Morgunblaðið - 11.02.2014, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 11.02.2014, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2014 www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 KEÐJUVIÐGERÐAREFNI OG KEÐJUTANGIR Keðjurnar eru til á allar gerðir vinnuvéla, vöru- og flutningabifreiða, dráttarvéla og lyftara FRAMÚRSKARANDI NORSKAR KEÐJUR Hlekkir • Keðjulásar • Krækjur • Krókar Krossbandakeðjur • Ferkantakeðjur • Þverbandakeðjur Mottukeðjur • Zik-zak keðjur • Zik-zak keðjur Keðjurnar eru til í mörgum gerðum og í öllum mögulegum stærðum „Náðarhögg ferðafrelsisins“  ESB varar Svisslendinga við afleiðingum þess að takmarka frjálst flæði fólks Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Svissneskir fjölmiðlar telja að niður- staða þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem meirihluti kjósenda samþykkti að takmarka aðgengi innflytjenda frá Evrópusambandslöndum að landinu sé áfall fyrir ríkisstjórn þess og afhjúpi enn á ný hversu klofið landið er. Ríkisstjórnin hafði hvatt lands- menn til þess að hafna tillögunni sem popúlistar af hægri vængnum lögðu fram. Engu að síður samþykktu 50,3% þeirra sem tóku þátt hana. Viviane Reding, dómsmálafulltrúi framkvæmdastjórnar ESB, sagði í gær að Sviss gæti ekki búist við því að halda í kosti frjálsra viðskipta inn- an ESB án þess að samþykkja frelsi til ferða innan þess. „Það er ekki mögulegt. Þú verður að taka því öllu eða hafna því öllu,“ sagði Reding við breska ríkisútvarp- ið BBC. Snúa aftur til fortíðar Athygli vakti að þau svæði lands- ins þar sem innflytjendur eru flestir höfnuðu tillögunni og naut hún mests stuðnings til sveita. „Sviss er að spóla til baka snældu sögunnar. Landið hefur kosið að snúa aftur til landamæraeftirlits. Enn á ný eru það svæðin sem verða fyrir minnstum áhrifum af innflytj- endum og frjálsu flæði fólks sem hafa stutt takmörkun þeirra hvað af- dráttarlausast,“ sagði dagblaðið Les Temps um niðurstöðuna. Dagblaðið 24 heures sagði þjóðar- atkvæðagreiðsluna „daginn sem stöndug þjóð bjó til meiriháttar krísu“. Svissneska þjóðin væri klofin eins og endranær og hún hefði veitt frjálsu flæði fólks náðarhöggið í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Klofningur » Íbúar á frönskumælandi svæðum Sviss greiddu at- kvæði gegn tillögunni, þýsku- mælandi voru klofnir í afstöðu sinni en þeir ítölskumælandi tóku afgerandi afstöðu með henni. » Mest andstaða var í borgum eins og Basel, Genf og Zürich þar sem fjöldi útlendinga býr. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Hópur ástralskra vísindamanna við ástralska þjóðarháskólann hafa fundið elstu stjörnu sem menn hafa fundið í alheiminum. Stjarnan er tal- in vera um 13,6 milljarða ára gömul og hún gefur stjarnvísindamönnum tækifæri til að rannsaka efnasam- setningu fyrstu stjarnanna sem mynduðust í alheiminum. Dr. Stefan Keller, yfirmaður stjörnu- og stjarneðlisfræðideildar háskólans, líkir fundinum við það að finna nál í heystakki. Hópur hans var að nota Skymapper-stjörnusjónauk- ann til að búa til stafrænt kort af stjörnuhimninum á suðurhveli jarð- ar þegar hann fann stjörnuna fornu. Niðurstaðan var staðfest með Ma- gellan-sjónaukanum í Síle og var birt í nýjustu útgáfu vísindatímaritsins Nature. „Bara með því að mynda lit stjarn- anna getum við ráðið hverjar þeirra séu líklegastar til að