Morgunblaðið - 09.01.2014, Page 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014
✝ GunnlaugurEggert Briem
fæddist á Sauð-
árkróki 8. nóv-
ember 1922. Hann
lést 1. janúar 2014
á hjúkrunarheimili
Hrafnistu í Kópa-
vogi.
Foreldrar hans
voru Kristinn P.
Briem, f. 8.10.
1887, d. 18.6. 1970,
kaupmaður á Sauðárkróki, og
Kristín Björnsdóttir Briem, f.
17.12. 1889, d. 8.4. 1961, hús-
freyja. Systkini Gunnlaugs voru
Páll J. Briem, f. 6.4. 1912, d.
15.5. 2000, útibússtjóri, Björn
Briem, f. 15.4. 1913, d. 28.9.
2009, Una Kristín Briem, f.
13.2. 1924, d. 3.9. 1924 og Elín
Briem, f. 29.7. 1929, d. 10.6.
2008, húsfreyja. Uppeldissystir
Gunnlaugs var Ásthildur Sig-
urrós Ólafsdóttir, f. 5.7. 1921,
d. 15.10. 1999, bankaritari.
Gunnlaugur kvæntist hinn 6.11.
1954 Hjördísi Á. Briem, f. 2.11.
1929, hjúkrunarfræðingi. Hún
er dóttir Ágústs Kvaran, f.
16.8. 1894, d. 30.1. 1983, stór-
kaupmanns, leikara og leik-
stjóra, og Þórlaugar Björns-
dóttur, f. 31.3. 1907, d. 23.7.
los, f. 24.3. 1972 og Katrín, f.
30.10. 1996. 4. Áslaug, f. 3.7.
1965, ferðamála- og viðskipta-
fræðingur, gift Tómasi Jóns-
syni, f. 9.4. 1962, hæstarétt-
arlögmanni, dætur þeirra eru
Hjördís Maríanna, f. 31.5. 1992,
Sara Hildur, f. 8.5. 1996 og
Anna Rakel, f. 7.5. 2001.
Gunnlaugur lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1943, embættis-
prófi í lögfræði frá Háskóla Ís-
lands árið 1949. Hann stundaði
framhaldsnám í réttarfari í op-
inberum málum í Svíþjóð og
Danmörku 1950-51. Hann var
fulltrúi hjá Sakadómaranum í
Reykjavík 1949-61, var settur
sakadómari 1961 og yf-
irsakadómari frá 1973. Árið
1982 var hann síðan skipaður
yfirsakadómari og gegndi því
embætti þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir árið
1992. Gunnlaugur var auk þess
dómari í Félagsdómi 1983-86,
formaður Siglingadóms 1986-
89, gegndi setudómarastörfum í
nokkrum málum og var vara-
dómari í Hæstarétti í ein-
stökum málum á árunum 1984-
92. Hann sat í stjórn Dómara-
félags Íslands 1970-72, var
endurskoðandi félagsreikninga
1977-78 og sat í nefnd til að
endurskoða lög um meðferð op-
inberra mála árið 1985.
Útför Gunnlaugs fer fram
frá Bústaðakirkju í dag, 9. jan-
úar 2014, og hefst athöfnin kl.
13.
1999, húsfreyju.
Börn Gunnlaugs og
Hjördísar eru: 1.
Valgerður Mar-
grét, f. 9.7. 1956,
gift Guðmundi Ein-
arssyni, f. 18.9.
1954, rafvirkja-
meistara, Börn
þeirra eru Arnar
Geir, f. 5.1. 1983,
sambýliskona hans
er Ástríður Viðars-
dóttir, f. 23.10. 1985, Brynja
Dögg, f. 18.8. 1986, gift Þórarni
Erni Þrándarsyni, f. 15.10. 1984
og Ásdís Rúna, f. 26.7. 1996. 2.
Kristinn, f. 7.1. 1961, viðskipta-
fræðingur, kvæntur Kolbrúnu
Sigurðardóttur, f. 26.6. 1961,
bankastarfsmanni, synir þeirra
eru Hafsteinn, f. 28.2. 1991 og
Brynjar Orri, f. 25.4. 1997.
Sambýliskona Hafsteins er
Harpa Ásgeirsdóttir, f. 19.4.
1990 og er barn þeirra Marel, f.
4.6. 2013. Sonur Kristins er
Gunnlaugur Már, f. 5.1. 1983 og
er barn hans Ísabella Ósk, f.
