Morgunblaðið - 11.02.2014, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2014
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins 30 mínútur
Hringdu og fáðu frían prufutíma
síma 566 6161
… Heilsurækt fyrir konur
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Settu heilsuna
í fyrsta sæti!
Við tökum vel á móti ykkur og
bjóðum upp á notalegt
andrúmsloft og skemmtilegan
félagsskap.
Við lok dagskrár Ljósmyndadaga á
laugardag var tilkynnt í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur hverjir
hlytu styrk úr Minningarsjóði
Magnúsar Ólafssonar að þessu
sinni. Magnús (1862-1937) var einn
helsti ljósmyndari þjóðarinnar á
öndverðri nítjándu öld.
Fyrir valinu urðu Bára Krist-
insdóttir, sem er reyndur atvinnu-
ljósmyndari, bæði í listrænni ljós-
myndun og iðnaðarljósmyndun, og
Valdimar Thorlacius sem útskrifast
í vor úr Ljósmyndaskólanum.
Hægt verður að sjá verk Valdi-
mars á útskriftarsýningu skólans í
húsinu við hlið Nesstofu um næstu
helgi en Bára verður síðar í mán-
uðinum fulltrúi Íslands, ásamt Pétri
Thomsen, á sýningu á norrænni
ljósmyndun í Scandinavia House í
New York.
Valið á styrkþegum önnuðust er-
lendir og innlendir rýnar Ljós-
myndadaga, safnstjórar, galleristar
og sýningastjórar sem í tvo daga
skoðuðu möppur um fjörutíu ljós-
myndara í Ljósmyndasafni Reykja-
víkur og gáfu þeim ráð.
Var þetta í annað sinn sem út-
hlutað er út Minningarsjóði Magn-
úsar Ólafssonar en markmiðið með
honum er að styrkja ljósmyndun
sem listgrein.
Ljósmynd/Sigríður Kristín Birnudóttir
Styrkþegarnir Bára Kristinsdóttir og Valdimar Thorlacius fyrir miðju ásamt
Magnúsi Karli Magnússyni og Ingibjörgu Pétursdóttur, afkomendum Magn-
úsar Ólafssonar ljósmyndara, og Maríu Karen Sigurðardóttur safnstjóra.
Valdimar og Bára
hlutu styrkinn
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Högni Egilsson tónlistarmaður
frumflytur á fimmtudag nýtt frum-
samið verk á raftónlistarhátíðinni
Sónar Reykjavík sem fram fer dag-
ana 13. til 15. febrúar. Högni hefur
lengi verið virkur í íslensku tónlist-
arlífi og notið mikillar velgengni með
hljómsveitinni Hjaltalín. Hann lætur
þó ekki þar við sitja heldur semur
hann líka tónlist fyrir leikhús, nú síð-
ast Bláskjá sem sýnt er í Borgarleik-
húsinu.
Sálarfullur söngur
Högni er þaulvanur tónsmíðum en
hann útskrifaðist með BA-gráðu í
tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands
árið 2010. Högni segir að verkið eftir
sig á Sónar sé töluvert frábrugðið
fyrri verkum hans og vill síður gefa
upp hvort hann verði með hljóðfæra-
leikara sér til halds og trausts eða
ekki en Karlakór Fóstbræðra mun
þó gegna veigamiklu hlutverki.
„Þetta er mjög frábrugðið því sem
ég hef verið að gera en ég held engu
að síður að verkið muni höfða til
mjög margra og að flestir muni sjá
og upplifa eitthvað sem þeir hafa
ekki séð eða upplifað áður,“ segir
Högni. „Ekki er um hefðbundinn
tónlistarflutning að ræða heldur
ganga áhorfendur inn í ákveðinn
hugarheim og inn í hann fléttast hið
myndræna, næstum eins og eins
manns söngleikur. Tónlistinni má
lýsa sem elektrónískri tónlist og hún
byggist á hægum grunni. Verkið er
sungið á fagran og sálarfullan hátt
og það er umvafið tveimur karla-
kórsverkum.
