Morgunblaðið - 07.11.2013, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2013
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Mundu eftirfimmtanóv-
ember er við-
kvæðið hjá Bret-
um, sem hafa haft
þann sið að halda
upp á að þann dag mistókst
Guy Fawkes ásamt fleirum að
sprengja upp breska þing-
húsið við setningu þingsins
1605 og myrða þannig Jakob
fyrsta Englandskonung. Faw-
kes og félagar hans voru kaþ-
ólikkar sem vildu leggja sitt af
mörkum í þeim hörðu trúar-
bragðadeilum sem þá skóku
Bretland. Fögnuður Bretanna
hefur einkum verið fólginn í
því að halda flugeldasýningar,
brennur og sprengja púð-
urkerlingar, nánast eins og til
heiðurs þeim ólánsherra-
manni Fawkes, sem í dag yrði
líklega kallaður hryðjuverka-
maður.
Tíminn getur víst læknað
flest sár, og jafnvel breytt
ímynd manna líka. Sprengju-
vargurinn er nú flestum
gleymdur, en gríma með
ásjónu hans hefur nú rutt
morðingjanum Che úr vegi
sem táknmynd andkapítalism-
ans. Er fyrirmyndin sótt í
myndasöguna, síðar kvik-
mynd, V for Vendetta, sem
fjallar um baráttu grímu-
manns gegn grimmu yfirvaldi
kúgunar, hlerana og misbeit-
ingar ríkisvaldsins. Gríman af
Guy Fawkes, sem ekki var til
fyrr en í myndasögunni, hefur
nú verið notuð í mótmælum
gegn vísindakirkjunni, sem og
í Occupy-mót-
mælaöldunni og í
óeirðum í Brasilíu
og arabaheim-
inum. Allsérstakt
er því að vita til
þess að líkt og með
bolina af Che eru þessar tákn-
myndir andspyrnu gegn kap-
ítalisma, höfundarrétti og
hnattvæðingu fjöldafram-
leiddar í verksmiðjum vítt og
breitt um heiminn, og höfund-
arréttarlaun greidd af hverju
stykki.
Nú fyrir skemmstu var boð-
að til „milljón manna grímu-
göngu“, sem myndi eiga sér
stað fimmta nóvember víðs-
vegar um heiminn. Þó að mót-
mælt hafi verið í ýmsum stór-
borgum verður ekki sagt að
mótmælin hafi verið ýkja fjöl-
menn, eða vakið athygli
heimspressunar svo nokkru
nemi, ef frá er talið Guardian.
Baráttumaðurinn gegn fá-
tækt, Russell Brand millj-
arðamæringur, sýndi sig hins
vegar. Hann fór mikinn í við-
tali um daginn og kallaði eftir
algjörri byltingu. Þær lausnir
sem hann hafði fram að færa
fyrir heiminn eftir byltingu
voru þó alls ekki nýjar af nál-
inni, heldur af sama meiði og
þær sem voru reyndar aust-
antjalds með ömurlegum af-
leiðingum mestalla 20. öld.
Þau samfélög sem þar voru
sköpuð, eru raunar þau sam-
félög nútímans sem mest svip-
ar til söguheimsins sem grím-
umaðurinn barðist gegn í
myndasögunni.
Sprengjuvargar
geta líka orðið að
táknmyndum,
þótt síðar verði}
Bolunum varpað
fyrir grímur
Þjóðverjar eru
heimsmeistarar í
útflutningi. Und-
anfarin sex ár hef-
ur viðskipta-
afgangur í
Þýskalandi verið yfir þeim
mörkum, sem Evrópusam-
bandið setur aðildarríkjum.
Þar er miðað við að viðskipta-
afgangur megi ekki fara yfir
sex af hundraði landsfram-
leiðslu. Á undanförnum dög-
um hafa Þjóðverjar mátt
hlusta á gagnrýni Evrópu-
sambandsins, bandaríska
fjármálaráðuneytisins og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins, sem
segja að Þýskaland sé drag-
bítur á bata á evrusvæðinu, ef
ekki í efnahagslífi heimsins.
Þjóðverjar láta sér fátt um
þessa gagnrýni finnast. Þeir
geti ekki gert að því að þeir
framleiði svo góða vöru að all-
ir vilji kaupa hana.
Staðan er hins
vegar ekki svo ein-
föld. Á meðan evr-
an er eins og
steypuklumpur,
sem heldur ríkjum
Suður-Evrópu á botninum og
kemur í veg fyrir að þau eigi
sér viðreisnar von, hagnast
Þjóðverjar á sameiginlegu
myntinni. Gengi evrunnar er
allt of hátt fyrir hin að-
þrengdu jaðarríki myntsvæð-
isins.
Það er hins vegar allt of lágt
fyrir Þýskaland og munar þar
jafnvel tugum prósenta.
Skellinum af efnhagshremm-
ingum evrusvæðisins hefur
verið skellt á almenning í
kreppulöndunum Grikklandi,
Ítalíu, Spáni og Portúgal. Þar
er samdráttur viðvarandi.