17.6. 2008. 3. Gunnlaugur, f.
8.9. 1962, hljómlistarmaður,
kvæntur Evu Briem Galambos,
f. 16.7. 1977. Dætur Gunnlaugs
eru Aníta Briem, f. 29.5. 1982,
gift Constantine Paraskevopou-
Pabbi minn.
Það eru margar hugsanir og
minningar sem fara í gegnum
huga minn núna þegar þú hefur
kvatt okkur.
Ég hafði einhvern veginn hald-
ið að þú yrðir hér um ókomna tíð
en núna er allt eitthvað svo tóm-
legt án þín.
Þú varst þreyttur og saddur líf-
daga, tjaldið féll og þú kallaður
burt snemma að morgni nýárs-
dags. Það var gott að geta verið
hjá þér á þessum fallega degi og
sjá litina í fjöllunum og á himn-
inum þegar þú lagðir af stað í þína
ferð inn í ljósið. Ég efast ekki um
að vel hefur verið tekið á móti þér
og að þú sért umvafinn kærleika
og hlýju.
Takk fyrir allt, veiðitúrana,
sumarbústaðaferðirnar, bækurn-
ar, kennsluna og allan þinn stuðn-
ing sem þú sýndir mér sama
hversu skrýtnar ákvarðanir ég
tók. Þær voru allnokkrar. Þú
varst bara til staðar, vissir alltaf
ef eitthvað var að eða hjálp vant-
aði.
Stuðningur þinn og mömmu
var mér og okkur öllum ómetan-
legur. Pússa glugga og hjálpa til
við að mála, skutla eða passa
börnin okkar. Þú fylgdist vel með
öllu sem fór fram og safnaðir oft
úrklippum úr blöðum um tónlist-
ar- og leiklistarstörf okkar í fjöl-
skyldunni, keyptir vínylplötur í
bænum og gafst mér. Þú varst
glaðastur þegar talað var um
bækur, listaverkin þín og mennt-
un. Þú vildir halda í gömlu gildin
og þér var slétt sama um internet-
ið eða aðrar tækninýjungar, undir
þér vel með góða bók og kaffibolla
innan um fjölskylduna og með
þínu fólki. Orð voru oft óþörf.
Mér þótti vænt um að geta far-
ið með þér og mömmu norður í
land fyrir nokkrum árum með við-
komu í Reykholti þar sem þú
naust þess að drekka í þig söguna
sem og að vitja gömlu heimahag-
anna á Sauðárkróki og fá að fara í
gamla heimili þitt, Briems-húsið.
Segja okkur frá fjallanöfnum og
hvernig þau nöfn voru til komin,
eitthvað sem maður hafði ekki
hugmynd um, þó maður kynni á
einhver tölvuforrit eða gæti barið
húðir.
Ég ætla að halda minningu
þinni á lofti, hvert sem ég fer og
tónlist mín ásamt hljóðfæraleik
mun verða á margan hátt tileink-
uð minningu þinni um ókomna tíð.
Þú veittir mér innblástur með
því að vera þú sjálfur alla tíð.
Hvíldu í friði, pabbi minn.
Gunnlaugur.
Kæri tengdapabbi.
Um leið og ég kveð þig hinstu
kveðju vil ég þakka þér, Gunn-
laugur, fyrir fjölmargar einlægar
samverustundir á þeim 33 árum
sem við höfum þekkst. Þú varst
mjög náinn okkur og tíður gestur
á heimili okkar í Goðalandi. Þú
lést þig varða heilsu okkar og líð-
an og gafst góð ráð ef einhver
kenndi sér meins. Kannski hefðir
þú frekar átt að verða læknir en
lögfræðingur eins og þú ætlaðir
þér upphaflega. Þú ræddir við
okkur um persónuleg mál sem
þér lágu á hjarta. Þú sýndir
barnabörnum þínum áhuga og
hvattir þau til dáða. Ég verð að
minnast þinnar einstöku skap-
gerðar.
Þú varst einstaklega lítillátur,
einlægur og umburðarlyndur. Ég
minnist þess hvað þú hafðir tak-
markalausa trú á mér, að ég gæti
lagað alla veraldlega hluti sem
biluðu heima hjá þér.
Síðustu 15 mánuðir hafa verið
þér mjög erfiðir heilsufarslega.
