Morgunblaðið - 04.11.2013, Side 34
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
Skrúfupressur
Lofthreinsibúnaður - loftkútar
loftsíur - lofttengibúnaður
loftþurrkarar
Ýmsar stærðir
Hafið samband við sölumann
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013
AF AIRWAVES
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Þriðji dagur Airwaves rann upp löngu áð-ur en ég fór á tónleika. Á ferð minni umborgina þennan föstudag mætti ég hin-
um erkitýpíska Airwaves-gesti – manni á
miðjum þrítugsaldri með alltof snyrt yfirvar-
arskegg sem krullaðist upp að hætti aust-
urrískra keisara og í svo þröngum gallabuxum
að þær myndu rifna ef hann hugsaði um að
beygja sig.
Tónleikar kvöldsins voru heppilega allir í
Hörpu. Á leiðinni þangað frá heimili mínu í
gamla Vesturbænum tók ég stuttan göngutúr
um miðborgina. Stemningin var ekki ólík því og
ef útlendingar hefðu ákveðið að halda Þorláks-
messukvöld í nóvember. Hver einasti veitinga-
staður var fullur út úr dyrum, og það heyrði til
undantekninga að maður heyrði móðurmálið.
„Dásamlegt,“ hugsaði ég og brosti. „Reykjavík
er stórborg eina langa helgi á ári.“ Samt var
sorglegt að rölta framhjá raðalausum NASA,
besta tónleikastað borgarinnar. Harpa hefur
þann kost umfram aðra tónleikastaði í borginni
að veðrið er aukaatriði. Flestum er enn í minni
hipsterafjúkið í fyrra, þegar harkaleg haust-
lægð gekk yfir landið um Airwaves-leytið.
Raðirnar, biðin og kuldinn eru að vísu stór
hluti af skemmtuninni af því að vera á
Airwaves, en ágætt að losna við það
svona eitt kvöld.
Fyrstu tónleikar kvöldsins voru
mjög innan þægindahringsins. Valdi-
mar og félagar stóðu sig með prýði,
þó svo að það hafi strokið mér örlít-
ið öfugt þegar Valdimar talaði við
áhorfendur á ensku milli laga.
„Kannski á hún bara að vera smá-
borg,“ sagði ég við sjálfan mig og
glotti. Lögin af nýjustu plötu hljóm-
sveitarinnar „Um stund“ hljóma
mjög vel í lifandi flutningi og standa
Láta-laginu óendanlega miklu framar.
Hljómsveitin flutti meðal annars nýtt lag,
hennar fyrsta á ensku og fyrsta á öðru
tungumáli en íslensku.
Næstur á dagskrá var John Grant,
maðurinn sem tók ástfóstri við Ísland eft-
ir að hann spilaði á Airwaves 2011. Grant
var ólíkt fyrirferðarmeiri en fyrir tveim-
ur árum, sennilega vegna þess að nýja
efnið hans er öllu rafmagnaðra og kraft-
meira en það sem hann hafði úr að moða
á þeim tíma. Blandan var samt góð hjá honum, og
hann bað áhorfendur afsökunar, á íslensku, á að
hann talaði íslensku ekki nógu vel, þó svo að hún
hafi verið hnökralaus en með smáhreim.
Veikleiki í raðafyrirkomulagi hátíðarinnar
kom sterklega í ljós á tónleikunum sem voru í
Silfurbergi og Norðurljósum. Hliðverðir
hleyptu inn í báða salina í einu við stigann upp
á aðra hæð, en þegar upp var komið gilti
hnefarétturinn um hver komst inn í salina.
Þegar tónleikar í Norðurljósum kláruðust
ætluðu allir yfir í Silfurberg með þeim af-
leiðingum að það mynduðust raðir fyrir
innan raðirnar. Fyrir þetta fá skipuleggj-
endur hátíðarinnar eitt mínusstig.
Það sleppur alveg, því tónleikar
Souleymans, og síðustu tónleikar mínir
þetta kvöldið, voru einhver allsherjar
miðausturlensk mjúkteknó diskósturl-
un. „Aldrei hefur einn maður gert
jafnlítið á sviði til að trylla heilan
sal“ sagði tónleikagestur, og annar
hafði á orði að á sínum sjö Airwaves-
hátíðum stæðu þessir tónleikar al-
gjörlega upp úr. Souleyman, sem
hefur verið gerður útlægur frá
heimalandi sínu, raulaði texta
laga sinna, á arabísku, og lét af-
skaplega lítið fara fyrir sér á svið-
inu. Þrátt fyrir það lék Silfurberg
á reiðiskjálfi því hver lifandi mað-
ur í salnum sté trylltan dans við
tónlistina.
Miðausturlensk
Airwaves-sturlun
Grímugeitur Sænska hljómsveitin Goat var grímuklædd á sviði. Fucked Up Tónleikar Fucked Up þóttu allsvakalegir. Listasafnið Savages léku fyrir troðfullu húsi á laugardaginn.
Rafmagnaður John Grant var rafmagnaðri en á Airwaves 2011. Souleyman Áhorfendur dönsuðu við taktfasta arabíutónlist. Læti Valdimar og hljómsveit stóðu sig með stakri prýði.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Borist með fjöldanum Algeng sjón á tónleikum Fucled Up.
Omar
Souleyman