Morgunblaðið - 04.11.2013, Side 36

Morgunblaðið - 04.11.2013, Side 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2013 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Tímakistan nefnist ný bók fyrir les- endur á öllum aldri eftir Andra Snæ Magnason sem út kemur hjá Forlaginu fyrir jólin. Bókin segir „margslungna ævintýrasögu af gráðuga konunginum Dímon og til- raunum hans til að sigra bæði heim- inn og tímann. Einhvern veginn tengjast örlög hans og dóttur hans ástandi heimsins í samtímanum þar sem mannkynið húkir allt inni í draugalegum kössum og bíður betri tíma. Sumir tala um bölvun prinsessunnar af Pangeu og gátuna um hana þarf að leysa til að heim- urinn losni úr álögum“. Fleiri ævintýrasögur verða á boðstólum hjá Forlaginu í haust. Kjartan Yngvi Björnsson og Snæ- björn Brynjarsson halda áfram Þriggja heima sögu sinni með bók- inni Draumsverð. „Fyrsta bindi sagnaflokksins, Hrafnsauga, hlaut frábærar viðtökur í fyrra og hamp- aði bæði Íslensku barnabókaverð- laununum og titlinum Unglingabók ársins hjá bóksölum.“ Sif Sigmarsdóttir sendir frá sér Múrinn. Þar er um að ræða „fyrstu bókina í Freyju sögu, spennu- þrungnum sagnaflokki fyrir ung- linga. Sagan gerist í borg sem er umlukin múr og grimmur einvaldur stýrir. Freyja veit ekki betur en hún sé ósköp venjulegur borgarbúi en fljótlega kemur í ljós að ýmislegt er dularfullt við tilveru hennar“. Prakkarabók ársins Rangstæður í Reykjavík nefnist þriðja unglingabókin eftir Gunnar Helgason þar sem Þróttarinn Jón Jónsson og vinir hans eru í aðal- hlutverki. Bókin er sjálfstætt fram- hald af Víti í Vestmannaeyjum og Aukaspyrnu á Akureyri. „Sögusvið- ið er að þessu sinni Laugardalurinn í Reykjavík þar sem fer fram æsi- spennandi fótboltamót en jafnframt vindur áfram sögu Ívars, vinar Jóns frá Vestmannaeyjum, sem á í erf- iðleikum heima fyrir.“ Í Lífsspeki Ólafíu Arndísar eftir Kristjönu Friðbjörnsdóttur er sögu- sviðið á Hekluslóðum og víðar um Suðurland „þar sem Ólafía lendir í lífsháska og kynnist bæði erlendum kvikmyndastjörnum og ýmsum furðufuglum sem lifa eftir ólíkum lífsreglum“. Mói hrekkjusvín – Kúrekar í Ar- isóna eftir Krist- ínu Helgu Gunn- arsdóttur er „án efa prakkarabók ársins. Sögurnar um þennan óheppna snilling hafa komið út áð- ur en eru nú gefnar út með fjölda nýrra mynda eftir Lindu Ólafsdóttur og stóru og að- gengilegu letri“. Fjöldi ævintýrabóka Meðal þýddra ævintýrabóka sem út koma hjá Forlaginu á næstu vik- um er Órar eftir Lauren Oliver, sem er fyrsta bókin í nýjum bóka- flokki. „Sagan gerist í óræðri fram- tíð þegar búið er að uppgötva að sjúkdómurinn ást skýrir flesta hættulega og órökrétta hegðun manna. Þess vegna fara allir í að- gerð átján ára gamlir til að forðast smit. Lena hlakkar til að fara í að- gerðina en vikurnar áður en það stendur til verða henni örlagarík- ar.“ Eiðrofinn er ný bók í goðsagna- kennda bókaflokknum um ævintýri gullgerðarmannsins Nicolas Flam- els eftir Michael Scott. Annáll elds- ins eftir John Stephens nefnist önn- ur bókin í flokknum Bókum upphafsins. Tíunda bókin um Kaf- tein ofurbrók eftir Dav Pilkey ber titilinn Kafteinn Ofurbrók og hefnd geislavirku róbótabrókanna. Morgunblaðið/Styrmir Kári Verðlaunahöfundar Kjartan Yngvi Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson hlutu Íslensku barnabókaverðlaunin í fyrra fyrir skáldsögu sínu Hrafnauga. Andri Snær með Tímakistuna  Rangstæður í Reykjavík meðal barna- og unglingabóka Forlagsins Kristjana Friðbjörnsdóttir Andri Snær Magnason Kristín Helga Gunnarsdóttir Gunnar Helgason Sif Sigmarsdóttir Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bandarísk gamanmynd, Land Ho!, var tekin upp hér á landi í haust og kemur íslenskt fyrirtæki, Vintage Pictures, að framleiðslu hennar. Einn af