Morgunblaðið - 09.01.2014, Blaðsíða 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Einhver sem þarfnast aðstoðar þinn-
ar þorir ekki að tala við þig. Heppni nútíð-
arinnar tengist fortíðinni með einhverjum
hætti.
20. apríl - 20. maí
Naut Tískan hefur áhrif á framkomu þína.
Vertu bara róleg/ur; allt hefur sinn tíma og
þannig verður útkoman bezt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gamlir vinir koma til þín á ný. Ef
það er eitthvað sem þig langar til þess að
komast til botns í, tekst þér það ábyggilega.
Ekki hika við að biðja þína nánustu um hjálp
þegar hennar er þörf.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Lífið er fullt af furðulegum hlutum
sem koma skemmtilega á óvart. Notaðu
tækifærið og reyndu að koma sem mestu í
verk.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nýttu þér auðlindir annarra til að gera
bætur heimavið eða innan fjölskyldunnar í
dag. Vertu ekki óþarflega harður/hörð við
sjálfa/n þig. Góður göngutúr væri góð byrj-
un.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir að reyna að sjá fegurðina í
hversdagslegum hlutum. En verðirðu óhepp-
in/n veistu þó allavega hverjir eru ekki vinir
þínir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Samstarfsmaður þinn er reiðubúinn til
að hjálpa þér í dag. Efi og mistök sömuleiðis.
Biddu fólk að gefa þér lengri tíma.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Leitaðu sanngjörnustu leið-
arinnar til að deila eignum og ágóða með
öðrum. En ef þú tekur sjálfa/n þig ekki of al-
varlega og skoðar málið í öðru ljósi muntu
geta hlegið innilega.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Í dag er tíminn til að hringja í vini
sína. Reyndu að einbeita þér að starfi þínu
og halda hlutleysi þínu innanhúss sem utan.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur verið of upptekin/n að
undanförnu og ekki gefið gaum þeim sem
næst þér standa. Láttu ekki mannalæti
blekkja þig heldur sjáðu í gegnum þau og
hagaðu þér svo eftir efnum og ástæðum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er óþarfi að láta sér leiðast
þau störf sem skyldan býður. Taktu ekki
meira að þér en þú getur staðið við með
góðu móti.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver er tilbúinn til að lána þér pen-
inga eða hjálpa þér með öðrum hætti.
Reyndu að fylgjast vel með því sem er að
gerast í kringum þig.
Friðrik Steingrímsson sendijóla- og áramótakveðju 28.
desember kl 16.08:
Yfir flest má finna nöfn
fátt þá hugsun þvingar,
við sköpun vísna skilja jöfn
skáld og hagyrðingar.
Tilefni þessarar vísu voru
vangaveltur á Leirnum um muninn
á þessu tvennu, skáldi og hagyrð-
ingi. 11 mínútum síðar kvaddi
Kristbjörg Freydís Steingríms-
dóttir sér hljóðs og hafði orð á því
að margir væru að kljást við kvef
og hita:
Þörf er á hlýjum verndar væng
ef veikindi sækja að.
Jólunum eyddi ég undir sæng,
ekki meira um það.
Hún sagðist mjög hrifin af fal-
lega ljóðinu hans Björns Ingólfs-
sonar á Leirnum og bíða í ofvæni
eftir ljóðabók. Skáld eða hagyrð-
ingur, – það væri spuningin um að
vinna úr þeim hæfileikum sem
hver og einn fengi í vöggugjöf og
þá kæmi sér Björn í hug:
Ekki er sama hver ávaxtar fenginn
eða hver gígjuna slær,
þegar Björn hreyfir hörpustrenginn
er hljómurinn ávallt tær.
Kristbjörg sagðist trúa því sem
faðir hennar, Steingrímur Bald-
vinsson í Nesi, hefði sagt: Að yrkja
vel er 10% hæfileikar. 90% æfing.
Hann gaf börnunum sínum þetta
veganesti:
Leggðu þig fram það er lífsins boð
lítil að náminu er þér stoð
ef kappið ei hugann hvetur.
Hvort há eða lág þín einkunn er
alltaf er prófið til sæmdar þér
ef þú gerir eins vel og þú getur.
Og rúmlega klukkutíma síðar lét
Friðrik aftur til sín heyra:
Þegar hæstum hæðum ná
hugverk snillinganna
virðist stundum örla á
öfund sumra manna.
