Morgunblaðið - 09.01.2014, Síða 30

Morgunblaðið - 09.01.2014, Síða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014 ✝ IngibjörgKristín Péturs- dóttir fæddist á Skagaströnd 1. september 1921. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir 29. desember 2013. Faðir Ingibjarg- ar var Pétur Stef- ánsson frá Höfða- hólum, f. 29.6. 1878, d. 28.6. 1962, sjómaður og verkamaður á Lækjarbakka á Skagaströnd. Móðir hennar var Marta Guð- mundsdóttir frá Torfalæk, f. 22.1. 1885, d. 31.5. 1957. Syst- kini: Samfeðra: Sigurbjörg, f. 1906, d. 1993. Einar, f. 1908, d. 1908. Alsystkini: Guðmunda, f. 1914, d. 2001. Margrét, f. 1915, d. 2013. Jóhann, f. 1918, d. 1999. Elísabet, f. 1919, d. 2006. Ófeig- ur, f. 1928. Uppeldissystkini: Guðmundur f. 1902, d. 2002. Björn Leví, f. 1904, d. 1979. Jó- Pálsson, eiga þau þrjú börn. Ingibjörg Marta, maki Jón Þór Ragnars, eiga þau tvö börn. Ás- geir Pétur, maki Eyrún Ellý Valsdóttir, eiga þau tvö börn. 4) Pétur, f. 1955. Maki Málfríður Gestsdóttir, f. 1953. Barn Ingi- björg Hrefna. Stjúpbörn Péturs: Heiðar Karlsson, hann á tvö börn. Guðrún Karlsdóttir, hún á þrjú börn. Örvar Karlsson, hann á eitt barn. Ingibjörg ólst upp á Torfalæk hjá hjónunum Jóni Guðmunds- syni, móðurbróður sínum, og Ingibjörgu Björnsdóttur konu hans. Hún stundaði nám við Kvennaskólann á Blönduósi vet- urinn 1939-40. Var ráðskona á Sjúkrahúsinu á Blönduósi 1947- 48. Síðan heimavinnandi hús- móðir um skeið en starfaði lengst af við umönnun og fleira á Héraðshælinu á Blönduósi. Ingibjörg hafði yndi af alls kyns handavinnu og föndri, einnig hafði hún mikla ánægju af blómarækt og garðyrkju. Þau Jósafat bjuggu á Blönduósi mestallan sinn búskap. Útför Ingibjargar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 9. janúar 2014, og hefst athöfnin kl. 13. hann Frímann, f. 1904, d. 1980. Jónas Bergmann, f. 1908, d. 2005. Ingimund- ur, f. 1912, d. 1969. Torfi, f. 1915, d. 2009. Sigrún Ein- arsdóttir, f. 1929. Ingibjörg giftist 8. apríl 1944 Jósa- fat Sigvaldasyni frá Hrafnabjörgum í Svínadal, f. 21.10. 1912, d. 6.4. 1982. Þeirra börn eru: 1) Jón Ingi, f. 1944. Maki Alda Sigrún Sigurmarsdóttir, f. 1946. Börn: Guðrún Helga, maki Ólafur Unason, eiga þau tvö börn. Stefán Páll. 2) Sigvaldi Hrafn, f. 1948. Maki Guðfinna Jóna Eggertsdóttir, f. 1944. Börn: Þorkell. Edda Guðrún, maki Ásbjörn Þorvaldsson, eiga þau tvö börn. 3) Jónína Guðrún, f. 1950. Maki Bjarni Benedikt Arthursson, f. 1949. Börn: Ragn- heiður Dagný, maki Páll Gauti Ég kynntist tengdamóður minni fyrir rúmum 40 árum, þegar ég kom fyrst á heimili hennar og tengdapabba, Jós- afats Sigvaldasonar eiginmanns hennar, og var mér alltaf tekið opnum örmum af þeim báðum. Það einkenndi hana hvað hún hafði óskaplega gaman af því að taka á móti gestum, þá lék hún á als oddi á sinn hátt. Það er sagt að þar sem er nóg hjartarúm þar er líka nóg hús- rúm. Þetta átti sannarlega við um hana, því það kom fyrir að þegar við vorum öll mætt til hennar þá var jafnvel sofið á eldhúsgólfinu. Fljótlega