Morgunblaðið - 09.01.2014, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 09.01.2014, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014 Við andlát pabba streyma minningarnar um líf og störf með honum fram, ljúfar bernskuminn- ingar um eilíft sólskin og góða daga. Það er eins og minningin rúmi ekki vond veður eða dimma daga að neinu marki, heldur hafi alltaf verið sól og hlýtt. Hann fæddist í torfbæ fyrir tæpum 95 árum og ólst upp í allt öðru samfélagi en þekkist nú. Skólagangan hans var farskóli í nokkrar vikur í einu, samanlagt, sagði hann, var hún nokkrir mán- uðir. Hann ólst upp og lifði á tím- um mikilla þjóðfélagsbreytinga. Hann tók ungur við búinu af afa og gerðist bóndi og hefur þessi jörð, Neðri-Hundadalur, haldist í byggð og búskap af sömu ætt í beinan karllegg frá um 1780. Fé- lagslega sinnaður var hann og var um árabil, eða eins langt og ég man, í hinum ýmsu stjórnum og nefndum; Búnaðarfélagið, fiski- rækt Miðár, ungmennafélagið Æskan, hreppsnefnd og ótal- margt fleira. Meðhjálpari í Kvennabrekkukirkju í fjöldamörg ár og söng í kór þeirrar kirkju um langt árabil. Hann var réttarstjóri Fellsendaréttar fjölmörg ár og var þannig sinnaður að hann sinnti þeim verkefnum sem hon- um voru falin af trúmennsku og samviskusemi. Pabbi var ljóðelskur maður, góður hagyrðingur og fróður um margt. Hann var ættfróður um sínar ættir og kunni þær, að mér fannst, utan að. Hann unni land- inu og sögu þess og kunni örnefni Hundadals betur en flestir og gát- um við fengið söguna af hverju þeirra á færibandi. Við fengum oft söguna um að Auður djúpúðga landnámsmaður gaf þrælum sín- um frelsi og land til eignar eftir að hún nam land í Dölum, þar með fékk þræll hennar Hundi Hunda- dal, Vífill fékk Vífilsdal, Kolur fékk Kolsstaði, Erpur Erpsstaði og svo mætti lengi telja. Þannig reyndi hann að koma söguáhuga inn hjá okkur og tengja hana við daglegt líf og þar sem bæjarnafn- ið vakti oft athygli ókunnugra vor- um við fljót að grípa þessa sögu til að útskýra nafnið. En hann var sauðfjárbóndi fyrst og fremst. Hann var fjár- glöggur með afbrigðum, þekkti allar sínar kindur af útlitinu eða svipnum, þurfti yfirleitt ekki að skoða markið til að vera viss í rétt- unum, hann þekkti svipinn. Hann átti alla tíð forystukindur, sem hann hafði mikið dálæti á, þær voru þá yfirleitt hinar skrautleg- ustu í útliti, bíldóttar, botnóttar, mórauðar, höttóttar og allt hvað heitir. Sú síðasta sem hann átti þar til fyrir örfáum árum var köll- uð Hatta, hún var svo elsk að hon- um að hún át úr lófa hans úti í haga, en ef einhver annar en hann ætlaði að færa henni góðgæti lét hún ekki svo lítið að þiggja. Hann var trúaður maður og tók trúna alvarlega og lifði sína trú, þ.e. hann lifði eins og hann sagðist trúa. Við vorum því alin upp við trú og að biðja bænir og erum þess fullviss að slíkt er góður grunnur í lífsins ólgusjó. Við leiðarlok er hugurinn hjá mömmu en efst í huga er þakklæti og gleði yfir að hafa notið hans svo lengi, eða tæp 95 ár. Minningarn- ar um hlýjan og góðan pabba eiga eftir að ylja mér um hjartarætur um ókomna tíð. Blessuð sé minning hans. Sigríður Hjartardóttir. Hjörtur Einarsson ✝ Hjörtur Ein-arsson fæddist 31. desember 1918 í Neðri-Hundadal í Dalasýslu. Hann lést 23. desember 2013 í Silfurtúni í Búðardal. Útför Hjartar fór fram frá Kvennabrekku- kirkju í Dalabyggð 3. janúar 2014. Fallinn er frá faðir minn, Hjörtur Ein- arsson