Morgunblaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013 F ÍT O N / S ÍA Fífa salernispappírinn er einstaklega mjúkur þriggja laga pappír, náttúrulega hvíttur, án klórbleikiefna og viðbættra ilmefna. Þú færð Fífa í næstu verslun. WWW.PAPCO.IS FIÐURMJÚK FÍFA Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þéri i Alvöru blandarar fyrir veitingastaðinn kaffihúsið, ísbúðina & booztbarinn Ýmsir ánægðir viðskiptavinir • World Class & flestir líkamsræktarstaðir íslands • Kaffi Tár & Te & Kaffi • Heilsuhúsið & Lifandi Markaður • Ýmsir veitingastaðir s.s. Vox, Perlan, Ruby Tuesday ofl. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Rússneskri geimflaug með þrem geimförum verður skotið á loft í dag og í henni er einnig ólympíu- kyndill sem á að flytja í Alþjóðlegu geimstöðina. Kyndillinn verður síð- an fluttur aftur til jarðar með geim- flauginni á mánudaginn kemur. Áður hafði ólympíukyndillinn meðal annars verið fluttur á norðurpólinn þar sem hlaupið var með hann í tilefni af vetrarólympíu- leikunum í Sochi í Rússlandi á næsta ári. Kyndillinn verður síðan notaður til að kveikja ólympíu- eldinn í Sochi þegar leikarnir verða settir föstudaginn 7. febrúar. Tveir rússneskir geimfarar, sem eru núna í Alþjóðlegu geimstöðinni, eiga að fara í geimgöngu með kyndilinn klukkan hálf þrjú eftir hádegi á laugardaginn kemur. Ann- ar þeirra, Sergei Rjazanskí, á að vera með myndavélar til að taka myndir af hinum geimfaranum, Oleg Kotov, sem á að halda á kyndl- inum í geimgöngunni. „Við eigum síðan að skipta um hlutverk – ef Oleg leyfir mér að halda á kyndl- inum,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Rjazanskí. Þetta er í þriðja skipti sem ól- ympíukyndill er sendur í geiminn. Dmitrí Tsjernyshenko, formaður skipulagsnefndar vetrarólympíu- leikanna, segir að þetta sé þó í fyrsta skipti sem farið sé í geim- göngu með ólympíukyndil. „Geim- ganga tveggja rússneskra geimfara með kyndilinn verður merkur at- burður í sögu ólympíukyndilsins,“ hefur vefurinn space.com eftir Tsjernyshenko. Heimildir: Roskosmos, NASA Kyndillinn verður fluttur í Alþjóðlegu geimstöðina og farið verður með hann í geimgöngu áður en hann kemur aftur til jarðar fyrir Vetrarólympíuleikana í Sochi Ólympíukyndillinn í geiminn Alþjóðlega geimstöðin Soyuz Baikonur- geimferðamiðstöðin Til jarðar: 11. nóv. Geimfararnir Oleg Kotov og Sergei Riazanski fara með kyndilinn í geimgöngu Kostnaður: Jafnvirði 790 milljóna króna Kyndillinn fer 65.000 km og það er lengsta ferð í sögu hans Af öryggisástæðum verður eldurinn skilinn eftir á jörðinni og geymdur í sérstöku hylki Geimskot: 7. nóv. Ólympíukyndillinn Setningar- athöfn leikanna MOSKVA 7. okt. 2013 UPPHAF SOCHI ENDIR 7. febr. 2014 Gerður úr áli Hæð: 95 cm Þyngd: 1,8 kg Norðurpóllinn 19. október KASAKSTAN RÚSSLAND Rússneska fyrirtækið Kramash hefur smíðað 16.000 kyndla Ætla að fara í fyrstu geim- gönguna með ólympíukyndil Gestir ganga inn í hús sem er á hvolfi í bænum Trassenheide á Eystrasaltseyjunni Usedem við norðausturströnd Þýskalands. Hús- ið var reist árið 2008 til að laða að ferðafólk. Pólskir arkitektar, Klaudiusz Golos og Sebastian Miki- ciuk, hönnuðu húsið. Það er hluti af verkefni sem nefnist „Heimurinn á hvolfi“ og á að gera gestum kleift að sjá ýmsa hversdagslega hluti frá óvenjulegum sjónarhornum. Allir innanstokksmunir í húsinu eru einnig á hvolfi. AFP Ferðafólkinu boðið að skoða heiminn á hvolfi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.