Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014
Ný Polarolía
Nýtt útlit-meiri virkni
Selolía, einstök olía
Meiri virkni
fall Omega 3
fitusýrur
nir mælir með
lolíu, en þinn?
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Selolían fæst í:
Þín verslun Seljabraut,
úsum, Fjarðarkaupum,
ni, Hafrúnu og MelabúðSími 555 2992 og 698 7999
Nýtt!
D-vítamínbætt
t hlut
n læk
Se
pótekum,
heilsuh
Fiskbúðinni Trönuhrau
Hát
Min
a
Listamaðurinn Brandur Karlsson
fékk í gær afhentan úr hendi
Friðriks Pálssonar styrk úr Lista-
sjóði Ólafar sem nam 500.000
krónum. Fór afhendingin fram á
Kjarvalsstöðum. Á upphæðin að
gera Brandi kleift að útbúa að-
stöðu svo hann geti stundað list-
sköpun sína með sem bestum
hætti.
Listasjóðurinn var stofnaður
árið 2008 til minningar um Ólöfu
Pétursdóttur, dómstjóra og mál-
ara, og veitir styrki til þeirra al-
varlega hreyfihömluðu ein-
staklinga sem vilja leggja stund á
listsköpun og/eða þeirra sem
leggja þeim einstaklingum lið.
sgs@mbl.is
Fékk
styrk til
að útbúa
aðstöðu
Morgunblaðið/Kristinn
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Því fer fjarri að margir leggi fyrir sig
þróun appa á Íslandi þrátt fyrir góð-
an árangur leikjafyrirtækisins Plain
Vanilla. Ástæðan er sú að þróun og
hönnun þeirra er flókin, auk þess
sem tiltölulega lítill hluti appanna
slær í gegn.
Eins og fram hefur komið setti
hugbúnaðarfyrirtækið Plain Vanilla
nýlega á markað leikinn Quizup og
er óhætt að segja að hann hafi slegið
í gegn og er fyrirtækið nú milljarða
króna virði. Að sögn Helga Pjeturs
Jóhannssonar eiganda hugbúnaðar-
fyrirtækisins Stokks eru sex fyrir-
tæki á Íslandi sem vinna að þróun
appa. Fjögur þeirra, Stokkur, Adv-
ania, Gangverk og Ýmir Mobile, ein-
beita sér að mestu að þjónustuöpp-
um fyrir fyrirtæki. Plain Vanilla og
Fancy Pants Global þróa hins vegar
leikjaöpp. „Þetta er flókin hugbún-
aðarþróun. Sértaklega þegar hannað
er bæði fyrir android stýrikerfi og
apple stýrikerfi sem er algjörlega
sitt hvor hluturinn,“ segir Helgi.
Hann segir afar lítið um að ein-
staklingar vinni að þróun nýrra
appa. „Við framleiðslu apps þá þarf
tilgangurinn að vera algjörlega nýr
og skírskota til stórs hóps ef það á að
ná vinsældum,“ segir Helgi.
Jóhann Malmquist, prófessor í
tölvunarfræði við Háskóla Íslands,
er annar tveggja hugverkamanna að
baki þróun apps sem er gítarstillir
og hljómabók og nefnist Tunerfic.
Þann 19 ágúst höfðu yfir milljón
manns í 202 löndum hlaðið niður
appinu sem er eingöngu fyrir not-
endur Nokia. Að sögn hans hafa 493
Nokia-öpp náð yfir milljón notend-
um af um 120 þúsundum komið hafa
á markað.Tunerific kom á markað
árið 2008. Hann segir erfitt að ná
hylli notenda. „Ef gæðin eru mikil þá
eigum við alveg möguleika. Það er
ekkert endilegt að öppin slái í gegn
þó gæðin séu í lagi. En þú nærð ekki
í gegn nema að reyna,“ segir Jóhann.
Gullmolar inni á milli
Jóhann lagði fyrir nemendur á
fyrsta ári í tölvunarfræði frum-
kvöðlaverkefni í fyrsta skipti nú á
haustönn. Þar settu nemendur fram
hugmynd að appi sem skilaði tæp-
lega 100 tillögum. „Þarna eru gull-
molar inni á milli, en það þarf sam-
vinnu fleiri en eins aðila til þess að
koma slíku á framfæri. Tölvunörd úti
í horni er ólíklegt til að ná í gegn. Þú
þarft einnig þá sem geta gert þetta
fallegt, t.d. grafíska hönnuði, og þá
sem geta sett fram texta um appið.
Einnig þarf að gjörprófa það áður en
það fer á markað,“ segir Jóhann.
Erfitt að ná hylli notenda
Fáir þróa öpp á Íslandi Flókin þróun hugbúnaðar og lágt hlutfall appa
sem ná til fjöldans „Nærð ekki í gegn nema að reyna,“ segir háskólaprófessor
Morgunblaðið/Ernir
Snjallsími Þróun nýrra appa er
flókin og fá þeirra njóta hylli.
Verð á stakri sundferð fyrir full-
orðna í Reykjavík hækkaði um 50
krónur um áramót og er nú 600
krónur í stað 550 króna áður. Nem-
ur hækkunin því um 9%. „Við
hækkuðum bara aðgöngugjald full-
orðinna fyrir staka sundferð. Til
stóð að hækka alla gjaldskrána en
Reykjavíkurborg hvarf frá því. Við
hækkunina á stakri ferð fullorðinna
var horft til þess að gríðarlegur
fjöldi sundlaugagesta eru erlendir
ferðamenn og þetta er niðurgreidd
þjónusta. Þá erum við að koma til
móts við það að fastagestir eða
borgarbúar geti keypt sér tíu miða
kort eða árskort. Það er ástæða
þess að þetta var eina gjaldið sem
var hækkað,“ segir Steinþór Ein-
arsson, skrifstofustjóri íþróttamála
hjá Íþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur.
vidar@mbl.is
Stök sund-
ferð á 600
krónur
Borgin hækkaði
verð um áramót
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sund Verð á stakri sundferð fullorð-
inna hækkaði um 50 kr. um áramót.
Fundur borgarstjórnar Reykjavíkur
var með allra stysta móti á þriðju-
daginn. Fundur var settur klukkan
14:00 og slitið 14:10.
Helga Björk Laxdal, sem ritaði
fundargerðina, segir þetta alls ekki
vera stuttfundamet hjá borg-
arstjórn. Þannig hafi fundir farið
niður í fimm og jafnvel tvær mín-
útur.
Fundurinn var reglulegur fundur,
en þeir eru haldnir fyrsta og þriðja
þriðjudag í hverjum mánuði. Á dag-
skrá fundarins voru einungis „pro
forma“ mál, samþykktir fund-
argerða ýmissa ráða og borgarráðs.
gunnardofri@mbl.is
Funduðu í
tíu mínútur
Efir ágætan dag hvessti í Bláfjöllum síðdegis í
gær svo nauðsynlegt var að stöðva lyfturnar.
Fólk var þá að streyma úr bænum en þurfti frá
að hverfa. Veðrið hefur ekki leikið við skíðafólk
á höfuðborgarsvæðinu. Bláfjöll hafa aðeins verið
opin í örfáa daga frá því fyrir jól.
Rok og skafrenningur í Bláfjöllum gerir skíðafólki á höfuðborgarsvæðinu lífið leitt
Morgunblaðið/Golli
Þurftu frá að hverfa vegna hvassviðris