eftir að ég kom til hennar fyrst átti hún fimmtugs- afmæli og var búin að bjóða systkinum sínum og fleira fólki í veislu heima hjá sér. Þá skellti hún mér í að skreyta tertur og sýnir það vel hvað hún treysti fólki alltaf vel, því ekki hafði hún hugmynd um hvort ég gæti innt þetta sómasamlega af hendi. „ Þú gerir þetta örugglega betur en ég,“ sagði hún bara. Hún var að mínu mati alltaf mjög lítillát þegar henni var hrósað fyrir allar hannyrðirnar, föndrið og annað fínirí sem hún gerði. Það var ekki hennar stíll að hreykja sér. En það er gam- an að fá að njóta verkanna henn- ar um ókomin ár. Barnabörnin voru líka hennar líf og yndi og minnist ég þess að þau fóru yfirleitt öll með henni í Kaupfélagið að versla, því þau vildu bera pokana fyrir hana eins og þau sögðu. En mig grun- ar að þeim hafi ekki fundist leið- inlegt að fara með henni því hún keypti alltaf ís að eigin vali handa þeim eða eitthvað annað skemmtilegt. Þrátt fyrir sína hæversku gat hún verið ákveðin, þegar svo bar undir. Því að þegar Jósafat féll frá var hún orðin sextug og dreif sig þá í að læra á bíl. „Nú, ég get ekki haft bílinn óhreyfðan inni í bílskúr,“ sagði hún. Hún keyrði að vísu bara innanbæjar á Blönduósi, sem var alveg nóg fyrir hana. Hún fór reyndar einu sinni í ökuferð til Skagastrandar með systur sína. Ef hún vildi fara eitthvað annað í einkabíl hafði hún Ellu vinkonu sína og skrapp með henni til Akureyrar. Hún hafði líka yndi af blóma- og trjárækt og kom sér upp gróðurhúsi sem hún kallaði elli- heimilið sitt. Þar ræktaði hún rósir af mikilli alúð, auk þess sem hún var með stóran garð fullan af allskonar plöntum. Í garðinum undi hún sér löngum stundum. Þar sem lífið lagði á hana ýmsar byrðar, sem hún stóð af sér eins og hetja, held ég að hún hafi notið þess vel að geta látið ýmislegt eftir sér þau ár sem hún hafði getu til þess. Eftir að hún hætti að vinna var hún mjög virk í öllu sem boðið var upp á fyrir eldri (heldri) borgarana á Blönduósi og var hún mjög ötul að prófa allt sem boðið var upp á þar. Hún fór í ótal ferðir bæði innan lands og utan með eldri borgurum og naut þess vel. Ég vil með þessum fátæklegu línum þakka fyrir að hafa fengið að kynnast henni og eiga með henni samleið í rúm 40 ár. Ég er sannfærð um að nú líður henni vel. Blessuð sé minning tengda- mömmu. Guðfinna Jóna Eggertsdóttir. Það fór ekki mikið fyrir henni Ingibjörgu Pétursdóttur, eða Immu eins og vinir og fjölskylda kölluðu hana jafnan. Samt sem áður eru sumir kaflar í lífsbók hennar afar athyglisverðir og ekki víst að samferðamenn hennar hafi gert sér grein fyrir hvaða verkefni hún tókst á við í upphafi lífsgöngunnar. Þegar Imma var aðeins hálfs annars árs gömul kom móðurbróðir hennar, Jón Guðmundsson bóndi á Torfalæk, að tali við Mörtu móður hennar sem bjó á Skagaströnd og falaðist eftir að fá yngstu dóttur hennar og Pét- urs til uppeldis á Torfalæk, en Jón langaði alltaf til að eignast dóttur. Varð það að samkomu- lagi að Jón fengi Immu til upp- eldis og