Morgunblaðið - 09.01.2014, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014
Útsalan
í fullum
gangi
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Útsalan hefst í dag kl. 10
Klappastíg 44 - sími 562 3614
Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni • Nýtt kortatímabil
ÚTSALA
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is/kjólar
GLÆSIKJÓLAR FRÁ
STÓRÚTSALA
SPARIKJÓLAR, VETRAYFIRHAFNIR,
PEYSUR, BOLIR, PILS OG M.FL.
20-50% afsláttur!
Útsala!
Kvenfatnaður - skór - jólavara
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
www.facebook.com/spennandi
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Gert er ráð fyrir að með nýrri reglu-
gerð um sjúkraþjálfun, er sett var í
desember síðastliðnum, muni út-
gjöld ríkisins til sjúkraþjálfunar
lækka um 100 milljón krónur í sam-
ræmi við aðhaldsmarkmið fjárlaga
ársins 2014. Í Morgunblaðinu í gær
kom fram að forsvarsmenn Félags
sjúkraþjálfara væru ósáttir við
reglugerðina, sem gerir það að for-
sendu fyrir greiðsluþátttöku Sjúkra-
trygginga Íslands í sjúkraþjálfun að
fyrir liggi skrifleg beiðni frá lækni.
Töldu þeir hana torvelda aðgang
fólks að heilbrigðisþjónustu.
Í svari velferðarráðuneytisins við
fyrirspurn Morgunblaðsins kemur
fram að í lögum um sjúkraþjálfun nr.
58/1976 sem féllu úr gildi 1. janúar
2013 hafi verið ákvæði um að sjúkra-
þjálfari mætti ekki taka sjúkling til
meðferðar án samráðs við lækni.
Þetta hafi breyst með gildistöku
nýrra laga um heilbrigðisstarfsmenn
í upphafi síðasta árs og var þá sjúk-
lingum heimilt að leita beint til
sjúkraþjálfara án beiðni frá lækni.
Segir í svarinu að ráðuneytið telji
nauðsynlegt að stýra flæði sjúklinga
til sjúkraþjálfara og setja þannig
faglegar skorður við því hvenær
unnt sé að efna til útgjalda vegna
sjúkraþjálfunar með greiðsluþátt-
töku hins opinbera. Leiti sjúklingur
beint til sjúkraþjálfara án tilvísunar
læknis ber hann kostnaðinn sjálfur.
„Að mati ráðuneytisins á þetta ekki
að torvelda fólki aðgang að heil-
brigðisþjónustu þar sem greiðslu-
þátttaka er tryggð ef fyrir liggur
læknisfræðilegt mat á þörf fyrir
sjúkraþjálfun,“ segir í svarinu.
Nauðsyn talin á að stýra
flæði í sjúkraþjálfun
Gert ráð fyrir 100 milljóna króna lækkun útgjalda
Morgunblaðið/Heiddi
Sjúkraþjálfun Um 100 milljón krónur eiga að sparast með nýrri reglugerð.
Björgunarsveitarmenn björguðu
þremur fimmtán ára drengjum nið-
ur af Ingólfsfjalli í gærkvöldi.
Drengirnir lentu þar í sjálfheldu.
Björgunarsveitir Slysavarna-
félagsins Landsbjargar í Árnes-
sýslu voru kallaðar út rétt eftir
klukkan fimm í gær til aðstoðar
drengjunum. Þyrla Landhelg-
isgæslunnar var í æfingaflugi og
var beint á staðinn þar sem í fyrstu
var talið að leita þyrfti að fjórða
drengnum sem fór á undan félögum
sínum úr fjallinu. Hann kom fljót-
lega fram.
Um þrjátíu björgunarmenn sem
sérhæfðir eru í fjallabjörgun tóku
þátt í björguninni. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Landsbjörgu þurfti
nokkra línuvinnu til að koma
drengjunum niður af fjallinu en að-
stæður til björgunar voru sagðar
nokkuð krefjandi.
Ólöf Snæhólm Baldursdóttir,
upplýsingafulltrúi Slysavarna-
félagsins Landsbjargar, sagði í
samtali við mbl.is í gærkvöldi að
piltarnir hefðu verið nokkuð kaldir
eftir vistina á fjallinu enda ekki
búnir til fjallgöngu.
Fjöldi björgunarsveitarmanna tók þátt í
björgun drengja úr sjálfheldu í Ingólfsfjalli
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Umferð um hringveginn jókst um
3,6 prósent á síðasta ári, en nær sí-
felldur samdráttur hefur verið í um-
ferðinni frá árinu 2007, samkvæmt
upplýsingum frá Vegagerðinni.
Friðleifur Ingi Brynjarsson, verk-
efnastjóri hjá umferðardeild Vega-
gerðarinnar, segir að tölur um um-
ferð geti tengst ýmsum þáttum, eins
og mannfjölda og fjölda bíla í um-
ferðinni, og einnig vergri landsfram-
leiðslu eða hagvexti. „Hjá öðrum
þjóðum hefur fundist samsvörun á
milli hagvaxtar og umferðartalna,
það er hvernig umferð eykst eða
dregst saman eftir því hvernig hag-
fóturinn hefur það,“ segir Friðleifur
Ingi. Hið sama gildi hérlendis. „Við
höfum skoðað þetta og séð fylgni
þarna á milli, á bilinu 96-98%.“ Frið-
leifur Ingi segir því að hægt sé að
nota umferðartölur sem hitamæli á
efnahagsástandið. „Þessi aukning er
því klár vísbending, og ég undir-
strika það orð, til þess að við séum að
hafa það betra en við höfum haft
það.“ Ekki sé þó hægt að fullyrða um
slíkt, þar sem eftir sé að taka saman
tölur af öðrum vegum landsins.
Umferð
jókst um
hringveginn
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Umferðarþungi Umferð um hring-
veginn jókst á síðasta ári um 3,6%.
Vísbending um
meiri hagvöxt