Morgunblaðið - 09.01.2014, Side 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014
Í dag er stjórnendadagur hjá Icelandic Group og því verður nógað gera hjá Gunnari Má Sigurfinnssyni, framkvæmdastjóraIcelandair Cargo, fram að kvöldmat. „Þá fer ég heim og ég veit
að konan er búin að skipuleggja eitthvað skemmtilegt eins og venju-
lega á þessum degi,“ segir hann, en Gunnar Már er 49 ára í dag. Af-
mælisbarnið segir að á þessum tíma ársins séu flestir búnir að fá
nóg af veislum í bili. „En það er alltaf gaman að gera sér dagamun
þegar tilefni er til þess,“ áréttar hann.
Gunnar Már er mikill íþróttamaður, spilaði lengi fótbolta og hef-
ur látið til sín taka í golfinu auk þess sem hann er örugglega með
betri Eyjamönnum á skíðum. „Golfið er númer eitt, tvö, þrjú og fjög-
ur en ég sinni því ekki á veturna og þá halda skíðaferðir mér róleg-
um,“ segir kappinn. Hann segir að fjölskyldan fari á skíði í Bláfjöll
og norður á Akureyri auk þess sem hún fari í eina skíðaferð til meg-
inlands Evrópu á hverjum vetri. „Við stefnum á að fara til Frakk-
lands í febrúar og svo förum við í golf í Manitoba í Kanada í sumar.“
Hann bætir við að Lindu, eiginkonu sinni, hafi þótt hann eyða full-
miklum tíma í golfið og því hafi þau gert samkomulag fyrir um ára-
tug þess efnis að hann færi með henni á skíði og hún með honum í
golf. „Ég fór strax á skíðin með henni og er alveg þokkalegur en
hún byrjaði í golfinu í fyrra.“ steinthor@mbl.is
Gunnar Már Sigurfinnsson 49 ára
Morgunblaðið/Valdís Thor
Í vinnunni Alltaf nóg að gera hjá Gunnari Má Sigurfinnssyni.
Með betri Eyja-
mönnum á skíðum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Helen Aría fæddist 16. apríl
kl. 18.39. Hún vó 3.174 g og var 48 cm
löng. Foreldrar hennar eru Aníta Sig-
urbjörg Emilsdóttir og Björgvin Sig-
mar Ómarsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Aleksandra Sól fæddist
19. febrúar kl. 0.00. Hún vó 4.820 g og
var 57 cm löng. Foreldrar hennar eru
Ragnheiður Þórisdóttir og Aleks-
andar Knezevic.
S
igurður Arnar fæddist á
Akureyri 9.1. 1964 og ólst
upp á Brekkunni. Hann
var í Barna- og Gagn-
fræðaskóla Akureyrar,
lauk stúdentsprófi frá MA 1984 og
cand.oecon-prófi frá HÍ 1991.
Á unglingsárum vann Sigurður á
sumrin hjá Vatnsveitu Akureyrar.
Hann og kona hans fóru til Reykja-
víkur í háskólanám eftir stúdents-
próf, en eftir útskrift frá HÍ vann
hann við endurskoðun og reiknings-
hald hjá KPMG og Endurskoðun
ehf., í Reykjavík og á Akureyri, en
fjölskyldan flutti aftur norður.
Þau fluttu aftur til Reykjavíkur
1997 er Sigurður hóf undirbúning að
opnun verslunar sem átti eftir að
breyta verslunarsögu á Íslandi og í
febrúar 1998 var opnuð raftækja-
verslunin ELKO. Má segja að þá
hafi runnið kaupæði á Íslendinga, en
langar biðraðir mynduðust og versl-
unin hefur verið leiðandi í sölu á raf-
tækjum frá fyrsta degi.
Sigurður var fyrsti fram-
kvæmdastjóri ELKO og rak versl-
unina í nokkur ár. Hann var fram-
kvæmdastjóri verslunarsviðs BYKO
2001-2004, en þá var m.a. ný stór-
verslun BYKO í Breidd opnuð
ásamt nýjum verslunum víða um
land.
Sigurður varð forstjóri Kaupáss
2004, sem rak verslanir Krónunnar,
Nóatúns, 11-11, Intersport og Hús-
gagnahöllina. Rekstur Kaupáss var
endurskipulagður og Krónan hóf
stórsókn í samkeppni við Bónus á
matvörumarkaðnum í ársbyrjun
2005. Þar með komst Krónan á kort-
Sigurður Arnar Sigurðsson framkvæmdastjóri – 50 ára
Með eiginkonu og sonum Sigurður og Harpa, ásamt Sigurði Aroni og Viktori, í sumarfríi í Tyrklandi.
Maður framkvæmda í
verslun og viðskiptum
Á kunnuglegum slóðum Sigurður og Harpa á skíðum í Hlíðarfjalli.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Framrúðuviðgerðir
Gerum við og skiptum um
bílrúður fyrir öll tryggingafélög
Skeifan 2 • Sími 530 5900 • www.poulsen.is