Morgunblaðið - 07.11.2013, Síða 18

Morgunblaðið - 07.11.2013, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013 Burstað, lakkað, olíuborið, handheflað, reykt, fasað, hvíttað... hvernig vilt þú hafa þitt parket? Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Dalvegi 10-14 • Kópavogi Plankaparket í miklu úrvali SGEG að 100. nýja borholan eftir heitu vatni var boruð í Hebei- héraði. Alls er SGEG nú með 100 nýjar hitaveituholur á fullum af- köstum, sem kemur sér vel fyrir komandi vetrarkulda í Kína. Samanlagt er félagið nú með 81 hitaveitu starfandi í Kína en ný- verið bættust við 17 slíkar í He- bei- og Shandong-héraði sem hita alls 5 milljónir fermetra íbúðar- húsnæðis. Samanlagt hita veit- urnar upp 15 milljónir fermetra af húsnæði. Samkvæmt upplýs- ingum frá Orka Energy eru áform um að auka umfangið í 30 milljónir fermetra árið 2015 og 100 milljónir árið 2020. Dótturfélag Orka Energy á nú í viðræðum við kínversk stjórnvöld um að hitaveitu- væða fleiri borgir í Kína, þar sem byggt er á nýrri tækni við að nýta jarðvarmann. Undirskrift samn- inga er fyrirhuguð hér á landi, eins og kom fram í máli sendi- herra Kína á Íslandi í Morg- unblaðinu nýverið, í tengslum við heimsókn varaforsætisráðherra Kína til landsins. Um 320 manns starfa hjá SGEG í Kína, þar af nokkrir íslenskir verkfræðingar, og að sögn Eiríks gæti þurfti að fjölga fólki miðað við verkefnin framundan. Heitt vatn í stað kola Áhugi kínverskra stjórnvalda á nýtingu jarðvarmans hefur aukist verulega á seinni árum en gríð- arleg mengun frá kolaorkuverum hefur verið mikið vandamál. Unnið er markvisst að lokun slíkra orku- vera samfara hitaveituvæðingu og hefur tekist að minnka útblástur mengandi efna. Miklar hitasveiflur eru á milli árstíða í þessum hér- uðum í Kína og veturnir mun kaldari en t.d. Íslendingar eiga að venjast. Af þeim sökum hefur hitaveitu frá umhverfisvænni, end- urnýjanlegri orku verið tekið fagnandi. Að auki er kaupmáttur fólks að aukast í Kína, sem gerir landið að spennandi markaði í orkugeiranum og á öðrum sviðum viðskipta. Íslensk orkuvæðing í Asíu  Orka Energy eykur verkefni sín í Kína og á Filippseyjum  Fleiri kínverskar borgir hitaveitu- væddar  Boranir í gangi vegna 50 MW jarðvarmavirkjunar  Skapar fjölda starfa fyrir Íslendinga Filipseyjar Starfsmenn Jarðborana og Orku Energy við boranir á eyjunni Biliran á Filippseyjum. Unnið er á vökt- um allan sólarhringinn. Framkvæmdir hófust fyrr á þessu ári vegna 50 MW jarðvarmavirkjunar á eyjunni. Kína Stjórnstöð nýrrar hitaveitu í Shaanxi-héraði í Kína. Dótturfélag Orka Energy, Sinopec Green Energy Geothermal, rekur yfir 80 hitaveitur í Kína. Orka Energy er íslenskt félag með skrifstofur í Peking, Singa- pore og Manila á Filippseyjum, auk Reykjavíkur. Stjórn- arformaður er Haukur Harð- arson. Starfsmenn unnu margir hverjir áður hjá Orkuveitu Reykjavíkur og búa því yfir mik- illi reynslu og þekkingu við nýt- ingu jarðhita. Þannig starfaði Eiríkur Bragason, forstjóri fyr- irtækisins, áður hjá Orkuveit- unni sem staðarverk- fræðingur og verkefnisstjóri Hellis- heiðarvirkjunar. Sam- starfsfyrirtæki Orka Energy í Kína eru ÍSOR og Verkís en Mannvit og Reykjavik Geother- mal hafa verið til að- stoðar á Filipps- eyjum, auk