Morgunblaðið - 24.02.2014, Blaðsíða 12
VIÐTAL
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Eygló Harðardóttir, félags- og hús-
næðismálaráðherra, segir skorta á
heildarsýn í málefnum barna og
ungmenna á Íslandi sem glíma við
fjölþætt vandamál, s.s. geðraskanir
og fíkniefnavanda. Hún segir þjón-
ustuna við börnin og fjölskyldur
þeirra fyrst og fremst á höndum
sveitarfélaganna en vinna sé að hefj-
ast við endurskoðun kerfisins á veg-
um ráðuneytisins. Hún segir margt
undir í þeirri vinnu og vill m.a.
kanna hvort skynsamlegt sé að
hætta að flokka skjólstæðinga þjón-
ustunnar niður í afmörkuð box, eins
og hún orðar það.
Eygló segir flækjustig kerfisins
allt of mikið en málefni ungmenna
sem eiga við margþætt vandamál að
stríða séu m.a. á verkefnasviði fjög-
urra ráðherra; ráðherra félagsmála,
heilbrigðismála, menntamála og
dóms- og fangelsismála. „Þetta er á
höndum alltof margra,“ segir hún.
„Þetta eru fjögur ráðuneyti, sveit-
arfélögin, ýmis frjáls félagasamtök.
Það eru allir að reyna að gera sitt
besta en það skortir þessa heildar-
sýn. Það skortir á stefnumörkun frá
stjórnvöldum,“ segir ráðherra.
Viðvarandi vandamál
Eygló segir að eitt af því sem
horft verður til við endurskipulagn-
ingu kerfisins sé flutningur málefna
fatlaðra til sveitarfélaganna en
nefnd um samhæfða þjónustu við
börn með alvarlegar geð- og þroska-
raskanir hefur mælt með því að
þjónustan við þessi börn verði felld
undir þjónustukerfi fatlaðra. „Það
sem nefndin er m.a. að benda á er að
þú ert með ákveðinn hóp af börnum
og ungmennum sem eiga við mjög
fjölþættan vanda að stríða og þetta
snýst ekki um slæma meðferð á
börnunum innan heimilisins. Oft eru
þetta súperforeldrar sem standa að
þessum börnum; foreldrar sem eru
búnir að gera allt sem þeir mögu-
lega geta fyrir börnin sín en börnin
eiga bara við það mikla erfiðleika að
stríða að þau þurfa meiri aðstoð; þau
þurfa meiri hjálp. Þetta er ekki bara
eitthvað sem þau læknast af, þetta
er ekki bara eitthvað sem hverfur
þegar einstaklingur verður 18 ára.
Þetta er varanlegt ástand. Það er
hægt að hjálpa börnunum, þau geta
lifað með þessu og það er hægt að
meðhöndla þetta að ákveðnu leyti en
þetta er í raun fötlun, eins og nefnd-
in kemst að raun um,“ segir hún.
Eygló segir umræðuna um kerfið
oft snúa að vanda þeirra ungmenna
sem eru í fíkniefnaneyslu en hún
geti bæði verið orsök og afleiðing
annarra vandamála, s.s. geðraskana,
félagslegra vandmála, brotinna
heimila eða erfiðleika í skóla, s.s.
eineltis. „Þetta eru allt vandamál
sem við erum að fást við í barna-
verndarkerfinu og þetta eru við-
kvæmustu skjólstæðingarnir. Við
þurfum að ná utan um þetta og það
er mín tilfinning sem ráðherra að
við erum ekki að gera það,“ segir
hún.
Passa ekki í eitt box
Börn og ungmenni sem glíma við
geðræn vandamál og hafa leiðst út í
fíkniefnaneyslu eru þó án ef einna
verst setti hópurinn í kerfinu en líkt
og fram hefur komið í Morgun-
blaðinu undanfarnar vikur koma
fjölskyldur þessara barna oftar en
ekki að hálflokuðum dyrum, þar sem
þær fá hvergi lausn sinna mála á
einum og sama staðnum. Eygló seg-
ir þetta vissulega eitt af þeim vanda-
málum sem taka þarf til skoðunar.
„Ég held að við þurfum að horfa
til þessa og þetta er það sem ég vil
fá að heyra frá sérfræðingum og
þeim sem vinna með þessum börn-
um, þ.e. svör um hvort rétt sé að
hætta að flokka börn inn í þessi
box,“ segir hún. Vandinn sé sá að
aðstoð vegna geðrænna vandamála
sé að finna á einum stað og aðstoð
vegna fíkniefnaneyslu á öðrum. „En
svo ertu með ungmenni sem eiga við
bæði vandamál að stríða og eigum
við þá að segja nei, við ætlum ekki
að hjálpa þér af því að þú ert í þess-
ari stöðu? Þetta er miklu flóknara
en þetta; þú getur ekki bara sett
barnið í ákveðið box,“ segir hún.