Nú þegar þú kveður okkur og
heldur á vit forfeðra þinna fyllist
ég tómleika en jafnframt gleði
fyrir þína hönd. Hafðu þökk fyrir
samfylgdina.
Guðmundur Einarsson.
Þegar nær dró fyrsta fundi
mínum við verðandi tengdaföður
sá ég eftir því að hafa ekki sinnt
refsiréttinum betur í laganáminu.
Gunnlaugur var þá yfirsaka-
dómari í Reykjavík til margra ára
en ég bara nýútskrifaður í faginu.
Gott ef helstu hugtök voru ekki
rifjuð upp til þess að vera viðbú-
inn spurningum hins harðskeytta
dómara. En þetta voru óþarfa
áhyggjur. Gunnlaugur hafði eng-
an áhuga á því að hlýða mér yfir í
fræðunum og mætti mér af hlý-
hug og sem jafningja. Hann sýndi
mínum viðfangsefnum áhuga og
kynnti mig strax fyrir sínum fjöl-
mörgu áhugamálum, sem lutu
mest að menningu og listum. Fá-
fræði mín í þeim efnum hefur
örugglega valdið honum von-
brigðum en hann leyndi því vel.
Þannig var Gunnlaugur. Hann
sýndi öllum nærgætni og virðingu
og talaði aldrei illa um nokkurn
mann.
Gunnlaugur var látlaus og
hafði létta og ljúfa lund. Þó að
dómarastarfið hafi örugglega oft
verið erfitt hafði hann sjaldan orð
á því og lét það ekki trufla góðar
samverustundir. Þá vildi hann
frekar ræða málefni líðandi
stundar, spyrja um barnabörnin
eða ræða sín fjölmörgu áhugamál.
Hann kom sér upp miklu safni
góðra bóka og las þær flestar ef
ekki allar. Hann hafði tök á mörg-
um tungumálum, þ.á m. latínu, og
á yngri árum ferðaðist hann víða
um lönd, stundum einsamall. Á
langri ævi og án aðstoðar inter-
netsins safnaði hann að sér mikl-
um fróðleik, sem hann deildi
óspart með öðrum. Börn og
barnabörn nutu góðs af þekkingu
og hjálpsemi hans við skólalær-
dóminn. Gunnlaugur vann jafnt
og þétt að því að auðga sinn heim
og þar með þeirra sem voru í
kringum hann. Kenndi okkur á
sinn hógværa hátt að meta menn-
ingu og listir.
Í sínu starfi var Gunnlaugur í
fremstu röð og það féll oft í hans
hlut að dæma í erfiðustu málun-
um. Hann átti farsælan dómara-
feril sem einkenndist frekar af
mannvirðingu og manngæsku en
dómhörku. Margir ungir lögfræð-
ingar störfuðu undir handleiðslu
Gunnlaugs, þ.á m. nokkrir skóla-
félagar mínir, og hafa þeir borið á
hann lof fyrir leiðsögnina og sam-
starfið.
Vegna starfa sinna öðlaðist
Gunnlaugur virðingu samferða-
manna en hann var þó umfram
allt fjölskyldumaður. Fjölskyldan
var ríkidæmi Gunnlaugs, sem
hann ræktaði af mikilli alúð. Hon-
um var sérstaklega annt um
heilsufar sinna nánustu og hafði
jafnan góð ráð á takteinum ef eitt-
hvað bjátaði á. Litlu munaði að
Gunnlaugur legði fyrir sig lækn-
isfræði á yngri árum. Það hefði átt
vel við hann.
Gunnlaugur hafði mikinn
áhuga á skóg- og garðrækt og
vann þrekvirki að rækta upp og
skapa sumarpardís fyrir fjöl-
skylduna við Silungatjörn, Sum-
arland. Heimili Hjördísar og
Gunnlaugs var alltaf öruggt og
kærleiksríkt skjól í lífsins ólgusjó
og farsælt líf þeirra hjóna okkur
mikil fyrirmynd.
Síðustu ár voru Gunnlaugi erfið
sökum heilsubrests en þá kom
best í ljós hversu vel hann hafði
ræktað garðinn sinn. Hann átti
skilyrðislausa ást allra sinna nán-
ustu, sem sinntu honum ákaflega
vel fram á síðasta dag. Tengda-
móðir mín hefur sýnt sanna hetju-
lund í þeirri umönnun og á hún að-
dáun mína og samúð.
