Morgunblaðið - 11.02.2014, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 42. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. „Hef aldrei séð hann svona reiðan“
2. Bara fyrir þá sem eru 20 kg of þungir
3. Bíllausir með 80% meiri greiðslugetu
4. Áhorfendur risu úr sætum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvikmyndavefurinn The Wrap
greinir frá því að leikararnir Martin
Henderson, Emily Watson, Thomas
Wright og Michael Kelly hafi bæst í
leikarahóp kvikmyndarinnar Everest
sem Baltasar Kormákur leikstýrir.
Enska leikkonan Watson er líklega
þekktust í þessum hópi, hefur leikið í
fjölda þekktra og viðurkenndra kvik-
mynda, m.a. Breaking the Waves og
War Horse. Henderson á m.a. að baki
kvikmyndina The Ring, Wright hefur
leikið í bandarískri endurgerð sjón-
varpsþáttanna Broen, The Bridge, og
Kelly hefur leikið í fjölda kvikmynda
og sjónvarpsþátta og þá m.a. þátt-
unum House of Cards en í þeim leikur
hann slægan aðstoðarmann hins sið-
lausa Franks Underwoods.
Emily Watson leikur
í Everest Baltasars
Skáldsaga Hallgríms Helgasonar,
Konan við 1000°, hefur verið gefin út á
sjö erlendum tungumálum og er vænt-
anleg á þremur til viðbótar. Í fyrra kom
hún út á frönsku, spænsku og pólsku.
Bókin var valin ein af tíu bestu erlendu
skáldsögum ársins 2013 af frönskum
bóksölum og í lok nóvember sl. hlaut
Hallgrímur Prix Millepages, verðlaun
bókabúðarinnar Millepages í París,
fyrir bestu erlendu skáld-
sögu haustvertíðar-
innar. Á Spáni hefur
bókinni einnig verið vel
tekið og var hún valin
besta þýdda skáld-
sagan af þeim sem
komu út í fyrra, af
bókmenntasíð-
unni todoliterat-
ura.es.
Verðlaun í Frakk-
landi og best á Spáni
Á miðvikudag og fimmtudag Norðaustan 10-15 m/s og snjó-
koma eða él norðan- og austanlands, en heldur hægari og úrkomu-
lítið sunnan- og suðvestanlands. Hiti um eða undir frostmarki.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan- og norðanátt, víða 3-10 m/s en
8-15 vestantil. Gengur í norðaustan 13-20 seint í dag, hvassast
með suðurströndinni. Hiti kringum frostmark.
VEÐUR
FH, Haukar og ÍR eru kom-
in í undanúrslitin í bikar-
keppni karla í handknatt-
leik ásamt Aftureldingu.
FH þurfti framlengingu til
að knýja fram sigur gegn
Akureyringum og Haukar
voru lengst af undir gegn
Val en tryggðu sér sigurinn
undir lokin. Bikarmeist-
ararnir úr ÍR gerðu góða
ferð austur á Selfoss og
sigruðu þar lið heima-
manna. »2-3
FH, Haukar og ÍR
í undanúrslitin
Sveinn Aron Sveinsson var hættur í
handbolta og farinn að spila fótbolta
með Reyni í Sandgerði þegar Ólafur
Stefánsson taldi hann á að byrja að
æfa á ný með Valsmönnum. Sveinn
hefur skorað 19 mörk í síðustu tveim-
ur leikjum Vals og er leikmaður 13.
umferðar hjá Morgunblaðinu. „Það er
hrein skemmtun að
spila undir stjórn
Óla,“ segir
Sveinn Aron. »
2-3
Hrein skemmtun að
spila undir stjórn Óla
Nýliðar Hauka í Dominos-deild karla í
körfuknattleik juku í gærkvöldi
möguleika sína á því að komast í úr-
slitakeppnina til mikilla muna. Hauk-
ar fengu þá bikarmeistara Stjörn-
unnar í heimsókn á Ásvelli í
Hafnarfirði og höfðu betur, 76:67,
eftir jafnan leik. Garðbæingar réðu
lítið við Terrence Watson sem skoraði
29 stig fyrir Hauka. »4
Haukar styrktu stöðu
sína til mikilla muna
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Mér finnst ástæðulaust að draga
sig í hlé þótt árunum fjölgi. Það er
alltaf mikið að gera hjá mér,“ segir
Sigurður Hallmarsson á Húsavík.
