Morgunblaðið - 04.11.2013, Síða 40
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 308. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Íslendingar í forréttindastöðu
2. Gekk með myndavélina í gildru …
3. Fór hágrátandi í leigubílinn
4. Kona gripin við þjófnað í Kringlunni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Miðar seldust upp á sjö mínútum á
jólatónleika Stefáns Hilmarssonar
sem verða í Salnum í Kópavogi föstu-
dagskvöldið 20. desember. Var því
ákveðið að bæta við öðrum tónleikum
á sama stað daginn eftir og hefst
miðasala kl. 12.00 í dag.
Aukatónleikar hjá
Stefáni Hilmarssyni
Allskonar ást er yfirskrift hádeg-
istónleika í Hafnarborg á morgun.
Kolbeinn J. Ketilsson tenór kemur
fram ásamt Antoníu Hevesi píanó-
leikara og flytur ís-
lensk, þýsk og ítölsk
ljóð og óperuaríur.
Tónleikarnir hefjast
kl. 12 og eru öllum
opnir meðan hús-
rúm leyfir, en húsið
verður opnað kl.
11.30.
Allskonar ást á tón-
leikum í Hafnarborg
Sena sýnir í
samstarfi við The
Royal Opera
House óperu Ver-
dis, Les Vepres Si-
ciliennes, í beinni
útsendingu í Há-
skólabíói í dag og
hefst hún klukkan
17.45. Um glænýja
uppsetningu er að
ræða og er þetta frumraun leikstjór-
ans Stefans Herheims. Miðasala á
eMiði.is og aðeins er um þessa einu
sýningu að ræða.
Ópera eftir Verdi í
beinni útsendingu
Á þriðjudag Norðaustan 8-15 m/s, en 15-20 m/s syðst. Rigning,
slydda eða jafnvel snjókoma með köflum sunnan- og suðaust-
anlands, él með norður- og austurströndinni.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðaustanátt N- og A-til, annars suð-
austan 8-15 og 15-20 við suðurströndina. Dálítil rigning, slydda eða
snjókoma á köflum um landið sunnanvert, einkum síðdegis.
VEÐUR
„Maður þarf að hafa breitt
bak og mikla reynslu til að
komast í gegnum þetta. Ég
myndi ekki ráðleggja nein-
um að hefja atvinnuferilinn
hérna í Tyrklandi. En ég vildi
fá smá ævintýri áður en ég
myndi flytja heim og það
hefur orðið raunin. Ætli
maður komi ekki til með að
eiga margar sögur frá Tyrk-
landi fyrir barnabörnin,“
segir Gunnar Heiðar Þor-
valdsson. »1
Þarf breitt bak
og mikla reynslu
Bryndís Guðmundsdóttir segir að
gott gengi körfuboltaliðs Keflvíkinga
í vetur komi sér ekkert á óvart en því
var spáð fimmta sæti fyrir mótið.
„Þetta var alltaf markmiðið hjá okkur
þó við höfum misst mikilvægan hlekk
frá því í fyrra,“ segir Bryndís en
Keflavík vann Snæfell í Stykkishólmi
í gær og er með
fullt hús stiga á
toppi úrvals-
deildarinnar.
»4
Þetta var alltaf mark-
miðið hjá okkur
Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari
karla í handknattleik, segir að staða
íslenska landsliðsins fyrir EM í Dan-
mörku sé nokkuð alvarleg vegna
meiðsla lykilmanna. „Það má alveg
segja að það séu hrukkur á enni lands-
liðsþjálfarans en auðvitað vinnur mað-
ur með þá sem við höfum hverju
sinni,“ segir Aron en Ísland tapaði fyr-
ir Austurríki í fyrrakvöld. »8
Hrukkur á enni
landsliðsþjálfarans
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hlaupaskórnir eru alltaf í töskunni.
Í löngum ferðalögum finnur maður
fyrir flugþreytu, tímamismun,
streitu og að matarvenjur breytast.
