Morgunblaðið - 11.02.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2014
ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA
AF GARDÍNUEFNUM
Á ÚTSÖLU
OG ELDHÚSKÖPPUM
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
Sími 588 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
PÚÐAVER ÁTILBOÐI 2.000 KR
. STYKKIÐ
Borgið
2 fáið 3
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við ætlum að fara í styttriog lengri gönguferðir áþeim svæðum þar sem éghef unnið að uppbygg-
ingu gönguleiða,“ segir Gunnlaugur
B. Ólafsson, framhaldsskólakennari
í Mosfellsbæ og fjallaleiðsögu-
maður að Stafafelli í Lóni, en hann
stofnaði nýlega á Fésbókinni
gönguhópinn Út og austur. „Við
byrjum núna í skammdeginu á því
að fara í þægilegar göngur að lokn-
um vinnudegi hér í nágrenninu, á
fellin í kringum Mosfellsbæ og upp
frá Mógilsá í Esjunni. Síðan lengj-
um við þetta í dagsferðir um mis-
munandi hringleiðir í kringum Esj-
una, á fjallatoppa innan hundrað
kílómetra radíuss frá Reykjavík
sem og dagsferðir og nokkurra
Himneskt göngulag
og náttúrufegurð
Hann vill ganga með þá hugmyndafræði sem kölluð er að ferðast hægfara, eða
„slow travelling“, þar sem fólk fer ekki of hratt heldur gefur sér tíma til að njóta og
upplifa náttúruna. En hann vill líka stundum hlaupa upp fjöll. Hann hefur stofn-
að gönguhóp sem ætlar að ganga í vetur í nágrenni Reykjavíkur en færa sig svo
austur á land og enda á að ganga Austurstræti, úr Lóni yfir í Fljótsdal.
Botnssúlur Gengið verður á þær í vetur í fyrri ferðunum og þeim styttri.
Fegurð Brenniklettur verður á vegi þeirra sem ganga eftir Austurstræti.
Húlahopp er sannkallað gleðihopp og
afar góð og skemmtileg leið til að
halda sér í formi. Margir eiga góðar
bernskuminningar tengdar því að
standa á sólríkum dögum úti í garði
og húla með vinunum. En húla er alls
ekki aðeins fyrir börn eða ungmenni,
heldur fyrir alla, konur og karla. Fyrst
þarf að verða sér úti um húlahring en
síðan getur verið gott að fara inn á
vefsíðuna wikihow.com/Hula-Hoop,
þar sem læra má í nokkrum skrefum
hvernig hægt er að ná tökum á húla-
hoppinu, eða kannski öllu fremur hú-
lasnúningnum. Þarna er líka kennt
hvernig koma má í veg fyrir að hring-
urinn falli á gólfið. Áríðandi er að æfa
sig stíft til að ná fullkomnu valdi á
snúningnum. Einnig er tilvalið að
blása til samkvæmisleiks við fyrsta
tækifæri, þar sem keppt er í því að
halda hringnum sem lengst á snún-
ingi.
Vefsíðan www.wikihow.com/Hula-Hoop
Morgunblaðið/Golli
Fyrir alla Hægt er að húla hvar og hvenær sem er, inni eða úti.
Hvernig skal snúa sér í húla
Heilsa snýst ekki aðeins um að
hreyfa og rækta líkamann, fara út og
anda að sér súrefni, hún snýst ekki
síst um hvað við látum ofan í okkur.
Margrét Leifs heilsumarkþjálfun ætl-
ar að vera með matreiðslunámskeið
eða matarboð í formi sýnikennslu
næstkomandi fimmtudag 13. febrúar
kl. 18:30-21:30 á Tómasarhaga 31 í
Reykjavík. Þar getur fólk lært að gera
græna drykki, ljúffenga og holla
pítsu, chiagraut og fleira. Innifalið í
verði er full máltíð, fræðsla og upp-
skriftir. Nú er lag að bæta nýjum hug-
myndum í uppskriftabankann, alltaf
svo gaman að breyta til.
Endilega …
…lærið að gera heilsudrykki
Morgunblaðið/Eggert
Grænt Allt er vænt sem vel er grænt.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Þær eru margar heldur betur flottar
myndirnar sem berast frá Vetrar-
ólympíuleikunum í Rússlandi um
þessar mundir, þar sem afreksfólk
keppir í hverskonar íþróttagreinum
sem tengjast Vetri konungi. Fólk svíf-
ur um himinhvolfið á skíðum, rennur
á ógnarhraða á brettum eftir ísilögð-
um brautum, dansar á skautum á
svellum og svo mætti lengi telja. Hér
má sjá hinn kanadíska Philippe Mar-
quis svífa í gær í frjálsri aðferð á
skíðum.
Vetrarólympíuleikar
AFP
Flug Philippe Marquis flýgur.
Myndvænar
íþróttir