frá Neðri- Hundadal. Hann var um margt merkileg- ur maður, heilsteypt- ur og sterkur per- sónuleiki, hreinn og beinn í framgöngu en þó hlýr og mildur þar sem það átti við. Pabbi stundaði búskap stærstan hluta ævi sinnar í N-Hundadal, aðallega með sauðfé en þó einnig kýr um langt árabil, skepnur sín- ar hirti hann vel og lét sér annt um. Ekki var hann til friðs ef hann vissi af eða grunaði að kindur leyndust úti eftir að vetur gekk í garð og man ég eftir mörgum slík- um ferðum með honum eftir að ég komst á unglingsaldur. Félagsmál voru nokkuð fyrir- ferðarmikil í lífi pabba, hann var lengst af í stjórnum flestra félaga (annarra en kvenfélagsins) og sagði gjarnan að einhver yrði jú að sinna þessum verkefnum. Póli- tískur var hann einnig og hafði jafnan ákveðnar skoðanir á flest- um málefnum. Gegnheill fram- sóknarmaður var hann alla tíð, en ekki var hann þó alltaf sáttur við framgöngu forystumanna flokks- ins. Hann var með öllu óragur við að standa upp á fundum og mann- fögnuðum og tjá sig um málefni hverju sinni og talaði þá jafnan blaðalaust eins og þaulæft væri. Samfélag sitt lét pabbi sig ávallt varða og lagði sig gjarnan fram af alefli ef því var að skipta, hvort sem það var í atvinnu-, fé- lags- eða samgöngumálum eða hverju því er hann taldi vera sam- félagi sínu til heilla. Margar ferðir fór hann á fund þingmanna og ráðherra ef þurfti, þá var heldur ekki hikað við að standa í undir- skriftasöfnunum til að styrkja málefni eins og t.d. þegar til stóð að leggja af veginn sem kenndur er við Bröttubrekku. Ríka áherslu lagði hann á að hjálpa náunganum væri hann ein- hverra hluta vegna hjálparþurfi og má segja að þar hafi endur- speglast trúarskoðanir hans, en hann var mjög trúaður maður og trúrækinn og lagði áherslu á það í lífi sínu að fylgja boðskap Krists. Fræðimaður var pabbi góður, hafði mjög gaman af lestri og hafði afburðagott minni sem hann hélt fram að hinstu stund. Ætt- fræði grúskaði hann talsvert í, vís- ur kunni hann ótal margar og átti einnig auðvelt með að yrkja við ýmis tilefni. Örnefni heimaslóða sinna og víðar þekkti hann betur en nokkur sem ég veit um og þyk- ir mér það miður í dag að hafa ekki haft hæfileika eða áhuga til að festa mér í minni allan þann fróðleik er hann miðlaði til mín. Það má því segja að með pabba hafi horfið margvíslegur fróðleik- ur og þekking, sem er miður, en við hugum yfirleitt ekki að slíku fyrr en það er um seinan. Faðir minn átti aðeins nokkra daga í 95 ára afmælið sitt, en heilsunni hrakaði hratt síðustu vikurnar, líkaminn búinn og stolt- ur maður dapur yfir því að vera ekki lengur sjálfbjarga. Hann sofnaði sáttur og viss í sinni trú. En vandfyllt er það skarð sem hann skildi eftir. Bless- uð sé minning hans. Sigursteinn Hjartarson. Elskulegur afi okkar, Hjörtur Einarsson, lést hinn 23. desember 2013. Afi var ákaflega hlýr maður, kærleiksríkur, heiðarlegur, dug- legur og gáfaður. Það var margt í hans fari sem og hlutir sem hann hafði áorkað yfir ævina sem við yngra fólkið mættum taka mið af. Mætti þar telja ást hans á ís- lenskri tungu, hógværð, að tala ekki illa um aðra, að leggja sig all- an fram við þau verkefni sem hann tók að sér eða var úthlutað og svo mætti lengi telja. Þegar við hugsum til afa okkar þá er af mörgum góðum minning- um að taka. Eitt barnabarna hans og nafni, Hjörtur Már, kom að afa sínum að svíða kindahausa inni í hlöðu. Hirti Má, þá á barnsaldri, brá