Morgunblaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 44
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 311. DAGUR ÁRSINS 2013
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Hafa borið kennsl á stúlkuna
2. Vildi horfa á dóttur sinni nauðgað
3. Lánið „mútugreiðsla“ til Al Thani
4. Flaug þotu í sumar en flytur …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Bandaríski leikfangaframleiðand-
inn Greene Toys LLC hefur tekið upp
samstarf við íslenska teiknimynda-
gerðarmanninn Þröst Bragason um
framleiðslu á stuttmynd um of-
urdýrin Flopalongs sem fyrirtækið
framleiðir. Stendur nú yfir fjáröflun
til verkefnisins á vefnum Karol-
inafund. Flopalongs eru sköp-
unarverk Bandaríkjamannsins Johns
Roberts Greene og fræða dýrin börn
um dýr í útrýmingarhættu með því að
tvinna saman ímynd-
unarafl og raun-
veruleika, að
því er segir í
tilkynningu.
Frekari fróð-
leik um Flopa-
longs má finna
á flopalongs-
.com.
Þröstur í samstarf
við Greene Toys LLC
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan- og norðaustanátt, víða 10-18 m/s.
Rigning eða slydda með köflum sunnan- og suðaustanlands, úr-
komulítið á Vesturlandi en él í öðrum landshlutum.
VEÐUR
„Víðavangshlaup eru meiri
djöflagangur þar sem hlaup-
ið er upp og niður brekkur, í
drullu og á grasi. Fyrir vikið
hentar víðavangshlaup meira
líkamlega sterkum hlaup-
urum og millivegahlaupurum
líka,“ segir Kári Steinn
Karlsson, Íslandsmethafi í
langhlaupum, um þátttöku
sína á Norðurlandameist-
aramótinu í víðavangshlaupi
í Reykjavík á laugardaginn.
»4
Víðavangshlaup
meiri djöflagangur
Rúrik Gíslason, landsliðsmaður í
knattspyrnu, slapp við alvarleg
meiðsli í leiknum við Galatasaray í
Meistaradeild Evrópu og kveðst
verða tilbúinn í næsta
leik. Rúrik er
ánægður með sinn
hlut hjá FC Köben-
havn það sem af
er þessu
keppn-
istímabili og
gríðarlega
spenntur
fyrir
lands-
leikj-
unum
við Kró-
ata. »2
Rúrik ánægður með
tímabilið hjá FCK
Keflavíkurhraðlestin í úrvalsdeild
kvenna í körfubolta var stöðvuð á Ás-
völlum í gærkvöldi þar sem Haukar
unnu ótrúlegan 31 stigs sigur á Kefla-
víkurliðinu sem vann fyrstu sjö leiki
tímabilsins. Hin magnaða Lele Hardy
skoraði 25 stig og tók 21 frákast en
þjálfari Hauka segir hana gera alla í
kringum sig betri. Snæfell vann einn-
ig 30 stiga sigur á Grindavík. »3
Haukar fyrstir til að
vinna Keflavík
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Við gáfum út fyrsta traktoradiskinn í
fyrra og það voru svo góðar viðtökur
að við ákváðum að halda áfram. Áhug-
inn á þessu efni er meiri en við þorð-
um að vona,“ segir Hjalti Stefánsson.
Hann og kona hans, Heiður Ósk
Helgadóttir, reka kvikmyndafyrir-
tækið HS Tókatækni á Egilsstöðum.
Þau voru að senda frá sér mynddisk-
inn; Dráttarvélar vítt og breitt um
landið. Hann fjallar um gamlar drátt-
arvélar og inniheldur viðtöl við þá
sem hafa það að áhugamáli að gera
þær upp. Að sögn Hjalta er æði stór
hópur sem hefur áhuga á slíku.
