Morgunblaðið - 07.11.2013, Page 12

Morgunblaðið - 07.11.2013, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013 Allir velkomnir 14/11/2013 Skráning á imark.is Hittumst áHilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 14. nóvember klukkan 12 Hver verðurmeistari markaðsmálanna? H ví ta hú si ð /S ÍA – 13 -2 73 4 ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Akureyrskir skíðamenn hófu æfing- ar í brekkunum á þriðjudaginn og glöddust mjög. Töluvert hafði snjóað í fjallinu og snjóbyssurnar að auki bætt miklu við. Gott samstarf guðs og manna …    Göngubrautin í Hlíðarfjalli hef- ur verið opin í töluverðan tíma þannig að göngumenn hafa æft við góðar að- stæður undanfarið. Skíðasvæðið verður opnað almenningi í síðasta lagi um næstu mánaðamót, en von- andi fyrr.    Sala vetrarkorta á skíðasvæðið er hafin á Akureyri Backpackers í mið- bænum. Í vetur verður hægt að nota kortið tvisvar á hverju hinna skíða- svæðanna á Norðurlandi og eins oft og hver vill í vinabæ Akureyrar, Den- ver í Colorado-ríki í Vesturheimi!    Tólf skemmtiferðaskip koma væntanlega við í Grímsey næsta sum- ar, en farþegum fjögurra gafst kostur á að fara í land í eynni í fyrrasumar. Staldrað er við í nokkra klukkutíma og eflaust margir sem hafa áhuga á að taka mynd af sér við heimskauts- bauginn.    Í innsta hluta sveitarfélagsins, Akureyri, koma þúsundir ferðalanga með skipum að vanda í sumar; alls tæplega 83 þúsund manns um borð í 43 skipum. Sum þeirra kom oftar en einu sinni og heimsóknirnar alls 79. Auk farþega verða um 30 þúsund starfsmenn um borð.    Ástæða er til að vekja athygli á fallegri sýningu myndlistarmann- anna Rannveigar Helgadóttur og Guðbjargar Ringsted sem opnuð var í Ketilhúsinu um síðustu helgi. Sýn- ingin stendur til 8. desember.    Elvý G. Hreinsdóttir söngkona og Eyþór Ingi Jónsson organisti halda forvitnilega samkomu í Hofi kl. 20.30 í kvöld; Kvæðin um fuglana, þar sem þau flytja hugljúfa tónlist sem fjallar á einn eða annan hátt um þau fallegu dýr, segja frá fuglum og sýna fjölda ljósmynda sem þau hafa tekið af norðlenskum fuglum.    Komin er út ævisaga Helenu M. Eyjólfsdóttur söngkonu á Akureyri, Gullin ský, skráð af Óskari Þór Hall- dórssyni blaðamanni. Hólar gefa út.    Í tilefni af útkomu bókarinnar hélt Helena tvenna vel heppnaða tón- leika á Græna hattinum fyrir skömmu og á laugardaginn blæs hún til tónleika í Súlnasal Hótel Sögu í Reykjavík ásamt ýmsum gömlum samherjum í bransanum. Kannski þau Helena taki Hoppsa bomm sem stundum er kallað Á skíðum skemmti ég mér, í tilefni snjókomunnar í Hlíð- arfjalli …    Að loknum tónleikunum á Sögu verður slegið upp balli þar sem stefnt er að því að galdra fram gömlu, góðu Sjallastemninguna.    Hestamannafélagið Léttir á Akureyri hélt um síðustu helgi upp á 85 ára afmælið með veislum í reiðhöll félagsins og myndasýningu. Þá sýndi sigursælasti Léttismaðurinn, Baldvin Ari Guðlaugsson, verðlaunagripasafn sitt. Hann hefur keppt í 30 ár, á hátt í 400 bikara og verðlaunapeningarnir eru óteljandi.    Rokkað verður á Græna hattinum um helgina. Tónleikar til heiðurs Black Sabbath verða annað kvöld en á laugardag troða Dúndurfréttir upp og flytja lög með m.a. Pink Floyd, Deep Purple, Led Zeppelin og Uriah Heep. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Afmæli Sigfús Ólafur Helgason, formaður afmælisnefndar Léttis, knapinn knái Baldvin Ari Guðlaugsson, sem sýndi verðlaunagripasafn sitt á afmælishátíðinni, og Andrea Margrét Þorvaldsdóttir, formaður Léttis. Á skíðum skemmti ég mér Ljósmynd/Karl Frímannsson Gleðistund! Alpagreinamenn á fyrstu æfingunni í Hlíðarfjalli á þriðjudag. Atkvæðagreiðsla um fegursta orð tungumálsins stendur nú sem hæst á vefnum fegurstaordid.hi.is og verður hægt að kjósa til 11. nóvember. Almenningur getur val- ið á milli 30 orða. Í tilkynningu frá Háskóla Ís- lands kemur fram að við leit hug- vísindasviðs að fegursta orðinu hafi borist 8.500 tillögur um feg- ursta orðið. Starfshópur hefur til- nefnt 30 orð og byggir valið í senn á orðunum sjálfum og þeim ástæð- um sem gefnar voru fyrir valinu. Þátttakendum er skipt í þrjá aldurshópa: þá sem fæddir eru eftir ársbyrjun 1998, þá sem fæddir eru á árabilinu 1988 til 1997 og þá sem verða 26 ára eða eldri á árinu 2013. Hægt verður að kjósa eitt orð í hverjum aldurs- flokki. Niðurstaða kosningarinnar verður kynnt 12. nóvember. Veitt- ar verða viðurkenningar fyrir þær tillögur sem njóta mestra vin- sælda almennings, segir í tilkynn- ingu. Geta valið á milli 30 fallegra orða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.