Morgunblaðið - 24.02.2014, Side 10

Morgunblaðið - 24.02.2014, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014 Svanhildur Eiríksdóttir svanhildur.eiriksdottir@reykjanesbaer.is Óformleg könnun meðalkennara afburðanemenda íReykjanesbæ gaf til kynnaað fá ungmenni lesi sér til yndis og ánægju. Þessi vitnisburður er reyndar ekki nýr af nálinni og nægir að vísa í niðurstöður PISA- rannsóknarinnar sem gáfu til kynna að lesskilningi fer hrakandi. Um 30% drengja og 14% stúlkna sem rann- sóknin náði til lesa sér ekki til gagns. Á grundvelli þessara vísbendinga var lestrarkeppni hleypt af stokkunum fyrir börn á aldrinum 6 til 18 ára, í því skyni að auka yndislestur. Hafþór Birgisson, tómstunda- fulltrúi Reykjanesbæjar, sagði í sam- tali við blaðamann að Samtaka- hópurinn í Reykjanesbæ sem hann er fulltrúi í hafi rætt minnkandi lestur og hrakandi lesskilning ungs fólks og leiðir til þess að auka yndislestur og auka heimsóknir á almennings- bókasafnið. „Við ákváðum því að fara af stað með lestrarkeppni fyrir börn þar sem til mikils væri að vinna. For- eldrar þurfa að staðfesta að ung- mennið hafi lesið á þar til gerð stað- festingarblöð og dregið verður um veglega vinninga í lokin.“ Keppnin sem stendur til 11. apríl verður hýst á Bókasafni Reykjanesbæjar, þar sem þátttakendur þurfa að taka bæk- urnar að láni, fá þátttökustaðfesting- arblöð og skila þeim eftir lestur hverrar bókar með undirskrift for- eldris eða forráðamanns. „Við mun- um líka verðlauna þann skóla sem á flesta nemendur í þátttökuhópnum, með borðtennisborði eða öðru leik- tæki sem skólann vanhagar um, en við tökum þó skýrt fram að það má ekki lesa skólabækur í þessari lestr- arkeppni.“ Af öðrum vinningum má nefna fjölskyldukort í Bláa lónið, sem gildir í ár, árskort í Sambíóin, reiðhjól og bókagjafir. Lestrarfyrirmyndir Hjá Lionshreyfingunni stendur nú yfir alþjóðlegt baráttuverkefni gegn ólæsi í heiminum. Í því skyni var undirritaður samningur við Sam- einuðu þjóðirnar þess efnis að standa við þúsaldarmarkmið samtakanna sem m.a. kveða á um að tryggja að öll börn njóti gunnskólamenntunar. Lestrarátak Lions mun ná yfir ára- tug, það hófst 2012 og því lýkur 2022 og er markmið hreyfingarinnar að eiga samstarf við hina ýmsu hópa og stofnanir í samfélaginu, m.a. í því skyni að auka bókakost og aðgengi að bókum. Til þess að ræða lestrarvanda barna og úrræði var efnt til málþings í Norræna húsinu 20. febrúar sl. þar sem framsögumenn komu úr mörg- um ólíkum áttum með ólík sjónarhorn á vandann og úrræðin. Eitt af því var mikilvægi foreldra og forráðamanna sem fyrirmynda barnanna og einmitt þess vegna vill Samtaka-hópurinn í Reykjanesbæ að foreldrar taki virk- an þátt í lestrarkeppninni. Þorgrímur Þráinsson rithöfund- ur vakti máls á því í lesendagrein hér Að finna bók sem er lykill að lestraráhuga Lestrarvandi ungs fólk hefur mikið verið í umræðunni að undanförnu, ekki síst eftir að niðurstöður PISA-rannsóknarinnar litu dagsins ljós undir lok síðasta árs og því er brýnt að spyrna við fótum. Með það að leiðarljósi var lestrarkeppni ýtt úr vör í Reykjanesbæ sl. fimmtudag. Á sama tíma hélt Lionshreyfingin málþing í Norræna húsinu undir yfirskriftinni Börn í hættu: Lestrarvandi. Rithöfundur les Ragnheiður Gestsdóttir segir upplestur fyrir börn í skólanum skemmtilegan og að aðgangur