Jarðborana. Margir áður hjá OR ORKA ENERGY Eiríkur Bragason Jarðvarmavirkjun á Filippseyjum FILIPPSEYJAR Malasía Kort: Google Caibiran, Biliran FILIPPSEYJAR Manila Hitaveituvæðing í Kína KÍNA Kort: Google Xianyang Peking Shaanxi- hérað Baoding Shandong- hérað Hebei-hérað SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Íslenska orkufyrirtækið Orka Energy hefur nýlega gengið frá samningum um áframhaldandi verkefni við jarðvarmavirkjun á Filippseyjum og lagningu hita- veitu í Kína. Um stór verkefni er að ræða sem skapa fjölda starfa fyrir íslenska verkfræðinga og jarðfræðinga á næstu árum. Unnið er að byggingu 50 MW jarðvarmavirkjunar á eyjunni Bil- iran á Filippseyjum. Undirbún- ingsframkvæmdir hófust þar í jan- úar á þessu ári, eins og jarðvinna, gerð vinnusvæðis, brúar- og vega- gerð, hafnarframkvæmdir og bygging dælustöðva. Boranir hóf- ust af fullum krafti í október en starfsmenn Jarðborana sjá um þær. Þeir komu sér fyrir á svæð- inu í ágúst sl. og núna er unnið á sólarhringsvöktum. Orka Energy á jafnframt í við- ræðum við yfirvöld á Biliran um byggingu stöðvarhúss virkjunar- innar, sem ætlað er að taka í gagnið í ársbyrjun 2016. Fyr- irtækið hefur að auki styrkt ýmis samfélagsverkefni á eyjunni, eins og vatnsbrunna og fleira. Um 200 manns starfa á Filipps- eyjum á vegum Orka Energy og hér á landi vinna hátt í 30 verk- fræðingar og jarðfræðingar við verkefnið. Eiríkur Bragason, forstjóri Orka Energy, segir Filippseyjar vera eitt mesta jarðhitasvæði í heimi og þar séu miklir mögu- leikar ónýttir í beislun jarðhitans. Eyjan Biliran er á mjög virku svæði en á næstu eyju eru virkj- anir sem framleiða alls um 700 MW. Eiríkur segir verkefnið á Filippseyjum ganga mjög vel og samkvæmt áætlunum. Með kínverskum orkurisa Orka Energy rekur hitaveitu í héruðunum Hebei, Shandong og Shaanxi í Kína. Upphaflega var verkefnið leitt af Orkuveitu Reykjavíkur, síðan af félaginu Enex Kína en Orka Energy keypti það árið 2011. Á fyrirtækið nú helmingshlut í félaginu Sinopec Green Energy Geothermal Deve- lopment, SGEG, á móti kínverska orkurisanum Sinopec, sem er fjórða stærsta fyrirtæki heims. Nýlega urðu þau tímamót hjá Hæstiréttur hefur staðfest áfram- haldandi gæsluvarðhald yfir Davíð Frey Magnússyni sem ásamt fleir- um hefur verið ákærður fyrir frels- issviptingu og stórfelldar líkams- árásir. Meðal annars var fórnarlambið afklætt, sett í svartan ruslapoka, keflað og bundið við staur í kjallara húss. Að svo búnu yfirgáfu árásarmenn það. Málið á hendur Davíð, Stefáni Loga Sívars- syni, Stefáni Blackburn, Hinriki Geir Helgasyni og Gísla Þór Gunn- arssyni var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 15. október og neituðu allir sök. Fyrirtaka er í málinu í dag. Í niðurstöðu héraðsdóms seg- ir: „Ákærði er undir sterkum grun um að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök og geta þau varðað meira en 10 ára fangelsi. Er því fullnægt skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um alvarleika brots. Að auki eru brotin þess eðlis að fallast verður á það með ríkis- saksóknara að það kunni að særa réttarvitund almennings fái ákærði að vera frjáls ferða sinna.“ Fórnarlambið af- klætt og sett í poka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.