Morgunblaðið - 09.01.2014, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nýnemadagur Háskólans í Reykja-
vík í upphafi vorannar var haldinn í
gær, en á þeim degi er starfsemi
skólans kynnt. Eru ýmsir viðburðir
skipulagðir vegna þessa, og sækja
nemarnir til dæmis margvíslegar
kynningar um starfsemi skólans. Á
einni slíkri ræddi Andri Tómas
Gunnarsson, náms- og starfs-
ráðgjafi við nýnemana um lyk-
ilatriði til árangurs í háskólanámi,
og leitaði meðal annars í smiðju Al-
berts Einstein til þess að hvetja ný-
nemana áfram. Ekki er að sjá ann-
að en að Einstein gamli hafi fallið
nemendunum vel í geð, og hugs-
anlega eiga einhverjir þeirra eftir
að feta í fótspor hans.
Nýnemadagur í Háskólanum í Reykjavík
Morgunblaðið/Þórður
Hugljómun sótt í smiðju Einsteins
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Byggingarfulltrúi Reykjavíkur sam-
þykkti á þriðjudaginn niðurrif á hús-
unum á lóð Hverfisgötu 103. Versl-
unin Nexus var áður þarna til húsa.
Lóðin er á svæðinu milli Bar-
ónsstígs og Snorrabrautar, neðan
við Hverfisgötuna. Til stendur að
reisa 100 herbergja lúxushótel á lóð-
inni.
„Niðurrifið hefst bara núna í jan-
úar,“ segir Sigurður Andrésson,
framkvæmdastjóri og eigandi SA
Verks ehf., sem sér um niðurrifið og
uppbygginguna. Sigurður vonast til
að framkvæmdum verði að miklu
leyti lokið í sumarbyrjun.
Hótelið á að taka til starfa í maí
2015 og verður rekið af KEA-
hótelum, hannað á teiknistofunni
Opus á Akureyri.
KEA mun einnig hafa tryggt sér
gamla Reykjavíkurapótekshúsið við
Austurstræti 16 undir hótelrekstur.
U-laga hótelbygging
„Hótelið verður á allri lóðinni, U-
laga og opnast til vesturs,“ segir
Sigurður, en sjá má drög að útliti
hússins á myndinni hér að ofan til
hliðar. Útlitið gæti þó tekið nokkr-
um breytingum frá því sem hér birt-
ist, þar sem hönnunarvinnu er ekki
lokið.
„Þetta verður myndarlegt hótel
og löngu kominn tími til að lyfta
þessari götu aðeins upp,“ segir Sig-
urður. Hann bendir á að mikil upp-
bygging sé á Hverfisgötunni, og
nefnir Hljómalindarreitinn sem
dæmi.
„Sú framkvæmd nær alveg niður
að Hverfisgötunni.“ Inngangur hót-
elsins verður á jarðhæð, en í dag er
reiturinn nokkru lægri en nærliggj-
andi Hverfisgata. Sigurður segir að
þar verði bílakjallari, auk þess sem
veitingastaður verður að öllum lík-
indum á hótelinu.
„Það er gert ráð fyrir að hægt
verði að sitja úti inni í U-inu,“ segir
Sigurður. Sóldýrkendur ættu að
geta notið sólarinnar á hótelinu yfir
sumarmánuðina, því nærliggjandi
hús eru ekki það há að þau skyggi
algjörlega á sumarsólina. „Það verð-
ur örugglega notalegt.“
Veitingahús á Hverfisgötu 12
Sæmundur í sparifötunum, eig-
andi KEX-hostels, sótti um bygg-
ingarleyfi til að innrétta veitinga-
stað í húsnæði neðar í sömu götu,
við Hverfisgötu 12, á horni Ingólfs-
strætis og Hverfisgötu.
Pétur Marteinsson, einn eigenda
fyrirtækisins, vildi lítið gefa upp um
hvað til stæði að gera í húsnæðinu,
en sagði að von væri á að það myndi
skýrast mjög fljótlega. Sama teymi
og er að baki KEX sækir um leyfið,
en við Hverfisgötuna verður þó ekki
gistiaðstaða.
Byggingarfulltrúi hafnaði umsókn
fyrirtækisins á þeim grundvelli að
umsögn Reykjavíkur vantaði, en
húsið er eitt elsta steinsteypta hús í
Reykjavík, byggt árið 1910. Pétur
segir að það setji ekki strik í reikn-
inginn því þeir ætli sér að færa hús-
ið nær upprunalegri mynd frekar en
hitt. Guðmundur Hannesson læknir
byggði húsið, en hann er sagður
einn helsti arkitektinn á bak við að-
alskipulag Reykjavíkur árið 1927.