færi með hana að Torfa- læk. Ólst hún þar upp til fullorðinsára. Voru samfundir Immu og foreldra hennar stop- ulir. Vegna þessa náði Imma ekki að kynnast systkinum sín- um fyrr en á fullorðinsárum. Imma naut ástríkis af hálfu fósturforeldra sinna og minntist hún þeirra með miklum hlýhug og virðingu allt fram á sinn síð- asta dag. Við fráfall Ingibjargar á Torfalæk, þegar Imma var 19 ára, tók hún fyrst um sinn við húsmóðurstörfum á Torfalæk en fljótlega tók tengdadóttir hjónanna við húsmóðurhlutverki á bænum. Um svipað leyti kynn- ast Imma og Jósafat og ganga í hjónaband 1944. Hugðust þau setjast að á Skagaströnd og byrja að leggja fyrir fé til hús- byggingar. Tveimur árum síðar veiktist Jósafat af lömunarveiki og þurfti að senda hann til Reykjavíkur með sjúkrabíl. Neituðu sjúkraflutningamenn að færa hann í bílinn fyrr en hann hafði greitt fyrir flutning- inn suður. Fór þar sparifé það sem ganga átti til húsbyggingar. Þegar Jósafat snéri aftur til Blönduóss hálfu ári síðar, þá með máttlausan hægri fót, leist forsvarsmönnum sveitarfé- lagsins ekki á framtíð ungu hjónanna og óttuðust að þau mundu lenda á framfæri sveitar- félagsins. Var þeim gerð grein fyrir að ekki væri ætlast til að þau byggju bæði í íbúðinni sem Imma bjó í. Gerðu þeir kröfu um að þau væru flutt í sína heimasveit svo Blönduóshreppur þyrfti ekki að bera framfærslu þeirra. Þrátt fyrir afstöðu forsvarsmanna sveitarfélagsins settust þau að til frambúðar á Blönduósi og höfðu þau alla tíð nóg að starfa. Imma starfaði lengst af við Hér- aðshælið á Blönduósi þar til hún þurfti að hætta störfum sökum aldurs. Þó að fyrstu búskaparár Immu og Jósafats hafi verið þeim hjónum afar mótdræg átti hún góð efri ár og síðustu árin naut hún návista við börn og barnabörn eftir að hún flutti á hjúkrunarheimilið Eir. Nú þegar lífsgöngu tengda- móður minnar er lokið vil ég þakka henni fyrir mikinn hlýhug í minn garð og einnig fyrir allt það sem hún var börnum okkar Jónínu. Hún var sönn amma með stórum staf. Fátt var eins spennandi í æsku barnanna eins og að fá að fara í heimsókn til ömmu, einkum ef þau fengu að vera ein með henni. Þá virtist eins og giltu önnur mörk en giltu heima. Bjarni Arthursson. Amma Ingibjörg var róleg, hógvær og með eindæmum gest- risin. Litla húsið hennar á Blönduósi var viðkomustaður margra ferðalanga. Allir voru velkomnir og alltaf var til nóg af dýnum ef fólk vildi gista. Barna- börnin komu gjarnan í skólafrí- um og fengu að gista nokkrar nætur. Amma gerði vel við börn- in með því að kaupa pítsu í Kaupfélaginu og bauð upp á ískalda mjólk með. Ef það var ekki mjólk þá var það Blanda í litlum grænum fernum. Heima hjá ömmu var nóg að gera. Börnin fengu að hjálpa til í garð- inum, leika með kassabílinn sem afi hafði smíðað eða fótboltann og önnur leikföng sem amma hafði geymt frá sínum eigin börnum. Fyrir svefninn var und- antekningarlaust boðið upp á kvöldkaffi, mjólk og kex fyrir svefninn. Alls konar prjóna- og sauma- skapur lék í höndunum á ömmu en alltaf