Þetta er eitthvað sem varð til fyrir
tveimur árum þegar ég og President
Bongo úr Gus Gus unnum saman. Þá
sömdum við saman tónlist í sam-
vinnu við Atla Bollason textahöfund
og út frá þeim heimi spruttu síðan
fleiri lög.“
Karlmennskan og ægifegurðin
Högni kemur fram undir heitinu
HE sem eru upphafsstafir Högna en
vísa líka, sem enska orðið „he“
(„hann“), til myndmáls verksins sem
er karllægt.
„Heitið vísar ekki aðeins í nafnið
mitt heldur nær það einnig vel yfir
hugmyndina sem liggur að baki
verkinu. Undanfarið hefur mikið
verið fjallað um hið kvenlega og
kvenlegt innsæi en hér er ég hins
vegar að vinna með hugmyndir um
hið karllæga. Tónleikarnir verða
mjög myndrænir og kaldir eig-
inleikar einkenna þennan mynd-
ræna heim sem ég mun leitast við að
skapa. Þá verður náttúran í fyr-
irrúmi þar sem vatn og sjór gegna
ákveðnu hlutverki og undirtónninn
er almennt mjög karllægur.
Í heild má segja að upplifunin
verði mjög áhrifarík og aðeins fjar-
lægari eða dularfyllri en gengur og
gerist í hinum venjulega heimi. Ég
leitast við að skapa óáþreifanlega
töfra í tónlistinni en það er einmitt
það sem tónlist snýst yfirhöfuð um.
Tónlist þessi hefur hægan og harm-
rænan hljóm og við erum mikið að
vinna með ægifegurðina.“
Heldur ótrauður áfram
Högni mun ekki sitja auðum
höndum eftir þetta verkefni heldur
er hann að leggja lokahönd á plötu
með Gus Gus sem kemur út í ár.
Þá útilokar Högni ekki að ráðast í
fleiri verkefni einn síns liðs.
„Ef draumarnir yfirgefa mig ekki
mun ég halda áfram að vinna sjálf-
stætt. Mér finnst það gott. Ég hef
alltaf gert það, bæði samið tónlist
fyrir leikhús og hljóðfærahópa og
geri ráð fyrir að halda áfram á þeirri
braut,“ segir hann.
Tónleikar Högna fara fram í Silf-
urbergi í Hörpu næstkomandi
fimmtudagskvöld klukkan 21.30.
Frekari upplýsingar má finna á
heimasíðu tónlistarhátíðarinnar
www.sonarreykjavik.com.
Ef draumarnir
yfirgefa mig ekki
Högni flytur nýtt verk á tónlistarhátíðinni Sónar
HE Högni Egilsson kemur fram á tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík.
Sonar Reykjavik
John Travolta upplýsir í samtali við
blaðamann Daily Telegraph að
hann dreymi um að leika illmenni í
kvikmynd um njósnarann James
Bond. Leikarinn, sem sló í gegn
sem fimur dansari og söngvari í
Saturday Night Fever og Grease,
verður sextugur í næsta mánuði og
viðurkennir fúslega að hann kunni
ekki að meta þá staðreynd. Hann
hefur nú lagt dansskónum en þakk-
ar kvikmyndinni Pulp Fiction fyrir
að hafa endurreist feril sinn, eftir
áratugar lægð, og hefur hann síðan
tekist á við mun fjölbreytilegri hlut-
verk en áður. Þar á meðal eru hlut-
verk ýmissa illmenna illmenna og
fanta. Travolta segist hafa rætt við
framleiðanda Bond-myndanna og
henni hafi litist vel á þá hugmynd
að hann fengi að láta þar til sín
taka. „Það þætti mér spennnadi,“
segir hann.
AFP
Fjölhæfur John Travolta þykir góðlegur
en leiðist samt ekkert að leika vonda karla.
Dreymir um að
leika illmenni í
Bond-mynd Breski myndlist-
armaðurinn
Damien Hirst,
sem sagður er
efnaðasti mynd-
listarmaður sam-
tímans, viður-
kennir í samtali
við vikublaðið
Observer að
hann sæki hug-
myndir í verk barna sinna og segir
að ungt fólk geti skapað mun betri
listaverk en fullorðnir.
Hirst segir að fullorðnir haldi
iðulega aftur af sér vegna óttans
við að mistakast en ungmenni ráð-
ist einfaldlega á verkefnin. Þess
vegna móðgist hann ekki ef verk
hans eru sögð „barnaleg“.
Leitar hugmynda í
verkum barnanna
Damien Hirst