Morgunblaðið - 07.11.2013, Qupperneq 15
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við þurfum að koma á vefþjón-
ustu á milli WorldFengs og hinna
opinberu miðlægu gagnagrunna
sem aðildarríki Evrópusambands-
ins þurfa að koma sér upp vegna
breytinga á
reglum um
skyldumerkingar
á hrossum og
hestavegabréf.
Þetta er komið í
Danmörku og
þar er World-
Fengur sá mið-
lægi grunnur
eða ættbók fyrir
íslenska hesta
sem þarlend yf-
irvöld viðurkenna,“ segir Jón
Baldur Lorange, sviðsstjóri tölvu-
deildar Bændasamtaka Íslands og
verkefnisstjóri WorldFengs sem
íslensk stjórnvöld hafa viðurkennt
sem hina opinberu upprunaættbók
íslenska hestsins.
Skrásetjarar WorldFengs frá
tólf Evrópulöndum sem eru aðilar
að FEIF, alþjóðasamtökum um
íslenska hestinn, komu á
fjórðu alþjóðaráð-
stefnu WorldFengs
í Malmö í Svíþjóð
á dögunum. Jón
Baldur segir
að tilgang-
urinn hafi ver-
ið að sam-
ræma
vinnubrögð
skrásetjara
ættbóka og fara
yfir reglur Evr-
ópusambandsins um
skráningu ættbóka og
útfærslu þeirra í aðild-
arríkjum sambandsins. Þá sé
verkefnið að tryggja að World-
Fengur uppfylli sameiginlegar
reglur um rekjanleika og færslu
ættbóka.
ESB er að herða reglur sínar,
meðal annars vegna hrossakjöts-
hneykslisins þar
sem hrossakjöt
rataði inn í
ýmsa óskylda
kjötrétti. ESB
gerir nú kröfur
um að hvert að-
ildarríki komi sér
upp miðlægum
gagnagrunni um öll
hross þannig að hægt sé
að rekja feril hvers hests frá
fæðingu til sláturhúss – eða graf-
ar.
Mismunandi kröfur
Jón Baldur bendir á að þessi
skráning fyrir íslensk hross fari
fram í WorldFeng og hann þjóni
stjórnvöldum í þeim löndum sem
vilja nýta hann. Hægt sé að tengja
hann við heilsukort hestsins þar
sem fram koma sjúdómar og lyfja-
gjöf og gefa út samræmt ESB-
hestavegabréf í WorldFeng sem
uppfyllir kröfur ESB. Það sé gert
hér á landi í samvinnu við Mat-
vælastofnun og viðurkennt af
stjórnvöldum annarra ríkja.
Nú sé verið að bæta gagnateng-
ingar við opinbera gagnagrunna í
öðrum löndum og tryggja að út-
gáfa opinberra hestavegabréfa sé í
samræmi við hertar reglur. Nefnir
Jón Baldur í þessu sambandi að
sjálfstæðar ættbækur með ólíkum
eiginleikum séu í sambandslöndum
Þýskalands og það geri verkefnið
flóknara. Samstarf sé við ætt-
bækur nokkurra sambandslanda,
til dæmis Bæjaralands, en nokkuð
sé í land með að öll íslensk hross
séu skráð í upprunaættbókina í
Þýskalandi. Þangað komast aðeins
hreinræktuð hross sem hægt er að
rekja til Íslands.
Staðan er mun betri í öðrum
löndum, svo sem í Danmörku, Sví-
þjóð, Noregi, Sviss, Bretlandi,
Hollandi og Frakklandi en þar
eiga öll lifandi íslensk hross að
vera skráð í upprunaættbókina.
Morgunblaðið/Eggert
Gagnagrunnur allra hrossa
Unnið að aðlögun WorldFengs að nýjum reglum ESB um skyldumerkingar hrossa og hestavega-
bréf Upprunaættbók íslenska hestsins vill fá alla hreinræktaða íslenska hesta skráða á vefinn
Upprunaættbók
» Nú eru 261.018 lifandi hross
skráð í WorldFeng. 42% þeirra
eru á Íslandi, 15% í Þýskalandi,
14% í Danmörku og 11% í Sví-
þjóð. Hlutur Þjóðverja hefur
aukist á kostnað Íslendinga
síðustu ár enda átak verið gert
í Þýskalandi til að skrá hross.
» Notendum WorldFengs sem
eru félagar í Íslandshesta-
félögum í Evrópu og hesta-
mannafélögum á Íslandi hefur
fjölgað ört. Þeir eru nú tæp-
lega 16 þúsund, 3 þúsundum
fleiri en fyrir ári.
» Í fyrsta skipti nota fleiri
Þjóðverjar WorldFeng en Ís-
lendingar. 3.872 Þjóðverjar eru
virkir notendur, 3.639 Íslend-
ingar, 2.855 Svíar og 2.250
Danir.
Jón Baldur
Lorange
Stóðréttir Enn vantar töluvert á að öll hreinræktuð íslensk hross í Þýskalandi séu skráð í upp-
runaættbók en þeim fjölgar hægt og bítandi. Norðurlandaþjóðirnar skrá öll sín hross í WorldFeng.
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013
Síðumúla 11, 108 Reykjavík, sími 568 6899, vfs@vfs.is www.vfs.is
Ryðfrítt vinnsluborð og bandsagarblað•
Vinnsluhæð 240 mm•
Vinnslubreidd 250 mm•
Færanlegt vinnsluborð 470x600 mm•
Hakkavél•
Mótor 550 wött•
Hæð 1470 mm•
Þyngd 58 kg.•
Tilboðsverð kr. 79.000.-
Þessi frábæra kjötsög
með hakkavél frá
Dinamix
er komin aftur
Velkomin á
í hjarta Reykjavíkur
STÓRGLÆSILEGT
JÓLAHLAÐBORÐ
Kr. 8.900
Einstaklega glæsilegt og býður upp
á „allt sem hugurinn girnist“!
kemur þér í jólaskapið
EYJÓLFUR
KRISTJÁNSSON
Borðapantanir
í 551 7759
Missið ekki af einstakri
upplifun og pantið
borð í tíma.