Þessa dagana er í safnahúsinu þar í
bæ uppi sýning þar sem Sigurður
sýnir 51 vatnslitamynd. Slíkt væri ef
til vill ekki í verulegar frásögur fær-
andi nema hvað Sigurður er orðinn
84 ára og er enn á fullu í myndlist-
inni og margvíslegu starfi öðru.
Vatnslitir, penslar og blöð
Meðal verkefna Sigurðar í dag eru
að hann stjórnar 40 manna kór eldri
borgara í bænum. Þá var hann fyrr á
tíð máttarstólpi í leiklistarlífinu á
Húsavík sem jafnan hefur verið öfl-
ugt og hluti af bæjarbragnum þar.
Má þess geta að Sigurður er faðir
Hallmars, sem lengi hefur verið einn
af þekktari leikurum þjóðarinnar og
jafnframt kunnur útvarpsmaður.
„Birtan í landslaginu hefur alltaf
heillað mig. Vorið; maí og fyrstu vik-
urnar í júnímánuði eru alveg ein-
stakir tímar að því leyti að þá er
birtan svo skær og tær. Ég hef oft
farið eitthvað út í náttúruna á þess-
um tíma árs með vatnsliti, pensla og
blöð. Er reyndar orðinn latari við
það nú en áður, því árunum fylgir að
ég þoli orðið heldur minna en áður
var. Ég ólst upp á Bakkanum í suð-
urbænum hér á Húsavík og þaðan
sést vel yfir Skjálfandaflóa til Kinn-
arfjalla. Þau eru svipsterk og mynd-
irnar af þeim sem ég hef málað eru
ótalmargar,“ segir Sigurður sem í
áraraðir var skólastjóri barnaskól-
ans í bænum. Myndlistin og annað
listastarf var alltaf aukageta og tóm-
stundastarf.
„Myndefnin hef ég gjarnan sótt í
nágrenni mitt hér í Þingeyjar-
sýslum. Ég hef málað býsna margar
myndir til dæmis héðan frá Húsavík,
úr Kinninni, frá Laxá og úr Aðal-
dalshrauni. Þessa dagana er ég með
á borðinu Raufarhafnarmynd sem
vinur minn bað mig um að mála fyrir
sig. Svo hefur mér líka fundist gam-
an að teikna upp sjómennina hér á
Húsavík. Karlana sem róa út á
Skjálfandann og eiga afdrep sitt í
verbúðunum hér undir Bakkanum
eins sagt er hér í bæ,“ segir Sig-
urður sem hefur einbeitt sér að
vatnslitamyndum.
Vatnslitirnir einfaldari
Hann segir slíkt einfaldara í snið-
um en olíulitina sem í raun krefjist
þess að menn komi sér upp pláss-
frekri aðstöðu. Hún sé ekki til staðar
í þjónustuíbúðinni á Hvammi á
Húsavík þar sem þau Herdís Birg-
isdóttir, eiginkona Sigurðar, búa.
Birtan í landinu alltaf heillandi
Sigurður Hallmarsson með 51 mynd
á sýningu á Húsavík og orðinn 84 ára
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Vatnslitir Kinnarfjöllin handan Skjálfandaflóa hafa ýmis svipbrigði eftir því hvernig viðrar og birtan er. Fjöllin blasa við frá Húsavík og þau eru gjarnan
myndefni Sigurðar Hallmarssonar. „Myndefnin hef ég gjarnan sótt í nágrenni mitt hér í Þingeyjarsýslum,“ segir þetta listaskáld litanna.
Um dagana hafa hlutverk leik-
arans Sigurðar Hallmarssonar
verið býsna mörg. Húsvíkingar
minnast hans meðal annars sem
Tevje mjólkurpósts úr söng-
leiknum fræga um Fiðlarann á
þakinu. Þá brá hann sér í gervi
ekki minni kappa en Snorra
Sturlusonar í heimildarmynd um
Reykhyltinginn fræga sem Þrá-
inn Bertelsson leikstjóri gerði og
sýnd var í Sjónvarpinu upp úr
1980. Einnig var hann í auka-
hlutverki sem kaupfélagsstjóri á
kvennafari í annarri mynd Þrá-
ins, það er Nýju lífi, sem sýnd var
um líkt leyti.
Frægur
mjólkurpóstur
OFT Á LEIKSVIÐINU