heldur í brún þegar hann sá hvað afi hans var að gera og sár- vorkenndi grey kindunum og skildi ekkert í þessu uppátæki afa síns. Önnur minning er þegar afi fékk að kynnast þrjóskunni í dótt- urdóttur sinni, henni Berglindi. Svo var mál með vexti að amman hafði farið frá bænum til að spila á orgelið við messu einhvers staðar í sveitinni og afinn því skilinn einn eftir heima með Berglindi, sem var þá sex ára gömul. Unga stúlk- an var svöng og bað afa sinn að gefa sér eitthvað að snæða, réttir þá afinn henni skál með skyr- hræringi. Sú stutta setur upp hryllingssvip og segir við afa sinn: „Oj! Ég vil þetta ekki. Ég vil flat- köku með hangikjöti.“ Afinn svar- ar að það standi ekki til boða og að hún skuli bara sitja kyrr við borð- ið þar til hún klárar allan hrær- inginn úr skálinni. Barnabarnið hélt nú ekki, krossleggur hendur, horfir á afa sinn og segir: „Allt í lagi, ég sit þá bara hér.“ Hófst þá störukeppnin. Í minningunni ent- ist hún í allavega klukkustund (þó eflaust ekki meira en nokkrar mínútur) og endaði þannig að af- inn dæsti, rétti svo þrjóskupúkan- um flatköku með hangikjöti sem var borðuð með bestu lyst. Þótti svo dótturdótturinni það vera merkur hlutur að hafa „unnið“ afa í þrjóskukeppni og montaði sig af (og gerir enn). Við munum alltaf minnast afa okkar af alúð og hlýju. Blessuð sé minning hans. Hjörtur Már Helgason og Berglind Dögg Helgadóttir. Hjörtur Einarsson fæddist 31. desember 1918, frumburður for- eldra sinna í Neðri-Hundadal, þeim bæ er Auður Djúpúðga gaf leysingja sínum Hunda. Hjörtur sá mig fyrst 1947, barn systur sinnar, Vígdísar, en þá voru for- eldrar hans að byggja nýtt hús á hlaðinu fyrir framan torfbæinn gamla. Öll sumur var ég sumarliði hjá foreldrum hans fram yfir grunnskólaaldur. Frá þeim tíma hefur hugurinn eignast minninga- brotasafn af ljúfustu stundum æskunnar. Ég kynntist því frænda mínum vel við alls konar búverk og framkvæmdir og gjarnan fékk ég að fylgja honum á fundi vegna sveitarstjórnamála á marga bæi í sveitinni. Ungur að aldri hlóð Hjörtur sér skýli gott úr steinum, horngarð í Múlanum við Gilið mikilfengna er markar skil millum Bæjar og Hundadals. Það- an gat hann séð yfir til Sauðafells og enn nær stokkgarðstæðið sem um getur í Íslendingasögu þar sem Vatnsfirðingar mættu örlög- um sínum fyrir tilverknað bónd- ans á Sauðafelli, þá Erpsstaði, Fellsenda, Fellsendafjallið og mynni Reykjadals og Sökkólfs- dals og loks Gröf, Hvítskjaldarhól og Hundadal. Vart má hugsa sér fegurri sjónrönd er þarna gaf að líta. Undrar mig ekki að Hjörtur ræktaði með sér staðfestu í víð- asta skilningi þess orðs. Einn góð- viðrisdaginn árið 1956 urðu mikil umskipti á hag Hjartar er hann kvæntist Lilju Sveinsdóttur og stendur dagurinn mér ljóslifandi fyrir hugskotssjónum rúmri hálfri öld síðar og fólkið sjálft. Og fleiri leifturmyndir á ég í huga mér. Ein er af fólkinu hans með fulla bala og sekki af berjum og jafnvel fjallagrösum að koma ofan af Hundadalsfjalli eða framan af Dal. Þá var mikið fjör í kringum fjárhúsa- og hlöðubygginguna. Votheysturn var reistur og bú- skapur efldur. Þau Lilja eignuð- ust fjögur börn og tók sonurinn Sigursteinn við búskapnum í Hundadal. Yndislegt var að verja ungdómsárum í Hundadal með fólkinu sem þar var. Ég minnist vígslu sundlaugar í Reykjadal þar sem við nokkrir fengum að vígja laugina en Hjörtur hafði unnið að málinu á vettvangi ungmenna- félags. Ég man