talaði hún um allt sem hún gerði eins og þetta væri ósköp ómerkilegt. Þegar hún var ekki að sinna handavinnu var hún á hnjánum úti í garði að sinna gróðrinum sínum. Á vet- urna kom fyrir að það snjóaði það mikið að húsið fór nánast á kaf. Amma beið róleg inni og saumaði ef til vill út eða prjónaði vettlinga, þangað til einhver kom og mokaði snjóinn svo hún kæmist út. Þetta var ekkert til að æsa sig yfir. Amma vildi hvergi annars staðar vera en á Blönduósi, jafn- vel þó að öll börnin og barna- börnin væru fyrir sunnan. Þegar farið var að draga af henni ákvað hún að koma til höfuð- borgarinnar og vera nálægt fjöl- skyldunni en nú loksins getur hún haldið aftur norður. Blessuð sé minning hennar. Edda Guðrún Sigvaldadóttir. Elskuleg fóstursystir föður míns, Ingibjörg Pétursdóttir, Imma mín, er látin. Ég á margar góðar minningar um Immu frá Torfalæk þar sem hún var alin upp hjá ömmu minni og afa, Ingibjörgu Björnsdóttur og Jóni Guðmundssyni, þar sem ég var í sumardvöl mörg ár og eftir lát ömmu minnar 1940 í umsjá Immu og Sigrúnar, annarrar uppeldissystur pabba og þeirra bræðra. Svaf í baðstofunni í rúmi með annarri hvorri þeirra til skiptis og man þegar Imma var sett til að koma mér í rúmið og tafðist vegna þessa við að komast á fund kærastans, hans Jósa. Það er mér minnisstætt þó ung væri. Síðar á ævinni heim- sóknir til Immu og Jósafats á Blönduós, 80 ára afmæli Immu á Ósnum og heimsókn til hennar á Eir. Þó veik væri á Eir rifjaði hún upp atvik frá bernskudög- um mínum frá Torfalæk sem var henni minnisstætt. Það snerti mig djúpt. Nú er hún búin að fá hvíldina og ég óska henni góðrar ferðar og góðrar heimkomu í sumarlandið með hjartans þökk fyrir allt sem hún var mér. Það sem mér fannst alltaf ein- kenna Immu var æðruleysi. Fannst hún aldrei haggast þrátt fyrir ýmsa erfiðleika á ævinni eins og erfið veikindi Jósafats á sínum tíma, en þá dvöldu þau um stund hjá foreldrum mínum á Mánagötunni. Eftir því sem árin líða hef ég meira og meira dáðst að þessum eiginleika Immu. Sigrún Einarsdóttir, uppeld- issystir Immu og bræðranna á Torfalæk, minnist áranna þeirra saman, þakkar henni af alhug samfylgdina, öll góðu árin þeirra og óskar henni góðrar heim- komu. Sömuleiðis þakkar Ragn- ar, maður Sigrúnar, fyrir góðu stundirnar. Þau senda innilegar samúðarkveðjur til barna Immu og fjölskyldna þeirra. Guðmundur bróðir minn og hans fjölskylda kveðja Immu með þakklæti fyrir samveruna. Innilegar samúðarkveðjur okk- ar allra til barna Immu og þeirra fjölskyldna. Vertu kært kvödd, elsku Imma mín, og ég veit að ég tala fyrir hönd þeirra í Torfalækj- arfjölskyldunni sem nutu gæsku þinnar og nærveru. Blessuð sé minning Immu minnar. Ingibjörg Björnsdóttir. Imma frænka, eins og hún var ávallt nefnd í mínu ungdæmi hér á Torfalæk, var tekin í fóst- ur í barnæsku af Ingibjörgu ömmu og Jóni afa, en hún var systurdóttir afa. Föðurbræður mínir töluðu ávallt um fóstur- systur sína. Imma giftist Jósafat Sigvaldasyni og voru þau alltaf nefnd í sömu