Monitor - 28.11.2013, Síða 6

Monitor - 28.11.2013, Síða 6
@TheEllenShow Steinar - Up I‘m going up everything I do everything I do is going up higher see you took my heart and you bled it out I don‘t know why but everything I do is going up higher Ég ætla upp allt sem ég geri allt sem ég geri er að fara upp hærri sjá þig tók hjarta mitt og þú blæddi það út Ég veit ekki af hverju en allt sem ég geri er að fara upp hærri Takk Google Translate Til riskinga kom þegar Inspector Scholae tók af sér annan vettlinginn og ógnaði menntamálaráðherra með klóri við mótmæli í vikunni. Engin alvarleg slys urðu þó á fólki. Hvers vegna stíflast nefið þegar maður fær kvef? Nefstífla er oftast afleiðing kvefs vegna veiru- sýkingar, en getur einnig stafað af ofnæmi, sepum í nefi og ofnotkun nefúða. Margir telja að við kvef stíflist nefið vegna mikillar fram- leiðslu slíms, eða hors. Í raun stafar stíflan þó helst af bólgu í slímhimnu og æðum í henni. Nefholið er klætt slímhúð og í henni er mikið af æðum. Slímið myndast í sérstökum kirtlum sem opnast út á yfirborð og í frumum í þekjunni sem kallast bikarfrumur. Framleiðsla slíms stjórnast fyrst og fremst af áreiti á slím- húðina svo sem vegna veira, ofnæmisvalda eða annarra ertandi agna. Þegar að fólk fær kvef ræðst veira á slímhúðina og sýkir hana. Í upphafi verður þá vart kláða og hnerra en svo veldur aukin slímmyndun gulgrænu nefrennsli. Við þetta áreiti verður einnig bólguvið- bragð í slímhúðinni og æðum á svæðinu sem veldur nefstífl- unni sjálfri. vísindavefUrinn 7 Breiköppleiðir fræga fólksins Nú þegar rúmur mánuður er til jóla er síðasti séns að hætta með kæró án þess að eyðileggja hátíð- arnar. Monitor kynnti sér hvernig fræga fólkið hættir saman. 1 Með símtali. Taylor Swiftsegir að Joe Jonas hafi hætt með henni í símtali sem entist 27 sekúndur. 2Með faxi. Daniel Day Lewismun hafa sent Isabel Azzano fax um sambandsslit þeirra sem hún svaraði með faxi um að hún væri ólétt. 3Með fallöxi. Henry VIII léthálshöggva tvær af eiginkon- um sínum þegar hann varð leiður á þeim. 4 Með barni. Arnold Schwarz-enegger eignaðist barn með herbergisþernu sem starfaði á heimili hans og Mary Sraiver. Þótt furðulegt megi virðast nennti Sraiver ekki að vera fjórða hjólið. 5Með ógildu hjónabandi. Ef þúlætur vúdúprest á Bali gifta þig eins og Mick Jagger og Jerry Hall gerðu geturðu tæknilega séð bara látið þig hverfa. 6 Flýðu land. Julia Robertsflaug til Írlands og faldi sig þar aðeins nokkrum dögum fyrir fyrirhugað brúðkaup sitt og Kiefer Sutherland. 7Með stríði. Ef við einföldumsagnfræðina svolítið lýsti Marcus Antóníus yfir stríði á hendur þáverandi tengdabróður sínum, Ágústusi keisara, til að geta verið með Kleópötru. Að vera netgeðklofi Ég er með mann á facebook sem popparreglulega upp á „chattinu“ og segir „BLESSAÐ-UR MAÐUR, HVAÐ SEGIR KJÖTTLINN?“. Eftir að hafa fengið svar og verið spurður sömu spurningar á móti fylgir hann gjarnan eftir með „GEGGJAÐ MAÐUR, SNÁKURINN BARA BRAKANDI FERZKUR!“. Þennan mann hitti ég líka stundum á förnum vegi og heilsa honum með sama hætti, en þá rétt kinkar hann kolli og gengur meðfram veggjum. Ég þekki annan mann sem er hinn ljúfastidagsdaglega, brosir vinalega, talar með blíðri(Paul) rödd og er alltaf góður við börn og dýr. Þegar hann hins vegar kemst með sína löngu og spriklandi fingur á lyklaborð verður gjarnan fjandinn laus og hin ýmsu fréttaefni á DV.is fá að finna fyrir kommentum eins og „Þessi ætti nú bara að hoppa í sjóinn!“ og „AFSAKIÐ MEÐAN ÉGÆLI, GUBB“. Stundum spyr hann meira að segja spekingslegur „Halló, góðan DAGINN, er þetta nú frétt??“. Allt er hins vegar þegar þrennt er. Ég þekkistelpu nokkra sem skrifar sömu athugasemdvið prófílmyndir nánast allra vinkvenna sinna, en hún hljóðar nokkurn veginn svona: „Vá, sætust í heimigeimi.