framleiðendum mynd- arinnar er leikstjórinn David Gord- on Green sem hefur gert það gott í Hollywood og endurgerði m.a. ís- lensku gam- anmyndina Á annan veg. Annar framleiðandi myndarinnar, Sara Murphy, er yfir þróun verk- efna hjá leik- aranum Philip Seymore Hoff- man. Vintage Pictures er kvik- myndafram- leiðslufyrirtæki með bækistöðvar á Íslandi, rekið af Hlín Jóhann- esdóttur og Birgittu Björnsdóttur. Leikstjórar og handritshöfundar myndarinnar eru Martha Stephens og Aaron Katz og segir Hlín að þau hafi langað að taka upp kvikmynd hér á landi. Handritið var skrifað með Ísland í huga. Martha hafði þá komið hingað áður en Aaron kom í fyrsta sinn til Íslands þegar tökur hófust. Allir sem að myndinni komu yfirgáfu svo landið afar sáttir eftir krefjandi tökur, að sögn Hlínar. En hvernig kom Vintage Pictures að framleiðslu myndarinnar? „Ég er að vinna með leikstjóra sem heitir Ása Helga Hjörleifsdóttir og hún nam við Columbia-háskólann í New York. Aaron Katz hafði sam- band við hana og hún kom þeim í samband við okkur,“ segir Hlín. „Þetta var í sumar og mjög stutt í tökur þegar þau komust í samband við okkur. Við ákváðum bara að láta slag standa, settum allt í gang og á innan við tveimur mánuðum náðum við að gera allt klárt fyrir tökurnar og tökuliðið.“ Fyrsti tökudagur myndarinnar var 17. september og sá síðasti 10. október, að sögn Hlínar. „Þau byrj- uðu úti á landi, á Skógum, Jökuls- árlóni og Landmannalaugum, og svo tóku þau upp í Reykjavík og ná- grenni í u.þ.b. tvær vikur,“ segir Hlín. Ævintýri og sjálfskoðun Kvikmyndin fjallar um tvo karla sem komnir eru af léttasta skeiði, skurðlækninn Mitch sem sestur er í helgan stein og fyrrverandi mág hans, Colin. Mitch telur Colin á að fara með sér í frí til Íslands, skoða náttúruna og sletta úr klaufunum. Mitch og Colin lenda í ýmsum æv- intýrum og fara í óumflýjanlega sjálfskoðun samhliða þeim. Með hlutverk félaganna fara Earl Lynn Nelson og Paul Eenhoorn. Nelson er augnlæknir að mennt, orðinn aldraður og lék í sinni fyrstu kvikmynd, Passenger Pigeons í leik- stjórn frænku sinnar, Mörthu Stephens, árið 2010. Hann hefur einnig leikið í gamanþáttunum Eastbound & Down. Eenhorn er öllu reyndari í leiklistinni, hefur leikið í sjónvarpsþáttum og kvik- myndum frá táningsaldri, m.a. kvik- myndinni This is Martin Bonner sem sýnd var á kvikmyndahátíðinni Sundance í byrjun árs og hlaut þar góðar undirtektir. Leikstjórar á uppleið Katz og Stephens, handritshöf- undar og leikstjórar myndarinnar, hafa átt góðu gengi að fagna í sjálf- stæðri kvikmyndagerð í Bandaríkj- unum. Fyrsta kvikmynd Katz, Dance Party USA, var valin á kvik- myndahátíðina South by South West (SXSW) árið 2006 líkt og tvær næstu myndir hans. „Það er eitt flottasta festivalið vestanhafs, myndirnar hans fá mjög góða dóma þannig að hann er búinn að skapa sér nafn og þær líka,“ segir Hlín. Passenger Pigeons hafi verið frum- sýnd á SXSW og hlotið þar verð- laun. Önnur kvikmynd hennar, Pil- grim Song, hafi einnig verið sýnd á hátíðinni og á Fantaspoa-kvik- myndahátíðinni í Brasilíu þar sem Stephens hafi hlotið leikstjórn- arverðlaun. „Þau hafa sannað sig og eru á uppleið,“ segir Hlín um leik- stjórana. „Þótt þetta sé afar ódýr mynd og þau hafi komið hingað og gert þetta þannig að enginn tók eftir er þetta samt fólk sem er fram- arlega í geiranum og verður gaman að fylgjast með,“ segir Hlín að lok- um. Ævintýraleg Íslandsför  Bandarísk gamanmynd, Land Ho!, var tekin upp hér á landi í haust  Íslenskt fyrirtæki kemur að framleiðslunni Strokkur Stilla úr Land Ho! sem segir af tveimur körlum sem kynna sér náttúru Íslands, goshveri og önnur undur og næturlíf Reykjavíkur. Hlín Jóhannesdóttir Martha Stephens Aaron Katz

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.