Morgunblaðið - 07.11.2013, Side 21
Eyrarbakki er hluti sveitarfélagsins Árborgar og þar hefur
verið verslunarstaður frá fornu fari. Þarna var lengst af
verslunarstaður og útgerðarstöð, en á síðari árum hefur
atvinna þorpsbúa aðallega tengst þjónustu og iðnaði.
Þarna búa um 530 manns.
Húsið á
Eyrarbakka er
eitt elsta hús
landsins
Að því verkefni unnu bræðurnir á
árunum 1993 til 1995. Húsið, sem
kom tilhöggvið til landsins árið
1765, var íbúðarhús dönsku kaup-
mannanna á staðnum en var síðar
íbúðarhús um árabil.
„Húsið er staðarprýði. Í starfi
okkar njótum við líka nábýlisins
við byggðasafnið. Getum leitað til
safnstjórans, Lýðs Pálssonar, en í
ranni hans eru til þúsundir mynda
af gömlum húsum. Þær eru mik-
ilvægar heimildir því við end-
urbyggingu er markmiðið alltaf að
færa hlutina að nýju í upprunalegt
horf,“ segir Gísli.
Viðhalda gömlu
þorpsmyndinni
Eyrarbakki og mannlífið þar
hefur breyst mikið á undanförnum
árum. Áður var þorpið verslunar-
og útgerðarstaður en nú hefur sú
starfsemi að mestu lagst af. Í dag
er ferðaþjónusta snar þáttur í at-
vinnulífi staðarins og í gömlum
húsum eru veitingastaðir, gisting
og fleira slíkt.
„Við Eyrbekkingar höfum
borið gæfu til að viðhalda gömlu
þorpsmyndinni hér. Hér í þorpinu
er heilleg götumynd, lík því sem
var í byrjun 20. aldarinnar. Þetta
skapar staðnum sérstöðu og að-
dráttarafl og það er segin saga að
þegar gömul hús bjóðast eru þau
seld innan skamms og yfirleitt er
hafist handa um endurbætur strax
í kjölfarið,“ segir Gísli Ragnar
Kristjánsson, smiður á Eyr-
arbakka, að síðustu.
Húsið Hér er Byggðasafn Árnesinga í húsi frá 1765. Bráðræði Húsið er við Túngötu og var byggt árið 1909.
Ísaksbær Hrörlegt hús sem stendur til að gera upp. Suðurgata Aldargamalt hús þar sem er gistiþjónusta.
Hallandi Húsið er í Skúmsstaðahverfinu, vestast í þorpinu á Eyrarbakka.
Það var endurgert um 1990 og þar býr Guðmundur Kristjánsson í dag.
sem heitir kallabækur,“ segir
Rannveig Anna.
Safnkosturinn kemur víða að,
flest hefur fengist gefins úr
einkasöfnum og frá bókaútgef-
endum og telur safnið nú yfir
1.400 bækur, auk fjölmargra
blaða og tímarita. Á safninu
kennir ýmissa grasa; þar eru
ljóðabækur, skáldsögur, barna-
bækur, ýmsar handbækur og
fræðibækur.
Er munur á skrifum karla og
kvenna? „Já, ég verð að segja
það. Kannski sérstaklega hérna
áður fyrr. T.d. er allt annað að
lesa bækurnar eftir Guðrúnu frá
Lundi heldur en bækur karlanna
sem voru að skrifa á sama tíma.
Í þessu sambandi þarf að
hafa í huga að konur höfðu al-
mennt ekki sama svigrúm til að
helga sig ritstörfum og karlar,
þær voru t.d. mikið að skrifa á
nóttunni, sem var kannski eini
tíminn sem þær höfðu til þess.
Nema reyndar Torfhildur Hólm,
hún er fyrsta íslenska konan sem
vitað er til að hafi haft ritstörf að
ævistarfi.“
Ekkert safn skáldkonu
Rannveig Anna segir skjóta
skökku við að ekkert safn á Ís-
landi sé tileinkað skáldkonu, en
þó nokkur fjöldi safna sé um
karlkyns rithöfunda.
Safn um hvaða skáldkonu
myndir þú helst vilja sjá? „Þessu
get ég ekki svarað, ég gæti aldrei
gert upp á milli þeirra.“
Rannveig Anna segir að á
safnið hafi komið nokkuð af er-
lendum ferðamönnum sem sæki
Eyrarbakka heim eftir að hafa
lesið bækur Kristínar Marju
Baldursdóttur um listakonuna
Karítas.
