Morgunblaðið - 11.02.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Áformað er að hefja framkvæmdir við 12 hæða
íbúðaturn við Höfðatorg næsta haust. Um 70-
75 íbúðir verða í turninum og miða áætlanir við
að framkvæmdum ljúki
haustið 2016.
Íbúðirnar verða frá 50
fermetrum að stærð.
Að sögn Péturs Guð-
mundssonar, forstjóra
Eyktar, er hönnun bygg-
ingarinnar að fara af stað.
Pálmar Kristmundsson,
eigandi PK arkitekta, er
arkitekt hússins.
Pétur segir um 5 millj-
arða króna framkvæmd að
ræða og að um 80 manns muni að jafnaði koma
að verkinu á byggingartímanum.
Byggingin verður um 12.000 fermetrar að
flatarmáli ofanjarðar, að jarðhæðinni meðtal-
inni, en þar verður þjónustustarfsemi. Við
þetta bætist bílakjallari undir turninum.
„Við teljum að það sé markaður fyrir
íbúðir og atvinnuhúsnæði á Höfðatorgi. Þetta
er mjög vinsælt svæði. Það er búið að leigja
um 20.000 fermetra af atvinnu- og skrifstofu-
húsnæði eftir hrun og gera samning um að
reisa stærsta hótel á landinu,“ segir Pétur en
hver einasti fermetri á reitnum er nú í útleigu.
Háhýsið verður sunnan við fyrirhugaðan
16 hæða hótelturn sem nú er byrjað að reisa
vestan við 19 hæða skrifstofuturn, þann hæsta
sem reistur verður á svæðinu. Verður hótelið
opnað sumarið 2015.
Fjárfesting upp á alls 12 milljarða
Má geta þess að kostnaður við hótelið er
áætlaður sjö milljarðar og munu 200-300
manns að jafnaði vinna við bygginguna.
Samanlögð fjárfesting við nýja íbúðaturn-
inn og hótelið er því um 12 milljarðar króna,
eða sem svarar 0,7% af landsframleiðslu.
Sjá má líkan af Höfðareitnum hér til hlið-
ar en drög að nýja turninum eru ekki tilbúin.
Að sögn Péturs er stefnt að því að 24 mán-
uðir líði frá því að framkvæmdir við íbúðirnar
hefjist og þar til þær verða afhentar.
Gert var ráð fyrir allt að 250 íbúðum á
Höfðatorgsreitnum. Þau áform voru hins veg-
ar endurskoðuð eftir efnahagshrunið og verð-
ur hótel þar sem reisa átti 16 hæða íbúðaturn.
Spurður hvað ætla megi að fermetraverð verði
að meðaltali í nýja íbúðaturninum segir Pétur
of snemmt að spá um það. Hálft þriðja ár sé
enda þar til íbúðirnar verði afhentar.
Verkefni sem skapa hundruð starfa
Pétur segir enn stefnt að því að reisa tvær
byggingar á reitnum til viðbótar við áður-
nefnda 19, 16 og 12 hæða turna og sjö hæða
skrifstofuhúsnæði þar sem m.a. Reykjavíkur-
borg hefur skrifstofur. Hinar byggingarnar
tvær verða 7-9 hæða og hefur ekki verið
ákveðið hvort þar verða íbúðir, atvinnu-
húsnæði eða skrifstofur á efri hæðum. Þar
verður þjónustustarfsemi á jarðhæð, líkt og
áformað var í upphaflegum áætlunum.
Framkvæmdin vitnar um bata á
byggingarmarkaði og að verktakar telji sölu-
verð orðið viðunandi þótt byggingarkostnaður
sé hár. Eins og Morgunblaðið greindi frá sl.
laugardag eru framkvæmdir við Skuggahverf-
ið í Reykjavík að hefjast og munu nokkur
hundruð manns vinna að því verkefni og turn-
unum tveimur sem rísa munu á Höfðatorgi.
Reisa 12 hæða turn á Höfðatorgi
Framkvæmdin hljóðar upp á 5 milljarða Hönnun turnsins er að fara af stað Verður við hlið
16 hæða hótelturns 70-75 íbúðir verða í nýja turninum Forstjóri Eyktar segir eftirspurn mikla
Líkan/PK arkitektar
Líkan Til vinstri er 19 hæða turn sem þegar
er risinn. Hægra megin er 16 hæða hótelturn
og nýi 12 hæða íbúðaturninn (fjær á mynd).
Pétur
Guðmundsson
Anna Lilja Þórisdóttir
Stefán Gunnar Sveinsson
Hollenski seðlabankinn, DNB, og
breski innstæðusjóðurinn, FSCS,
hafa stefnt Tryggingarsjóði inn-
stæðueigenda og fjárfesta á Ís-
landi, fyrir Héraðsdóm Reykjavík-
ur.
