Morgunblaðið - 07.11.2013, Síða 17
SCHEPPACH
FÖNDURVÉLARNAR
FÁST Í BRYNJU
Slípivél osm 100
Kr. 42.500
Slípivél bts 800
Kr. 38.600
Tifsög deco-flex
Kr. 43.600
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013
Eric hefur lengi starfað við fjármálaráðgjöf.
Hann útskrifaðist sem endurskoðandi 1975 og
starfaði sem slíkur áður en hann varð borg-
arfulltrúi í Winnipeg og síðar ráðherra. Sem fjár-
málaráðherra á tíunda áratugnum varð hann
fyrstur fjármálaráðherra í Manitoba í yfir 20 ár til
að skila hagnaði í rekstri fylkisins og gerði það
fimm ár í röð.
SVIÐSLJÓS
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kristjan Stefanson, hæstaréttardómari í Winni-
peg í Kanada, verður heiðraður fyrir mikilvægt
starf í þágu vestur-íslenska samfélagsins og sam-
skipti þess við Ísland á sérstökum hátíð-
arkvöldverði á Gimli í Manitoba laugardaginn 15.
febrúar 2014. Félag löggiltra
endurskoðenda í Manitoba
stendur hins vegar fyrir heið-
urskvölverðarboði í Winnipeg í
kvöld og afhendir þá Eric,
bróður Kristjans og fyrrver-
andi ráðherra, heiðurverðlaun
félagsins fyrir árið 2013 fyrir
störf hans á vettvangi op-
inberra fjármála.
Stjórn Íslendingadagsnefnd-
arinnar á Gimli ákvað nýlega að heiðra þann ein-
stakling, sem hefði unnið hvað best í því að við-
halda íslenskri menningararfleifð í Vesturheimi
og tengslunum við Ísland. Janice Arnason, for-
maður nefndarinnar, segir að athugun í vestur-
íslenska samfélaginu hafi leitt í ljós að Kristjan
Stefanson væri mikilvægasti hlekkurinn í þessu
sambandi og verður hann verðlaunaður í sérstöku
kvöldverðarboði sem haldið verður honum til
heiðurs. Kristjan hefur meðal annars séð um sér-
staka gesti á hátíðinni á Gimli í meira en ald-
arfjórðung. Þar hafa íslenskir ráðamenn verið í
miklum meirihluta. Auk þess hefur hann, ásamt
Eric, bróður sínum, unnið markvisst að því að efla
tengslin við Ísland og hefur í því sambandi komið
um 50 sinnum til landsins og nær alltaf með Eric.
Bræður heiðraðir í Vesturheimi
Kristjan Stefanson og Eric Stefanson verðlaunaðir í Manitoba í Kanada
Eric heiðraður fyrir ævistarfið og Kristjan fyrir eflingu tengsla við Ísland
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samskipti Kristjan Stefanson hefur komið um 50 sinnum til Íslands, meðal annars með yngri frænd-
um sínum, sem hafa tekið hér þátt í alþjóðlegu íshokkímóti í október undanfarin þrjú ár.
Eric Stefanson
Græðikremið og tinktúran Rauðsmári og gulmaðra
hafa gefist afar vel við sóríasis, exemi og þurrki í húð
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Sóríasis og exem Græðikremið frá Önnu Rósu hefurvirkað mjög vel á sóríasis hjá mér. Éghef líka tekið inn tinktúruna rauðsmára
og gulmöðru í fjóra mánuði og er
orðinn mjög góður í húðinni þrátt fyrir
töluverða streitu og vinnuálag.
– Kristleifur Daðason
www.annarosa.is
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Ákveðið var í atvinnuveganefnd Al-
þingis að flýta innleiðingu Evróputil-
skipunar um endurnýjanlega orku-
gjafa til næstu áramóta í stað þess að
til hennar kæmi
árið 2015.
Lög sem sett
voru í vor með
vísan í tilskipun
ESB frá árinu
2009 segja til um
að 3,5% eldsneyt-
is til samgangna
verði endurnýj-
anleg á næsta ári.
Hlutfallið verði
svo 5% árið 2015
og 10% árið 2020.
Samkvæmt upplýsingum úr at-
vinnuvega- og nýsköpunarráðuneyt-
inu stóð upphaflega til að olíufélög
sem aðrir myndu fá tvö ár til þess
innleiða breytingarnar. „Eftir að at-
vinnuveganefnd Alþingis hafði tekið
málið til meðferðar og rætt við alla
hagsmunaaðila var það ákveðið að
flýta innleiðingunni um ár,“ segir
Þórir Hrafnsson, upplýsingafulltrúi
hjá atvinnuvega og nýsköpunarráðu-
neytinu. Hann segir ástæðu þess að
ákveðið var að flýta innleiðingunni
hafa verið þá að ekki hafi þótt neitt
að vanbúnaði að hefja breytingarn-
ar. Tillögur um að flýta innleiðing-
unni hafi notið stuðnings allra flokka
í nefndinni. Samkvæmt tilskipuninni
er markmiðið að hlutdeild endurnýj-
anlegrar orku á meðal ESB þjóða
verði almennt 20%. Að sögn Þóris
hafi hins vegar falist í tilskipuninni
að hver þjóð þyrfti að leggja sitt af
mörkum svo markmiðið næðist.
Þannig hafi Íslendingar þurft að
uppfylla skilyrði um 72% endurnýj-
anlegrar orku en hlutur Íslands nú
er 75%. Ísland þarf síðan að uppfylla
síðara markmiðið um 10% hlut end-
urnýjanlegrar orku til samgangna
fyrir árið 2020, en þar er Ísland með
um 0,8% á meðan Evrópuríki eru að
meðaltali með um 5%.
Að sögn Þóris hafa farið fram
fundir á milli fulltrúa ónefnds olíufé-
lags og ráðherra þar sem fyrirtækið
lagði til að innleiðingu tilskipunar-
innar myndi verða frestað um eitt ár.
Segir hann málið til skoðunar og að
ljóst sé að ákvörðunin þurfi að liggja
fyrir innan skamms tíma.
Alþingismenn
flýttu innleiðingu
Olíufélag bað um frest hjá ráðherra
Bensín Eldsneyti
verður blandað með
endurnýjanlegum
orkugjöfum.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur
nú yfirheyrt um 70 manns sem
grunaðir eru um að hafa keypt
vændi af tæplega fertugri lettn-
eskri konu í sumar. Talið er að
hún hafi haft um 80 til 90 við-
skiptavini og á lögregla því eftir
að ræða við nokkra. Ekki er talið
að ákæra í málinu verði gefin út
fyrr en á næsta ári.
Konan og íslenskur karlmaður
sem grunaður er um að hafa haft
tekjur af vændi hennar voru hand-
tekin í lok ágúst.
Grunur leikur á að konan hafi
komið hingað til lands um 30 sinn-
um síðastliðin fimm ár til að
stunda vændi. Lögregla hafði
fylgst með henni um skeið, meðal
annars vegna gruns um að hún
stæði að flutningi ungra kvenna til
landsins vegna vændisstarfsemi.
Að sögn lögreglu á Suðurnesjum
hefur þó ekkert komið upp við
rannsókn málsins sem bendir til
að um mansal hafi verið að ræða.
Búist við
ákærum á
næsta ári
70 yfirheyrðir
vegna vændismáls