„Það er gaman að gera efni fyrir
þennan áhugahóp því hann er svo
þakklátur. Þetta eru oft eldri menn
sem eru kannski ekki mikið á netinu
og eru þakklátir fyrir að fá íslenskt
efni um þetta.“
Hjalti segir að oftast séu þetta
menn sem ólust upp við þessar vélar
og hafi tekið ástfóstri við þær, auk
þeirra sem hafa almennan véla-
áhuga. Ástríða áhugamannana sé
mikil og þeir séu sjóðheitir í því að
halda með dráttarvélategundum.
Vélagrúskararnir eru þó ekki að-
eins eldri menn því á disknum er við-
tal við einn 14 ára sem er að gera upp
Deutz og annan 12 ára sem er langt
kominn í vélagrúskinu.
Hjalti og Heiður fóru út um allt
land til að taka upp efni og af nógu
var að taka. „Eftir söluna í fyrra fór
fólk að hafa samband og það kom
margt áhugavert fram sem ég tók
fyrir á þessum diski. Það eru t.d. við-
töl við tvo menn sem safna traktora-
módelum, annar á tæp 300 og hinn
fjörutíu.“ Þá er fróðleikshorn meðal
efnis og í þetta sinn er sandblástur
kynntur og farið yfir undirbúning
fyrir málningu.
Hjalti segir áhugann á gömlum
dráttarvélum alltaf hafa verið til
staðar, hann hafi bara legið svolítið í
leyni. „Menn voru kannski taldir
furðulegir að vera að grúska í svona
gömlu dóti en ekki lengur. Áhuginn
hefur glæðst en það er líka orðið auð-
veldara að nálgast varahluti í gegnum
netið og umboðin eru farin að flytja
inn hluti í eldri gerðir.“
Áhuginn á gömlum vélum ein-
skorðast ekki við Ísland því út um all-
an heim eru stórir klúbbar í kringum
gamlar dráttavélategundir að sögn
Hjalta.
Með ástríðu fyrir dráttarvélum
Tóku saman efni um gamlar
dráttarvélar og gáfu út á mynddiski
Dráttarvélar Á bænum Svarthamri við Súðavík eru Deutz-dráttarvélar í
röðum. Deutz er með vinsælli dráttarvélategundum hjá vélagrúskurum.
Tókatækni Heiður Ósk Helgadóttir og Hjalti Stefánsson hittu fyrir marga
áhugamenn um gamlar dráttarvélar víða um land og tóku upp efni um þ́á.
Rauður Fallegur Farmall hjá Sigurði sem er með athvarf á Finnsstöðum í
Fljótsdalshéraði. Hann er heimsóttur á mynddiskinum.
Þeir sem vilja kaupa diskinn geta
haft samband við Hjalta og Heiði á
netfangið tokataekni@gmail.com.
Grafísku hönnuðirnir Geir Ólafs-
son og Þorleifur Gunnar Gíslason
hlutu í október sl. alþjóðlegu
hönnunarverðlaunin Red Dot fyrir
hönnun merkinga á Kötlu Vodka. Er
það í fyrsta sinn sem grafískir
hönnuðir frá Íslandi hljóta þau
verðlaun. Tveir Íslendingar hafa
hlotið Red Dot-verðlaun fyrir vöru-
hönnun, Gunnar Gunnarsson hjá
Reykjavík Eyes árið 2009 og stoð-
tækjaframleiðandinn Össur árið
2011. Red Dot eru veitt árlega af
Nordrhein Westfalen-hönn-
unarmiðstöðinni í Essen í Þýska-
landi og þykja ein eftirsóttustu
hönnunarverðlaun heims.
Geir
Ólafsson
Þorleifur
Gunnar Gíslason
Hlutu hönnunar-
verðlaunin Red Dot
VEÐUR » 8 www.mbl.is
Á föstudag Norðaustan 3-10 m/s og léttskýjað á Suður- og Vest-
urlandi, en lítilsháttar él norðan- og austanlands. Frost 0 til 10 stig,
kaldast í innsveitum.