Nærvera Gunnlaugs var alltaf
hlý og þægileg og aldrei bar neinn
skugga á samskipti okkar. Það
voru mikil forréttindi að kynnast
honum og hafa átt hann sem
tengdaföður. Ég kveð Gunnlaug
með söknuði og jafnframt þakk-
læti í huga.
Tómas Jónsson.
Elsku besti afi.
Mig langar að þakka þér fyrir
allar góðu stundirnar sem þú hef-
ur gefið. Ég hef verið lánsöm að
eiga góðan afa sem hefur tekið
mikinn þátt í lífi mínu. Ég er svo
þakklát fyrir hversu góður þú hef-
ur verið við mig í gegnum árin.
Ég fékk að alast upp með
ömmu og afa í næstu götu. Ég
man eftir því alveg frá því ég var á
leikskólanum Kvistaborg hvað ég
unni því mikið að koma í heim-
sókn eða pössun til ykkar. Það var
ekki bara góði maturinn sem
heillaði heldur var einstakt að
finna hvað þið höfðuð alltaf mik-
inn áhuga á því sem ég var að fást
við. Hvort sem það var skólinn,
áhugamálin, heilsan eða annað.
Alltaf varstu duglegur að fylgjast
með, ráðleggja, aðstoða við
heimanám og sýna umhyggju. Við
áttum það sameiginlegt að tala
mjög mikið um sömu hlutina og
borða sama matinn. Þú hafðir
mikinn áhuga á myndlist og bók-
um. Svo hugsaðir þú líka mikið
um mataræðið og tókst heilsunni
ekki sem sjálfsögðum hlut. Þú
varst duglegur að fara út að
ganga, talaðir um að fá auka d-
vítamín og gekkst næstum dag-
lega í Goðalandið. Síðasti göngu-
túrinn var eftirminnilegur þar
sem þú komst gangandi með
göngugrindina. Alltaf varstu samt
mjög tillitssamur og lítillátur. Þú
vildir ekki láta hafa fyrir þér og
passaðir þig á því að vera aldrei að
trufla.
Ég var ótrúlega heppin sem
unglingur að geta gengið yfir til
ykkar og fengið að gista þegar ég
var komin með nóg af því að vera
heima. Alltaf var mér tekið með
opnum örmum og komið fram við
mig eins og prinsessu. Mér finnst
ómetanlegt að hafa fengið að búa
hjá ykkur skólaárið 2007-2008 og
virkilega gaman að fá að fara með
ykkur í þína síðustu utanlands-
ferð til Danmerkur að heimsækja
mömmu, pabba og Ásdísi. Það var
gaman að umgangast þig, þú
hafðir húmor og mér fannst við
geta tengst á svo margan hátt í
gegnum myndlistina, lögfræðina
og heilsuna. Alltaf var eitthvað
sem við gátum talað um. Þú hefur
alltaf sýnt mér og öllum mínum
verkefnum svo mikinn áhuga og
verið ótrúlega hvetjandi.
Eins ótrúlega sárt og það er að
kveðja þig þá veit ég að þú ert far-
inn á góðan stað þar sem þér líður
vel. Þrátt fyrir að síðasta ár hafi
verið þér erfitt og minni samskipti
átt sér stað en áður, á ég frábærar
minningar um hógværan mann,
góða fyrirmynd, skemmtilegan
kennara og einstakan vin.
Ég hugsa til þín þegar ég borða
hvítan fisk, suðusúkkulaði og
hveitiklíð, þegar ég keyri framhjá
Laugardalslauginni eða geng leið-
ina sem þú gekkst gjarnan. Þú
ferðaðist mikið og upplifðir
margt. Ég óska þess að þú skiljir
sáttur við lífið og hvílir í friði. Þín
verður ávallt saknað.
Brynja Dögg.
Elskulegi afi minn.
Oft hef ég getað treyst á þig í
lífinu og þú hefur alltaf verið til
staðar fyrir mig. Það var alltaf
gott að koma í heimsókn til þín og
ömmu í Hellulandið og við höfum
verið lánsöm að búa í næstu götu
við ykkur alla mína ævi. Elsku afi,
þú hefur alltaf verið stór fyrir-
mynd fyrir mig og ég lít mikið upp
til þín.
