr en venjulega.
Afslættirnir eru í boði í netverslun
Wal-Mart og bætir verslanakeðjan
um betur frá síðasta ári með því
að bjóða ókeypis heimsendingu á
velflestum vörum ef verslað er
fyrir ákveðna lágmarksupphæð.
Fréttaveita Reuters hefur eftir
markaðsgreinendum að afslátt-
artilboðin verði með rausnarleg-
asta móti í jólaversluninni vest-
anhafs í ár þar sem seljendur sjá
sig knúna til að bjóða betur nú
þegar neytendur eru margir að
skera niður í heimilisútgjöldunum.
Greiningarfyrirtækið ShopperT-
rak hefur spáð að árlegur vöxtur í
jólasölu verði sá minnsti síðan árið
2009 og mælingar í október sýndu
að bjartsýni neytenda fer þverr-
andi.
ai@mbl.is
Wal-Mart þjófstartar jólavertíðinni
AFP
Gjafir Wal-Mart hóf að bjóða jólatilboð í netverslun sinni á föstudag.
Bæði S&P 500 vísitalan og Dow
Jones vísitalan enduðu síðustu
viku ögn hærri. S&P 500 hækkaði
um 0,3% á föstudag og endaði í
1.761,64 stigum sem er 0,1%
hækkun frá byrjun vikunnar. Dow
Jones vísitalan hækkaði um 0,5% á
föstudag og hafnaði í 15.615,55
stigum og nam styrkingin yfir vik-
una 0,3%.
Báðar vísitölurnar hafa því
hækkað samfleytt milli vikna í
fjórar vikur.
Síðasta vika var ögn slakari hjá
Nasdaq sem lækkaði um 0,1% á
föstudag, m.a. vegna 0,5% lækk-
unar á hlutabréfum í Apple, og
endaði tæknivísitalan 0,5% lægri
yfir vikuna. Vikulækkunin kemur í
kjölfarið á tveimur hækkunar-
vikum.
Bæði S&P 5000 og Dow Jones
náðu methæðum á þriðjudag, að
sögn MarketWatch, þegar fyrr-
nefnda vísitalan var 1.771,95 stig
við lokun markaða og sú síðar-
nefnda stóð í 15.680,35 stigum.
ai@mbl.is
Markaðir vestanhafs
sterkir fjórðu vikuna í röð
AFP
Grænt S&P 500 og Dow Jones náðu
methæðum í liðinni viku.
● Bandaríska fasteignalánafyrirtækið
Fannie Mae sakar níu alþjóðlega banka
um að hafa valdið fyrirtækinu 800 millj-
óna dala tjóni
með því að
hafa með óeðli-
legum hætti
áhrif á Libor-
milli-
bankavexti.
Fannie Mae,
sem er í eigu bandaríska ríkisins, höfðaði
mál á hendur bönkunum á föstudag fyrir
dómstóli í Manhatta. Nær málið m.a. til
Bank of America, JPMorgan Chase og
Citigroup. Bloomberg greinir frá þessu.
Lánafyrirtækið Freddie Mac, sem
einnig er í eigu bandaríska ríkisins, höfð-
aði sams konar mál á hendur fjölda
banka í mars á þessu ári. Á heimsvísu er
áætlað að vaxtagreiðslur af um 300 billj-
óna (e. trillion) dala virði af lánum og
fjármálaafurðum af ýmsum toga taki
mið af Libor-vöxtum. Hefur endurskoð-
andi bandarísku húsnæðislánastofn-
unarinnar, FHFA, áætlað að Fannie Mae
og Freddie Mac hafi mögulega tapað allt
að 3 milljörðum dala vegna Libor-
svindlsins svokallaða. ai@mbl.is
Fannie Mae höfðar
mál á hendur bönkum
vegna Libor-svindls