Morgunblaðið - 07.11.2013, Síða 4

Morgunblaðið - 07.11.2013, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Wojciech Marcin Sadowski í fimm ára fangelsi fyrir frelsissvipt- ingu, nauðgun og sérstaklega hættu- lega líkamsárás gegn ástralskri konu í Reykjavík í apríl síðastliðnum. Sa- dowski, sem er pólskur ríkisborgari, var jafnframt gert að greiða konunni 3,2 milljónir króna í skaða- og miska- bætur. Ríkissaksóknari ákærði manninn 2. júlí síðastliðinn fyrir frelsisvipt- ingu fyrir að hafa haldið konunni nauðugri í verslunarhúsnæði að Lág- múla í Reykjavík í 30-40 mínútur. Í ákærunni segir að hann hafi veist með ofbeldi að konunni, krafið hana um kynlíf, ítrekað slegið og sparkað í höfuð hennar og líkama, þröngvað henni til munnmaka og haldið árás sinni áfram eftir það. Konan hlaut talsverða áverka í árásinni. Fram kemur í dóminum að Sadowski hafi neitað sök en dómur- inn kemst að þeirri niðurstöðu að framburður konunnar hafi verið trú- verðugur. Konan sagðist hafa verið að skemmta sér með vinum sínum í miðborginni en að hún myndi ekki eftir sér eftir klukkan tvö um nóttina fyrr en hún er stödd á stað sem líkist vöruskemmu og áttar sig á að það er kominn morgunn. Hún hafi átt bókað flug úr landi og reynt að komast út úr húsnæðinu en dyrnar hafi verið læstar. Maðurinn hafi reynt að fá hana til kynferðismaka, beitt hana ofbeldi og þvingað hana til munnmaka og kýlt í hana og sparkað þegar hún beit í getnaðarlim hans. Í dómnum segir að atlaga ákærða að stúlkunni hafi verið harkaleg og sú aðferð hans að slá og sparka ítrek- að í höfuð hennar hafi verið sérstak- lega hættuleg. Harkaleg og hættuleg árás  Wojciech Marcin Sadowski dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir frelsissviptingu, nauðgun og hættulega líkamsárás  Sló og sparkaði ítrekað í höfuð konunnar Morgunblaðið/Golli Árás Maðurinn þröngvaði konunni til munnmaka og beitti hana ofbeldi. Það sem af er störfum Alþingis, sem kom saman í byrjun október, hafa verið lagðar fram ríflega 90 fyrir- spurnir frá þingmönnum. Flestar eru beiðnir um skrifleg svör frá ráð- herra, eða um 50 talsins, í 13 málum hefur verið beðið um munnleg svör ráðherra og óundirbúnar fyrir- spurnir eru alls 30 það sem af er. Algengt er að þingmenn stjórn- arandstöðunnar leggi fram fyr- irspurnir til ráðherra ríkisstjórn- arinnar, enda eru flestar fyrir- spurnir nú frá þingmönnum VG (32) og Samfylkingarinnar (27). En at- hygli vekur hve fyrirspurnir eru margar frá þingmönnum og vara- þingmönnum Framsóknarflokksins, eða 21, á meðan fjórar eru skráðar á þingmenn og varaþingmenn Sjálf- stæðisflokksins. Helgi Bernódusson, skrif- stofustjóri Alþingis, segir heild- arfjölda fyrirspurna minni en venju- lega á þessum tímapunkti þing- starfa. „Fyrirspurnir eru fleiri þar sem beðið er um skriflegt svar, en hins vegar hefur hinum hefðbundnu fyrirspurnum, sem lagðar eru fram á skjölum og koma svo til svara á mánudegi á eftir, fækkað frá því sem áður var. Það er eins og þingmenn átti sig ekki alveg á þessu formi, ég hef tekið eftir að nýir þingmenn eru ókunnugir þessu formi. Að einhverju leyti má segja að hinar óundirbúnu fyrirspurnir hafi komið í staðinn,“ segir Helgi. Hann bendir á að mun fleiri óskir um óundirbúnar fyrirspurnir berist heldur en hægt er að verða við, að- eins fimm slíkar fyrirspurnir komast að hverju sinni. „Fyrst og fremst hefur verið litið á þetta sem tækifæri stjórnarandstöðunnar til þess að halda uppi gagnrýni og eftirliti,“ seg- ir Helgi en svipuð þróun hefur verið í nágrannaríkjunum. bjb@mbl.is Yfir 90 fyrir- spurnir Morgunblaðið/Golli Alþingi Þingmenn eru duglegir að spyrja ráðherra ríkisstjórnarinnar.  Framsóknarmenn með 21 fyrirspurn Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Snjókoma og hiti nálægt frostmarki. Þannig hljóða spár norsku veðurstofunnar fyrir síðdegið föstudaginn 15. nóvember, en þann dag mætir Ísland liði Króatíu í landsleik í knattspyrnu á Laugardalsvelli. Samkvæmt fyrstu spám er ekki gert ráð fyrir miklum vindi og stytt gæti upp áður en leikurinn hefst. Eitt í dag og annað á morgun Starfsmenn vallarins fylgjast vel með spánum, en gera sér grein fyrir að þeir geta ekki haft nein áhrif á veðrið. „Veðurspáin segir eitt í dag og annað á morg- un. Við reynum bara að undirbúa okkur sem best og vera við öllu búnir,“ segir Jóhann Kristinsson, vall- arstjóri í Laugardal. Í gær unnu starfsmenn vallarins við að slá grasið á