Þetta hefur áhrif á líkama og sál. Því
finnst mér nauðsynlegt að finna
lausa stund einhvern tíma á deginum
og skokka góðan hring. Og svo er
auðvitað líka gaman að bæta nýjum
borgum inn á hlaupakortið sitt,“ seg-
ir Marta Ernstsdóttir hlaupakona.
Marta var á dögunum í hópferð
Íslendinga um Indland og Nepal og
á hverjum morgni tóku þau Sveinn
bróðir hennar, sem einnig var í
hópnum, á rás.
Legg kennileitin á minnið
Fyrir Vesturlandabúa virkar
umferðin í frumstæðum Austur-
löndum sem ringulreið; bílarnir
smjúga hver milli annarra í tveimur
til þremur röðum á frumstæðum
brautum, þar sem heilagar kýr,
vatnsburðarkonur og hjólreiðafólk
er á vegkanti. „Á hlaupum nemur
maður staðina með skemmtilegum
hætti og sogast inn í umhverfið. Ég
gæti þess þar sem ég kem að fara
fyrst aðeins skemmri leiðir og leggja
kennileitin á minnið. Þannig lærir
maður hvernig leiðirnar liggja og
færir sig svo á nýjar slóðir og út fyr-
ir aðalgöturnar,“ segir Marta sem
var tvær vikur í Austurlöndum fjær.
Í 30 stiga hita
„Við Íslendingar erum ekki
vanir þrjátíu stiga hita eins og var í
Indlandi. Við Sveinn létum okkur því
duga að taka létt skokk í um það bil
hálftíma á morgnana. Þetta gaf okk-
ur kraft inn í daginn,“ segir Marta
en þau systkinin hlupu í borgunum
Nýju-Delí, Jaipur, Agra og Var-
anasi. Þegar kom svo til Nepal létu
þau duga að hlaupa á brettum enda
góð líkamsræktaraðstaða á Rad-
isson-hótelinu í Katmandu. „Ryk á
malargötum í borginni var slíkt að
við lögðum ekki í að hlaupa þar,“
segir Marta sem hefur ekki tölu á
hlaupaborgum sínum. „Við Jón
Oddsson, maðurinn minn, vorum í
Róm fyrir nokkrum árum og það var
gaman að hlaupa þar. Fylgdum korti
og fórum víða um borgina. Þar var
gaman að taka skokka t.d. milli Pét-
urskirkjunnar og Colosseum.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hlauparar Marta og Sveinn Ernstsbörn í stuttbuxum og íþróttaskóm, tilbú-
in að taka sprettinn. Mynd tekin í indversku borginni Varanasi í sl. viku.
Marta Ernstsdóttir var í Austurlöndum og hljóp í fjórum indverskum borgum
Ég sogast inn
í umhverfið
Martha Ernstsdóttir á að baki
frækilegan feril sem hún hóf í
kringum 1985 og var á fullu fram
undir aldamót. Hefur keppt víða,
s.s. á mörgum fjölþjóðlegum mót-
um. Á Íslandsmet kvenna í 1.000 m
og 5.000 metra hlaupum, hálf-
maraþoni og maraþoni. Þá keppti
hún fyrst Íslendinga í maraþoni á
ÓL í Sydney í Ástralíu árið 2000.
Í dag starfar Martha, sem er
sjúkraþjálfari að mennt, við þjálfun,
hómópatíu og sinnir höfuðbeina-
og spjaldhryggjarmeðferð. Síðustu
ár hefur hún búið á Ísafirði og hefur
þar m.a. staðið fyrir Heilsuhelgum
að Holti í Önundarfirði fyrir fólk
sem vill taka sér tak og bæta heilsu
sína og líðan.
Sveinn bróðir hennar, sem er for-
ritari, á sömuleiðis langan feril að
baki, og hefur með ágætum árangri
tekið þátt í ýmsum mótum í hlaup-
um, bæði heima og heiman.
Maraþon og heilsuhelgar
FRÆKILEGUR FERILL ÍÞRÓTTAKONUNNAR