Eygló segir ljóst að það sé í
verkahring sveitarfélaganna að
veita þá þjónustu sem þessir ein-
staklingar þurfa á að halda en það
sé ríkisins að styðja þau í sinni
vinnu. Hún segir að m.a. þurfi að
tryggja að starfssvæðin séu nægi-
lega stór. „Ég er búin að sitja mál-
þing núna þar sem menn hafa verið
að fara yfir reynsluna í yfirfærslu
málefna fatlaðs fólks og að sjálf-
sögðu hefur ekki allt gengið vel en
maður sér það að sveitarfélögin eru
að eflast. Þau eru að verða sterkari
og það er gríðarlegur áhugi á því að
veita góða þjónustu. Og ég held að
það sé meira hlutverk ríkisins að
styðja við þá löngun, styðja við þann
metnað eins og hægt er,“ segir hún.
Fleiri meðferðarheimili?
Velferðarráðuneytið hefur falið
Barnaverndarstofu að gera þriggja
ára þjónustusamning við meðferð-
arheimilið Háholt í Skagafirði, þar
sem ungir afbrotamenn verða m.a.
vistaðir. Í umsögnum ýmissa barna-
verndarnefnda sveitarfélaganna um
Háholt kemur m.a. fram gagnrýni á
fjarlægðina við úrræðið en Barna-
verndarstofa hefur kallað eftir því
að komið verði á laggirnar stofnun á
höfuðborgarsvæðinu fyrir ungmenni
sem glíma við alvarlegan vímuefna-
vanda eða hafa verið dæmd til fang-
elsisvistar.
Eygló segir ljóst að styrkja þurfi
starfsemi Stuðla en þrátt fyrir að
ungmennin séu flest af höfuðborg-
arsvæðinu þurfi úrræðin að vera til
staðar víðar. „Það er þannig að það
er í raun bara eitt sveitarfélag sem
rekur meðferðarheimili og það er
Reykjavíkurborg. Önnur hafa ekki
verið að gera það og það er eitt af
því sem ég tel að við þurfum að
leggjast vel yfir í þessari vinnu; telj-
um við að með því að stækka upp-
tökusvæðin hjá sveitarfélögunum þá
geti þau með einhverjum hætti borið
ábyrgð á rekstri svona úrræða frek-
ar en að það sé ríkið sem heldur ut-
an um þetta?“ segir ráðherrann.
Engin heildarsýn í
málefnum ungmenna
Morgunblaðið/Eggert
Samráð Eygló segir að í innanríkisráðuneytinu sé horft til þess að í fram-
tíðinni verði ungir afbrotamenn vistaðir í fangelsinu á Hólmsheiði.
Þjónustan tekin til gagngerrar endurskoðunar á næstunni
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
FRÁBÆR
TILBOÐ!
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
Gerðu mögnuð kaup!
Fjöldi bíla á staðnum!
MMC PAJERO INSTYLE
Nýskr. 05/07, ekinn 100 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 4.190.000
TILBOÐSVERÐ!
3.490 þús.
OPEL ANTARA COSMO
Nýskr. 06/09, ekinn 111 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 3.550.000
TILBOÐ kr. 2.990 þús.
LEXUS RX400h EXE
Nýskr. 09/07, ekinn 120 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 4.490.000
TILBOÐ kr. 3.690 þús.
BMW X5
Nýskr. 01/02, ekinn 220 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 1.890.000
TILBOÐ kr. 1.390 þús.
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 11/07, ekinn 88 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 4.090.000
TILBOÐ kr. 3.290 þús.
HYUNDAI SONATA GLS
Nýskr. 07/08, ekinn 93 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 1.990.000
TILBOÐ kr. 1.590 þús.
HYUNDAI i30 WAGON COMFORT
Nýskr. 06/11, ekinn 86 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 2.620.000
TILBOÐ kr. 2.290 þús.
Rnr. 270346
Rnr. 141932
Rnr. 130677
Rnr. 130657
Rnr. 280504
Rnr. 310010
Rnr. 191178
GÖNGUM FRÁ
FJÁRMÖGNUN Á
STAÐNUM
WWW.BÍLALAND.IS
„Það er alltaf hægt að gera betur, það er alltaf hægt að
setja meiri fjármuni inn í þessa málaflokka. En ég er
líka þeirrar skoðunar að við getum nýtt betur þá fjár-
muni sem eru til staðar í kerfinu,“ segir Eygló, spurð að
því hvort ekki þurfi að veita meiri fjármuni í úrræði fyrir
það fólk sem fær ekki aðstoð eins og málum er háttað.
Eygló bendir á að ríkisstjórnin hafi aukið fjárframlög til
málefna barna en hún segir að ljúka þurfi endurskoð-
unarvinnunni til að fá botn í það hvort peningunum
verði best varið í nýja stofnun eða framlög til sveitarfé-
laganna, svo dæmi séu tekin.
„Þetta er ekki bara spurning um að segja: við ætlum
að taka pening hérna og hérna. Hvað er það sem við
ætlum að ná fram með þessu? Hvernig nýtum við þá
fjármuni sem eru til staðar í kerfinu með sem bestum
hætti? Og það er það sem ég er að segja þegar ég gagn-
rýni að það sé ekki til staðar heildarstefna þegar kemur
að málum sem snúa að börnum og ungmennum. Það er
okkar verkefni hér í ráðuneytinu að tryggja að hún sé til
staðar. Og svo munum við sækja þá fjármuni sem þarf í
þetta í framhaldi af því, þegar fyrir liggur hvernig er
best að nýta þá fjármuni,“ segir Eygló.
Sækja fjármunina þegar niðurstaða liggur fyrir
VILL NÝTA BETUR PENINGANA Í KERFINU