eftir Hirti í Fells- endaréttinni, steinhlaðaréttinni gömlu, á leið yfir Reykjadalsá þegar sást til manns sem var ósjálfbjarga í ánni og Hjörtur kom honum til lífsbjargar, snör handtök og fum- og hiklaus. Þá var Gaz-jeppinn kominn, rússa- jeppinn en Farmallinn lék stórt hlutverk í heyönnum öllum. Þegar mest gekk á voru tún slegin í fjórða gír enda stór og slétt. Hjörtur var einn fimm systk- ina. Systur átti hann þrjár og einn bróður. Systurnar bjuggu í Reykjavík en bróðirinn starfaði lengst af sem læknir í Svíþjóð. Varð ég vitni að systkinakærleika millum móður minnar og Hjartar og ófáum símtölum um liðinn tíma. Einhverju sinni var Hjörtur á suðurleið er ég var staddur inni í matsalnum á Hreðavatni og þótt- ist ég þekkja bifreiðina og öku- manninn og veifaði til hans ósjálf- rátt en svo vel var hann sjáandi að hann þekkti „sauðinn“ og stöðvaði bifreiðina og er hann vissi að ég ætlaði mér að fara á söguslóðir Laxdælu bauð hann mér að búa nokkra daga í Gröf í Sökkólfsdal en þá jörð hafði hann keypt sér til tómstundabúskapar eftir að hann fór á eftirlaun. Ánægjulegt var að gera út til aksturs og gönguferða frá Gröf um Dalasýslu. Síðast sá ég hann við jarðarför Ernu Jens- dóttur frænku okkar í Skálholti en þá var sjónin við það að hverfa og ég strauk honum um vanga – hinztu kveðju. Jón Friðberg Hjartarson. Móðurbróðir minn var róman- tískur Dalamaður, jarðbótamaður í verki. Sveitin og héraðsbyggðin var honum efst í huga. Ég var í sveit hjá þeim Hirti og Lilju nokk- ur sumur á sjöunda áratug síð- ustu aldar. Borgarbarnið hafði gott af því andrúmslofti og að fá kynni af að ekki væri farið í kaup- stað nema brýn þörf væri á; ráð- deild og hlýja fór saman. Hjörtur gat af innilegri ein- lægni reynt að fræða æskuna um kosti landbúnaðarins og sparaði ekki orðin til að lýsa því. Sauðfé væri skynsemisverur sem ávallt leituðu að ferskri næringu þótt hafa yrði fyrir öflun hennar. Auð- vitað skaut hann samtímis inn ómældu magni af hrósi í garð samvinnuhreyfingarinnar og Framsóknar, annað var ekki hægt. Hjörtur var á efri árum enn lipur í hreyfingum og líka fljótur að aðlagast borgarumferðinni. Sagt er að þeir sem fæddust árið 1918 og lifðu fyrsta árið af hafi átt langlífi framundan. Hjörtur er sönnun þess. Saga sveitarinnar varð honum ofarlega í huga og vildi hann leita heimilda um fyrri tíma; ást hans til landsins og fólksins var djúp. Mér auðnaðist sú gleði árið 2011 að sýna Hirti gamlar hreyfimyndir frá því eftir 1966 af ættingjum og vinum og klökknaði hann við það. Við sem kveðjum Hjört megum vera þakklát fyrir einstakling sem gerði það eitt sem væri uppbyggi- legt þjóðfélaginu. Slíkir menn heiðrast í minningunni. Stefán F. Hjartarson. Ég kynntist Hirti sumrið 1997, þegar við fjölskyldan fluttum í Miðdali. Hjörtur og Lilja, konan hans, voru með fyrstu sveitungum okkar sem komu og buðu okkur velkomin í sveitina. Fljótlega myndaðist góður vinskapur með okkur Hirti. Ég komst fljótlega að því að Hjörtur var mjög víðsýnn og mikill baráttumaður fyrir bættum hag og fram í fingurgóma var hann maður samvinnu og sátta. Þegar við komum í sveitina var Hjörtur ekki nema 79 ára. Þá var hann enn í forystu fyrir Búnaðar- félag Miðdala, en þar sá hann um að reka félagið ásamt því að hafa umsjón með heyvinnutækjum fé- lagsins, en á þessum tíma átti fé- lagið eitt til tvö sett af rúlluvélum og pökkunarvélum, sem síðan voru leigð út til bændanna á