Og um kvöldið skrifaði Ágúst
Marinósson á Leirinn: Alveg sam-
mála föður þínum og þér, Krist-
björg. Góðan bata. Fékk Árleysið
hans Bjarka líka og hef verið að
lesa mér til ánægju:
Um kverið eftir Bjarka bað
bók sem hefur vægi.
Um kallinn sem var alltaf að
álpast suður á bæi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hvort er hagyrðingur
skáld eða öfugt?
Í klípu
„MÉR FINNST HELDUR EKKI GOTT AÐ
STIMPLA FÓLK SVONA, ÞESS VEGNA FÆ ÉG
TRÖLLLJÓTA, HUGLAUSA, ILLA LYKTANDI
AÐSTOÐARMANNINN MINN TIL AÐ GERA ÞAÐ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VINSÆLDIR OKKAR
FARA DVÍNANDI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að koma heim
með vín og rósir, án
sérstakrar ástæðu.
ÚRHRAK
ENGIN
VERÐLAUN
GRETTIR, VIÐ SKULUM
STAÐNÆMAST OG HUGLEIÐA
LÍFIÐ OG TILVERUNA.
MIG KLÆJAR
Í FÓTINN.
ERUM VIÐ
HÆTTIR AÐ
HUGLEIÐA?
HEYRÐU ... BÍDDU
AÐEINS ...
HVERNIG
VEIÐIR
MAÐUR BJÖRN,
HRÓLFUR?
ÞAÐ ER
EINFALT, ÞÚ BARA
MIÐAR Á BJÖRNINN
OG AFSKRIFAR
HANN.
Fyrir nokkrum áratugum spáðiAndy Warhol því að í framtíð-
inni yrðu allir frægir í fimmtán mín-
útur. Víkverja varð hugsað til þess-
ara orða eftir fréttir helgarinnar,
þar sem hann frétti fyrst af tilvist
Vine-samfélagsmiðilsins, sem gerir
gott um betur en Warhol spáði, og
skammtar notendum sínum sex sek-
úndur af frægð í formi misskond-
inna myndbanda. Á grundvelli
þeirrar skammtímafrægðar höfðu
nefnilega tveir útlenskir smápjakk-
ar náð því markmiði að vera sem
goðum líkastir í Smáralindinni síð-
astliðinn sunnudag, með tilheyrandi
eignaskemmdum, yfirliði og troðn-
ingi.
x x x
Sem betur fer ákváðu Víkverji ogfrú að versla í Kringlunni þenn-
an sunnudaginn og losnuðu því við
það að sjá íslensk ungmenni öskra
líkt og Bítlarnir, Elvis og Jesús
hefðu ákveðið að koma saman og
væru allir mættir þarna í íslenskan
verslunarkjarna. Víkverji og frú eru
bæði rétt svo nýskriðin á fertugsald-
urinn, og reyna eftir megni að fylgj-
ast með stefnum og straumum,
svona til þess að halda í það sem eft-
ir lifir af æskuárunum. Höfðu Vík-
verjahjón þó hvorugt nokkra hug-
mynd um það hvaða andans menn
höfðu verið þarna á ferðinni. Vík-
verja hefur sjaldnar liðið eins og
meira gamalmenni, fyrir að vita ekki
hverjir þessir menn væru. Ja, fuss-
um svei!
x x x
En allt fram streymir víst enda-laust og árin og dagarnir líða.
Víkverji var kominn langt með að
fordæma unglingakynslóðina fyrir
að eltast við hvaða tískubólu sem er
og veita hverjum sem er mjög svo
óverðskuldaða, en sem betur fer
skammvinna frægð. Þá leit hann í
eigin barm. Kynslóð Víkverja var
alls ekkert betri. Setningin „en hann
er svo sætur,“ heyrðist alveg jafnoft
þá og nú, og líklega eru þeir jafn-
margir þá og nú sem hlutu frægð á
þessum mektarárum Víkverja án
þess að eiga neina innistæðu fyrir
henni. Án þess að Víkverji þori að
fullyrða það var kynslóð foreldra
hans eflaust líkt farið. Víkverji hefur
því stigið eitt skrefið enn til graf-
arinnar. víkverji@mbl.is
Víkverji
Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag
Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.)
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
JAVA 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is