litlitlum vellinum og í dag verður hann merktur. Að auki verður járnblöndu úðað á gras- flötina og verður hún væntanlega fagugræn fram á að- ventu. Yfirbreiðsla til að hlífa vellinum og halda honum frostfríum kom til landsins í gámi fyrir nokkrum dög- um. Knattspyrnusambandið leigði hana af ensku fyrir- tæki og síðdegis í dag eru fjórir starfsmenn þess væntanlegir til landsins. Funda með veðurfræðingum Þeir funda með starfsmönnum vallarins og veður- fræðingum í fyrramálið. Síðan verður, ef aðstæður leyfa, hafist handa við að breiða dúkinn yfir völlinn. Hita verður dælt undir hann fram að leikdegi og er markmiðið að grasflötin verði laus við frost á leik- degi. Samkvæmt spá norsku veðurstofunnar er útlit fyr- ir talsvert frost í Reykjavík alla næstu viku. Akkeri meðfram vellinum Ætlunin er að setja akkeri eða festingar niður með- fram vellinum og reiknar Jóhann með að teinar verði boraðir í grasið við völlinn. Að auki verða settir stórir vegsteinar á horn vallarins og aðrir minni eftir þörfum meðfram honum og við endana. Laugardalsvöllur fagur- grænn fram á aðventu  Úðaður járnblöndu sem gefur grænan lit  Hiti við frost- mark þegar leikið verður gegn Króötum eftir rúma viku Morgunblaðið/Árni Sæberg Nóvember Kristinn Jóhannsson var kappklæddur við slátt á Laugardalsvellinum í gær. Mörg handtök verða unnin þar fram að landsleiknum við Króata eftir rúma viku og í mörg horn að líta hjá starfsmönnum. Forsætisráð- herra skipaði í gær nýja stjórn- arskrárnefnd í samræmi við samkomulag allra þingflokka. Í nefndinni sitja fulltrúar til- nefndir af stjórn- málaflokkunum sem sæti eiga á Alþingi. Fjórir fulltrúar eru tilnefndir af rík- isstjórnarflokkunum og fjórir af stjórnarandstöðunni. Formaður er skipaður af forsætisráðherra án til- nefningar. Stjórnarskrárnefndina skipa: Sigurður Líndal, prófessor em- eritus, formaður, skipaður án til- nefningar. Aðalheiður Ámundadótt- ir lögfræðingur, tilnefnd af Pírötum. Birgir Ármannsson alþingismaður, tilnefndur af Sjálfstæðisflokki. Freyja Haraldsdóttir, fram- kvæmdastýra og varaþingmaður, til- nefnd af Bjartri framtíð. Jón Krist- jánsson, fyrrverandi ráðherra, tilnefndur af Framsóknarflokki. Katrín Jakobsdóttir alþingismaður, tilnefnd af Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Skúli Magnússon héraðsdómari, tilnefndur af Fram- sóknarflokki. Valgerður Bjarnadótt- ir alþingismaður, tilnefnd af Sam- fylkingu, og Valgerður Gunnars- dóttir alþingismaður, tilnefnd af Sjálfstæðisflokki. Stefnt er að því að vinnu nefnd- arinnar ljúki það tímanlega að hægt verði að samþykkja frumvarp til breytinga á stjórnarskránni á þessu kjörtímabili. gudni@mbl.is Ný stjórn- arskrár- nefnd skipuð Sigurður Líndal Nýrri skáldsögu Andra Snæs Magnasonar, Tímakistan, var fagnað í gærkvöldi með útgáfu- hófi á Stóra sviði Borgarleikhúss- ins. Í lok athafnarinnar var til- kynnt að unnið væri að uppsetningu stórsýningar sem byggðist á sögunni en stefnt er að frumsýningu á Stóra sviðinu 2015. Fram kom að undirbúningur að sýningunni hefði staðið um nokk- urt skeið en á næstunni yrði unnið að því að ljúka handritsgerð. Leikhússtjóri segir verkið efnivið í spennandi sýningu Andri Snær er höfundur fjölda skáldsagna, ljóðasafna og leikrita en Tímakistan er fyrsta skáldsaga hans frá því að Draumalandið kom út 2006. Barnaleikrit Andra, Blái hnötturinn, hefur verið settur upp í leikhúsum víða um heim, segir í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu. „Það er okkur í Borgarleikhús- inu mikil ánægja að fara í sam- starf við Andra Snæ. Tímakistan er magnað verk sem við höfum fylgst með í gegnum skrif hennar í nokkur misseri. Verkið er marg- laga og virkar á mörgum ólíkum plönum. Við erum sannfærð um að þarna er efniviður í spennandi, magnaða og skemmtilega leiksýn- ingu,“ segir Magnús Geir Þórð- arson, leikhússtjóri Borgarleik- hússins. Leikhús Andri Snær er höfundur Draumalandsins og Bláa hnattarins. Tímakistan á Stóra sviði Á tíma sem venjulega er sá róleg- asti í Laugardalnum undirbúa starfsmenn völlinn af kostgæfni og er í mörg horn að líta. Jóhann Kristinsson vallarstjóri segir að þeir eigi góða að og nefn- ir starfsmenn golfvalla og ann- arra knattspyrnuvalla. „Það eru margir tilbúnir að hjálpa okkur og upplifa þetta ævintýri,“ segir Jó- hann. Tilbúnir að hjálpa og upplifa ævintýrið VENJULEGA RÓLEGASTI TÍMINN Jóhann Kristinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.