vera elstar. Við getum séð hversu mikið járn er að finna í þeim. Því meira járn, því yngri eru stjörnurnar,“ segir Keller. Járninnihald stjörnunnar sem Ástralarnir fundu er um sextíu sinn- um minna en í öðrum þekktum stjörnum. Keller segir að stjarnan hafi myndast í kjölfar sprengi- stjörnu frá frumbernsku alheimsins sem hafði sextíufaldan massa sólar- innar okkar og dó út í gríðarlegri sprengingu. Stjarnan sé eins og tímahylki sem veiti mönnum nýjar upplýsingar sem breyti hugmyndum manna um fyrstu stjörnurnar sem urðu til í alheiminum. Elsta stjarna sem hefur fundist  Talin vera 13,6 milljarða ára gömul Sjónauki Keller við Skymapper- sjónaukann í Nýja Suður-Wales. Í að minnsta kosti 150 tilfellum hafa bandarískar farþega- og flutninga- flugvélar lent eða byrjað að lenda á röngum flugvöllum frá því í byrjun 10. áratugar síðustu aldar. Þetta er niðurstaða úttektar AP-fréttastof- unnar á opinberum öryggisgagna- grunni og fréttum fjölmiðla. Mörg atvikanna áttu sér stað að næturlagi og sögðu margir flug- mannanna að þeir hefðu látið glepj- ast af lendingarljósum fyrstu flug- brautar sem þeir sáu eftir að þeir byrjuðu að lækka flugið. Sumir sögðust hafa hunsað sigling- arbúnað sem sýndi að þeir væru af leið vegna þess að þeir sáu flug- braut út um gluggann. Um 150 vélar rugl- uðust á flugvöllum BANDARÍKIN AFP Mistök Flugmenn rata ekki alltaf rétt. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Starfsmaður safns í borginni Ajaccio á frönsku eyjunni Korsíku er í vandræðum eftir að hann stóðst ekki mátið að setjast á 200 ára gamlan klapp- stól sem eitt sinn var í eigu Napó- lens Bónaparte. Rautt leðrið í stólnum og viðurinn gaf sig þegar starfsmaðurinn hvatvísi settist. Atvikið átti sér stað á fimmtu- dag en það komst fyrst upp í gær þegar fréttist af neyðarheimsókn sér- fræðings til safnsins. Búið er að gera upp stólinn en hann er hluti af sýningu á munum frá herferðum Napóleons að því er kem- ur fram í frétt AFP-fréttastofunnar af málinu. Starfsmaðurinn má eiga von á að vera kallaður fyrir stjórn safnsins til að gera grein fyrir gjörðum sínum. Hlammaði sér í stól Napóleons  Leðrið og viðurinn í stólnum lét undan Napóleon Bónaparte Ungmenni róa gúmmíbát eftir verslunargötu bæjarins Datchet í Berkshire þar sem áin Thames flæddi yfir bakka sína og ógnar þúsundum heimila. Janúarmánuður var sá votasti á Bretlandseyjum frá því á 18. öld og hafa sum svæði í suðvesturhluta lands- ins verið undir vatni í nokkrar vikur. Umhverfis- stofnun landsins gaf út fjórtán alvarlegar flóðaviðvar- anir fyrir svæði við ána vestur af London. Yfirvöld hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir að hafa ekki látið dýpka ár sem hafa flætt yfir bakka sína. Á gúmmíbát upp verslunargötu EPA Breskur skurð- læknir notaði þrívíddarprent- ara til þess að prenta nýja mjaðmagrind í mann sem hafði misst helminginn af sinni vegna krabbameins. Þetta var fyrsta aðgerð sinnar tegundar. Eftir að mælt hafði verið ná- kvæmlega hversu mikið af beini var fjarlægt vegna beinkrabbameins var ný mjaðmagrind sniðin sér- staklega að manninum og hún prentuð úr títaníum. Þá var hefð- bundinn gerviliður settur í nýju liðskálina. Maðurinn, sem er um sextugt, getur nú gengið við staf. TÆKNI Prentaði út nýja mjaðmagrind Þrívíddarprentari er gagnlegur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.