Morgunblaðið - 11.02.2014, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2014
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Ég nýt þess að stunda skvass
því þetta er besta alhliða
sportið sem ég hef kynnst.
Þar brennir maður flestum
kalorium, eykur vöðvastyrk
og vöðvaúthald ogmeiðsl eru
fátíð í skvassi (skv könnun
Forbes)
Erling Adolf Ágústsson
Skvass gæti verið fyrir þig
Frír prufutími
Skvass er skemmtileg íþrótt fyrir
fólk á öllum aldri.
Um er að ræða fjölbreytta
hreyfingu og mikla
brennslu.
Bóka þarf tíma
með fyrirvara.
Knattspyrnumaðurinn og Framarinn Daði Guðmundsson fagn-ar 33 ára afmæli sínu í dag. Hann er mikið afmælisbarn ogætlar að fara út að borða með kærustunni, Álfheiði
Sigurðardóttur, ásamt dóttur þeirra, Sigurrós Soffíu, á Tapasbarn-
um. „Þá er aldrei að vita nema maður fari líka í bíó með bíóklúbbn-
um „Mynd sem horft er á“. Við vitum reyndar ekki hvaða mynd við
förum á enda ákveður bíóklúbburinn aldrei á hvaða mynd hann fer
fyrr en hann kemur í bíóið. Það er í raun óeðlilegt að ég skuli vera
að tala um að fara á mynd með svona miklum fyrirvara þar sem yf-
irleitt er ekki tekin ákvörðun um að fara í bíó fyrr en korteri áður
en lagt er af stað,“ segir Daði.
Hann er ekki búinn að baka mikið en þarf þó að fara með köku á
fótboltaæfingu í tilefni dagsins, enda hefur Daði æft fótbolta með
Fram frá barnsaldri
Líkt og 11. febrúar ber með sér er Daði vatnsberi og segir hann
að það sem einkenni hann sé þrákelkni og þýlindi eftir því sem við á
en mikilvægt sé að þekkja það hvenær vert sé að beita þessum skap-
gerðareinkennum. Daði er leikjahæsti leikmaður knattspyrnuliðs
Fram og sló met Péturs Ormslev í fyrra þegar hann lék sinn 373.
leik fyrir félagið. Meiðsli hafa þó hrjáð hann undanfarin tvö ár en
hann segist hvergi nærri hættur. „Þar kemur þrákelknin sér vel,“
segir Daði kankvís.
Daði Guðmundsson er 33 ára gamall í dag
Glæstar vonir Daði Guðmundsson er hér við sportbíl eftir að hann
fagnaði bikarmeistaratitli með Fram síðastliðið sumar.
Þýlindur og þrá-
kelkinn vatnsberi
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Kópavogur Daníel Orri fæddist
17. maí kl. 8.40. Hann vó 3410 g og var
50 cm langur. Foreldrar hans eru Anna
Hlín Brynjólfsdóttir og Björgvin Sig-
mundsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Kristbjörg Emelía fæddist
1. apríl. Hún vó 3630 g og var 51,5 cm
löng. Foreldrar hennar eru María Guð-
björg Guðmundsdóttir og Ingvar Rafn
Stefánsson.
Þ
orsteinn fæddist í
Reykjavík 11.2. 1954.
Hann átti heima í Kaup-
mannahöfn fyrstu fimm
árin þar sem faðir hans
stundaði nám við dýralækningar. Að
því loknu flutti fjölskyldan aftur
heim og skömmu síðar á Sauðárkrók
er faðir Þorsteins var ráðinn héraðs-
dýralæknir í Skagafirði.
Þorsteinn lauk því fullnaðarprófi
frá Barnaskóla Sauðárkróks, lands-
prófi frá Gagnafræðskólanum þar
1970, stúdentsprófi frá MR 1974 og
prófi í viðskiptafræði frá HÍ.
Á æskuárunum var Þorsteinn í
sveit á Þverlæk í Holtahreppi í
Rangárvallasýslu: „Í sveitinni
kynntist maður almennum bústörf-
um eins og þau gengu fyrir sig á
þessum árum. En þetta var ekki
bara spurning um framandi vinnu-
brögð. Sveitadvölin hafði yfirleitt
uppbyggileg áhrif á almenn viðhorf
unglinga til lífsins og tilverunnar.
Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri á Vopnafirði – 60 ára
Tendruð jólaljós Þorsteinn með ræðu þegar kveikt var á jólatré bæjarins. Karlakórinn í baksýn til halds og trausts.
Sveitarstjóri sem dans-
ar, gengur og ríður út
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Olíufundur Þorsteinn stýrir fundi sem haldinn var á Vopnafirði árið 2009,
um olíluleit og þá hugsanlega þjónustumiðstöð á Norð-Austurlandi.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is