Morgunblaðið - 24.02.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.02.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014 Viðbrögð við ákvörðun stjórnar-flokkanna að draga umsókn um aðild að ESB til baka hafa í senn ver- ið fyrirsjáanleg og furðuleg. Fyrir- sjáanlegt var að ýmsir yrðu óánægð- ir með niðurstöðuna, enda hjartans mál þeirra að koma Íslandi inn í ESB. Og í tilfelli Samfylking- arinnar, eina málið.    Furðulegt varhins vegar að fylgjast með vanstill- ingu ýmissa sem væntanlega vilja láta taka sig alvarlega.    Össur Skarphéð-insson reynir að tryggja sér forystuhlutverk van- stilltra þegar hann segir það „stappa nærri pólitísku hermdarverki“ að hætta við umsókn að Evrópusam- bandinu. Svona tal er ekki boðlegt fyrir þingmann, hvað þá fyrrverandi utanríkisráðherra, og mætti Össur að ósekju biðjast afsökunar á ofs- anum.    Fáeinir samflokksmenn formannsSjálfstæðisflokksins hafa einn- ig gengið allt of langt og hefðu mátt telja upp að tíu áður en þeir blésu út. Formaðurinn hefur sýnt þessum litla minnihluta í flokknum mjög mikinn skilning, en minnihlutinn verður að sætta sig við að formaðurinn fylgi skýrum landsfundarsamþykktum sem hafa ótvíræðan stuðning.    Svo eru það hæfilega trúverðugirhugsjónamenn eins og flokka- flakkarinn Guðmundur Steingríms- son sem segir það „ótrúlegt ofríki og þröngsýni“ að vilja ekki ganga áfram leiðina inn í ESB.    Hvernig á að taka menn alvar-lega sem tala með þessum hætti? Össur Skarphéðinsson Fyrirsjáanleg furðuviðbrögð STAKSTEINAR Guðmundur Steingrímsson Veður víða um heim 23.2., kl. 18.00 Reykjavík 2 skýjað Bolungarvík -3 skafrenningur Akureyri 0 alskýjað Nuuk -15 léttskýjað Þórshöfn 6 skýjað Ósló 2 súld Kaupmannahöfn 5 heiðskírt Stokkhólmur 6 heiðskírt Helsinki 2 skýjað Lúxemborg 7 skýjað Brussel 12 léttskýjað Dublin 10 skýjað Glasgow 10 alskýjað London 12 skýjað París 11 léttskýjað Amsterdam 12 léttskýjað Hamborg 8 heiðskírt Berlín 10 heiðskírt Vín 11 léttskýjað Moskva 0 slydda Algarve 17 léttskýjað Madríd 15 heiðskírt Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 15 léttskýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 12 skýjað Winnipeg -17 skafrenningur Montreal -1 léttskýjað New York 9 heiðskírt Chicago -6 skýjað Orlando 22 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:53 18:30 ÍSAFJÖRÐUR 9:05 18:28 SIGLUFJÖRÐUR 8:48 18:11 DJÚPIVOGUR 8:24 17:58 Opið alla virka daga 08:00-17:00 Sendum um allt land -VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is HLJÓÐ- VARNARGLER Er hávaðinn að trufla? Hafið samband við sölumenn okkar ÍSPAN, SMIÐJUVEGUR 7, S. 54-54-300 Ispan.is Héraðsdómur Suðurlands úrskurð- aði um helgina mann á þrítugsaldri í gæsluvarðhald til 5. mars næstkom- andi. Sá er grunaður um íkveikju í íbúð í tvíbýlishúsi við Birkivelli á Sel- fossi aðfaranótt laugardags. Miklar skemmdir, af völdum elds, sóts og vatns, urðu á íbúðinni þar sem eld- urinn logaði. Hún er á neðri hæð hússins. Íbúðin var mannlaus, en fólk á efri hæð, sem varð eldsins vart og hringdi á slökkvilið, sakaði ekki og raunar hóf einn þeirra slökkvi- starf með garðslöngunni áður en slökkvilið bar að. Þykir það hafa bjargað talsverðu, því ella hefði hugsanlega enn verr farið. Að sögn Ólafs Helga Kjartansson- ar, sýslumanns á Selfossi, bentu verksummerki fljótt til íkveikju. Vinna rannsóknarlögreglu, meðal annars manna úr tæknideild lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, renndi stoðum undir þann grun. Fór svo í framhaldinu að maður sem þekkti íbúa var handtekinn, færður til yf- irheyrslu og í gæsluvarðhald í kjöl- far niðurstöðu dómara. Að sögn sýslumannsins er rann- sókn málsins komin á góðan rekspöl. Þó sé eftir að vefa saman nokkra þræði svo heildarmyndin verði skýr. sbs@mbl.is Meintur brennumaður í haldi Ljósmynd/Guðmundur Karl Eldsvoði Lögreglumaður við rann- sókn á vettvangi á Selfossi.  Eldsvoði í íbúð við Birkivelli á Selfossi aðfaranótt laugar- dags  Miklar skemmdir  Grunur er um íkveikju Jóhann Skúlason á hestinum Hnokka frá Fellskoti vann í töltkeppninni á mótinu World Tölt sem haldið var um helgina í Óðinsvéum í Danmörku. Hann hlaut 9,16 í einkunn sem var meira en einum heilum hærra en næsti keppandi fékk. Unn Krogen og Hrafndynur frá Hákoti lentu í 2. sæti með 8,00 í einkunn. Þetta var í 5. sinn sem Jóhann á Hnokka sigraði í töltinu á þessu móti. Síðustu árin hefur Jóhann verið sigursæll í hestamennsku. Sigraði í tölti í sjötta sinn á heimsmeistara- móti íslenska hestsins sem fram fór í Berlín í sumar og var þá einnig á Hnokka frá Fellskoti. Þá varð hann einnig heimsmeistari í fjórða sinn í sameiginlegum fjórgangsgreinum og endaði í þriðja sæti í fjórgangi. Er þá fátt eitt nefnt af sætum sigrum Jó- hanns. Sigraði í tölt- keppninni í fimmta sinn Tölt Jóhann Skúlason á Hnokka hef- ur unnið til margra verðlauna. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.