Þjóðverjar geta ekki látið eins
og það sé þýsku efnahagslífi
óviðkomandi.
Evran fjötrar Suður-
Evrópu en lyftir
Þjóðverjum}
Deilt á Þjóðverja
S
tefán Jón Hafstein kom nýlega
fram með tillögu um sameiginlegt
framboð vinstri flokkanna fyrir
borgarstjórnarkosningarnar
næsta vor. Guðmundur Stein-
grímsson, formaður Bjartrar framtíðar, var
skiljanlega fljótur að slá hugmyndina út af
borðinu. Björt framtíð þarf ekki á Samfylk-
ingunni að halda. Samfylkingin þarf hins veg-
ar mjög á liðsmönnum Bjartrar framtíðar að
halda. Margir innanbúðar hjá Bjartri framtíð
eru einmitt einstaklingar sem lögðu á flótta
frá Samfylkingunni, eins og reyndar stór hluti
þjóðarinnar.
Draumur Samfylkingarinnar um að bera
ægishjálm yfir aðra stjórnmálaflokka landsins
mun ekki rætast. Helsta von Samfylkingar er
því að fara í samkrull með minni flokkum og
ná þannig að komast í valdasæti. Skiljanlega er lítill áhugi
hjá Bjartri framtíð á því að leiða Samfylkinguna til önd-
vegis.
Það verður þó ekki horft framhjá því að nær enginn
munur er á Samfylkingunni og Bjartri framtíð. Það eina
sem skilur að er að liðsmenn Bjartrar framtíðar hafa
íklæðst helgislepju og segjast aldrei tala illa um annað
fólk. Þeir vilja gefa þá ímynd af sér að þeir séu betri en
aðrir stjórnmálamenn.
Björt framtíð hyggst bjóða fram í borginni, en enginn
veit fyrir hvað sá flokkur mun standa eða hverjir verða
þar í forystu. Helst sýnist manni að flokkurinn ætli sér að
sigla seglum þöndum á vinsældum Jóns Gnarr.
En það verður aldrei til annar Jón Gnarr.
Björt framtíð virðist einungis eiga einn for-
ystumann og sá er formaður flokksins, Guð-
mundur Steingrímsson. Honum hefur hins
vegar ekki tekist að skapa sér sérstöðu sem
stjórnmálamaður – nema þá helst fyrir um-
fangsmikið flokkaflakk. Er einhver sem sér
verulegan mun á Guðmundi Steingrímssyni og
Degi B. Eggertssyni? Stundum er eins og þeir
renni saman í einn mann. Björt framtíð þarf
því að finna sér leiðtoga í borginni sem hefur
sérstöðu. Sá verður ekki auðfundinn.
Hugmynd Stefáns Jóns Hafstein um sam-
einingu vinstri flokka lyktar af valdapólitík.
En hún er líka örþrifaráð flokks – Samfylking-
arinnar – sem er að missa atkvæði yfir til lítilla
flokka sem hafa á sér nýjabrum og virka ekki
jafn stofnanalegir og gömlu flokkarnir.
Tillagan um sameiginlegt framboð vinstri flokkanna
felur í sér að þeir flokkar verði að sameinast um að halda
Sjálfstæðisflokknum frá völdum. Er sérstök þörf á því?
Ólíkt til dæmis Vinstri grænum er Sjálfstæðisflokkurinn
fremur hófsamur flokkur, þægilega borgaralegur og and-
vígur rétttrúnaði og pólitískri rétthugsun sem herjað hafa
of lengi á vinstri menn. Það er þörf á slíkum flokki og ansi
er það furðulegt ef það á að vera forgangsmál hjá Sam-
fylkingunni að vinna ekki með hófsömum borgaralegum
flokki. En sjálfsagt eru Vinstri grænir fyrir löngu búnir
að heilaþvo Samfylkinguna. kolbrun@mbl.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
Pistill
Sameining til hvers?
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Viðbragðstími lögreglunnar á Vest-
fjörðum getur verið allt að einn og
hálfur tími í góðri færð en miklu
lengri yfir vetrartímann. Svipaða
sögu er að segja í flestum lögreglu-
embættum á landsbyggðinni, leiðin
frá starfsstöð lögreglunnar í um-
dæminu og á fjærsta útkallsstað er
sjaldan minni en klukkutími í
akstri, oftast meira en tvöfalt lengri
en það.
Á Vestfjörðum eru þrjár
starfsstöðvar, á Ísafirði, Hólmavík
og Patreksfirði og sinna þær svæði
sem er 9.356 ferkílómetrar að
stærð. Frá Ísafirði eru 220 km til
Hólmavíkur og rúmir 170 til Pat-
reksfjarðar, nema þegar ófært er,
þá eru hátt í 500 km þar á milli.
„Ef senda þyrfti lögregluna í
Árneshrepp færi vakthafandi lög-
reglumaður á Hólmavík á staðinn
og yfir sumartíminn yrðu þeir um
einn klukkutíma á leiðinni,“ segir
Hlynur Hafberg Snorrason yf-
irlögregluþjónn á Vestfjörðum.