Þú varst góður, sanngjarn og
vitur maður. Þú kunnir að meta
listaverk og bækur og hafðir mik-
inn áhuga á því sem var að gerast
í lífi mínu og við ræddum oft um
skólann og námið. Þú naust þess
að ferðast og þau skilaboð sem ég
fékk frá þér síðasta árið voru að
maður ætti að ferðast og njóta
lífsins á meðan maður getur.
Takk fyrir allt, afi minn, ég elska
þig og mun minnast þín að eilífu.
Ásdís Rúna Guðmundsd.
Briem.
Elsku afi okkar var einstakur
maður, hjartahlýr og ljúfur. Hans
líf og yndi voru menning, listir og
bækur og nutum við systur góðs
af því. Það var alltaf gott að koma
í heimsókn til ömmu og afa í
Hellulandið. Amma sá um veiting-
ar og aðbúnað en afi um upp-
fræðsluna. Afi gaf okkur mikið af
alls konar bókum og fleiri góðar
gjafir sem við munum varðveita
allt okkar líf. Við munum alltaf
hugsa til hans þegar bækurnar
verða lesnar.
Þótt okkur hafi ekki alltaf þótt
bækur mjög spennandi á þeim
tíma sem hann gaf okkur þær þá
eru þær dýrmætar fyrir okkur
núna. Hann vildi alltaf fræða okk-
ur og hann miðlaði til okkar marg-
víslegri þekkingu. Það kom líka
ósjaldan fyrir að hann laumaði til
okkar nokkrum aurum sem komu
sér afskaplega vel. Afa var alltaf
annt um hvernig okkur gengi í líf-
inu og fylgdist vel með okkur.
Spurði um okkar áhugamál,
námsárangur og þegar við vorum
veikar gaf hann góð ráð. Eitt það
allra síðasta sem hann spurði
mömmu um var hvernig við hefð-
um það.
En nú er kominn tími til að
kveðja elsku afa okkar. Hans
langa og gæfuríka lífshlaup er
okkur góð fyrirmynd og færði
okkur dýrmætar minningar og
fróðleik sem við munum ætíð búa
að.
Þegar við sáum afa í síðasta
skipti náðum við að kveðja hann
og nú trúum við því að hann sé
kominn á betri stað, þar sem hon-
um líður betur. Við trúum því líka
að hann muni taka vel á móti okk-
ur þegar að því kemur og vaka yf-
ir okkur þangað til. Við söknum
þín elsku afi.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Þínar,
Hjördís Maríanna, Sara Hild-
ur og Anna Rakel.
Elsku afi.
Það er ekki á hverjum degi sem
maður fær að eiga jafn ljúfan og
frábæran afa og þig en ég datt
heldur betur í lukkupottinn og
fékk að eiga margar dásamlegar
stundir með þér þessi 17 ár ævi
minnar.
Þú vaktir áhuga minn á ís-
lenskum þjóðsögum og ævintýr-
um, og ekki var leiðinlegt að
hlusta á sögur sem þú hafðir að
segja í þau ótal skipti sem ég kom
í heimsókn til ykkar ömmu í
Helluland.
Er ég kveð þig núna get ég ekki
annað en brosað hringinn á með-
an ég hugsa til þeirra yndislegu
stunda sem ég var svo heppin að
eiga með þér. Ég er svo þakklát
fyrir allt sem þú hefur gefið mér.
Hvíldu í friði, blessaður afi
minn. Þú ert alltaf hjá mér í hug-
anum – hvert sem ég fer.
Katrín.
Árið 1958 byggðum við hjónin í
félagi við Gunnlaug og Hjördísi
Briem húseignina að Rauðalæk
14 í Reykjavík. Risið og kjallarinn
voru seld þegar á byggingarstigi
en efri hæðina fluttum við í, ég og
maðurinn minn Axel W. Einars-
son. Gunnlaugur og Hjördís sett-
ust að á neðri hæðinni með elsta
barn sitt, Völu. Gunnlaugur E.
Briem, sem nú er kvaddur 91 árs
gamall, og Axel, maðurinn minn,
voru æskuvinir. Þeir kynntust í
rútu á leið til Reykjavíkur, báðir
að koma úr sveitadvöl. Þeir kom-
ust að því í rútunni að þeir áttu að
fara um haustið í sama skóla. Þar
með var lagður grundvöllur að
góðum vinskap þeirra félaga, sem
hélst alla tíð, líka eftir að þau
Gunnlaugur og Hjördís fluttu í
Helluland með börn sín, sem þá
voru orðin fjögur.