„Þetta er algerlega óplægður
akur í móttöku ferðamanna og
ekki gengur þetta á nátt-
úruperlur landsins.“
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013
Fyrir skemmstu kom út bókin
Saga bátanna – Vélbátar smíð-
aðir eða gerðir út frá Eyr-
arbakka. Bókin er eftir Vigfús
Markússon skipstjóra sem þar
birtir upplýsingar og myndir
um hvern einasta vélbát sem
gerður var út frá Eyrarbakka,
en þar var stunduð vél-
bátaútgerð frá því um 1920
fram undir 1970. „Lengi var
sjávarútvegur það sem allt
snérist um hér. Nú eru breyttir
tímar, segir Vigfús sem er
fæddur og uppalinn á Eyr-
arbakka en býr nú í Hafn-
arfirði.
Grunnurinn í bókinni góðu er
punktar frá Vigfúsi heitnum
Jónssyni, sem var oddviti á Eyr-
arbakka. Hann var í áratugi
forystumaður byggðarlagsins.
„Grunnurinn var til staðar, en
með því að fara í gamlar skrár,
sjómannaalmanakið, leita á
vefnum og tala við fólk sem
þekkir til var hægt að fylla inn
í eyðurnar. Alls eru bátarnir í
bókinni um 100. Blómatíminn
var um 1970, þá voru Bakkabát-
arnir alls ellefu og ársaflinn
4.800 tonn. Meðan á eldgosinu í
Vestmannaejum stóð lögðu
raunar fjölmargir bátar þaðan
hér upp afla sinn og líklega
voru umsvifin aldrei meiri en
þá,“ segir Vigfús, sem er í
áhöfn Grindarvíkurbátsins Tóm-
asar Þorvaldssonar GK. Notaði
Vigfús gjarnan frívaktina á
sjónum til skrifta og heim-
ildaöflunar og útkoman er bók-
in sem fengið hefur góðar við-
tökur og dóma lesenda, jafnt til
sjós og lands.
sbs@mbl.is
Vigfús Markússon sendir frá sér bók
Hver einasti bátur
frá Bakkanum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sjómaður Málverk af Bakkavík ÁR sem fórst við Eyrarbakka 1983 og
með honum tveir bræður Vigfúsar Markússonar, sem einn bjargaðist.
„Eyrarbakki nýtur vinsælda og gömul hús þar sem ég fæ
til sölu eru yfirleitt farin eftir fáeinar vikur. Kaup-
endahópurinn er tvískiptur. Annars vegar fólk sem stefn-
ir á tvöfalda búsetu, það er að vera í bænum og eiga síð-
an afdrep úti á landi og geta stundað vinnu sína þaðan
að einhverju leyti. Í annan stað eru þess svo dæmi að fólk
kaupir Eyrarbakkahús sem sumardvalarstað,“ segir Þor-
steinn Magnússon, lögg. fasteignasali hjá Árborgum á
Selfossi.
Í dag eru tvö gömul hús á Eyrarbakka á söluskrá. Annað er kjallari, hæð
og ris, 125 fermetrar og er verðlagt á 15,9 millj. kr. Hitt er í sama stílnum, er
tæplega 200 fermetrar að flatamáli og kostar 24,9 millj. kr. „Hús með sjáv-
arlóð eru eftirsóttust, en eru sjaldfengin, en byggingar ofar í þorpinu
freista samt sem áður margra. Kominn er tími á viðhald eða endurgerð
margra þessara húsa. Fólk þarf því að eiga talsverða peninga í handrað-
anum og vera þokkalega laghent þegar keypt er gamalt hús á Bakkanum.“
Sjávarlóðir eftirsóttar
ÓDÝR HÚS EN ÞARFNAST VIÐGERÐA
Næst kemur röðin að
Stokkseyri á 100 daga hring-
ferð Morgunblaðsins.
Á morgun
Ljósmynd/Vigfús Markússon
Myndasmiður Hvert sem siglt er um sjóinn er Vigfús með myndavél-
ina í brúnni. Hér er horft til Surtseyjar, sem er 50 ára þessa dagana.
Lifandi samfélag í alfaraleið
Selfoss
Eyrarbakki
Stokkseyri
www.arborg.is