andránni, Imma og Jósi. Þau bjuggu lengst af í öðr- um endanum í Pétursborg á Blönduósi, einu af elstu húsun- um í gamla bænum, alveg niður við ósa Blöndu. Það var búið þröngt í Pétursborg og ekki mikið veraldlegt ríkidæmi hjá þeim Immu og Jósa, fremur en hjá svo mörgum fjölskyldum um miðja síðustu öld. Börn þeirra fjögur komust samt til mennta og hafa tekið virkan þátt í að efla og bæta þjóðfélag okkar eins og hugur þeirra stefndi til. Jósi hafði fengið lömunarveiki og var ekki fær til allrar vinnu. Í gamla daga kom hann stundum til að mála á Torfalæk og í hans höndum sá ég fyrst málningar- rúllu. Hann klippti líka stráka og karla og þá var oft komið í eldhúsið til Immu sem reiddi fram mjólk og köku að lokinni hársnyrtingu. Þessi hægláta frænka var kona sem lítið fór fyrir en mikið munaði um. Hún var prúð og fáguð í framkomu, en líka föst fyrir og þrautseig, hélt fast á sínum hlut. Eftir að börnin uxu úr grasi og Jósafat var fallinn frá tók Imma virkari þátt í ýmsum fé- lagsstörfum, hún var tiltæk og virk þegar kallað var eftir. Það er hinn eðlilegi gangur lífsins að öldruð manneskja kveðji. Minn- ingar um samvist og samskipti rifjast upp. Hún hafði þessa hljóðu og gefandi nálægð. Við Ella ásamt Jóni bróður og Siggu þökkum langa samfylgd og góðan hug alla tíð og sendum fjölskyldunni hlýjar samúðar- kveðjur. Jóhannes Torfason. Ingibjörg K. Pétursdóttir Elsku amma mín, mikið er ég fegin og glöð að ég náði að kveðja þig áður en þú fórst frá okkur. Ég ætlaði að vera löngu búin að heimsækja þig en hafði ekki komið mér í það. Þegar ég hugsa til baka og um minninguna um þig, þá sé ég fyrir mér fransbrauð með hnetusmjöri í litlum bitum, ótal áramótaskaup á videóspólum, flóamarkaðinn þar sem ég skemmti mér alltaf vel við að gramsa eða fela mig í krókum og kimum, gamalt PK tyggjó sem þú áttir óendanlegar birgð- ir af, ferðirnar á karnivalið í Keflavík, risastóra skartgripi, fallegu uglurnar þínar og ekki má gleyma sameiginlegum áhuga okkar á kisum. Ég held nefnilega að við höfum aðallega náð að tengjast í gegnum þann áhuga en mér fannst alltaf pínu Sigrún Stefánsdóttir ✝ (Aðalbjörg)Sigrún Stef- ánsdóttir fæddist í Bakkakoti, Lýt- ingsstaðahreppi í Skagafjarðarsýslu, 11. ágúst 1930. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- túni 26. desember 2013. Sigrún var jarð- sungin frá Foss- vogskirkju 3. janúar 2014. skondið að þegar við heyrðumst eða sáumst spurðir þú alltaf fyrst um hvernig Posi minn hefði það og hvað væri að frétta af honum. Mér hefur mikið orðið hugsað til þín í haust en ég var að lesa um hvernig mannlífið var á Íslandi á upp- vaxtarárum þínum og afa. Ég setti þig alltaf inn í þær að- stæður sem ég las um og ímyndaði mér allar breyting- arnar og erfiðu tímabilin sem þú hefur lifað. Þú varst mjög litríkur og skemmtilegur per- sónuleiki, mér þykir afar vænt um þig og ég á eftir að sakna þín. Ég bið Guð að gæta mín, góða anda að hugga mig. Sama ósk er eins til þín: Almættið það sjái um þig. (Leifur Eiríksson) Birgitta