Krefjast þeir þess að Trygging-
arsjóði verði gert að greiða, eða
staðfest að sjóðnum hafi borið að
greiða að fullu lágmarkstryggingu,
eða allt að 20.887 evrur fyrir hvern
innstæðueiganda, auk vaxta og
kostnaðar. Höfuðstóll krafna DNB
og FSCS nemur því tæplega 556
milljörðum íslenskra króna. Þar af
hljóðar krafa FSCS upp á 452,1
milljarð króna og krafa hollenska
seðlabankans upp á 103,6 milljarða
króna. Dómsmálin voru þingfest
hinn 28. nóvember 2013.
Síðasti angi Icesave-málsins
Karl Axelsson, annar þeirra lög-
manna sem fara með málið fyrir
hönd Tryggingasjóðs, sagði í sam-
tali ólíklegt að fallist yrði á kröfu-
gerð DNB og FSCS. Hann sagði
þetta vera síðasta hlutann í Ice-
save-málinu og að lokaniðurstaða
myndi væntanlega fást eftir eitt til
tvö ár. Karl sagði að ekki væri búið
að skila vörninni og því væri ekki
hægt að greina frá því hvernig farið
verður með málið. „En við teljum
varnirnar vera það sterkar að ekki
muni koma til þess að fallist verði á
þessa kröfugerð,“ sagði hann.
Karl sagði jafnframt að DNB og
FSCS teldu sig eiga kröfu á sjóðinn
óskertan, en að ef fallist yrði á kröf-
ur af þessum toga væri búið að
tæma sjóðinn sem ætti að tryggja
okkur til framtíðar.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra sagði í gær að mikilvægt væri
að hafa það í huga að áður hefði ver-
ið leyst úr því álitamáli hvort rík-
issjóður beri ábyrgð að þessu leyti,
og svo væri ekki. „Þannig að það
mun ekki reyna á ábyrgð ríkisins að
neinu leyti í þessu máli,“ sagði
Bjarni Benediktsson, og bætti við
að út af fyrir sig væri ekki slæmt að
fá niðurstöðu dómstóla.
Vilja 556 milljarða úr Tryggingarsjóði
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Icesave Rúmt ár er síðan EFTA-
dómstóllinn úrskurðaði í málinu.
Hollenski seðlabankinn og breski innstæðusjóðurinn stefna TIF fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur
Ólíklegt að fallist verði á kröfuna, segir lögmaður TIF Mun ekki reyna á ábyrgð ríkisins
Þjónustufyrirtækjum við gömlu höfnina í
Reykjavík fjölgar stöðugt. Þar er nú fjöldi veit-
ingastaða, verslana og ferðaþjónustufyrirtækja.
Höfnin er vinsæll viðkomustaður erlendra ferða-
manna. Skiltið með hafnarkortinu vestan við
Slippinn er liður í að sýna þeim hvað er í boði á
svæðinu. Þótt Slippurinn sjálfur sé ekki aug-
lýstur sem viðkomustaður hafa margir gaman af
að rölta þar um og fylgjast með athafnalífinu.
Morgunblaðið/Ómar
Margt í boði við gömlu höfnina
Hafnarkortið vestan við Slippinn kemur að góðum notum
Framtakssjóður Íslands seldi í gær
allt hlutafé sitt í Icelandair Group
fyrir rúma 6,6 milljarða króna. Sjóð-
urinn keypti 30% hlut í félaginu árið
2010 fyrir 3,6 milljarða króna, en hef-
ur nú selt hann í fjórum áföngum fyr-
ir samtals 15,2 milljarða króna, en
mismunurinn er um 11,6 milljarðar.
Þeirri fjárhæð er skilað til eigenda
sjóðsins sem eru lífeyrissjóðir og
Landsbankinn. Í síðasta áfanganum í
gær var seldur um 7% hlutur í Ice-
landair Group. Ekki liggur fyrir
hverjir keyptu hlutinn.
Þorkell Sigurlaugsson, stjórnar-
formaður Framtakssjóðs Íslands,
sagði í gærkvöldi að hann teldi að það
hefði verið gott að sjóðurinn hefði selt
bréfin sín í áföngum og að það væri
dreift eignarhald á Icelandair, lykil-
fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Þorkell sagði jafnframt að sjóð-
urinn hefði keypt hlut sinn í félaginu
þegar það hefði verið búið að vera í
miklum erfiðleikum, meðal annars
vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Að-
koma Framtakssjóðsins hefði því ver-
ið mikilvæg. jonpetur@mbl.is
Framtaks-
sjóður selur
í Icelandair
Hefur selt fyrir 15,2
milljarða í 4 áföngum
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra
sagði í gær málið vera fyrst og
fremst góða áminningu um mik-
ilvægi þess að ekki hefði verið
fallist á það á sínum tíma að
setja þessar ábyrgðir yfir á rík-
ið, því að ef það hefði verið gert
væri ekki um að ræða kröfur á
Tryggingarsjóð, heldur á ís-
lenska ríkið og skattgreiðendur.
Góð áminning
SIGMUNDUR DAVÍÐ