Vinskapurinn og sambýlið
gekk mjög vel og mátti þakka
Gunnlaugi hve garðurinn á
Rauðalæknum var ræktarlegur.
Þau Hjördís komu sér síðar upp
sumarbústað þar sem gott var að
koma. Þar stundaði Gunnlaugur
sín áhugamál, ræktun, veiðar og
lestur, en hann var mikill bóka-
áhugamaður. Gunnlaugur var
lánsmaður í sínu einkalífi, átti
góða konu sem nú sér á bak ást-
ríkum eiginmanni. Með þessum
fáu orðum vil ég þakka trygga
vináttu sem spannar hátt í 70 ár.
Það vill svo til að útför Gunn-
laugs ber upp á sömu dagsetningu
og jarðarför Axels míns, 9. janúar
fyrir réttum tíu árum. Ég sendi
Hjördísi, börnum þeirra hjóna og
fjölskyldu allri innilegar samúðar-
kveðjur.
Edda Jónsdóttir
og fjölskylda.
Gunnlaugur E.
Briem
ávallt kallaður, byrjaði ungur að
árum að vinna hjá fyrirtækinu
Rafha í Hafnarfirði. Í framhaldi
af því hóf hann vinnu sem sýning-
armaður í Stjörnubíói, sem var í
eigu tengdaföður hans og fjöl-
skyldu. Eftir stuttan tíma tók
hann við sem framkvæmdastjóri
og stjórnaði Stjörnubíói í tugi
ára. Dúddi var hugmyndaríkur
maður og duglegur til verka.
Sýningarvinna er kvöld- og helg-
arvinna. Þá vantaði frænda eitt-
hvað að gera á daginn. Hann
byrjaði þá á því að smíða leikföng
o.fl. í litlu húsnæði sem hann inn-
réttaði, þar á meðal vörubíla úr
járni, og seldi í verslanir. Þetta
var hans hobbí. Frændi hætti
þessari starfsemi fljótlega. Hann
hefur trúlega séð það strax í upp-
hafi að hann gæti ekki keppt við
kínverskan iðnað. Þá tók við hans
annað áhugamál. Þau hjónin
frændi og Erla Hjaltadóttir, sem
voru mjög samrýnd, búin að vera
gift í rúm 60 ár, keyptu jörðina
Hellu á Fellsströnd ásamt Köldu-
kinn fyrir u.þ.b. 40 árum. Þarna
var komin ærin tómstundaiðja
fyrir þau hjónin, ef tómstundir
ætti að kalla. Þetta kallaði á
mikla vinnu. Þau voru allt í einu
komin í búskap með kindur,
hross og hund sem var þeim
hjónum afar kær. Það þurfti að
halda við girðingum, heyja, halda
við húsum, tækjum og tólum. Þá
komu ljós hæfileikar Dúdda
frænda. Hann lá undir öllum vél-
um, hvort sem það voru dráttar-
vélar, bílar eða önnur tæki, og
gerði við sjálfur og hafði gaman
af. Annað áhugamál Dúdda var
að rækta upp ána sem tilheyrði
jörðinni Hellu ásamt fleiri jörð-
um. Nú var það laxveiðiá sem átti
hug hans þar sem stór hylur var
neðst í ánni sem tilheyrði hans
jörð sem fylltist af fiski, selnum
til mikillar ánægju. Það þurfti
bara að byggja einn laxastiga við
einn háan foss neðst í ánni.
Hann barðist fyrir þessu lengi
en þetta komst ekki í fram-
kvæmd. Nú var frændi kominn á
fullt í fiskeldi. Á jörðinni Kalda-
kinn, sem er mjög torfært að
nálgast, er stöðuvatn. Þá datt
frænda í hug að búa þannig um
vatnið að vel tækist til og setti í
það seiði.
Viti menn; það er kominn
vænn fiskur í vatnið, honum til
mikillar ánægju.
Síðustu ár voru Dúddi og Erla
komin á Hjúkrunarheimilið Eir,
orðin heilsuveil. Ég held að hann
hafi ekki sætt sig við það. Hug-
urinn var annars staðar. Dúddi
var góður og tryggur maður sem
er sárt saknað. Takk fyrir allt
Dúddi minn.
Við Erla ásamt fjölskyldu
sendum Erlu og fjölskyldu okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Hafsteinn Viðar
Halldórsson.