“. Fullyrðingin gjaldfellur strax þar sem tíu stelpur geta ekki allar verið sætastar í heimi, hvað þá ef geimurinn er tekinn með. Áður en lengra er haldið átta ég mig alveg áþví að umræðan um „samskipti á netinu“ erað flestra mati þreytt röfl og kjaftæði sem fæstir nenna að lesa. Þau eru samt sem áður bara svo áhugaverð og þarf ekki að líta lengra en í eigin barm til þess að sjá dæmi um það. Ég bý almennt yfir temmilega miklu sjálfsöryggi og tel mig ekki þurfa mikla viðurkenningu á mínum gjörðum til þess að verða sáttur. Þessu er hins vegar á annan veg farið á Facebook og Instagram. Þegar ég set stöðuuppfærslu, hlekk eða sniðuga mynd inn á þessa miðla stend ég mig nánast alltaf að því að endurhlaða síðunni á u.þ.b. tíu mínútna fresti til þess að sjá hversu margir voru ánægðir með færsl- una og smelltu á „læk“. Ekki nóg með það heldur hef ég einnig gerst sekur um að eyða út mynd sem fékk ekki nógu góð viðbrögð þrátt fyrir að ég væri fullkomlega sáttur við hana sjálfur. Eitt sinn breytti „vinur“ minn friðhelgisstilling-unum mínum þannig að aðeins ég sjálfur sámína eigin pósta og vikan sem leið þar til ég áttaði mig á hrekknum var einhver sú versta sem ég hef upplifað. Ég skammast mín lúmskt fyrir þessa hegðun, en hef samt hreinlega enga stjórn á henni, ég einfaldlega þrífst á þeirri viðurkenningu sem felst í einum litlum læk. Ámínum stutta starfsferli á „unglingablaðinuMonitor“ hef ég tekið viðtöl við ýmsaáhugaverða einstaklinga, þ.á.m. fólk með geðraskanir, fegurðardrottningu, forsætisráðherra, heimsfræga sjónvarpsstjörnu, ungt fólk sem strýkur að heiman, ung eineltisfórnarlömb og mann sem hefur afplánað fangelsisdóma í þremur löndum. Í samtölum mínum við þetta fólk hafa netumræður alltaf komið upp og þá oftast á neikvæðum nótum. Þannig að það sé á hreinu er ég ekki áttræðurog mér finnst netið snilld. Hins vegar ermerkilegt hvernig fólk fær oft útrás fyrir sínar dýpstu og bældustu hvatir þegar komið er í „skjól skjásins“ eins og vitringur mikill mælti eitt sinn. Ljúfustu lömb skoða „sifjaspells-klám“, kurteisir samfélagsþegnar breytast í ófreskjur á kommentakerfum og fólk með heimsins harðasta skráp brotnar saman ef læk-talan fer undir 50. Það er því ekki úr vegi að spyrjasig hvort geðraskanir framtíð-arinnar verði flestar greindar á netinu.Verður Narfi nágranni greindur net-þunglyndur eftir 20 ár og verð ég á lyfjagjöf vegna netgeðklofa? Verður jafnvel nauðsynlegt að ná sér í lyklaborðaleyfi og ganga með tölvunotkunarskírteini í veskinu? Ég kann ekki svörin en mér finnst þetta allavega áhugaverðast í heimigeimi. 6 Monitor fimmtudagur 28. nóvember 2013 eintóM Þvæla í belg & biðu Bætingaráð Bergs Prófatörnin Nú fer að hefjast prófatörn hjá mennta- og háskólanemum landsins. Því vill oft fylgja lítill svefn og mikil kaffidrykkja. Tíminn virðist fljúga út um gluggann og fólk hættir að hugsa um mataræðið og hreyfingu. Skyndibiti í öll mál og nammi til að narta í inn á milli meðan maður bölvar sig í gegnum próflesturinn. Skítt með æfinguna, þegar prófin eru búin kemur átakið. Þetta er allt pínu öfugsnúið því rétt matarræði, hreyfing og góður svefn geta hjálpað ótrúlega í próflestri. Borðaðu flókin og góð kolvetni sem nýtast þér út daginn og veita þér stöðuga orku í stað þess að rjúka upp en falla svo jafnhratt niður í sykursjokki. Leyfðu heilanum að vinna úr þeim upplýsingum sem þú ert að taka inn með því að hvílast. Á daginn tökum við inn upplýsingar, þegar við sofum vinnum við úr þeim. Æfingin þarf ekki að vera löng. Erfiður en stuttur þrekhringur nær hjartanu af stað, eykur blóð- og súrefnisflæði, og vekur okkur upp af sléninu en hjálpar okkur svo að sofna um kvöldið. Ellen Degeneres er þrettándi vinsælasti Twitter notandi heims. Um daginn „live tweet-aði“ hún feluleik við eiginkonu sína Portia De Rossi sem var vægast sagt kostulegur. eltU Þennan EllEn DEgEnErEs ísl-enskUr texti Hersir aron ólafsson

x

Monitor

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.