100 herbergja lúxushótel
rís á Hverfisgötu 103
KEA bætir við sig hótelum Sæmundur í sparifötunum vill opna veitingastað
Morgunblaðið/Golli
Hverfisgata 103 Hótelið verður mikil bragarbót.
Teikning/Opus
Hótel Á Hverfisgötu 103 verður lúxushótel. Myndin hér að ofan sýnir ekki endanlegt útlit hússins.
Morgunblaðið/Golli
Hverfisgata 12 KEX-menn vilja opna veitingastað.
Eigendur fiskvinnslunnar Marmetis
í Sandgerði stefna að því að halda
rekstri áfram. „Ég vona að fisk-
vinnslan fari aftur af stað og neita að
gefa upp vonina um að eitthvað verði
þarna,“ segir Magnús S. Magn-
ússon, formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Sandgerðis.
Marmeti hætti vinnslu í nýju og
glæsilegu fiskvinnsluhúsi sínu í
Sandgerði á haustmánuðum eftir að-
eins nokkurra mánaða starfsemi.
Öllu starfsfólki var sagt upp störfum
en þegar mest var unnu þar yfir
fjörutíu manns.
Uppsagnarfrestur þrjátíu starfs-
manna rann út um áramót en fyr-
irtækið gat ekki greitt þeim laun
fyrir desember. Verkalýðsfélagið
hefur verið í samskiptum við fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins frá því
á föstudag og í gærmorgun fékk
starfsfólkið hluta af laununum, 60-
65%. Ekki er vitað hvernig fer með
það sem útistandandi er.
Beint á atvinnuleysisskrá
Unnið hefur verið að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækisins
undanfarnar vikur. Í fréttatilkynn-
ingu frá forráðamönnum félagsins
kemur fram að fregna af nið-
urstöðum þeirrar vinnu og þar með
lausnar á fjárhagslegum erfiðleikum
sé að vænta innan skamms. „Mark-
mið þeirrar endurskipulagningar er
að starfsemi félagsins haldi áfram,“
segir í tilkynningunni.
Magnús segir að ekki sé mikla
vinnu að hafa í Sandgerði og telur
hann að flestir þeir sem misstu vinn-
una hjá Marmeti hafi farið beint á
atvinnuleysisskrá.
Byggt var nýtt fiskvinnsluhús yfir
starfsemi fyrirtækisins, um 2000
fermetrar að stærð, og Marel setti
upp fullkomna vinnslulínu. Heildar-
fjárfesting var áætluð liðlega 600
milljónir kr. í lok janúar þegar
Steingrímur J. Sigfússon atvinnu-
vegaráðherra og Sigrún Árnadóttir
bæjarstjóri gerðu fjárfestingasamn-
ing við Örn Erlingsson útgerð-
armann um ívilnanir vegna fjárfest-
ingarinnar. helgi@mbl.is
Vilja
halda
áfram
Marmeti gerði upp
hluta desemberlauna
Efnainnihald vatnsins í Múlakvísl
á Mýrdalssandi bendir til að
hlaupvatn sé að leka undan einum
katlanna á vatnasviði Kötlujökuls í
Mýrdalsjökli. Veðurstofa Íslands
fylgist sérstaklega með vatnshæð
og rafleiðni í ánni og telur ekki
hættu á tjóni, enn sem komið er.
Mælir Veðurstofunnar á Múla-
kvíslarbrú sýnir stöðuga aukningu
á rafleiðni í ánni frá því á gaml-
ársdag.
Svipaðir lekar hafa komið áður í
Múlakvísl, til dæmis í smáhlaupi í
október sl.
Brúna yfir Múlakvísl tók af í
miklu jökulhlaupi í byrjun júlí
2011. Þetta var á aðal-ferða-
mannatímanum og fljótlega var
tengingu komið á um bráða-
birgðabrú.
Starfsmenn verktakafyrirtæk-
isins Eyktar vinna nú að smíði
nýrrar brúar. Stöplarnir voru
steyptir í haust og vetur. Einnig
verða gerðir miklir varnargarðar
austan ár til að halda henni í far-
vegi sínum. Nýja brúin er hærri
en sú gamla og á að þola mun
stærri jökulhlaup. helgi@mbl.is
Hlaupvatn talið
leka í Múlakvísl
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Múlakvísl Ekki hefur aukist mikið í
Múlakvísl en rafleiðni bendir til að
hlaupvatn leki undan Kötlu. Unnið
er að smíði nýrrar brúar.