Morgunblaðið - 11.02.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2014
* Skv. uppgefnum meðaleyðslutölum frá framleiðanda.
Opið virka daga kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
ASKJA NOTAÐIR BÍLAR
Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is
Veldu
notaðan Kia með
lengri ábyrgð
M.v. 58% innborgun og 84 mán. óverðtryggt lán á 9,7% vöxtum.
Árleg hlutfallstala kostnaðar: 11,92%.
39.900 kr. á mánuði
6,5 ár
eftir af
ábyrgð
Kia Sportage EX 4wd
Árg. 2013, ekinn 31 þús. km, dísil, 136 hö.,
sjálfskiptur, eyðsla 6,9 l/100.*
Verð: 5.590.000 kr.
Dagur B. Eggertsson var umhelgina einn í kjöri til fyrsta
sætis Samfylkingarinnar fyrir
borgarstjórnarkosningarnar og
náði því sæti örugglega. Það var
góður árangur
enda fagnaði Dag-
ur honum mjög.
Í gærmorgun fórhann í hefð-
bundið drottning-
arviðtal á Rás 2 og
þar kom ýmislegt
athyglisvert og jafnvel óvænt
fram. Eitt af því óvænna var
staða Dags að eigin mati og má
telja víst að sjaldan hafi stjórn-
málamaður fundið svo mjög til yf-
irburða sinna sem Dagur gerir
nú.
Spyrillinn nefndi að Dagurhefði í nýlegri skoðana-
könnun mælst með um helmings
fylgi til að verða borgarstjóri en
Samfylkingin aðeins með rúmlega
fimmtungs fylgi í sömu könnun.
Spurði hann í framhaldinu hvort
Samfylkingin væri orðin dragbít-
ur á persónulegt fylgi Dags.
Og svar Dags: „Ja, að þessuleyti, já.“
Það liggur þá fyrir að Samfylk-ingin dregur niður Dag og
hlýtur að vera nokkuð sem flokk-
urinn þarf að finna lausn á.
Hvernig getur svo mikillstjórnmálamaður rúmast í
svo hefðbundnum stjórnmála-
flokki? Og hvað er hægt að gera
til að leysa þennan vanda?
Er þetta mál sem Samfylkingingetur leyst ein síns liðs eða
þarf þjóðarátak til að tryggja
Degi verðugri pólitískan sess?
Dagur B.
Eggertsson
Lítillátur, ljúfur
og kátur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.2., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík 0 alskýjað
Akureyri 0 snjókoma
Nuuk -6 léttskýjað
Þórshöfn 5 léttskýjað
Ósló 2 skýjað
Kaupmannahöfn 2 heiðskírt
Stokkhólmur 2 skýjað
Helsinki 1 þoka
Lúxemborg 1 slydda
Brussel 6 skúrir
Dublin 3 skýjað
Glasgow 6 skýjað
London 7 léttskýjað
París 7 skýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 7 heiðskírt
Berlín 7 heiðskírt
Vín 7 alskýjað
Moskva -3 alskýjað
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 8 skýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 13 skýjað
Aþena 16 heiðskírt
Winnipeg -30 heiðskírt
Montreal -11 léttskýjað
New York -4 heiðskírt
Chicago -14 léttskýjað
Orlando 20 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:36 17:49
ÍSAFJÖRÐUR 9:53 17:42
SIGLUFJÖRÐUR 9:37 17:24
DJÚPIVOGUR 9:09 17:15
Jörðin Möðruvellir í Eyjafjarðar-
sveit er seld. Ásett verð var 155 millj-
ónir króna en ekki fékkst uppgefið
endanlegt söluverð. Ræktað land
jarðarinnar er 89,4 hektarar. Eign-
inni fylgir hlutur í tveimur eyðijörð-
um sem og Möðruvallakirkja. Hún
var byggð árið 1847 og er bænda-
kirkja.
Á jörðinni eru einbýlishús, fjós,
tvær hlöður, skemma og fjárhús. Þá
er 241.601 lítra mjólkurkvóti og 273,9
ærgildi.
Mikill áhugi var á jörðinni og seld-
ist hún á tiltölulega skömmum tíma
en mikil eftirspurn er eftir bújörðum
um þessar mundir, að sögn fast-
eignasalans sem sá um viðskiptin. Sá
sem keypti á jörð sem liggur að
Möðruvöllum og er því að bæta við
sig landrými.
Reynt að selja kirkjugripi
Staðurinn er þekkt höfuðból og er
kenndur við Eyjafjarðarsveit til að-
greiningar frá Möðruvöllum í Hörg-
árdal. Hann er í um 27 km aksturs-
fjarlægð frá Akureyri.
Árið 2009 óskaði þáverandi eig-
andi Möðruvallakirkju leyfis
menntamálaráðherra til að flytja út
500 ára gamla altarisbrík kirkjunnar
með það fyrir augum að selja hana
hjá uppboðsfyrirtækinu Christies.
Ekki varð úr sölunni en krikjugrip-
irnir eru friðaðir.
Altarisbrík Möðruvallakirkju er úr
alabastri, ein af sjö altaristöflum frá
Íslandi sem varðveist hafa í nær
heilu lagi. Flestar eru á Þjóðminja-
safninu og ein í Kaupmannahöfn.
Bríkurnar í Möðruvallakirkju og
Þingeyrakirkju í Þingi eru þær einu
sem varðveittar eru á upprunalegum
stað.
Talið er að hún sé frá 15. öld. Brík-
in hefur því verið í Möðruvallakirkju
hálfa sjöttu öld. Í bríkinni eru sjö lág-
myndir og er myndefnið sótt í sögu
Maríu guðsmóður. thorunn@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Möðruvellir í Eyjafjarðarsveit Höfuðbólið hefur verið selt en ekki fékkst
uppgefið endanlegt söluverð. Ásett verð jarðarinnar var 155 milljónir króna.
Kirkjujörðin
Möðruvellir seld
Mikil eftirspurn eftir bújörðum