fé- lagssvæðinu. Hjörtur lét af störf- um í stjórn Búnaðarfélagsins nokkrum árum seinna. Á þessum árum bjuggu þau hjónin í Gröf í Miðdölum. Við heyjuðum nokkur sumur túnin í Gröf og það var aldrei hægt að fara um túnin, án þess að gera vart við sig í bænum og þiggja veitingar og spjalla. Við Hjörtur ræddum gjarnan um alla heima og geima, en mest þó um sveitina okkar fyrr og nú, ungmennafélag- ið á árum áður, samgöngur yfir Bröttubrekku, sláturhúsið í Búð- ardal og hitaveitu á Reykjadal. Þá fór einnig drjúgur tími í að ræða um stjórnmál, trúmál og draum- farir, en báðir höfðum við mikinn áhuga á þeim málefnum. Vorum við ekki alltaf sammála, en skild- um þó ávallt sáttir að loknum góð- um kaffisopa. Þegar við hjónin fórum í gang með það verkefni að byggja nýtt fjós, var Hjörtur duglegur að koma á byggingarstaðinn, rétt til að taka stöðuna, heilsa okkur og óska heilla. Hann ljómaði allur þegar hann kom og sparaði ekki hvatningarorðin. Þegar bygging- in var tilbúin kom hann og var með okkur þegar við tókum fjósið í notkun. Hann var heillaður af tækninni. Á þessum fyrstu árum okkar, meðan þau Lilja bjuggu í Gröf, vorum við í miklu sambandi, en það fór síðan minnkandi eftir að þau hjónin fluttu að Silfurtúni í Búðardal. Reyndi maður þó að reka inn nefið af og til, en síminn var þó einnig notaður, en þá hringdi Hjörtur yfirleitt til að vita hvernig gengi. Fá fréttir úr sveit- inni af heyskap, sprettu og fjár- heimtum. Hjörtur var fróður og minnugur mjög. Eftir að þau fluttu á Silfurtún fór æ meiri tími af spjalli okkar í að Hjörtur sagði frá ýmsu sem hafði á daga hans drifið í gegnum lífið, en mitt hlut- verk var meira að hlusta á og njóta sagnanna. Það var eitt orðatiltæki sem Hjörtur notaði mikið í seinni tíð, þegar hann spurði eftir því hvern- ig gengi. Ef svarið var á þann veg að hlutirnir væru nú ekki alveg að ganga upp, þá sagði hann stutta sögu og síðan bætti hann við: „Það styttir alltaf upp og kemur sól- skin,“ en ef svarið var að það gengi vel, brosti gamli maðurinn og sagði: „Það er svo gaman þeg- ar gengur vel – gangi ykkur vel.“ Það er ekki öllum gefið að eign- ast vin sem Hjört og ekki verður skarð hans fyllt að fullu. Þegar ég sit hér nú í byrjun árs 2014 og minnist Hjartar, er það fyrst og fremst þakklæti sem mér kemur til hugar. Þakklæti fyrir að vegir okkur skyldu ekki bara skarast, heldur að þeir skyldu liggja sam- an um tíma. Þó að milli okkar sé rúm hálf öld í aldri, þá tókst með okkur einlæg og djúp vinátta, sem einkenndist af virðingu og vænt- umþykju á báða bóga. Hvíl í friði, Hjörtur Einarsson frá Neðri-Hundadal. Þorgrímur E. Guðbjartsson. Þegar farið er um Bröttu- brekku vekja grónar hlíðar at- hygli. Það er eitthvað við lands- lagið sem fangar hugann í einfaldleik sínum, bratt og stund- um þröngt með sérstökum glæsi- brag. Þegar neðar kemur opnast undirlendi Miðdalanna. Þar ofan undirlendisins eru góðjarðir tvær og gróðursælar, Fremri- og Neðri-Hundadalur. Nú er hljótt í Neðri-Hundadal. Fallinn er Hjörtur Einarsson, bóndi þar, háaldraður hugsjóna- maður, stálminnugur um menn og málefni til dánardags. Ég kynntist Hirti Einarssyni þegar ég var ráðinn héraðsráðu- nautur hjá Búnaðarsambandi Dalamanna vorið 1972, en hann var þá, og alla mína starfstíð, stjórnarmaður í Búnaðarsam- bandinu. Kynni og samstarf okk- ar Hjartar voru náin og góð alla tíð. Hann sýndi okkur hjónum góðsemi og tryggð af því tagi, sem