barna að bókum sé mikilvægur. Þar skipti bókasöfn miklu máli en best að geta líka gripið í bók heimafyrir. Gaman Við upphaf lestrarkeppninnar, f.v. Stefanía Gunnarsdóttir, for- stöðumaður Bókasafnsins, Árni Sigfússon bæjarstjóri, Sóley Þrastardóttir, formaður ungmennaráðs, og Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri. Bloggið hennar Bergþóru Gísladóttur er skemmtilegt. Hún skrifar um allt milli himins og jarðar en undanfarið hefur hún verið mjög dugleg að blogga um bækur sem hún les, enda lestur góðra bóka eitt af hennar áhugamálum og hún meðlimur í bókaklúbbi. Nýjustu færslur eru um bók Þórunnar Erlu- og Valdimars- dóttur, Stúlka með maga, sem hlaut Fjöruverðlaunin á dögunum, en Berg- þóru fannst hún vera eins og teppi ofið úr garni af ólíkum toga. Einnig hafði Bergþóra nýlega lesið bók Guð- mundar Andra, Sæmd, enda er hún heilluð af nítjándu öldinni. Bergþóra er fædd á Hlíðarenda í Breiðdal í Suð- ur-Múlasýslu og segir sjálf þar sem hún kynnir sig að hún hafi fengið al- menna sveitamenntun til munns og handa og mikla verkþjálfun. En fyrst og fremst hefur hún starfað að skóla- málum hjá borg og ríki. Vefsíðan www.bergthoraga.blog.is Morgunblaðið/Styrmir Kári Bóklestur Bækur geta sannarlega stækkað heiminn, þær göfga og skemmta. Bergþóra bloggar um bækur Flestir kannast við hvernig blessaðir sólargeislarnir geta afhjúpað rykið sem sest hefur vetrarlangt heima hjá okkur. Þetta vill jú safnast upp og vera lítt sýnilegt á ólíklegustu stöðum í vetrarmyrkrinu, en þegar geislar sunnu skína þá blasir þetta við og sumir taka snöggt viðbragð og grípa tusku og fara um eins og stormsveipur. Þó að nokk- uð sé eftir af vetrinum og mars rétt að byrja um næstu helgi, þá minnir það svolítið á vorkomuna að sjá rykið sem sólin lýsir upp og um að gera að taka svolítið forskot á vorhreingerningar og strjúka og þrífa þar sem þarf heima hjá okkur. Bætir, hressir, kætir. Endilega … … þrífið rykið sem sólin sýnir Morgunblaðið/Eggert Hreingerningar Glugga þarf að þrífa. Á sýningunni Einkaútgáfur, örforlög og annarskonar miðlun frá 1977 til samtímans, sem nú stendur yfir í Þjóðarbókhlöðu, er úrval einstakra verka á ýmsum miðlum frá síðustu áratugum. Verkin eiga það flest sam- merkt að vera framleidd af hug- kvæmni og á ódýran og hagkvæman máta og oft er hvert eintak handgert af höfundum og útgefendum, allt frá fjölritunum til stafrænnar prentunar og rafrænnar útgáfu til umslaga geisladiska, snælda, EP-platna, plak- ata, VHS-spóla, DVD-diska o.fl. Sýningunni er ætlað að vekja at- hygli örforlaga og einyrkja í útgáfu á að það skipti máli að koma eintaki eða eintökum til safnsins, sérstak- lega ef gefið er út í litlu upplagi sem hverfur fljótt, en skylduskilalög hafa breyst tvisvar á síðustu 40 árum með breyttri tækni og miðlun í útgáfu. Haft var samband við frumkvöðla í gerð hljómplatna, snælda, mynd- banda, stafrænnar prentunar og fjöl- ritunar við gerð sýningarinnar. Sýningin er sérlega skemmtileg og stendur fram í byrjun mars. Snældur, EP-plötur, plaköt og fleira Einkaútgáfur og örforlög Morgunblaðið/Styrmir Kári Útgáfa Getur verið margskonar. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is Vöruhúsatæki Linde býður upp á fjölmargar gerðir af vöruhúsatækjum. Örugg og góð þjónusta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.