Fjórtán lögreglumenn ganga vaktir
á öllu svæðinu og það er ekki nægj-
anlegur fjöldi að sögn Hlyns. Hann
er á því að starfsstöðvarnar séu á
ákjósanlegum stöðum en nið-
urskurðarkröfur undanfarin ár setji
embættinu miklar skorður. Lög-
reglumönnum hafi ekki bara fækk-
að heldur hafi líka þurft að draga
úr lengri eftirlitsferðum, því hver
ekinn kílómetri er kostnaðarsamur,
og það lengi viðbragðstímann.
Svelt til sameiningar
Theodór Þórðarson er yfirlög-
regluþjónn lögreglunnar í Borg-
arfirði og Dölum. Þar eru starfs-
stöðvarnar tvær, í Borgarnesi þar
sem starfa sex lögregluþjónar og í
Búðardal þar sem er einn. Um 80
km eru frá Borgarnesi í Búðardal
og þá er ekki komið að endamörk-
um, en þau eru í Gilsfirði um 40 km
norðar. „Þegar kemur upp tilvik er
næsti lögreglubíll kallaður út og sá
getur verið bíll úr öðru umdæmi.
Það hefur gerst að lögreglumað-
urinn á Hólmavík hafi komið yfir
Gilsfjörðinn til aðstoðar. Eins hafa
lögreglumenn í Búðardal farið til
Reykhóla ef fjallvegir eru lokaðir,“
segir Theodór.
Theodóri líst ekki á frekari
niðurskurð eða sameiningu innan
lögreglunnar. „Það er verið að
svelta þessi embætti til samein-
ingar. En vegalengdirnar styttast
ekkert við það. Sameining mun að-
eins draga enn frekar úr krafti lög-
reglunnar. Að sögn embættismanna
á sameining alltaf að skila meiri
slagkrafti en samt á að fækka og
minnka fjármagn, það dregur úr
öryggi lögreglu og borgara og þá
lengist í aðstoðinni á margan hátt
líka.“
Sigurður Brynjólfsson, yfirlög-
regluþjónn á Húsavík, tekur í sama
streng, sameining embætta skili
engu ef lögregluþjónarnir verði
áfram jafn fáir. Umdæmi Sigurðar
nær frá Víkurskarði og suður undir
Vopnafjörð og tekur tæpa þrjá tíma
að keyra enda á milli. „Útkallstími
hjá okkur er frá einni mínútu og
upp í einn og hálfan tíma, við
þokkalega venjulegar aðstæður,“
segir Sigurður.
Á Húsavík eru sex lög-
regluþjónar og einn á Þórshöfn.
Sigurður segir það engan veginn
ásættanlegt fyrir þetta stóra svæði.
„Þetta bitnar á útköllum og íbúun-
um, það er ekki hægt að halda uppi
þeirri þjónustu á öryggisstigi sem
ásættanleg er. Þetta hefur aðallega
bitnað á umferðarlöggæslunni, úr
henni hefur mikið dregið. Auk þess
að á okkar austursvæði er búinn að
vera einn maður í töluvert langan
tíma, með fjóra þéttbýlisstaði.“ Það
stendur þó til bóta því auglýst hef-
ur verið eftir öðrum lögregluþjóni
til starfa á Þórshöfn.
Vegalengdir styttast
ekki við sameiningar
Viðbragðstími Umdæmi lögreglunnar á landsbyggðinni eru víðfeðm.
Morgunblaðið/RAX
Íslensk stjórnvöld hafa í gegn-
um tíðina horft mikið til Noregs
þegar kemur að því að hagræða
og spara í lögreglunni. Árið
2007 var lögregluumdæmunum
á Íslandi fækkað úr 25 í 15 og
var það gert að norskri fyr-
irmynd. Lögreglan í Noregi hef-
ur hlotið töluverða gagnrýni
undanfarið fyrir sein viðbrögð,
bæði þegar fjöldamorðin í Útey
voru framin og aftur í þessari
viku þegar þrjár manneskjur
voru myrtar í rútu í Årdal. Styrk-
ingin sem átti að koma fram
með sameiningu og samdrætti í
lögreglunni þar virðist ekki hafa
skilað sér nægilega vel.
„Við sáum sjálfa okkur ná-
kvæmlega í þessu hlutverki,“
segir Sigurður Brynjólfsson, yf-
irlögregluþjónn á Húsavík, um
langan viðbragðstíma í rútu-
morðunum. „Í Noregi voru sam-
einingar umdæma og mikil
fækkun starfsstöðva lögreglu
og þetta er bein afleiðing þess.
Norsk yfirvöld eru nú að skoða
fyrirkomulag löggæslunnar og
íslensk stjórnvöld, sem hafa
sótt fyrirmyndir til Noregs,
verða að gera það líka.“
Fyrirmyndin
sótt til Noregs
FYRIRKOMULAG