við gleymum ekki. Hugsjónir Hjartar snerust ein- læglega um farsæld og uppbygg- ingu landbúnaðar og mannlífs í Dölum. Hann ræddi um framtíð- ina, sem hann sá oft bjarta, ef rétt væri á haldið. Stundum varð hann fyrir vonbrigðum, en hann gafst ekki upp. Til marks um það er uppbyggður vegur um Bröttu- brekku, en þar barðist Hjörtur af hugsjón og framsýni og átti stór- an þátt í að af þeirri vegafram- kvæmd varð. Hjörtur var ákafa- maður í hugsjónum sínum og tókst stundum of mikið í fang, en einlægni hans og góður tilgangur varð honum oft leið til árangurs. Síðast er við ræddum saman, þá var hann afar hamingjusamur um mannlíf í Miðdölum og al- mennt í Dalabyggð. Margt ungt fólk að störfum og mannlíf gott. Margt er í Dölum, sem eftirsókn- arvert er. Draumar Hjartar Ein- arssonar um framtíð Dalanna eru í góðu fari. Við hjónin vottum eftirlifandi eiginkonu Hjartar Einarssonar, Lilju Sveinsdóttur, börnum þeirra og afkomendum öllum okk- ar dýpstu samúð. Jón Hólm Stefánsson. Sveitahöfðingi er fallinn frá. Hjörtur Einarsson, heiðursborg- ari í Dalabyggð, lést á Þorláks- messumorgun. Ég var níu ára er ég fór vestur í dali í Neðri-Hundadal. Þar var þá þríbýli, Jón og Signý í gamla torf- bænum, Grímur og Rúna í Grímsbæ, Einar og Lára á neðri hæðinni og ungu hjónin Hjörtur og Lilja á efri hæðinni. Þá var gamli farmallinn eina dráttarvélin á bænum, það var gjarnan slegið með orfi og ljá og öllu heyi snúið og rakað með hrífu. Ég var níu sumur og einn vetur hjá Hirti og Lilju og eiga þau stór- an þátt í uppeldi mínu. Á hverju vori beið ég spenntur eftir því að síðasta prófið væri bú- ið svo ég gæti komist í Dalina og oft kom það fyrir að ég kom of seint í skólann að hausti því ég gat ekki hugsað mér að fara heim fyrr en eftir réttir. Ein af mínum fegurstu minn- ingum úr Dölunum var smalaferð í Vífilsdal er ég var tólf ára. Fór- um við snemma morguns sjö sam- an til smölunar og var verið við rúning langt fram á kvöld. Var þá riðið fram að Hlíð og farið yfir fjöll og hálsa. Sólin var að koma upp og það glitraði á döggina, þvílík feg- urð. Fóru þá Grímur, Jón og Hjörtur að syngja „blessuð sértu sveitin mín“ og átti það vel við. Ungmennafélagsandinn var mikill hjá Hirti og var hann for- maður félagsins þegar hafist var handa við það stóra verk að byggja sundlaug í Reykjadal. Sveitarstjórnarmál, Kaup- félagið, Búnaðarfélagið, Slátur- húsið, samvinnuhreyfingin og ekki síst Framsóknarflokkurinn áttu hug hans allan. Fólk hafði orð á því að á vorin kæmi ég í Dalina sem sjálfstæðismaður en færi heim að hausti sem framsóknar- maður. Fyrir fáum árum voru Hjörtur og Lilja í Hveragerði og var ég í sumarbústað mínum í Grímsnesi og bauð þeim í kaffi. Hjörtur var hálfslappur og treysti sér ekki. Sagði ég honum þá að í næsta bú- stað við mig væri vinstri grænn þingmaður og hann langaði mikið til að sjá síðasta alvöru framsókn- armanninn. Hjörtur stóðst ekki mátið að eiga fjörugar pólitískar viðræður. Við áttum yndislegan dag saman, sjálfstæðismaðurinn, framsóknarmaðurinn og einn vinstri grænn. Við bárum virð- ingu fyrir hinum aldna sveitahöfð- ingja og forðuðumst að andmæla honum. Undir lok dags horfði Hjörtur föðurlegum augum á okk- ur og sagði: „Strákar, þið eruð all- ir framsóknarmenn inn við bein- ið.“ Hjörtur og Lilja voru sjöunda dags aðventistar og voru laugar- dagar okkar hvíldardagar. Á þeim

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.