Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014 Þessa dagana birtast framboðs-tilkynningar vegna vals á lista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem haldnar verða í lok maí.    ÍReykjavík styttistí val á lista Sam- fylkingarinnar og frambjóðendur koma fram og lýsa kostum sínum og áherslum.    Fróðlegt er aðlesa þessar lýs- ingar, ekki síst þá áherslu sem fram- bjóðendur leggja á nýtt aðalskipulag Reykjavíkur og telja sér til tekna að hafa unnið að gerð þess.    Hjálmar Sveinsson varaborg-arfulltrúi stefnir hátt og rök- styður framboð sitt sérstaklega með því að hann hafi lagt áherslu á skipulagsmál og tekið þátt í að móta nýja aðalskipulagið sem hann dásamar mjög.    Annar frambjóðandi, KristínSoffía Jónsdóttir, stefnir næst- um jafnhátt og segist hafa tekið virkan þátt í gerð nýs aðalskipulags.    Þegar haft er í huga hvílíkt klúð-ur nýja aðalskipulagið er má segja að þessir frambjóðendur sýni nokkurt hugrekki með því að tengja sig svo rækilega við það.    En þetta bendir líka til þess aðSamfylkingin hyggist gera sitt ýtrasta til að sökkva með misheppn- uðu skipulaginu í kosningunum.    Nema flokkurinn treysti á aðminnihlutinn í borgarstjórn hafi ekki burði til að nýta sér veik- leika skipulagsins. Hjálmar Sveinsson Veðjað á veikleika? STAKSTEINAR Kristín Soffía Jónsdóttir Veður víða um heim 8.1., kl. 18.00 Reykjavík 1 heiðskírt Bolungarvík 1 skýjað Akureyri 2 súld Nuuk -2 snjókoma Þórshöfn 5 skýjað Ósló 2 skýjað Kaupmannahöfn 7 skýjað Stokkhólmur 7 skýjað Helsinki 5 skýjað Lúxemborg 8 léttskýjað Brussel 8 léttskýjað Dublin 7 skýjað Glasgow 7 léttskýjað London 11 skýjað París 12 heiðskírt Amsterdam 7 heiðskírt Hamborg 8 skýjað Berlín 7 léttskýjað Vín 3 alskýjað Moskva 2 súld Algarve 17 heiðskírt Madríd 13 heiðskírt Barcelona 12 léttskýjað Mallorca 16 léttskýjað Róm 12 skýjað Aþena 12 léttskýjað Winnipeg -30 heiðskírt Montreal -12 skýjað New York -10 heiðskírt Chicago -13 skýjað Orlando 13 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 9. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:08 16:03 ÍSAFJÖRÐUR 11:44 15:37 SIGLUFJÖRÐUR 11:28 15:18 DJÚPIVOGUR 10:45 15:25 Tökulið á vegum bandarísku sjónvarpsstöðv- arinnar NBC kom hingað til lands í gærmorgun og stóð fyrir beinni sjónvarpsútsendingu frá Laugardalslaug. Miklar frosthörkur herja nú á Bandaríkin og að sögn Heimis Jónassonar, stofn- anda og framkvæmdastjóra kvikmyndafyrirtæk- isins Icelandic Cowboys, kom sú hugmynd upp í fyrrakvöld að senda hingað fréttamann og töku- lið frá Bandaríkjunum til þess að sýna áhorf- endum morgunþáttarins Today Show hvernig veðrið væri á Íslandi. Michelle Kosinski, frétta- kona NBC, tók m.a. nokkur viðtöl við sundlaug- argesti Laugardalslaugar. Sendu beint frá Laugardalslaug Morgunblaðið/Þórður Ökumönnum sem lent hafa í um- ferðaróhöppum eða slysum og grunaðir eru um ölvunarakstur hefur fækkað frá árinu 2008. Sama þróun hefur orðið hjá ökumönnum sem grunaðir eru um fíkniefnaakst- ur, óhöppum þeirra og slysum hefur fækkað frá 2011. Kemur þetta fram í upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu. Þar er gert upp sérstakt eftirlit með ölvunar- og fíkniefnaakstri í desembermánuði. Lögreglan stöðv- aði 5815 ökumenn í eftirlitinu. Alls voru 142 ökumenn handteknir, grunaðir um ölvunar- og/eða fíkni- efnaakstur. Eru þetta fleiri öku- menn en handteknir voru í desem- ber 2012, þegar 114 voru teknir. Þá voru raunar mun færri stöðvaðir í þessu eftirliti. Lögreglan vekur athygli á því að fjöldi brota ráðist nokkuð af umfangi eftirlits lögreglu á hverjum tíma. Því sé hæpið að meta alvarleika vandans eingöngu á þeim grunni. Tíðni óhappa þar sem áfengi og fíkniefni koma við sögu sé betri mælikvarði. Færri slys vegna ölv- unaraksturs Lögreglan í um- ferðareftirliti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.