Bjarnadóttir. Við Sigrún kynntumst í gegn- um dýravernd. Við vorum í hópi kvenna sem rak flóamarkað í tvo áratugi til ágóða fyrir dýra- vernd. Þessi flóamarkaður var fyrstu tvö árin á Bókhlöðustíg 2 en síðan í kjallaranum í Hafn- arstræti 17. Þetta var sannkall- aður ævintýraheimur og við- skiptavinir okkar voru þversnið af samfélaginu. Sumir komu af því að það var sniðugt. Aðrir af nauðsyn. Á fyrstu árunum var Björk einn af okkar viðskipta- vinum og í kjölfarið komu stelp- ur sem vildu fá kjól eins og Björk hafði klæðst á tónleikum. Við, konurnar sem skiptumst á að vera við afgreiðslu, kölluðum okkur flærnar og Sigrún var okkar yfirfló. Hún stjórnaði okkur og rak þennan flóamark- að sem væri hann hennar einka- fyrirtæki. Við kynntumst vel, þessi hóp- ur og þótti gaman að hittast öðru hverju og fá okkur kaffi- sopa og spjalla. Þá voru það sögurnar af flóamarkaðnum sem bar hæst og sumar rifj- uðum við upp ár eftir ár. Ógleymanleg atvik. Sum svo fyndin en önnur sorgleg. Sigrún lagðist í ferðalög. Og það voru engin smáferðalög. Þau eru ekki mörg löndin sem hún hefur ekki komið til. Þrisv- ar til Kína. Hún sagði mér ástæðuna fyrir því að hún tók upp á því að ferðast svona mik- ið. Ég fékk krabbamein í brjóstið, sagði hún, og þegar það var batnað sá ég að ég vildi sjá heiminn og notaði minn móðurarf til þess. Og það var næstum eins og að fara sjálf í þessi ferðalög að hlusta á Sig- rúnu segja frá þeim og skoða myndaalbúmin eftir hverja ferð. Hún vissi nákvæmlega hvar hún tók hverja mynd og sagði sögu staðarins. Hún keypti einnig ógrynni af minjagripum og sagði frá hverjum og einum. Velferð dýra var okkur auð- vitað hugleikið umræðuefni. Og því málefni tengist frásögn sem aldrei líður mér úr minni. Sig- rún var hissa á hvernig ég hafði allt á hornum mér þegar hún lýsti því hve gaman henni þætti að fara í dýragarðinn í London. En svo eitt sinn sagði hún að nú skildi hún andúð mína á dýra- görðum. Hún var þá nýkomin frá Afríku, hafði farið í safarí- ferð um stóran þjóðgarð. Ferðalangarnir komu þar að sem ljón höfðu drepið fílsunga. Fílahópurinn stóð í kringum dána ungann, þeir stöppuðu nið- ur framfótunum, ráku ranann upp í loftið og öskruðu. Síðan gekk hópurinn burt en ljónin, sem höfðu beðið álengdar, komu og fengu sinn mat. Fyrir rúmum áratug veiktist Sigrún illa og fór í mikla hjarta- aðgerð. Við ræddum það í mín- um síðustu heimsóknum til hennar hve dásamlegt það hefði verið að fá þennan bata og Sig- rún bætti því við að hún hefði meira að segja getað ferðast til útlanda. Við hefðum báðar þeg- ið það, Sigrún og ég, að hún hefði lifað nokkur ár enn og notið dvalarinnar í Sóltúni og ég haldið áfram að koma í heim- sókn með hundinn Spesíu. Það varð ekki. Sigrún var heilsteyptasta manneskja sem ég hef kynnst. Skarð hennar verður ekki fyllt en við flærnar sem enn lifum munum geyma minninguna um Sigrúnu og gleðjast yfir því að hafa fengið að kynnast henni. Jórunn Sörensen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.